Helgarblaðið - 19.06.1992, Síða 21

Helgarblaðið - 19.06.1992, Síða 21
Helgar 21 blaðið JQ -Q O * ö) O o Iifleg spilamennska Sumarbridge í Reykjavík hefur gengið mjög vel. Meðalþátttaka á kvöldi er nálægt 35 pörum (ef öll kvöldin eru tekin með) en um 40 pör ef 2 slökustu kvöldin eru tekin frá. Alls hefur verið spilað í 16 skipti (er þetta er skrifað). Þröstur Ingimarsson er með örugga foiystu í stiga- keppni einstaklinga. Hefur skorað um 250 stig til þessa, sem er afbragðs góður árangur. Talsvert hefur verið um „ný“ andlit í Sumarbridge. Er það af hinu góða og ljóst að starf Guð- mundar Páls í bridgeskólanum er ein mesta lyftistöng bridgestarfs- ins hér á landi. Vonandi mun Guðmundur geta sinnt lands- byggðinni af krafti næsta vetur, en þar hefur sárlega vantað kennslu síðustu árin. Áhuginn er nægur. Sumarbridge er spilaður alla mánudaga, þriðjudaga (hefst báða dagana kl. 19), fimmtudaga (hefst kl. 17) og laugardaga (hefst kl. 13.30). Spilað er í húsi BSÍ við Sigtún 9. 44 Nýtt bridgeblað er komið út. Það er fyrsta tölublað þessa árs, en útgáfu þess hefur seinkað tals- vert. Stafar það m.a. af nýrri tækni sem ritstjóri þess, Guð- mundur Páll Amarson, hefur tek- ið í þjónustu sína. Bridgeblaðið er öllum ómissandi, þeim sem hafa raunverulegan áhuga á fram- gangi íþróttarinnar hér á landi. 44 Nokkrir bikarleikir verða á dagskrá á sunnudaginn (í Sigtúni 9). Annars er frekar rólegt enn í keppninni og trúlega ekki nema tveimur leikjum lokið til þessa. Áður hefur verið getið um sigur Tryggva Gunnarssonar gegn Karli G. Karlssyni og um síðustu helgi áttust svo við sveitir Ingi- bergs Guðmundssonar og Eiríks Hjaltasonar. Ekki er vitað um úr- slit þessa leiks. 44 Nokkurrar óánægju gætir hjá liðsmönnum íslenska kvenna- landsliðsins. Stafar það af fyrir- komulagi Norðurlandamótsins, sem að þessu sinni er haldið í bænum Umeá, norðarlega í Sví- þjóð. Fyrir það fyrsta er það stað- setning mótsins og þeir erfiðleik- ar sem fýlgja því að koma sér á milli staða í Svíþjóð. í öðm lagi er það sjálft keppnisformið. Spil- uð eru 28 spil (?) milli sveita. Fyrsta daginn verða 2 leikir, ann- an daginn er frí (?), þriðja og fjórða daginn eru 3 leikir hvom daginn og síðasta daginn verða 2 leikir. Þessi undarlega dagskrá stafar af því að eina hótelið á staðnum er með veislu (ekki fyrir bridgefólkið) á öðrum degi. Hnika þarf því mótinu til. 44 Epson-alheimstvímenningurinn er á dagskrá Bridgesambandsins í kvöld. Spilað er á þremur stöðum á landinu; í Reykjavík í Sigtúni, Akureyri og Reyðarfirði. Notast er við Mitchell- fyrir- komulag og fær hvert par að lok- inni spilamennsku bók með spil- unum og umsögn um hvert spil eftir Omar Sharif. Fyrirfram skráning er hjá BSI. Lárusson 44 Stefnt verður að því í lok Sum- arbridge að klykkja út með veg- legu helgarmóti. Undirbúningur er á byrjunarstigi, en sárlega hef- ur skort á að boðið sé upp á helg- armót (2 daga mót) hér syðra síð- ustu árin, eða síðan Hótel Arkar- mótin voru spiluð. Lifa þau mót enn í minningu margra spilara. 