Helgarblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 11

Helgarblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 11
Lítillætið hefur þjakað menn Akraneskaupstaður á 50 ára afrnæli í ár og verður afmælisdagskrá í gangi út árið. Um þessar mundir er hinsvegar sérstök 10 daga hátiðardagskni á fullu en henni lýkur um helgina. Gísli Gísla- son bæjarstjóri sagði í samtali við Helgarblaðið að hingað til hefði lítillæt- ið þjakað menn svolítið á Akranesi en að það stæði til að breyta því öllu sam- an á aftnælisárinu. Menn héldu að ekkert væri að sækja á Skagann, en það væri öðru nær. Atvinnuástandið á Akranesi hefur ekki verið of gott. Gísli sagði að það hefði verið svipað og annarsstaðar allt til ársins 1988 er fór að halla imdan fæti sérstaklega í ullar- og prjónaiðnaði. „Við tókum kreppuna út svolítið á undan öllum öðrurn," sagði Gísli. „Menn töpuðu takti og sjálfstrausti og töldu allt vera á niðurleið. Okkur hefur ef til vill ekki alveg tekist að snúa þessari hugsun við en okkur tókst að andæfa þannig að fólk er betur meðvitað um hvað hægt er að gera,“ bætti hann við. Gísli sagði að vissulega myndi kvótaskerðing bitna á Akumesingum sem öðmm. „Við munum verða í vöm líkt og önnur byggðalög," sagði hann. „Við höfúm bent á að hér séu kjöraðstæður fyrir iðnað, hér á staðnum og í nágrenni hans,“ sagði bæjarstjórinn og benti á að það væri að verða svo þétt byggð á höfúðborgarsvæðinu að menn fæm að huga að öðrum svæðum. Menn litu þá gjaman til Suðumesja en Gísli sagði að- stæður ekkert síðri á Akranesi enda góðar sam- göngur, raforka og fólk sem væri hæfileikum búið. íþróttir menning Mikil uppbygging átti sér stað á Akranesi uppúr 1977 með tilkomu Jámblendiverksmiðj- unnar. Þá varð nokkur fjölgun í bænum en síð- ustu þijú ár hefur dregið úr fólksfjölda en ekki alvarlega, sagði Gísli. Það búa tæplega 5.300 manns í þessum fótbolta- og fiskibæ. „Það er góð eining, sagði Gísli um stærð bæjarins. I atvinnumálum horfa Skagamenn nokkuð á ferðamannaþjónustuna að þessu sinni. Gísli sagði að þar væm vannýttir möguleikar sem Ak- umesingar hefðu látið framhjá sér fara síðastlið- in ár. „En nú höfum við byggt upp aðstöðu, ráð- stefnuaðstöðu auk þess sem hér eru íþrótta- mannvirki vel yfir landsmeðaltali. íþróttir hafa fVekar flokkast undir menningu hér en tómstund- ir,“ sagði Gísli. Hann sagði að vissulega bæri fótboltann og sundið hátt en hinsvegar væm aðr- ar greinar að sækja í sig veðrið svo sem golfið. Þá væri verið að stækka og byggja fótboltavelli, enda gerðu menn sér grein fyírir gildi íþrótta á Akranesi. 1 samgöngumálum sagði Gísli að menn yrðu að halda vöku sinni. Hvalfjarðagöng hefðu vissulega bæði kosti og galla en þegar lagt væri saman hefðu kostimir yfirhöndina. Hann sagði að hlutimir í því sambandi gerðust hinsvegar ekki af sjálfú sér og menn yrðu að róa sem fyrr. „Með betri samgöngum fæst betri aðgangur að mörkuðum í Reykjavík og það þarf að huga að þessu því þama liggur meginávinningurinn af bættum samgöngum," sagði Gísli. En hann benti líka á að sverðið væri tvíeggja, þvi ef farið yrði út í mannfrekan iðnað á staðnum þá opnuðu bættar samgöngur á það að fólk af höfuðborgar- svæðinu sækti vinnu sína til Akraness. Göng og Akraborg Göngin gætu leitt til þess að ferðir Akraborg- arinnar legðust af og taldi Gílsi að mikill sjónar- sviptir yrði að henni þótt hann byggist við að einhverskonar feijurekstur yrði alltaf á Akranesi. Þótt það yrði með minna sniði en nú. En hann benti líka á að feijurekst- ur ætti i vök að verjast þar eð til dæmis Akra- borgin stæði undir rekstrakostnaði en ekki fjármagnskostnaði. Það yrði líklega erfitt að sækja fé fyrir nýrri feiju á samdráttartímum, hélt Gísli. Hátióardagskrá vegna 50 ára afmælis Akraneskaupstaóar stendur nú sem hæst. A mánudaginn gengu þessir kátu krakkar fyiktu liái um bæinn. REYKJfclÍKURHÖFN Gísli Gísla- son, bæjar- stjóri Akra- ness, er bjartsýnn á framtiá- ina þrátt fyrir haust- ib í efna- hagslífinu. Myndir: Kristinn. - 'V'i En bjartsýnin ríkir þrátt fyrir allt og allt. „Til framtíðar horfa menn þrátt fyrir allt. Og þótt það sé haust í efnahags- lífinu þá em menn sann- færðir um að það muni vora og koma sumar í þetta hérað afiur - einsog annarsstaðar á landinu. En ég held að ég taki ekki of djúpt í árinni með því að segja að menn hér á Skaganum em bjartsýn- ir á að geta haldið úti áfram öflugu og sterku bæjarfélagi, þar sem bæði er veitt góð þjónusta og menn hafa nóg að bíta og brenna. Menn em bara bjartsýnir á ífamtíðina,“ sagði Gísli. G. Pétur Matthíasson m ar 75 ára afmæli býður höfnin og mörg svæðinu almenningi starfsemi og fyrirtæki á Sundahafnarsvæðiö, frá Húsasmiðju í suðri og 01 ís í vestri, verður fánum skreytt. Strætisvagnar aka um svæðið eftir sérstakri Sundahafnaráætlun allan daginn. Gestum gefst kostur á að skoða starfsemi skipafélaganna Eimskip og Samskip, sem verða með fjölbreytta dagskrá allan daginn. 01ís, Tollvömgeymslan og Kassagerðin munu sýna starfsemi sína og fóðurblöndufyrirtækin eru gestum opin. Smásöluverslanirá svæðinu verða opnar. I tilefni dagsins efnir Félag íslenskra stórkaupmanna til getraunaleiks og mörg heildsölufyrirtæki munu kynna starfsemi sína. %iww ött aidcc% d úðúi REYKJAVÍKURHÖFN HAFNARHÚSI TRYGGVAGÖTU 17 101 REYKJAVÍK SÍMI (91)28211 Helgar 1 1 blaðið Föstudagurinn 19. júní

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.