Helgarblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 13

Helgarblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 13
Helgar 13 blaðið Helena Guttorms- dóttir fluttist aft- ur ó Akranes fyrir þremur órum og hefur ókveftnar skoðanir Fólk hlýtur að efast um hlutina í dag Helena Guttormsdóttir er myndlistarmaður sem býr á gömlum bóndabæ, Innsta- Vogi, rétt fyrir utan Akranes en innan bæjarmarka þó. Htín heíur alveg ákveðnar skoðanir á lífinu, tilverunni og myndlistinni. Hún vill að fólk staldri við og hugsi sitt. „Það skiptir miklu máli að maður gefi sér tíma. Það er með fólk einsog tölvur, það er ekki hægt að prenta endalaust út ef ekkert er sett inn og í dag gefur fólk sér ekki tima til að setja inn,“ sagði Helena í samtali við Helgarblaðið en hún er borinn og bamfæddur Akur- nesingur. Helena er nokkurskonar vetrar- listakona þar eð hún hefúr síðastlið- in fimm sumur unnið í veiðihúsi í Vatnsdal. „Það hefur bjargað mál- unum,“ sagði hún, en langur vinnu- dagur í veiðihúsinu hefur gefið tekjur sem hafa gert henni kleift að vinna að list sinni á vetuma. Henni líkar ekkert illa að vinna á þennan hátt, henni líkar kyrrðin og friður- inn að vetri til. Hún vinnur mest- megnis heima við, uppi á lofti. Reyndar fékk hún í vetur inni í húsi sem var búið að selja eftir gjaldþrot fyrirtækis. Þar var hún að vinna að stóru málverki. Það er með Akra- nes einsog víðar á landinu, listin fær inni hjá gjaldþrota atvinnulífi. Hætti við piöntulíffræðina Helena ætlaði alltaf að verða plöntulíffræðingur en sagði að hún hefði gefist upp á andleysinu í Verkfræði- og raunvísindadeild Há- skóla íslands. Þá kenndi hún í eitt ár á Stokkseyri en þaðan lá leiðin aftur til Reykjavíkur þar sem hún útskrifaðist úr málaradcild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands árið 1989 eftir fjögurra ár nám. Einnig nam hún módelteikningu í Mynd- listaskóla Reykjavíkur. Hún iíuttist til Akraness aftur eftir að hafa búið í Reykjavík í sex ár og er nú búin að vera á staðnum í þrjú ár. Fyrsta árið á Akranesi bjó hún í einu elsta húsi bæjarins, Sýruparti. Þar var ekkert heitt vatn og aðstæð- ur eftir því. Þegar hún flutti úr hús- inu var það flutt á Byggðasafnið. Og mönnum fannst undarlegt að listamaðurinn skyldi hafa búið á þennan hátt. Helenu finnst lífvænlegra að búa rétt fyrir utan bæinn og sagði að væri maður fyrir utan þá neyddist maður til að finna sitt eigið lífs- gildi. Hún sagði að allsstaðar væri verið að finna gildi eða ímyndir fyrir fólk, það gerði það ekki sjálft. Þessvegna finnst henni nauðsynlegt að vera svolítið þrjósk og gefa sig ekki. Það gerir hún með því að reyna að standa fyrir utan og loka á nútímann að einhveiju leyti. Að minnsta kosti ekki að taka allt inn sem nútíminn býður uppá óhugsað. Helana leitaði þó ekki eftir því að vera fyrir utan bæinn, það var til- viljun sem réð. Hún er sátt við að vera ekki lengra í burtu en þetta. Það er stutt í bæinn og það er stutt til Reykjavíkur og því hægt að sækja sýningar og annað án þess að það sé nokkurt vandamál. En hún hefúr samt í huga að flytja jafnvel eitthvað ennþá lengra í burtu. Kostimir við að búa nánast í sveit eru að lífshrynjandinni er haldið í lagi. „Ef eitthvað fer úr skorðum er nóg að fara í göngutúr,' sagði Helena, og þá kemst maður í takt við lífið aftur. Þörf fyrir efann En hún telur að fólk hljóti að þurfa að efast um hlutina í dag. Sé nútíminn tekinn inn athugasemda- laust og í öllu sínu veldi hljóti fólkt að verða hálfsjúkt. 