44 Norðurlandamótið í Opnum flokki og kvennaflokki hefst nú í enda júní. Spilað er í Svíþjóð. Lið íslands að þessu sinni skipa; Op- inn flokkur: Karl Sigurhjartarson, Sævar Þorbjömsson, Matthías Þorvaldsson og Sverrir Ármanns- son. Fyrirliði án spilamennsku er Bjöm Eysteinsson. Kvennaflokkur: Esther Jakobs- dóttir, Valgerður Kristjónsdóttir, Hjördís Eyþórsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir. Fyrirliði án spila- mennsku er Jón A. Hjaltason. 44 Líkindafræðin í bridgeíþrótt- inni lætur ekki að sér hæða. Lög- mál Ieiksins eru byggð á líkind- um; gallinn er sá að allflestir muna ekki stundinni lengur í hverju sá galdur er fólginn. Lítum á dæmi; 4 G9762 Á84 O 106 * 1053 4 D1083 K1053 O K73 4* 86 4 Á S?7 O ÁDG9852 * ÁKG4 Spilið kom fyrir í EM í leik milíi Austurríkis og Sviss fyrir nokkmm árum. Sagnir gengu; Suður Norður 2 tíglar 2 grönd 3 tíglar 3 spaðar 4 lauf 4 tíglar 4 grönd 5 tíglar 6 tíglar Pass Ut kom hjartadrottning. Vanda- mál sagnhafa er þetta; Hvort er betra að fara í tígulinn eða laufið? Við sem sjáum allar hendurnar veljum sjálfsagt tígulinn, en sagnhafi var ekki í þeirri stöðu. Kostur A: Spila tígultíu í öðrum slag. Sem gengur ef Austur á kóng (allt nema íjórða) og einnig (eftir að kóngur lá á bak við) ef laufadaman er stök, eða önnur í Austur. Tölfræðin segir okkur að tígulkóngur náist í 45% mögu- leika en laufadaman í 19% til- vika, með aðferð A. Þessi 19% gefast þó ekki nema í ákveðnum hundraðshluta þegar þeirra er þörf, þannig að heildarútkoman í þessu tvennu er um 55% mögu- leiki. Kostur B: spila Iágu laufi á gosa. Það gengur þegar Austur á dömuna staka, aðra eða þriðju eða samtals 1 plús 8 plús 18 eða samtals 27% möguleiki. Samt sem áður; í allt að helmingi til- vika mun daman vera á eftir gosa, þannig að sagnhafi kemst inn á tíuna í borði og tekur svíninguna í tígli, eftir allt saman. Sem er 19% möguleiki. Til viðbótar þessu er sá möguleiki að Austur eigi dömuna ljórðu í laufi og Vestur tígulkóng. Þá gerum við bcst með að halda áfram laufa- sókn til viðbótar. Samtals kostur B: 27 plús 4=50% möguleiki. Kostur A er því lítillega betri, enda trúlega flestir valið þann kost. En hvað gerist ef Vestur „dúkkar“ laufagosann? Unnið spil breytist í tapað spil, alltaf. Svona er íþróttin. 4 K54 O DG962 04 * D972 Föstudagurinn 19. júnl Loftárás á Seyðisfjörð: ' Óháð listahá- J tíð í Reykja- J vík. Stendur til 28. júní. Sýningar, tónleikar, leikhús, dans, uppákomur, kvikmyndasýningar, upplestur og endalaust fleira í Héðinshúsi, Bergs- stöðum, Djúpinu, 22, Splitt, Ingólfs- stræti, MIR, Geysi, Hlaðvarpanum, Gallerí 1 1, Púlsinum, Borgarleikhús- inu, Fossvogskirkju og Á næstu grös- um. Myndlist Kjarvalsstaðir: Joan Miró. Lýkur 12. júlí. Jóhannes