Helgarblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 16

Helgarblaðið - 19.06.1992, Blaðsíða 16
Ys og þys út af umhverfinu Þegar þetta er skrifað er umhverfisráðstefhunni í Rio de Janeiro ekki lokið. Nema hvað meim vita að hún veld- ur miklum vonbrigðum. Kannski var hún ys og þys út af engu? Ysinn og þysinn voru reyndar út afþví sem mestu skiptir: háskaleg- um samskiptum manns og náttúru á tækniöld. En ysinn og þysinn voru líka miklu meiri en árangurinn, ef svo fer sem að líkum lætur. Vitanlega má segja sem svo að ráðstefnan í Ríó hafi aldrei minna gildi en það að beina meiri athygli að umhverfismálum. Það hafa líka komið fregnir um að settar hafi ver- ið strangari reglur um losun eitraðs úrgangs í sjóinn og megi íslending- ar vera fegnir. Fleira jákvætt má vafalaust til tína. A& kjafta og gera lítih En hitt er lakara, að enn og aftur staðfestist það að þótt menn séu reiðubúnir að viðurkenna að lífrikið og það umhverfi og þær auðlindir sem skapa mannfólkinu lífslíkur í framtíðinni séu í hættu, þá fer mönnum lítið fram í vilja (og getu) til að GERA eitthvað sem um mun- ar. Reyndar er eitt af því sem sjón- vaip hefur vel gert fólgið í því að almenningur veit miklu meira um náttúrufar og umverfisvanda en áð- ur. Umhverfismál eru búin að ná þeirri stærð að allir telja sér skylt að leggja eitthvað til mála. En sem fyrr segir: menn kjafta meir en þeir gera. Og við sjáum fyrir okkur hvem vítahringinn inni í öðrum. Fátæk- ustu rikin hafa ekki efni á náltúru- vemd (eins og vemdun regnskóga) og vísa á iðnríkin. Iðnríkin játa (misjafnlega fúslega) að þau beri höfuðábyrgð á mengun og eyðingu auðlinda, blátt áfram vegna gífur- legrar neyslu. En þau segjast vera í kreppu og hafa ekki efni á neinu núna - auk þess sem þau hafa mikla tilhneigingu til að koma af sér athygli á sinni ábyrgð með því að hamra mjög á því að fólksfjölg- unarvandinn sé mestur í hinum fá- tæka Þriðja heimi. Og í stuttu máli sagt: það em beinharðir hagsmunir, með öðrum orðum græðgin, sem ráða rikjum. Bandarikin vilja ekki skrifa undir sáttmála um vemdun lífrikis vegna þess að þau telja hann setja skorður arðbæmm umsvifum bandarískra fyrirtækja. Olíuríkin vilja ekki skrifa undir neitt það sem stuðlar að olíuspamaði. Og svo ffamvegis. Allir gjalda umhverfis- vandanum varaþjónustu, en þegar spurt er um aðgerðir er bent á aðra. Þeir em verri en ég. Það er fyrr komið að þeim en mér. Margir sökudólgar Semsagt: menn tala mikið en gera þeim mun minna. Þegar spurt er hvers vegna, þá virðist nægja í bili að benda á þá græðgi sem er innbyggð í lífshætti okkar og allan ffamfaraskilning. Og endurspeglast meðal annars í því að allar stjóm- málahreyfingar aldarinnar hafa (allt ffam á síðustu ár) gengið út ffá því að þær þyrffu hver um sig að mæla með sem fljótvirkastri áætlun um að auka framleiðslu og neyslu, helst á öllum sviðum. Sökudólgamir em um allt. Ef bjarga á jörðinni sem heimkynni manna til lengri tíma er nauðsyn- legt að draga úr fólksfjölgun og helst stöðva hana - í ljósi þess er bann kaþólsku kirkjunnar við getn- aðarvömum meiriháttar umverfisvandi. Það er nauðsynlegt að gera áætlanir til langs tíma um nýtingu auðlinda - hrun hins sovéskættaða áætlunar- búskapar (sem átti vegna valdsein- okunar og ritskoðunar hægt með að hundsa viðvaranir í umveríismál- um) hefur komið óorði á áætlana- búskap yfirhöfúð og gert menn feimnari við að taka á málum en ella væri. Vestrænt lýðræði tryggir málfrelsi til að ræða umhverfis- vandann, en það er skammsýnt, það hugsar ekki fram í tímann (og reyndar ekki sá atvinnurekstur heldur sem reynir sífellt að smeygja sér undan kostnaðarsömu tiliiti til Árni Bergmann skrifar umverfisins á þeim forsendum að hann þurfi að vera samkeppnishæf- ur við fyrirtæki í öðrum