Helgarblaðið - 26.06.1992, Síða 10

Helgarblaðið - 26.06.1992, Síða 10
Helgar 10 blaðið Lýst eftir bjartsýni Útgefandi: Helgarblaðið hf. Framkvæmdastjóm: Sævar Guðbjömsson, Ami Þór Sigurðsson Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Ámi Þór Sigurðsson, Sigurður Á. Friðþjófsson. Fréttastjóri: Guðmundur Rúnar Heiðarsson. Ritstjóm: Arnar Guðmundsson, G. Pétur Matthíassson, Hildur Finnsdóttir, Kristinn Ingvarsson, Sveinþór Þórarinsson. Auglýsingar: Svanheiður Ingimundardóttir, Unnur Agústsdóttir. Dreifing: Hrefna Magnúsdóttir, Guðrún Geirsdóttir. Heimilisfang: Síðumúli 37,108 Reykjavík. Sími á ritstjóm og afgreiðslu: 681333. Myndriti: 681935 Auglýsingasími: 681310 og 681331. Prentun: Oddi hf. Áskriftarverð á mánuði 700 kr. Það er öllum holit að horfast i augu við aðsteðjandi vanda og gera sér grein fyrir umfangi hans og hvemig best sé að kljást við hann. Hinsvegar veit það aldrei á gott að mála skrattann á vegginn svo dökkum litum að öllum fallist hend- ur. Það hefur gerst nú enn einusinni í tíð ríkisstjómar Davíðs Oddssonar. Öllu verra er að forsætisráðherra hefur verið í fararbroddi ýkjumálaranna og leikið sér svo gáleysislega að tölum að heilu lands- hlutamir hafa talið tilverugrundvöll sinn í hættu. Fátið sem greip um sig í stjómarher- búðunum þegar ljóst var að draga þyrfti vemlega úr þorskveiðum á næsta veiði- ári, var með ólíkindum og höguðu for- menn stjórnarflokkanna sér einsog ráð- villtir smástrákar. Forsætisráðherra datt ekkert betra í hug en að ráðast á nýgerða kjarasamninga og utanríkisráðherra hafði það eitt í bakhöndinni að drífa í virkjun á Fljótsdal þrátt fyrir að ekkert bendi til að hægt verði að seija þá orku og þegar sé heil virkjun fyrir sem fram- leiðir orku út i loftið. Að ráðast í Fljóts- dalsvirkjun núna væri til þess eins að gera samningsstöðu Landsvirkjunar að engu, ef til þess kemur í framtíðinni að samið verði um álver cða annan orku- frekan iðnað á íslandi. Um síðustu áramót var mikið Qallað um þann bölmóð sem ríkti í þjóðfélaginu og hver áramótahugvekjusmiðurinn á fætur öðrum lýsti eftir bjartsýni. Voru ráðamenn gagnrýndir fyrir að lama þrek og framfarasókn landsmanna með eilífu svartagallsrausi. Heldur virtist vera að rofa til á vordögum þegar kjarasamning- ar voru loks í höfn og atvinnuvegimir fóru að undirbúa nýja sókn. Sú dýrð varði þó ekki lengi. Tillögur erlendu fiskifræðinganna um 40 prósenta sam- drátt í þorskveiðum kom mönnum alls ekki í opna skjöldu. Flestir höfðu búist við einhverju í þá áttina. Viðbrögð for- sætisráðherra voru hinsvegar einsog blautur vettlingur í andlit launafólks, sem var nýbúið að undirrita enn einu- sinni mjög hógværa kjarasamninga, svo vægt sé til orða tekið. Forsætisráðherra talaði um 15 miljarða skerðingu þjóðartekna vegna þorsksins. Nú hefur hagfræðingur Vinnuveitenda komið með eigin útreikninga og sam- kvæmt þeim verður samdrátturinn ein- ungis 4,5 miljarðar á næsta ári. Þar með felldu vinnuveitendur Davíð á prófinu. Þjóðin hefur reyndar ítrekað feilt ríkis- stjómina í skoðanakönnunum að undan- fomu. Kemur það ekki á óvart, því það sem þjóðin þarfnast í dag eru djarfhuga menn sem geta stappað stálinu í fólk. Það getur ríkisstjóm Davíðs Oddssonar ekki gert. Það eina sem hún virðist geta er að draga þjóðina niður í þá forarvilpu þar sem ríkisstjómin virðist