Helgarblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 14

Helgarblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 14
Helgar 14 blaðið Islenskir áhorfendur mjög opnir Það er engin lognmolla í kringum Helgu Hjörvar þessa dagana. Nýlega lét hún af störfum sem skólastjóri Leiklistarskóla íslands, efdr að hafa gegnt því starfi í 9 ár. Um leið lauk 25 ára farsælu starfi hennar við leiklistar- kennslu á íslandi. í gær lauk Listahátíð í Reykjavík, en sem formaður framkvæmdastjómar hátíðarinnar hefur Helga borið hitann og þungann af henni. Og í júlí fer Helga með Ijölskyldu sina til Kaupmannahafiiar. Þar mun hún taka við framkvæmdastjórastöðu hjá Norrænu leiklistar- og dansnefndinni, skrifstofu sem sér um samstarf leikhúsa á Norðurlöndunum. Helgarblaðið hitti Helgu á kennarastofu Le:klistarskólans í gær. Hún sagði að mikil almenn ánægja nkti með Listahátíð. „Það var óvenjumikið framboð á hátíðinni nú. Astæðan íyrir því er sú að í raun var tveimur hátíðum slegið saman, annarsvegar Listahátíð og hinsvegar Norrænum leiklist- ardögum, sem að þessu sinni vom haldnir á íslandi. Sé ánægjan mæld í aðsókn á atriði hátíðarinnar, þá er hún mikil. Og aðsóknin hefur verið jafnari en oft áður. Sömuleiðis þegar litið er á umsagnir um einstök atriði í blöðum, en þær hafa yfírleitt verið mjög já- kvæðar." Fjölbreytileiki í fyrirrúmi Hefði ekki verið nær að hafa færri atriði? „Það er gömul saga og ný, að þegar mikið er um listaatburði, þá er einsog áhugi fólks aukist. Það notar tækifærið til að skoða fleira en það hefði annars gert. Við ákváðum að taka tillit til þess að fólk hefur minni fjárráð nú en oft áður. Ég býst ekki við að neinsstaðar í heiminum sé hægt að sjá og heyra söngkonu einsog Grace Bumbry á tónleikum fýrir tvö þúsund krónur nema á Listahátíð í Reykjavík. Þá var ákveðið að reyna að ná til þess hóps sem ekki sækir listviðburði reglulega. Sem dæmi um það má nefna það framtak Kjarvalsstaða að setja upp sýningu á högg- myndalist ungra listamanna i Kringlunni og fjölskylduhátíðina í Listasafni Sigurjóns Ol- afssonar. Einnig má benda á ýmsar uppá- komur í miðbænum í tengslum við Klúbb Listahátíðar, að ógleymdri leiksýningu Thé- atre de TUnite í miðbænum.“ Hvað með þá gagnrýni sem komið hefur fram hjá aðstandendum óháðu listahátíðar- innar „Loftárás á Seyðisfjörð“, að ekkert rúm sé fyrir skapandi íslenska listamenn innan Listahátíðar? „Það er erfitt að fullnægja öllum hópum. Allan ársins hring er mikið framboð af all- skyns list í landinu. Það er hinsvegar mjög ánægjulegt að ungt listafólk ákveði að nýta sér þann byr sem listin fær þegar Listahátíð er í gangi. Listahátíð reynir hinsvegar að spanna það að bjóða bæði viðurkenndum listamönnum hingað og einnig öðrum sem eru minna þekktir en eru að gera merkilega hluti. Þá ber á það að líta að erlendir listvið- burðir virðast hafa meira aðdráttarafí en ís- lenskir. Því fer þó íjarri að við sinnum ekki íslenskum listamönnum á hátíðinni. Þannig var t.d. frumfíutningur á Listahátíð á verkum í flestöllum greinum íslenskra lista. Við opnun Listahátíðar var frumfíutt ný íslensk smáópera, Rhodymenia Palmata, eftir Hjálmar Ragnarsson við ljóð Halldórs Lax- ness. Það var leikhópurinn Frú Emelía sem setti óperuna á svið og mættust þama full- trúar yngri kynslóðarinnar og þeirrar elstu í íslensku listalífi. Þá má nefna frumflutning á nýju íslensku leikVerki, Bandamannasögu, eftir Svein Einarsson. Það er ekki á hverjum degi að fmmfíutt er leikgerð unnin upp úr menningararfi okkar. Nýr íslenskur ballett, Ertu svona kona? eftir Auði Bjamadóttur, var frumfluttur. A myndlistarsviðinu vom sýningar á verkum eldri meistara okkar, þeirra Hjörleifs Sigurðssonar og Kristjáns Davíðssonar, auk þess sem ungir högg- myndalistamenn vom kynntir i Kringlunni. Og í tónlistinni var boðið upp á mjög fjöl- breytta dagskrá innlendra listamanna og ný íslensk tónverk kynnt á flestum tónleikum. Það er því af og frá að Listahátíð sýni skap- andi list ekki áhuga.