löndum). Bjartsýnin varasama Svo em þeir líka til sem tclja það part af líffræðilegu erfðagóssi mannsins að neita að viðurkcnna í verki staðreyndir um umhverfismál ogþverrandi auðlindir jarðar. Þá er sagt sem svo: maðurinn er dýrateg- und sem er snillingur í því að lifa af. Snar þáttur í þeirri gáfu er eitt- hvað sem kalla má erfðabundna bjartsýni: hvenær hefui ckki allt reddasl? Þcssi bjartsýni er, segja menn, svo rótgróin í þúsund kyn- slóðir, að þegar sú staða er allt í einu upp komin í fyrsta skipti í allri sögu að niannfólkið þarf (ekki bara scm einstaklingar heldur sem heild) að stilla sig um að gera það sem það vill (og getur!) þá er mönnum ofviða að breyta um hugarfar, skipta um hegðun. Siöferói og ábyrgö Hans Jonas heitir þýsk-amrískur heimspekingur af gyðingaættum sem hcfur velt fyrir sér siðemis- vanda tæknialdar. Heimspckin, segir hann, verður að færa sig á nýtt svið. Siðfræðiglíma hennar hefur til þessa snúisl um samband manns við mann, en samband manns og náttúru hefur verið vanrækt. Og spurt er: geta menn alið upp það sem Jonas kallar „ábyrgðarprinsíp- ið“ - virðingu fyrir þeirri skyldu okkar að skila jörðinni byggilegri til komandi kynslóða? Taka þá sem á eflir koma inn í okkar mennsku samábyrgö? Þetta er sú skylda sem verður okkar höfuðviðfangsefni á næst- unni, segir Hans Jonas. En hann veit ofur vel að enginn getur gefið sér það að mannfólkið sé vandan- um vaxið. Svo mjög sem menn lifa í fangelsi „efnahagslegrar nauð- synjar“, svo auðvelt sem það er að benda á aðra og segja: það gagnar lítið þótt ég sjálfur skerði mína neyslu í nafni framtíðarinnar - aðrir fara sínu fram eins og ekkert væri. Óttinn og viöleitnin Það er ekki útilokað að hægt sé að breyta hugarfari fólks í svo stór- um stíl að um muni, segir Hans Jonas ennftemur. En það er ekki líklegt að það sé hægt. Því miður er engu likara en að stórslysin (kjam- orkuslys, mengunarslys, veðuifars- slys) verði að kenna mönnum nauðsynlegar lexíur án allrar mis- kunnar. Það er að segja: að vandinn verði svo nálægur, áþreifanlegur, að menn geti ekki lengur varið sig með því að „lifa í deginum í dag“, þeir verði hræddir - og neyðist til að gera eitthvað sem um munar. Og það sem gera þarf er án vafa tengt því að frelsi einstaklingsins verður skert, um það er Hans Jonas ekki í neinum vafa. Takmarkalaust frelsi einstaklingsins til að „gera það sem honum sýnist við sína pen- inga og sínar eigur", það rekst í vaxandi mæli á lífsnauðsyn mann- fólksins í heild. Og það segir sig sjálfl, að þar með eru menn komnir inn á pólitískt hættusvæði: hvemig er hægt að stýra mönnum inn á þá nauðsynlegu afstöðu að „minna er betra“ í mörgum greinum - án þess að skerða þeirra mannréttindi að miklum mun? Þetta er ekki auðvelt: en svo sannarlega er það rétt sem Hans Jonas og hans líkar segja: það verð- ur ekki hjá því komist að reyna. Reyna afíur og aftur, hve óvænt sem mönnum getur þótt um árang- ur. Sæmileg lausn vandans er ekki líkleg - en hún er ekki útilokuð. Því manneskjan er sem betur fer ekki með öllu útreiknanleg, hún býr allt- af yfir einhveiju sem enn er ckki fram komið... Helgar 16 blaðið Grigiry Goriatchev Rússnesku undrabörnin Tónleikar rússnesku undrabam- anna á vegum Listahátíðar í Þjóð- leikhúsinu munu seint líða áheyr- endum úr minni. Það er sannarlega ekki á hverjum degi að við fáum að heyra jafn marga unglinga gædda afburðagáfum í listinni. Undrabömin fimm eiga það sam- eiginlegt að hafa hvert um sig hald- ið tónleika víða um lönd og leikið inn á plötur og hljómdiska frá unga aldri. Frá þeim er svo sagt í efriis- skrá Listahátíðar: „Þau koma hingað til lands undir merkjum samtaka er nefria sig New Names (Ný nöfri) og voru þau stofnuð í Rússlandi 1989 af alþjóð- legri menningarstofriun rússneska