Helgarblaðið - 13.03.1992, Blaðsíða 19
Helgar 19 blaðið
B-veisla á
skjánum
Iþróttadeild Sjónvarps-
ins hefur ákveðið að sýna
beint frá öllum leikjum
íslenska karlalandsliðsins
í handknattleik í B-
keppninni sem hefst í
Austurríki í næstu viku.
Fyrsti leikur íslenska
landsliðsins verður gegn
Hollendingum fimmtu-
daginn 19. mars og síðan
tekur við hver Ieikurinn
af öðrum en keppninni
lýkur sunnudaginn 29.
mars. Miklar vonir eru
bundnar við að íslenska
liðið nái alla leið í úr-
slitaleikinn í Vínarborg
og komist á ný í hóp
þeirra bestu.
Þorbergur Aðalsteins-
son landsliðsþjálfari mun
væntanlega tilkynna það
í dag, föstudag, hveijir
verða í liðinu. Fari svo
að Sigurður Sveinsson
sjái sér fært að vera með
mun það styrkja liðið til
muna.
Sigurbur Sveinsson
Helgarblaðið á toppnum
í getraunakeppni fjöl-
miðlanna trónir Helgar-
blaðið á toppnum með
107 stig en í öðru sæti er
útvarpsstöðin Eff Emm
með 106 stig.
Ef að líkum lætur stefn-
ir í hörku keppni milli
þessara tveggja fjölmiðla
því aðrir keppinautar eru
nokkuð langt að baki. I
þriðja sæti er íslenska út-
varpsfélagið með 99 stig
en botnsætið vermir
Mogginn með aðeins 85
stig.
Þessi getraunakeppni er
dálitið frábrugðin því sem
gerist og gengur í tippinu
því Ijölmiðlamar hafa að-
eins einn valmöguleika
fýrir hvem leik og sömu-
leiðis tippa þeir nokkuð
ffam í tímann. Bestum ár-
angri i einni leikviku náði
Aðalstöðin íyrr í vetur
þegar tippari hennar fékk
12 rétta. Hins vegar hefur
Dagur á Akureyri þann
vafasama heiður að vera
sá fjölmiðill sem minnst
hefur borið úr býtum í
einni leikviku og það var
þegar tippari blaðsins
fékk aðeins einn réttan.
Það er þó skömminni
skárra en það sem sást í
fyrra en þá kom það fýrir
oftar en einu sinni að fjöl-
miðlar vom ekki með
einn einasta leik réttan og
fengu núll stig.
En hlutimir geta breyst
fljótt í þessari keppni og
því of snemmt að bóka
sigur. Engu að síður er ár-
angurinn viðunandi til
þessa.
Sparkinu
líktvið
trúarbrögð
Óvíða er áhugi á knattspyrnu meiri en á
Ítalíu og ekki að undra þótt íþróttinni
sé þar stundum líkt við trúarbrögð.
Þessir kappar, Ruud Gullit og Lothar Mattheus í peysum númer 10 hafa marga
hildi háb innbyrbis, bæbi meo sinum félagslibum og landslibum. Sá hárprúbi stefnir
hrabbyri ab italska meistaratitlinum á meban sá þýski má muna sinn fífil fegri meb
Inter Milan.
Eftir að leiknar hafa verið
24 umferðir í ítölsku 1.
deildinni trónir AC Milan
enn á toppi deildarinnar með
40 stig en fast á hæla þess
kemur Juventus með 36 stig.
Meistaramir frá því í fyrra,
Sampdoria, em hins vegar í
sjötta sæti. Þeir byrjuðu
keppnistímabilið heldur illa
en hafa sótt í sig veðrið að
undanfömu. Aftur á móti
virðist sem gengi Inter Mil-
an fari minnkandi þrátt fyrir
aðmSfflur Rú
Heiðarsson
allan stjömufansinn. Marka-
hæstur í deildinni er Hol-
lendingurinn Marco van
Basten, leikmaður með AC
Milan, sem hefur skorað 20
mörk. Næstir með 12 mörk
em þeir Baggio frá Juventus
og Careca frá Napolí. Að
öllum líkindum munu efstu
Iiðin, Milan og Juventus,
sigra í sínum leikjum um
þessa helgi en þá mæta þau
bæði liðum í neðri hluta
deildarinnar, Bari og
Cremonese.
Um hverja helgi lætur
nærri að um hálf miljón
manna sæki leiki í ítölsku
knattspymunni sem þýðir að
allt að 250 miljónir ícróna
séu greiddar í aðgangseyri.
Sé sú upphæð framreiknuð
yfir allt tímabilið er ekki úr
vegi að áætla að ítalskir
knattspymuáhugamenn
greiði tæplega níu miljarða
króna fýrir það eitt að fá að
horfa á átrúnaðargoðin
spreyta sig. Þar fýrir utan fá
félögin og leikmenn ómæld-
ar tekjur af auglýsingum og
sjónvarpsrétti. Það er því
ekki að undra þótt 1. deildar
félögin á Italíu séu loðin um
lófana og geti nánast yfir-
boðið öll önnur félög á meg-
inlandinu og víðar þegar
kaupa á Ieikmann. Enda eru
þar samankomnir dýrastu og
frægustu knattspymumenn
heimsins. Nægir í því sam-
bandi að nefna Roberto
Baggio, leikmann hjá Ju-
ventus, hollenska tríóið
Gullit, van Basten og Rijka-
ard hjá AC Milan, Þjóðverj-
ana Brehme, Klinsmann og
Mattheus hjá Inter. Fyrir
utan evrópska knattspymu-
menn spila þar þó nokkrir
leikmenn frá S-Ameriku og
sá frægasti af þeim til
skamms tíma var sjálfur Di-
ego Maradonna sem kom
þangað frá Spáni. Aðeins
einn Islendingur hefur verið
atvinnumaður í ítalska bolt-
anum og það var Albert
Guðmundsson sem lék á
sínum tíma með AC Milan.
