Helgarblaðið - 26.06.1992, Page 5
Helgar 5 blaðið
RgPSl||
n1
Allar líkur eru á ab Jón Páll Sigmarsson taki
bátt í keppninni um sterkasta mann heims sem
naldin ver&ur hér á landi i ágúst.
menn heimsins til íslands
Sterkustu
Ráðgert er að 10 sterkustu
menn heimsins keppi hér á
landi í ágúst og verður
keppnin kvikmynduð fyrir
sjónvarp. Meðal keppenda
verða væntanlega tveir ís-
iendingar, þeir Magnús Ver
Magnússon og Jón Páll Sig-
marsson. Sjónvarpsmyndin
verður sýnd hér á landi og
hinum Norðurlöndunum og
i gangi eru viðræður við
BBC um að sýna myndina
þar um áramót.
Það er fyrirtækið Tónkó
sem sér um undirbúning
keppninnar, en það fyrirtæki
hyggst hasla sér völl hér á
landi með því að standa fyrir
tónleikum, íþróttamótum og
ýmsum öðrum stórum uppá-
komum. Fyrr í þessum mánuði
stóð fyrirtækið fyrir tónleikum
bresku þungarokkhljómsveit-
arinnar Iron Maiden. Að sögn
Rikhards Eyfeld hjá Tónkó,
tókust tónleikamir vel að öllu
leyti, utan að aðsókn hefði
þurft að vera betri. Fyrirtækið
tapaði 7 miljónum króna á
tónleikunum, en allar skuldir
hafa þegar verið gerðar upp.
„Við gerum ekki einsog
aðrir sem að svona tónleikum
hafa staðið, að hlaupa burt frá
öllum skuldum,“ sagði Rik-
hard.
Tónkó er útibú ffá stóru
bresku fyrirtæki, TKO, sem
sér um tónleika en er jafn-
ffamt umboðs- og útgáfúfyrir-
tæki á tónlist og kvikmyndum.
Að sögn Rikhards ætlar fyrir-
tækið að hasla sér völl hér á
landi og var alltaf búist við að
tónleikar Iron Maiden myndu
koma út með tapi, einkum
vegna slæmrar reynslu tón-
leikagesta að undanfomu.
„Tónleikamir voru m.a.
haldnir til að byggja aftur upp
traust á svona uppákomum og
það tel ég að við höfúm gert,
því enginn varð fýrir von-
brigðum með tónleikana og
við höfum staðið við allar
skuldbindingar okkar,“ sagði
Rikhard.
Keppnin um sterkasta mann
heims verður tekin upp á
tveimur til fjórum stöðum hér
á landi og em menn m.a. að
horfa til Þingvalla, Gullfoss
og Geysis í því sambandi,
enda sjónvarpsmyndin jafn-
framt hugsuð sem landkynn-
ing.
Launin
ekki í sam-
ræmi við
ábyrgðina
„Þetta er að mörgu leyti
mjög skemmtilegt starf en
getur um leið verið afar eril-
samt. Þá getur sjálf vinnan
verið æði fjölbreytileg eða
allt frá þvi að afla gagna út
á sjó til tölfræðilegrar úr-
vinnslu", segir Bjöm Ævarr
Steinarsson fiskifræðingur
og trúnaðarmaður Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga hjá
Hafrannsóknastofhun.
Eins og kunnugt er þá hefúr Haf-
rannsóknastofnun nýlega lagt fram
skýrslu sína um ástand nytjastofna
og tillögur um hámarksafla á næsta
fiskveiðiári. Eins og svo ofl áður
em skiptar skoðanir um þessar til-
lögur stofnunarinnar en þó sérstak-
lega þær sem varða þorskinn enda
miklir hagsmunir í húfi. Þegar
stofnunin leggur ffam jafn um-
fangsmikla skerðingu á þorskstofn-
inum em fiskifræðingum sendar
kaldar kveðjur og störfúm þeirra
fundið nær allt til foráttu. Aftur á
móti em þeir hafnir upp til skýj-
anna þegar þeir mæla með meiri
veiði. Bjöm Ævarr segir að það sé
ekkert skemmtilegt að verða fyrir
persónulegum svívirðingum í fjöl-
Fiskifræðingur
miðlum og á fundum. „En þetta
venst eins hvað annað“.
