Helgarblaðið - 19.06.1992, Side 19

Helgarblaðið - 19.06.1992, Side 19
Helgar 19 blaÖið Kvennahlaup um Á morgun, laugardaginn 20. júní, fer fram hið árlega kvennahlaup og er þetta í þriðja sinn sem það er hald- ið. Að þessu sinni fer það fram á sextán stöðum víðs vegar um landið, en tilgang- ur þess er öðrum þræði að vekja athygli á íþróttaiðkun kvenna. Þær konur, sem áhuga hafa á að taka þátt í kvennahlaupinu, geta valið um þrjár mismunandi hlaupa- lengdir; 2, 5 og 7 kilómetra. Byij- endum hentar vel að reyna sig við tvo kílómetra, þær sem lengra eru komnar á æfingabrautinni ættu að ráða vel við fimm kilómetrana, en sjö eru hins vegar ætlaðir fyrir af- rekskonumar og þær sem telja sig vera í nógu góðri æfingu til að ráða við þessa vegalengd. I hlaupi sem þessu skiptir hins vegar höfuðmáli að vera með og skiptir þá engu hvort viðkomandi hleypur eða gengur og það jafhvel með bama- vagn og kerru, ef því er að skipta. Af viðbrögðunum að dæma virð- ist allt benda til þess að mun fleiri land allt konur taki þátt í hlaupinu á morgun en verið hefur til þessa. Lovísa Ein- arsdóttir í Garðabæ segir að mun fleiri konur þar í bæ hafi komið á sameiginlegar upphitunaræfmgar fyrir hlaupið í ár en oft áður. Hún segir að þessi mikli áhugi sé ekki eingöngu bundinn við höfuðborgar- svæðið heldur sé áhuginn á hlaup- inu og á kvennaíþróttum almennt að breiðast út um land allt. En til að framkvæmd hlaupsins gangi snurðulaust fyrir sig verða öku- menn að sýna þátttakendum meiri tillitssemi en þeim var sýnd i fyrra. Þá vom sumir svo forskrúfaðir að þeir óku á móti keppendum og virt- ust alls ekki vera með á nótunum. Lovísa segir að vonandi sé þetta liðin tíð og að ökumenn sýni kon- unum fyllstu tillitsemi í hlaupinu á morgun. Unglingalandsmót á Dalvík A Dalvík sem vi&ar reyna þeir yngri meft sér i golfi enda áhugi á iþróttum mikill i bænum. „Hér er allt á fullu við að gera klárt fyrir unglinga- landsmótið og mikill hugur í fólki. Við stefiium að því að hafa alla aðstöðu eins góða og völ er á og m.a. bjóða heimamenn keppendum uppá góðan frjálsíþróttavöll sem verður vígður við upp- haf mótsins," segir Katrín Sigurjónsdóttir, fram- kvæmdasfjóri unglingalands- mótsins. Eftir fjórar vikur eða svo, helgina 10.-12. júlí, ferfram unglingalands- mót á Dalvík fyrir 16 ára og yngri. Búist er við að keppendur verði allt að tvö þúsund talsins, víðs vegar af landinu. Ungmennasamband Eyjafjarðar, sem er 70 ára á árinu og hefur innan innan sinna vébanda sautján aðild- arfélög, hefur veg og vanda af þessu móti sem mun vera hið fyrsta sinnar tegundar sem haldið er hér- lendis. Þátttökurétt hafa allir ung- mennafélagar sem verða sextán ára á mótsárinu, þátttökufjöldi í keppn- isgreinar er ótakmarkaður og lág- mörk engin. Alls verða keppnis- greinamar átta: knattspyma, fijálsar íþróttir, sund, golf, hestaíþróttir, glíma, skák og borðtennis. I hverri grein verður keppt í einum til þrem- ur aldursflokkum. Auk keppnis- greina er ætlunin að Ieggja áherslu á fjölbreytta afþreyingardagskrá þar sem mótið er öðmm þræði hátíð allrar fjölskyldunnar. Til reynslu Katrín Siguijónsdóttir, fram- kvæmdastjóri unglingalandsmóts- ins, segir að markmið með móts- haldinu sé að ná til sem flestra ung- mennafélaga 16 ára og yngri og að unglingar úr mismunandi íþrótta- greinum með misjöfn áhugamál kynnist. Og síðast en ekki síst að stuðla að áframhaldandi þátttöku í íþróttum og heilbrigðu Iífemi. Hugmyndin að því að halda sér- stakt unglingalandsmót kviknaði í fyrrasumar þegar félagar í Ung- mennasambandi Eyjafjarðar vom að undirbúa íslandsmót 14 ára og yngri. Þá var því varpað fram að það gæti verið gaman að halda stórt mót með þátttöku krakka úr fleiri en einni íþróttagrein. Þá höfðu menn m.a. í huga Norðurlandsleika æskunnar sem ffarn fóm fyrir nokkmm ámm á Sauðárkróki og tókust vel. 1 framhaldi af því ákvað stjóm UMSE að kanna áhuga á slíku móti. Á haustfundi UMFÍ á Hall- ormsstað í fyrra kynntu forráða- menn UMSE þessa