“ - 1 r* Norrænir leiklistardagar Leiklistinni hefur verið gert mjög hátt undir höfði á Listahátíðinni nú. Er það vegna þess að þú ert svo tengd leiklistinni? „Nei, það hefur ekkert með það að gera. I fuíltrúaráði Listahátíðar sitja fulltrúar allra listgreina og sambönd þeirra hafa nýst mjög vel við að fá framúrskarandi listamenn á öll- um sviðum til landsins. Það að leiklistin er svo áberandi nú er fyrst og fremst vegna þess að Norrænu leiklistardagamir koma inn í hátíðina. Akvörðun um það var tekin löngu áður en ég tók við störfum. Það hefur Iíka haft með sér fjárhagslegan stuðning við há- tíðina frá Norræna menningarsjóðnum og einnig frá Norrænu leiklistar- og dansnefnd- inni. Þá studdi franska ríkið einnig hátíðina. Á Listahátíðinni birtist okkur norræn leik- list í öllum sínum margbreytileik og sýning- amar voru hver annarri athyglisverðari. Danska Artibus-leikhúsið breytti Kennara- háskólanum í töfraveröld og sýning sænska leikarans Rogers Westberg á Hamlet sýndi að þar fór snillingur sem hreif áhorfendur með sér. Sumir hrifust mest af atriðinu með grafaranum, en persónulega hafði ég mest gaman af því þegar hann lék Ófelíu. Þetta er leikari sem fylgst verður með í framtíðinni." Það vakti athygli að engin íslensk frum- sýning var hjá stóru atvinnuleikhúsunum. „Það hefur reynst mjög örðugt fyrir leik- húsin að frumsýna ný verk á Listahátíð, vegna þess að leikárið er búið og reynslan af því að taka upp sýningar á hausti, sem frum- sýndar hafa verið á Listahátíð, hefur ekki veriö góð. Þá kann það að hafa haft áhrif að leikhúsin hafa verið með óvenjugóðar sýn- ingar á ljölunum í vetur, sem mikil aðsókn hefur verið að, og var ákveðið að sýna þær á Norrænu leiklistardögunum.“ Kenjar listamanna Það orð fer af listamönnum að þeir séu oft mjög sérvitrir. Þarf formaðurinn að vera á útopnu við að uppfylla kenjar þeirra? „Nei. Vissulega eru sumir listmenn sér- vitrir. Það fylgir því mikið álag að magna sig upp í að mæta væntingum mörg þúsund manna. Venjan er hinsvegar sú að listamenn eru afskaplega elskulegt fólk sem er mjög gefandi að umgangast, því flestir þeirra eru opnir og skemmtilegir. Grace Bumbry hefur t.d. þvílíka persónutöfra að fólk fellur unn- vörpum bara við það að líta hana augum, hvað þá að sjá hana á sviði. Það sem mér hefur þótt ánægjulegast er hvað listamönnunum hefur þótt gaman að koma fram á íslandi. Þeir hafa ailir verið mjög ánægðir með áhorfendur og haft á orði hvað þeir tækju vel við. T.d. sagði finnski ballettdansarinn Jorma Uotinen, að hann kæmi við fyrsta tækifæri aflur til Islands með sýningu. íslenskir áhorfendur eru ekkert að fela hvað þeim finnst. Þeir eru mjög opnir fyrir áhrifum og hafa látið það óspart í ljós. Það hefur verið mikið um húrrahróp og fólk hef- ur staðið upp úr sætum og klappað. Enda hefur verið mjög mikið um að tónlistar- mennimir hafi leikið aukalög vegna þess hve salurinn hefur verið góður. Þá hafa listamennimir hrifist mjög af landinu og sú landkynning sem afþví hlýst er ómetanleg. Þetta er virt fólk sem liggur ekkert á skoðunum sínum.