Mikib álag
Víðast hvar annars staðar
en á Italíu fá leikmenn laun-
in sín greidd inn á banka-
reikninga. Hins vegar er sá
háttur hafður á meðal
ítalskra félagsliða að leik-
menn þurfa að bera sig eftir
björginni með því að sækja
Iaunin sín á skrifstofuna. Þar
hefur í gegnum tíðina tíðk-
ast sá siður að greiða leik-
mönnum launin beint yfir
borðið í beinhörðum pening-
um. Það eru því engar smá
peningaupphæðir sem réttar
eru yfir borðið þegar í hlut
eiga tekjuháir leikmenn.
Þessi háttur mun vera hafður
á til að leikmenn verði með-
vitaðri en ella um mikilvægi
þess að gera ávallt sitt besta
og vel það. Að öðra leyti
hefur þetta íýrirkomulag
verið talið til marks um
mannlega þáttinn í ítalska
boltanum.
Þrátt íýrir þennan mann-
lega þátt fer lítið íýrir hon-
um á sjálfum vellinum og í
samskiptum leikmanna og
forráðamanna liðanna að
öðru leyti. Fyrram leikmenn
í 1. deildinni ítölsku hafa
gagnrýnt það álag sem er á
leikmönnum og segja að það
sé svo mikið að menn hugsi
fyrst og fremst um að spila
fyrir atvinnurekandann á
kostnað leikgleðinnar.
En hvað sem þessu líður
er það engin spuming að
fótboltinn sem lcikinn er í
ítölsku 1. deildinni er með
því besta sem íþróttin hefur
upp á að bjóða.
Opnunarleikurinn í
Tvö nýmæli munu væntan-
lega setja svip sinn á knatt-
spyrnuvertíðina í sumar. Bik-
arkeppni KSÍ hefst á undan
sjálfu íslandsmeistaramótinu
og á afmælisdag Reykjavíkur,
þann 18. ágúst, rætist draumur
margra þegar kveikt verður á
flóðljósum á Laugardalsvelii.
Það verða hins vegar erkiíjend-
umir og stórliðin KR og ÍA sem
leika opnunarleikinn á Islands-
mótinu í knattspyrnu 1992 og
verður leikið á heimavelli þeirra
fyrmefndu í Frostaskjólinu, laug-
ardaginn 23. maí næstkomandi.
Gengið hefur verið frá endan-
legri niðurröðun leikja fyrir kom-
andi íslandsmeistaramót í 1. og
2. deild. Að þessu sinni hefst ver-
tíðin þó ekki á sjálfu íslandsmót-
inu Jtví 1. umferðin í bikarkeppni
KSI byrjar þann 20. maí næst-
komandi með þátttöku liða í 2.,
3. og 4. deild.
Snorri Finnlaugsson fram-
kvæmdastjóri KSÍ segir að þetta
fyrirkomulag hafi verið ákveðið
vegna óska liða sem spila í 2.
deild. Að mati forráðamanna
þeirra þykir betra að heíja bikar-
keppnina fýrr en áður til að létta
aðeins á álaginu á þeim þegar
líða tekur á keppnistímabilið.
Samkeppni um
áhorfendur
Þá má gera ráð fyrir því að
Evrópukeppni landsliða, sem
fram fer í Svíþjóð 10.-26. júní
næstkomandi, setji mark sitt á
aðsóknina á knattspymuvellina í
sumar. Hins vegar verður gert hlé
á mótinu um verslunannanna-
helgina þannig að ekki er búist
við að ólympiuleikamir í Barcel-
ona verði til þess að letja fólk til
að fara á vellina í sumar. Fram-
kvæmdastjóri KSÍ segir að þessi
Frostaskjólinu
stórmót, og þá sérstaklega Evr-
ópukeppnin og heimsmeistara-
keppnin, setji ávallt strik í reikn-
inginn hvað aðsóknina varðar.
Fyrir utan stórleikinn í fyrstu
umferð 1. deildarinnar á milli KR
og ÍA, sækja Valsmenn Eyja-
menn heim og Þór frá Akureyri
mætir Fram fýrir norðan. Um-
ferðinni lýkur svo daginn eftir,
sunnudaginn 24. maí, þegar Vík-
ingar fá KA í heimsókn og FH-
ingar mæta Breiðabliki í Kapla-
krikanum. Atjánda og síðasta
umferðin í 1. deildinni verður svo
leikin laugardaginn 12. septem-
ber.
í 2. deild hefst keppni á sama
tíma og í 1. deild og verður þá
Ieikin heil umferð. Þá mætast
Fylkir og BÍ, Víðir og Selfoss,
Stjaman og Þróttur R., Grindavík
og IBK og Leiftur og IR.
Fyrstu deildar liðin hefja svo
þátttöku í bikarkeppninni í byrj-
Þa& verður án efa ekkert gefið eftir i keppninni um íslandsmeist-
aratitilinn i fótboltanum i sumar frekar en fyrri daginn. Myndin er
frá leik IBV og FH i Kaplakrikanum í upphafi mótsins i fyrra.
un júlí í sextán liða úrslitunum verður á dagskrá sunnudaginn
og sjálfur bikarúrslitaleikurinn 23. ágúst á Laugardalsvellinum.
Föstudagurinn 13. mars