Hann segir að fiskifræðingar séu
meira og minna að allan sólar-
hringinn og langt í frá að þeir
„slökkvi á gráu sellunum klukkan
1600“. Hjá Hafrannsóknastofnun
vinna á annan tug fiskifræðinga
við svokallaða stofnstærðarút-
reikninga en alls munu sérfræðing-
amir hjá stofnuninni vera hátt í
sextíu talsins. Starfsins vegna
þurfa vísindamennimir á Hafrann-
sóknastofnun að sækja sjóinn á
rannsóknaskipum stofnunarinnar
við gagnaöflun og aðrar vísinda-
rannsóknir. Sumir þeirra geta því
verið á sjó í nokkra mánuði á ári
hverju en aðrir aðeins í nokkrar
vikur.
Erlendis til náms
Þrátt fyrir að fískifræðingar séu
einatt mikið í fjölmiðlum og
ábyrgð þeirra í starfi sé mikil virð-
ist ekki vera mikil ásókn í starfið.
Þar fyrir utan er ekki hægt að fúll-
mennta sig í faginu hérlendis og
því verða verðandi fiskifræðingar
að leita erlendis til náms. Bjöm
Ævarr segir að það séu aðeins þrír
til fjórir „hugsjónamenn" við nám
erlendis. Sjálfur lærði hann í Kiel í
Þýskalandi en einnig hafa menn
numið fræðin í Bandaríkjunum,
Englandi og Noregi svo dæmi séu
nefnd. „Það er ekki glæsilegt fyrir
ungan fiskifræðing að koma hing-
að til starfa eftir að hafa lokið
kannski sjö ára framhaldsnámi er-
lendis með tilheyrandi skulda-
bagga á bakinu og vera aðeins boð-
ið uppá 90 þúsund krónur í mánað-
arlaun. Sérstaklega þegar það er
hafl í huga að viðkomandi þarf ein-
att að byrja á þvi að koma sér þaki
yfir höfuðið. Hins vegar er vinnu-
aðstaðan hér á Hafrannsóknastofn-
un góð en launin em ekki í neinu
samræmi við þá ábyrgð sem á okk-
ur er lögð í þessu starfi".
Bjöm Ævarr segir að frá dögum
Bjama Sæmundssonar hafi töluvert
breyst í starfi fiskifræðingsins. Á
tímum ftumkvöðlana í fiskifræð-
inni snerist starfið meira og minna
um það að kynnast þeim fiskteg-
undum sem í hafinu em í kringum
landið og finna fisk í veiðanlegu
magni. „Síðustu tvo áratugina hafa
fiskifræðingar hins vegar unnið að-
allega við að meta stærð fiski-
stofna og skynsamlega nýtingu
þeirra".
Þótt fiskifræðingamir séu flestir
starfandi á Hafrannsóknastofnun er
þá einnig að finna hjá Veiðimála-
stofnun og víðar. Fiskifræðingar
hjá Veiðimálastofnun vinna aðal-
lega með ferkfiska á meðan þeir
hjá Hafró sinna sjávarfiskum.
Starfs síns vegna þurfa fiskifræð-
Bjöm Ævarr Steinarsson fiskifræbingur vinnur vib stofnstærbarútreikninga á Hafrannsóknastofnun.
Myndir: Kristinn.
ingar hjá Hafró ekki aðeins að sitja ráðstefnur og fundi bæði hér segja að við störfum meira og
vinna úti á sjó heldur em þeir einn- heima og erlendis í hinum ýmsu minna í alþjóðlegu umhverfi".
ig mikið á ferðinni. Þeir þurfa að ráðum og stofnunum. „Það má -grh
Fiskseljendur
Fiskkaupendur
Bjóðum upp fisk alla virka daga kl.
10:30. Höfum kaupendur um allt land.
Uppboðsskjáir eru staðsettir á
Faxamarkaði, Fiskmarkaðinum í
Hafnarfirði og Fiskmarkaði
Þorlákshafnar.
Veitum lipra og góða þjónustu.
Reynið viðskiptin.
FISKMARKADUR VESTMANNAEYJA HF.
SÍMAR: (98J-13220-13221, og 985-36820
FAX 98-13222
Föstudagurinn 26. júní