“ Tregi og tilhlökkun Nú hefur þú látið af störfum sem skóla- stjóri Leiklistarskólans. Hvað er þér efst í huga á þeim tímamótum? „Bæði tregi og tilhlökkun. Stómm kafla í lífi mínu er nú lokið og auðvitað setur því að manni tregablandna tilfinningu, en einnig tilhlökkun að fara að takast á við ný verk- efni. Það hefur verið mjög ánægjulegt starf að vera skólastjóri Leiklistarskólans. Ég hef kynnst mörgu úrvalsfólki í gegnum þetta starf. Nemendur Leiklistarskólans virðast aldrei fá nóg af kennslu. Ég held að mjög fá- ir geri sér grein fyrir þeirri vinnu sem liggur að baki góðum leik. Éeikarar em mjög vinnusamt fólk. Ég get varla hugsað mér neitt annað starf sem krefst jafn mikils sjálf- saga og leiklistin. Það þýðir ekkert að vera illa upplagður, kæmlaus eða veikur á leik- sýningu. Þar verður að gefa allt.“ Það hefur verið áberandi undanfarin ár, hversu greiðan aðgang ungir leikarar hafa átt að leikhúsunum. Hvað veldur? „Leikhúsin hafa hneigst meira í þá átt að líta á leiksýningu sem eitt allsheijar lista- verk, þar sem allir möguleikar leikhússins em nýttir til að skapa heim sem lýtur sínum eigin lögmálum. Þetta krefst mjög mikils af leikumnum. Þeir þurfa að hafa fullkomið vald á líkama og rödd, vera vel menntaðir og sýna mikinn sjálfsaga. Sjálf orðin em bara toppurinn á ísjakanum. Allt hitt sem þarf til að gera leiksýningu lifandi verður leikarinn að skapa sjálfur. Unga kynslóðin á Islandi er mjög hæfi- leikarík. Það sést vel á þeim ungu leikumm sem við eigum i dag. Áður fyrr lögðu leikarar ýmis önnur störf og aðra menntun fyrir sig, til þess að skapa sér öryggi, þvi litið var á leiklistina sem tómstundagaman. Það em ekki nema um 60 ár síðan hlaupið var á eftir Haraldi Bjöms- syni og hrópað á hann: atvinnuleikari, at- vinnuleikari, einsog hvert annað skammar- yrði. Við stofnun Leiklistarskóla ríkisins breyttist þetta viðhorf og í dag er leiklistin orðin að eftirsóknarverðu starfi. Hluti skýringarinnar er einnig löngun leikhússins til að ná sambandi við ungt fólk. Það gerir það með því m.a að ráða til sín unga leikara." Það olli töluverðu írafári þegar mennta- málaráðherra skipaði Gísla Alfreðsson sem eftiirnann þinn. Hver er skoðun þín á því? „Ég hef átt mikið og ágætt samstarf við Gísla undanfarin ár. Mótmælin beindust enda ekki að honum sem persónu heldur að því að tillögur skólanefndar vom ekki virt- ar.“ Til Kaupmannahafnar Hvað viltu segja um verkefnið sem þú ert að fara að fást við núna? „Ég er að taka við framkvæmdastjóra- stöðu hjá Teater og dans í Norden og mun hafa aðsetur í Kaupmannahöfn. Þetta er skrifstofa sem sér um samstarf norrænna leikhúsa og danshópa. Ég tek við starfinu 1. september og gegni því væntanlega næstu 4 árin. Fyrsta verkefnið verður að taka þátt í Or&in eru bara toppurinn á isjakanum til a& gott leikrit verbi ab vel heppna&ri sýningu. Allt hitt ver&ur leikarinn a& skapa sjólfur, segir Helga Hjörvar. Mynd: Kristinn. námskeiði sem haldið verður á Grænlandi til að styðja við hið unga atvinnuleikhús þar.“ Er til eitthvað sem heitir norræn Ieiklist? „Norðurlöndin em vissulega lík að mörgu leyti, þjóðfélagsgerðin svipuð og menningin að hluta til sameiginleg. Leikhúsið er hins- vegar margbreytilegt, bæði á milli Ianda og einnig í löndunum sjálfum. í Finnlandi og á íslandi byijar leikhúsið t.d. sem almennings- skemmtan en í hinum löndunum sem kon- ungleg skemmtan. Þessvegna em engin kon- ungleg leikhús hjá Finnum og íslendingum. Ég er hinsvegar ötull talsmaður norrænnar samvinnu og hef mikinn áhuga á henni. Það em um 20 ár síðan ég sótti mitt fyrsta nám- skeið á Norðurlöndunum og ég held að þau séu nú orðin um 20 talsins. Menn bindast oft miklum vináttusamböndum á þessum nám- skeiðum og kynnast Iandi og þjóð. Þetta er því mjög gjöftilt á ailan hátt. Ég vonast til að geta endurgoldið að einhveiju leyti það sem ég hef notið af norrænu samstarfi í því sem ég er að fara að fást við núna.“ -Sáf Föstudagurinn 19. júnl

x

Helgarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.