Kjarval, úr sathi Eyninar Guðmundsdóttur. Lýkur 2. ágúst. Listasafn íslands: 2000 ára litadýrð. Mósaík, búningar og skart frá Jórdaníu og Palestinu. Lýkur 26. júlí. Nýlistasafnið: Sýning á verkum Francois Perrodin og Michel Veijux. Lýkur 28. júní. Norræna húsið: Yfirlitssýning á verkum Hjörleifs Sig- urðssonar. Lýkur 5. júlí. Anddyri: Bent Hansen sýnir leirlist og Jan Lohmann gull- og silfúrsmíði. Lýkur 28. júní. FÍM-salurinn Garðastræti 6: Yfirlitssýning á verkum Hjörleifs Sig- urðssonar. Lýkur 5. júlí. Ásmundarsalur: Arkitektar sem hönnuðir. Lýkur 21. júni. Nýhöfn: Sýning á verkum Kristjáns Davíðs- sonar. Lýkur 24. júní. Listasafn ASÍ: Mot Natten. Sýning á verkum Bjöms Brusewitz. Lýkur 28. júní. Gerðuberg: Verk í eigu Rcykjavíkurborgar til sýn- is. Hafnarborg, Hafnarfirði: Opið kl. 12 til 18 alla daga nema fimmtudaga opið til kl. 21. Yfirlitssýning á verkum Gests og Rúnu, Gests Þorgrímssonar og Sig- rúnar Guðjónsdóttur. Lýkur 29. júní. Bandaríska listakonan P. Lynn Cox sýnir smámyndir í Kaffistofu Hafhar- borgar. Sýningin nefnist „Studies in Icelandic Landscape". Lýkur 5. júlí Menningarstofnun Bandarikjanna: P. Lynn Cox sýnir „The Saga of lce- landic Landscape." Gallerí 1 1, Skólavörðustíg 4a: Nina Roos sýnir. Listmunahúsið, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu: Sýning á verkum Amars Herbertsson- ar. Lýkur 30. júní. Sölugallerí á annarri hæð. Kringlan: Islensk nútímahöggmyndalist. Galleri Sævars Karls: Nini Tang sýnir málverk. Lýkur 30. júní. Safnaðarheimili Akureyrarkirkju: Trójuhesturinn sýnir verk. Með hest- inurn ferðasl Anna Eyjólfsdóttir, Borghildur Óskarsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir, Sigrid Valtingojer, Sigurður Örlygs- son og Sólveig Eggertsdóttir. Lýkur 21. júní. Laugavegur 37,2. hæð: Gunter Umberg. Opið miðvikudaga kl. 14-18 eða eftir samkomulagi. G 15, Skólavörðustíg: Opið daglega 10-18, laugardaga 10- 14. Wilhelm Buchert og Ute Buge sýna skartgripi. Lýkur 4. júlí. Haukur Dór sýnir málverk. Lýkur 4. júlí. Gallerí Úmbra, Torfunni: Opið þriðjud.-laugard. 12-18 og stmnud. 14-18. Edda Jónsdóttir sýnir. Lýkur 8. júlí. Tónlist Klúbbur Listahátíðar Hressó: Föstud. kl. 22: Júpiters og Sirkus Ba- balú. Pintop Perkins, Cicago Beau og Vinir Dóra: Púlsinum föstudag, Edinborg í Kefla- vik laugardag. Bubbi Morthens: Iþróttahöllin Akureyri sunnudag 21. júni, Félagsheimilinu Blönduósi mánud. 22. júni, Félagsheimilinu Hnífsdal þriðjud. 23. júní, íþróttahús- inu Keflavik miðvikud. 24. júni, íþróttahúsinu Selfossi fimmtud. 25. júní. Djúpið: Jass: Móheiður Júlíusdóttir föstudag, Kristjana Stefánsdóttir laugardag. Sumarsólstöðutónleikar í Fossvogskirkju sunnudag kl. 20.30: Sverrir Guðjónsson og Sigurður Hall- dórsson meðal flytjenda. Tveir vinir: Todmobile með útgáihtónleika í kvöld, föstudag. 