sjálf þrífast best. Helgarblaðið fer í fríið Ákveðið hefur verið að stöðva útgáfu Helgarblaðsins tímabundið. Ástæðan er sú óvissa sem hefur skapast við gjaldþrot Bjarka vegna þess tækjakosts sem Helg- arblaðið hefur haft á leigu. Þar með er ekki verið að leggja upp laupana, heldur verða allir möguleikar kannaðir á því að taka upp þráðinn í haust. Viðtökur lesenda Helgarblaðsins hafa sýnt að þörf er á gagnrýnu blaði á vinstri vængnum. Um leið og við þökkum lesendum Helgarblaðsins samfylgdina vonumst við til að hitta þá aftur á hausti komanda. -Sáf Hvað er að gerast í heilsugæslu- málum starfsmanna álversins? Arum saman hefur ÍSAL sniðgengið marg ítrekaðar óskir verkalýðsfélaganna um að fara að lögum um heilsu- vemd starfsmanna og vamir gegn atvinnusjúkdómum. Forstjóri fyrirtækisins dr. Christian Roth hefur rneira að segja gengið svo langt að neita að undirrita samkomu- lag þess efhis við Heilsu- gæslustöðina í Hafnarfirði. Þrátt fyrir þctla frjálsræði virðast stjómendur ÍSAL tclja aö heilbrigð- isyfirvöld og hcimilislæknar hall of nrikil alskipti afheilsufari starfs- rnanna og gcra sig líklega til að koma á fót eigin heilbrigðiskerfi, þar sem yfirmenn fyrirtækisins geta einir og án afskipta íslenskra heil- brigðisyfirvalda og vcrkalýðsfélaga, sagt til urn hvort starfsmaður er vinnufær eða ekki. Og það er ekki einungis að ÍSAL vilji öllu ráða um heilsugæslu starfsmanna, heldur krefst þess cinnig að fá vald til einhliða ákvarð- ana um vinnutíma þeirra, neyslu- tínra og fæðuval. Fyrirtækið ællar Formaður Hlífar sér einnig að skammta þeim laun að eigin geðþólta og er cina fyrirtækið í landinu, scm neitar miðlunartil- lögu ríkissáttasemjara. Sé þctta það gjald, sem íslensku verkafólki er gert að greiða lýrir vinnu hjá er- lendum stóriðjufyrirtækjum þá verðum við að endurskoða afslöðu okkar gagnvart þeini. Starfsmanna- stefna ÍSAL ÍSAL hcfur nú núvcrið látið prcnta stcfnu sína um heilsugæslu starlsmanna og nteðferð þeirra mála. í bæklingi frá fyrirtækinu, scm kallaður er „Starfsmannastefna ÍSAL“, cr sagt hvcmig fyrirtækið hugsar sér að koma frant við starfs- nrcnn sína í veikindatilfellum. Þar er ekki lagt til að farið sé að íslensk- um lögunr eða kjarasamningum heldur á aö taka upp heilsugæslu cins og tíðkast meðal fyrirlækja í þriðja heiminum. I fyrrgrcindum bæklingi er m.a. aö finna cftirfarandi um meðferð á starfsmanni, sem verið hcfur veikur í 6 skipti á s.l. 12 mánuðum og skil- að inn læknisvottorðum til ÍSAL eins og kjarasamningur gerir ráð fyrir: „Varðandi veikindafjarvistir skal fyrst með milligöngu launadeildar boða hann til trúnaðarlæknis ÍSAL. Síðan fer fram viðtal sern yfirmaður hans og deildarstjóri launadeildar sjá um. Óski starfsmaður eftir því að trúnaðarmaður sé viðstaddur, er ckkert því til fyrirstöðu." Síðan seg- ir: „Ut frá viðtalinu ætti yfirmaður að fá nokkum skilning á aðstæðum viðkomandi starfsmanns og geta þannig sett markmið fyrir næsta þriggja nránaða tímabil. Þar sem að- stæður geta verið breytilegar, geta markmiðin cinnig verið mismun- andi. Markmiðin eiga að vera ná- kvænrlcga tilgreind, t.d. ekki meira en 2 ófyrirséðar fjarverur frá 1. maí til 31. júlí og þau á að staðfesta skriflega." ÍSAL líti sér nær Þessi starfsmannastefna ÍSAL er svo langt frá íslenskum hugsunar- hætti og rcyndar allri heilbrigðri