1 myndaskrá með samsýningu 15 listamanna búsettra á Akranesi, sem haldin er í tilefni 50 ára afmæl- is kaupstaðarins, segir Helena: „Þó að list hvers tíma sé hluti af menn- ingu hvers tíma hlýtur það að vera hlutverk hennar að efast um rétt- mæti þessarar menningar. Gerist það ekki, samþykkjum við um leið að hin eina sanna lausn sé fúndin og frekari leit óþörf.“ Helena fmnur fýrir því að búa í litlu samfélagi. „Fyrst var ég reið út í allt og alla því að mér fannst eng- inn hafa áhuga á myndlist. Fólk kom bara til mín á leiðinni í fimm- tugsafmæli og bað um mynd,“ sagði Helena sem lét þctta þó ekki á sig fá, trú sinni sannfæringu. Hún hleypti bara í sig þrjósku og hélt áfram að gera sitt, að gera það sem hún vildi. Henni finnst mikilvægt að í smærri samfélögum finnist sem fjölbreytilegast fólk. Og þrátt fyrir að fólki finnist listamennimir klikk- aðir og sé haldið þeim misskilningi að listamenn geti ekki annað en lif- að bóhemlífi, þá telur Helena að þeir séu nauðsynlegir í bæjarlífinu rétt einsog fiskvinnslukonan. Mis- munandi fólk rúmast í samfélaginu. Helena sagði að myndlistin væri vinna, spuming um aga og aftur aga. „Það gerist ekkert nema maður gefi sér tíma,“ sagði hún og bætti við að vissulega gæti hún kennt til að bæta fjárhaginn en að það myndi taka tíma frá myndlistinni. Hún hleypur hinsvegar í einstök verk þegar fjárhagurinn er að sliga hana. Þannig að hún er ekki háð því að selja, sagði hún, því ef hún væri það þá myndi hún hugsa um það eitt að selja myndir og ekki gera neinar tilraunir sem hljóta að vera skapandi listamanni nauðsynlegar. Listamaðurinn þjálfar sig í að horfa á og skynja hluti upp á nýtt, að rnati Helenu. Þannig er það skiljanlegt í hennar huga að fólk sem vinnur myrkranna á milli, fyrir salti í grautinn, sé helst ánægt með ljósmyndalegt raunsæi í myndlist- inni. „Því finnst það fallegt einfald- lega vegna þess að það er þess sjónheimur," sagði Helena. Til að breyta sjónheiminum þarf að hugsa um hlutina og gefa sér tíma til að horfa á þá, rétt einsog að-til að gera gæðaátak í fiskvinnslunni þarf að hugsa um það. A& vera á varðbergi Helenu finnst að of mikill tími fari á smærri stöðum i að hugsa um nánasta umhverfið. Hún varar við því að falla í gryfju sjálfsbirgings- háttarins þar sem menn slá sér á bijóst og segja: „Við erum bestir“, til dæmis í fótbolta, en henni finnst það í lagi að vissu marki ef menn fara ekki líka út i það að kalla til dæmis Reykvíkinga pakk í sömu andrá. Hún bendir líka á að þetta megi heimfæra á landið í heild sinni, það er að segja Island sem smáþjóð í heimi þjóðanna. Þannig horfir Helena á Akranes í stærra samhengi um leið og hún vill krefjast þess að hver og einn sé meira hugsandi en nú er til að þró- unin haldi áffam. Að fólk hugsi svo það drukkni ekki í öllu því sem í boði er. Fólk þarf að horfa á hlutina frá nýjum hliðum. Og jafnvel væg þunglyndisköst sem stundum hijá Helenu fá hana til að horfa á hlulina á nýjan hátt. „Sem er gott því maður má ekki verða of sjálfumglaður,“ sagði He- lena Guttormsdóttir myndlistarkona ffá Akranesi. G. Pétur Matthíasson Þa& var margt hægt a& fást vi& í Brekkjulækjarskóla á mánudag- inn. Þótt þessi ungi ma&ur væri ómála&ur voru mjög margir strákar me& danska fánann mála&an á andlitió. Og þótt einn þeirra seg&ist vera hættur a& halda me& Dönum í Evrópumeist- arakeppninni þá gæti hann veri& búinn a& taka li&i& aftur i sátt eftir a& Danir komust í úrslitin me& því a& vinna Frakka á mi&- vikudaginn. Föstudagurinn 19. júní

x

Helgarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.