2603 nefhist platan. Leikhús Þjóðleikhúsið: Kæra Jelena í Samkomuhúsinu á Ak- ureyri fostudags-, laugardags- og sunnudagskvöld íd. 20.30. Leikfélag Reykjavíkur: Þrúgur reiðinnar: föstudag, laugardag og sunnudag. Síðustu sýningar leik- ársins. íslenska óperan: Rigoletto föstudag kl. 20 Annaó: Akranes 50 ára: Föstudagur: Landsbankamót drengja í knattspymu kl. 18. Kvöldskemmtun tileinkuð alþjóðadegi kvenna á sal Fjölbrautaskóla Vesturlands kl. 20.30. Laugardagur: Trimmdagur fjölskyld- unnar. Landsbankamótið í knatt- spymu. Gönguferð um Botnsdal á Þingvelli kl. 9. Gönguferð á Heiðar- hom kl. 10. Kvennahlaup ÍSÍ kl. 14. Dimmalimm á sal Brekloibæjarskóla kl. 14. Fjömferð kl. 14.30. Sunnudagur: Lokadagur Landsbanka- mótsins í knattspymu. Göngu- ferð/skokkferð í skógræktinni kl. 14. Útimarkaður föstudag og laugardag. Útvaip Akranes alla daga. Þjóðminjasafnið: Bogasalur: Sýning á munum í eigu safnsins sem tengjast Skálholti. Tilefnið útkoma þriðja bindis ritverks I larðar Ágústs- sonar og Kristjáns Eldjáms um Skál- holtsstað. Hana nú: Vikuleg laugardagsganga. Lagt af stað frá Fannborg kl. 10. Reykjavíkurhöfn: Hafnargöngur þriðjudags- og fimmtu- dagskvöld frá Hafharhúsinu kl. 21. Einnig laugardagkl. 14. Sögusýning í llafnarhúsinu við Tryggvagötu vegna 75 ára afmælis hafnarinnar. Opið daglega kl. 13-18 fram til hausts. Hafnardagur í tilefhi 75 ára afmælis hafnarinnar laugardag kl. 10-17 í Sundahöfh. Grillveisla aldarinnar kl.12-15. Árbæjarsafn: Það var svo geggjað...sýning um hippaárin í Prófessorsbústaðnum. Skólahald um aldamót, sýning 1 risi Prófessorsbústaðarins. Opnunartimi safhsins frá kl. 10 til 18 alla daga nema mánudaga. Minjasafnið á Akureyri: Minjasafhið og Laxdalshús opin dag- legafrákl. 11 til 17. Sjóminjasafn íslands, Hafnarfirði: Sýning um Skipaútgerð íslands. Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Félag eldri borgara í Kópavogi: Spilað og dansað í kvöld, föstudag, að Auðbrekku 25 kl. 20.30. Norræna húsið: Föstudagur: Kvikmyndasýning, Island under fyra árstider á norsku eða dönsku kl. 13, á finnsku kl. 13.30. Fyrirlestrar í tengslum við norræna kirkjutónlistarmótið 9-17. Laugardagur: Island under fýra ársti- derkl. 13 og 13.30. Samnorræn Jóns- messuhátíð kl. 20. Sunnudagur: Island under fyra ársti- der kl. 13. ísland í dag, fyrirlestur og umræða um islenskt þjóðlíf, Einar Karl Haraldsson stjómar umræðum. Ásvöllur, Hafnarfirði: Vígsluhátíð á gervigrasvelli Hauka sunnudagkl. 14. Sumarhátíð á Kópavogshæli 21.-27. júní. Skemmtidagskrá sunnudag og miðvikudag undir bemm himni við Kópavogshæli. Súlnasalur Hótel Sögu: Þarf að breyta stjómarskránni vegna EES-samningsins. Opinn borgara- fundur Lögfræðingafélags íslands í samvinnu við Rás 1 laugardag kl. 13.30-16. Heimspekiskólinn: Matthew Lipman heldur fyrirlestra sunnudag kl. 17 og þriðjudag kl. 17.15 í Odda um siðfræðikennslu á grunn- og framhaldsskólastigi.

x

Helgarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.