skynsemi að setja verður ISAL stól- inn fyrir dymar nreð framkvæmd hcnnar. Þegar fyrirtæki taka upp á því að fara sínar cigin leiðir í heilsu- gæslu án sanrráðs við heilsugæslu- stöðvar og heimilislækna starfs- nranna er korninn tími til að taka í taumana. í stað þess að veitast að slarfsmönnum sínum vegna ósköp eðlilegrar veikindatjarveru ætti ISAL að líta sér nær og taka til í sínum eigin heimagarði og standa bctur að þrifum og aðbúnaði á hin- unr ýnrsu vinnustöðunr álversins, þannig að ailskonar ryk og mengun valdi ekki heilsubresti og veikind- um nreðal starfsmanna. Það hefur t.d. sitt að segja til hins verra í heilbrigðismálunr starfs- nranna að loftmengun í steypuskála hefur sjaldan verið nrciri en nú frá því að álverið hóf starfsenri sína og það segir sína sögu að það er fyrst núna í sunrar að lokið verður við að setja upp sænrilegan loftlrreinsibún- að í báða kerskálana. Hugsanlega m'ætti rekja eitthvað af veikindum starfsnranna til þessara þátta. Það að loksins er búið að loka kerjunr í kerskálunr og setja þar upp lofthreinsibúnað er nokkuð sem ÍSAL ætti ekki að hreykja sér af, því það er síðbúin framkvæmd sem hefði átt að gera fyrir nrörgum árum og hátíðarhöld í því sambandi væru hlægileg. Verkalýðsfélögin og meirihluti starfsmanna eru á móti því að ÍSAL sjái unr læknisskoðunina og krefjast þess að landslög þar að lútandi verði látin ná yfir ÍSAL eins og aðra atvinnurekendur. Félögin telja að afskipti yfirmanna ÍSAL af veikind- um starfsmanna séu óeðlileg og alls ekki í samrænri við gildandi kjara- samning eða lög í landinu. Enginn annar aðili en Heilsu- gæsluslöðin í Hafnarfirði á að sjá unr lögbundna jæknisskoðun á starfsnrönnunr ÍSAL og yfimrenn fyrirtækisins eiga þar hvergi nærri að koma. Þar fyrir utan eru heimil- islæknar starfsnranna fullkonrlega færir unr að sinna veikindunr þeirra. íslensk lög skulu gilda Vilji ÍSAL vita eitthvað nánar um hcilsufar starfsnranna sinna eiga þær upplýsingar ekki að konra fram í viðtölunr inni á skrifstofum yfir- nranna ÍSAL, heldur á trúnaðar- læknir fyrirtækisins að fá þær frá fyrrgreindum heinrilislæknunr. Lög unr aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðunr kveða skýrt á unr að heilsugæslustöðvar sjái unr heilsuvemd starfsnranna fyrirtækja, en 66. gr. laganna er svohljóðandi: „Heilsuvemd starfsmanna skal falin þeirri heilsugæslustöð eða sjúkrahúsi senr næst liggur og/eða auðveldast er að ná til, sbr. 19. gr. laga nr. 57/1978. Hvert fyrirtæki skal gera skrifleg- an sanrning við stjóm viðkomandi heilbrigðisstofnunar (stofnana) um fyrirkonrulag og franrkvæmd þeirrar þjónustu, senr veita skal. Vinnueft- irlit ríkisins skal sjá um, að slíkir sanrningar séu gerðir, og hlutast til unr að skorið sé úr ágreiningi, er upp kann að koma milli heilsu- gæslustöðvar, sjúkrahúss og at- vinnurekenda.“ wm&Sm MEGA SKÍFULAGA ÞAKPLÖTUR Tilboðsverð ímaíogjúní Gott verð ÞAK YFIR HOFUÐIÐ! MEGA skffulaga álplöturnar ryðga ekki og upplítast ekki. Þær eru langtímalausnin sem þú ieitar að. Fást í mörgum stærðum. Yfir þijátfu ára reynsla á fslandi. LANGTÍMALAUSN SEM WJ LEITAR AÐ SPARAÐU VIÐHALD N0TAÐU ÁL Mega h/f, Engjateigi 5, 105 Reykjavík Pósthólf 1026, 121 Reykjavík. Sími 91-680606. Fax 91-680208. Föstudagurinn 26. júni

x

Helgarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.