Helgarblaðið - 19.06.1992, Síða 18

Helgarblaðið - 19.06.1992, Síða 18
Gaman að spila fyrir norðan Við forum hringinn í kringum landið í sumar og stoppum á öllum helstu stöðunum, sagði Sigríður Beinteinsdóttir í Stjóminni þegar hún var spurð hvemig landið lægi fyrir þeim í sumar. „Við erum nú þegar búin að spila á Norðurlandi og Vesturlandi," sagði Sigga og bætti þvi við að sér litist vel á böliin í sumar miðað við aðsóknina undanfarið. Næsta skref hjá Stjóminni er að spila á Suðurlandi og síðan verður haldið austur á bóginn. „Þótt við séum búin að spila eitthvað á Norðurlandi eigum við eftir að fara þangað aftur. Það er svo gaman að spila fyrir norðan,“ sagði Sigga. Uppáhaldsstaðir Siggu Beinteins em Idalir við Húsavík og Miðgarður í Skagafirði. „Það ern tvær ástæður fyrir dálæti mínu á þessum stöðum. Ann- ars vegar er fólkið sem kemur á böll þama alveg frábært, og hins vegar eru svo stór svið á þessum stöðum. Fyrir hljómsveitir er alltaf skemmtilegt að hafa stórt svið til umráða við spilamennskuna,“ sagði Sigga. Sigga sagði að Stjómin spilaði eingöngu úti á landi í sumar, ekki væri gert ráð fyrir neinni spilamennsku á höfuðborgarsvæðinu. „Munurinn á böllum í Reykjavík og úti á landi felst aðallega í aldursmuninum á áheyrendum. í Reykjavík kemur meira af eldra fólki á böllin hjá okkur heldur en á lands- byggðinni. Við getum því rokkað meira úti á landi og það er ágætis tilbreyt- ing lrá rólegu músíkinni sem við spilum á vetuma,“ sagði Sigga. Enn er óráðið hvar Stjómin verður um Verslunarmannahelgina. Sigga ságði þó að verið væri að athuga einhver hátiðahöld í Atlavík eða á Eiðum fyrir austan. „Ef af verður er allt eins líklegt að við spilum þar,“ sagði Sigga. Stjómin ver&ur ó fleygiferó um allt land í sumar. Bakarí Brauðbergs að Hraunbergi 4 Nýbökuð brauð, gómsœtar tertur og kökur í miklu úrvali. Mjólkurvörur ogfleira. Opið virka daga frá kl. 8:30 til 18:00, laugardaga frá kl. 9:00 til 16:00 og sunnudaga frá kl. 10:00 til 16:00. Brauðberg Hraunberg 4, sími 77272 Helgar 18 blaðið Todmobil hefur vakió athygli fyrir liflega og skemmtilega svibsframkomu. Mynd: Kristinn. Andrea Gylfadóttir í Todmobil segir að hljóm- sveitin eigi eftir að gera víð- reist um landið í sumar. „Fólk um allt land ætti að fá tæki- færi til að beija okkur augum. Við verðum meira og minna á flakki og munum spila á öllum helstu stöðunum í kringum landið,“ sagði Andr- ea. Músíkin hjá Todmobil á dansleikjunum í sumar verður sambland af þeirra eigin verkum og annarra. „Okkar markmið er að hafa gaman af hlutunum og til þess verðum við að spila músík sem fólk- inu finnst skemmtileg. Það ætti þvi enginn að verða fyrir vonbrigðum sem mætir á böllin hjá okkur,“ sagði Andrea. Aðspurð um muninn á því að spila á sveitaböllum og á skemmtistöðum á höfuðborg- arsvæðinu, sagði hún að sveitaballastemmningin væri ofl fjörugri. „Þar kemur yngra fólk inn í húsin, flestir virðast koma með nesti og nýja skó með sér á staðinn. Oft er meira um slagsmál á dans- leikjum úti á landi, en ég hef samt ekki orðið vör við nein alvarleg meiðsl vegna þeirra. Þetta virðist vera villtara en á hefðbundnum skemmtistöð- um,“ sagði Andrea. Um Verslunarmannahelg- ina spilar Todmobile á þjóð- hátíð í Eyjum ásamt Sálinni hans Jóns míns. Andrea segir að þar verði mikið fjör í góðu veðri, annað geti ekki verið. Þegar hún var spurð hvar uppáhaldsstaðurinn væri til að spila á, sagðist Andrea eiga eftir að finna þann stað. „Ætli maður velji sér ekki uppáhaldsstaðinn í sumar, og að sjálfsögðu fer það eftir því hvar mesta stuðið verður,“ sagði Andrea. Yerðum með þrælgott prógramm Stefán Hilmarsson í Sálinni hans Jóns míns sagðist lofa feikna stuði hjá þeim í sumar. „Við verðum með þrælgott prógramm þar sem uppistaðan verður kynning á nýrri plötu sem er að koma út á næstu dögum og síðan munum við spila efhi sem verður gefið út í haust,“ sagði Stefán. Eins og aðrar vinsælar hljómsveitir gerir Sálin hans Jóns míns út á landsbyggðina í sumar. „Það verður farinn þessi hefðbundni rúntur, þannig að allir sem kæra sig um það eiga tök á að koma á ball með okkur,“ sagði Stefán. Aðspurður um muninn á að spila fyrir landsbyggðarfólk og höfuðborgarbúa, sagði Stefán að hann væri heilmikill. „Það er eins og fólkið úti á landi sé fijálsara við að skemmta sér heldur en Re- kvíkingar. Fólkið þykist ekki vera eitthvað annað en það er. Mér finnst sjálfum skemmtilegra að spila fyrir þá sem geta sleppt ffam af sér beislinu." Að sögn Stefáns er algengt að sömu andlitin sjáist aftur og aftur á böllum hjá Sálinni. „Það gefúr okkur aukna drift að sjá fólk jafh- vel elta okkur um allt land. Fyrst fólk getur lagt það á sig getum við lagt á okkur að spila af fullum krafti helgi eftir helgi,“ sagði Stefán. Uppáhaldsstaðimir hjá Stefáni eru félagsheimilið í Olafsvík og skemmtilstaðurinn 1929 á Akur- eyri. „A þessum stöðum em svið- in stór og það skiptir miklu máli í þessum bransa að hafa nóg svig- rúm. Annars em allir staðir skemmtilegir ef fólkið sem kemur á böllin er skemmtilegt,“ sagði Stefán. Um Verslunarmannahelgina verður Sálin hans Jóns míns í Vestmannaeyjum. „Við verðum að spila í Eyjum ásamt Todmobil. Auðvitað verður feikna stuð og sólin mun skina alla daga,“ sagði Stefán. Stefón Hilmarsson í gó&um fíling eins og alltaf. Mynd: Kristinn. Föstudagurinn 19. júnf

x

Helgarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.