sambandslýðveldisins. Markmið þeirra er að raekta og styðja ungt hæfileikafólk á öllum sviðum menningar, lista og vísinda og koma þeim á framfæri, bæði heima og eriendis í nafrii friðar og vináttu milli þjóða. Fjölmargar alþjóðlegar stofnanir, fyrirtæki og samtök hafa sýnt þessu mikinn áhuga og styðja þetta fram- tak með ráðum og dáð, ekki síst með fjárframlögum sem gera sam- tökunum kleift að halda tónleika og senda ungu snillingana í tónlistar- keppni; kaupa læki, hljóðfæri og allt það sem til þarf svo starfsemin nái tilgangi sínurn". Tónleikamir hófust með pianó- leik Olgu Púshetsníkovu sem er 15 ára og stundar nám í Moskvu. Hún lék Islamei, fantasíu um austur- lensk lög, eftir Milíj Balakírev. Hefur þetta verk ekki þótt neitt bamameðfæri. En Olga lék af yfir- burðatækni og glæsileik. Síðar á tónleikunum lék hún rapsódíu nr. 10 eftir Liszt og ekki var leikurinn hennar síðri þar. Auk þess Iék hún undir hjá öllum hinum og var sá leikur vægast sagt óvenjulegur fyrir það hve Iifandi og fjölbreyttur hann var. Næst lék hinn 15 ára fiðluleikari Ilja Konovalov frá Novosibirsk. Flutti hann vals og skersó eftir Tsjækovskíj, spænskan dans eftir De Falla, kaprísu nr. 24 eftir Pag- anini og loks pólónesu eftir Wien- iawski. Var leikur hans með mikl- um snilldarbrag og meðferð hans á kaprisu Paganinis jaðraði við það ótrúlega. Þá sté fram á sviðið gítarleikari frá Pétursborg. Hann heitir Grígíríj Goijatsjev og er 15 ára. Hann spil- aði tvö lög eftir einhvem Sabican og hétu þau Famkka og Bulerias. Lék hann einstaklega fallega, létti- lega og sjarmerandi á hljóðfæri sitt. Þá lék hinn 12 ára Alexander Kobrín ffá Moskvu á píanó, Ab- egg- tilbrigðin op 1 eftir Schu- mann, Fantasie Impromttu í cís- moll op 66 eflir Chopin og Étude- Tableu í Es-dúr op 39 eftir Rakh- manínov. Ef eitthvað mætti setja út á þessa tónleika væri það helst, að efiiisskrá undrabamanna miðast fyrst og fremst við að sýna leikni þeirra og tækni, en minna hirt um dýpri túlkun. Er þetta auðvitað skiljanlegt út frá markmiði þessara tónleikaferða. En það var fyrst og ffernst efriisskrá Kobríns sem gaf tilefrii til vemlegrar túlkunar dýpri blæbirðga og tilfinninga. Og satt að segja verður því ekki með orðum lýst hve þessi tóif ára drengur spil- aði Chopin og Schumann yndislega og hve létt og af miklum krafti hann lék landa sinn Rakhmaninov. Einnig kom fram trompetleikar- inn Vladimír Púshetsníkov en hann er bróðir Olgu og er fjórtán ára. Þvílík systkin! Hann blés Kamaval eflir Arban, Fantasíudans eftir Mendes og Lindina eftir Rakhman- inov, sem í eíriisskrá heitir reyndar Spring Wateis! Var snilld hans Sigurður Guðjónsson skrifar hreint út sagt ótrúleg. Stundum var sem hann blési í tvo lúðra. I stuttu máli sagt: Það var ein- stæð lífsreynsla, eiginlega eins og opinberun frá æðri listheimi, að heyra þessa ungu snillinga. Þeir unnu hug og hjörtu allra. Ekki síst hjörtun því framkoma þeirra á tón- leikapallinum var einstaklega blátt áfram og eðlileg. Og við skulum fylgjast vel með þeim í ffamtíðinni. Að lokum verður ekki hjá því komist að mótmæla þeim dónaskap Listahátíðar að bjóða íslenskum áheyrendum sí og æ upp á það að stafsetja rússnesk mannanöfri upp á ensku. Fyrir því eru þó engin hljóð- ffæðileg rök eða skynsemisrsök yf- irleitt. Og ekki bætir svo úr skák þegar nöfn laga á framandi tung- um, öðrum en ensku, eru þó nefrid á því máli eins og Lindin hans Rakhmaninovs, Spring Waters! Það er engin afsökun þótt allt komi meira og minna á ensku í kynning- argögnum sem Listahátíð berst að utan. Jafn virðuleg stofiiun og Listahátíð getur ekki sóma síns vegna sem íslensk menningarstofn- un boðið okkur upp á svona móðg- anir ár eftir ár. Föstudagurinn 19. júni

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.