hugmynd sína og á sambandsþingi UMFI á Húna- völlum lögðu þeir ffam tillögu um unglingalandsmót. Niðurstaða þingsins var í stuttu máli sú að UMSE var falið að halda fyrsta Unglingalandsmót UMFÍ 1992 til reynslu. Jón Sævar Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Ungmennasambands Eyjafjarðar, segir að ef vel tekst til og áhugi verður mikill megi fast- lega gera ráð fyrir að ffamhald verði á mótinu. -grh Gróskumikið íþróttaár Áhugafólk um íþróttir þarf ekki að kvarta yfir því að ekki sé nóg um að vera í íþróttum á þessu herrans ári sem senn er rétt hálfnað. Það sem af er hefiir hver íþróttaviðburðurinn rekið annan og annað eins bíður við næsta hom. Það er því viðbúið að margur maðurinn verði búinn að fá maga- fylli og gott betur af íþróttum áður en árið er á enda. En það er ekki að- eins áhugafólkið sem fær fylli sína því viðbúið er að allir hinir verði einnig orðnir mettir því einatt eru stærstu viðburðimir sýndir í beinni útsendingu í sjónvarpi. Sé stiklað á því helsta sem af er og því sem koma skal má fyrst nefna vetrarólympíuleikana í Al- bertville í Frakklandi, B- heims- meistarakeppnina í handknattleik sem háð var í Austurríki og úrslita- keppnina í Islandsmótinu í körfu- knattleik og handbolta. Þá er Is- landsmótið í knattspymu nýhafið með óvæntum úrslitum, Evrópumót landsliða er á fullum dampi í Sví- þjóð og í næsta mánuði hefjast svo sjálfir ólympíuleikamir í Barcelona á Spáni, sem standa fram í miðjan ágúst. Að þeim loknum, í septem- bcr, taka svo við ólympíuleikar fatl- aðra og þorskaheftra í Barcelona og Madrid. Handboltinn í september Eins og ofl áður munu Islending- ar senda fríða flokka afreksmanna á þessi mót, með tilheyrandi vænting- um um verðlaunasæti. Svo kann að fara að karlalandsliðið í handbolta taki sæti fymim Júgóslavíu á ól- ympíuleikunum í Barcelona í kjöl- far refsiaðgerða Öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna. Það mun þó ekki ráðast fyrr en rétt áður en leikamir heíjast eða um miðjan næsta mán- uð. Þá er boltinn byijaður að rúlla í forkeppni heimsmeistaramótsins í knattspymu þar sem landinn státar þegar af einum útisigri og einum tapleik eftir tvo leiki. Þegar líða tekur á haustið taka við hinar svokölluðu inniíþróttir, handbolti, körfubolti og fimleikar svo fátt eitt sé nefht. Samkvæmt drögum að mótaskrá fyrir handknattleiksvertíðina hefst íslandsmótið í ár mun fyrr en ella eða þann 16. september. Hlé verður svo gert á keppni I 1. deild í mars á næsta ári þegar karlalandsliðið tek- ur þátt í heimsmeistarakeppninni í Svíþjóð. Chicago meistari Snillingamir í Chicago Bulls sýndu það og sönnuðu aðfara- nótt mánudagsins að þeir eru með besla liðið í bandarísku NBA-deildinni þegar þeir báru sigurorð af Portland í úrslita- keppninni. Þetta er annað árið í röð sem Chicago verður meistari og varð þar með fjórða liðið í sögunni sem leikur þann leik. Það blés þó ekki byrlega fyrir meistumn- um í sjöttu viðureigninni við Portland því þeir vom undir nær allan leiktímann og mestur var munurinn sautján stig. En með undraverðum hætti tókst Chic- ago að snúa leiknum sér í vil og síðustu stigin skoraði sjálfur Mi- chael Jordan úr vítaköstum. Þjóðveijarnir koma Ef að líkum lætur má búast við skemmtilegum leikjum í handboltanum um helgina þegar íslenska landsliðið mætir því þýska. Heimsókn Þjóðverjanna hing- að til lands er liður í undirbún- ingi þeirra fyrir ólympíuleikana i Barcelona á Spáni í næsta mánuði. Alls mun liðið leika tvo leiki við íslenska liðið og verður sá fyrri i Víkinni við Stjömugróf á morgun, laugardag, og hefst klukkan 16. Seinni leikurinn verður trúlega á Selfossi á sunnudag og hefst klukkan 20.30. Stangarstökkvarinn knái Sergei Bubka ver&ur án efa í eldlínunni i Barcelona i næsta mánu&i. Hann setti á dögunum enn eitt heimsmetiö i stangarstökki þegar hann stökk 6,11 metra og bætti eigib met um einn sentimetra. Föstudaguriiin 19. júní

x

Helgarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.