Dagblaðið - 20.10.1975, Blaðsíða 6
Dagblaðið. Mánudagur 20. október 1975.
Fœr Karen Quinlan að devia?
Réttarhöld hefiast í
Josephog Julia Quinlan koma fyrir rétt í Morristown í New Jersey í Bandaríkj-
unum i dag þeirra erinda að biðja um að dóttir þeirra, Karen Anne, fái að deyja.
Karen hefur verið meðvitundarlaus í sex mánuði og hefur orðið fyrir svo miklum
heilaskemmdum, að læknar telja útilokað að hún geti lifað og starfað sem venjuleg
manneskja framar.
Haldið á lífi í stál-
lunga
Henni er haldið á lifi i stál-
lunga, sem hún getur ekki verið
án nema i nokkrar stundir i
mánuði. Quinlan-hjónin hafa
farið fram á, að stállungað verði
tekið úr sambandi. Samkvæmt
fylkislögum New Jersey væri
slikt morð.
Fulltrúar laganna, sem rann-
sakað hafa málið, segja meðvit-
undarleysi Karenar stafa af of-
neyzlu deyfilyfja og áfengis en
lögfræðingur fjölskyldunnar
heldur þvi aftur á móti fram, að
orsökin fyrir ástandi stúlkunnar
— sem er 21 árs — sé óþekkt.
Engu lík orðin — hef
ur lézt niður í 27 kíló
Karen Anne hefur legiðá gjör-
gæzludeild sjúkrahúss ná-
grannaborgar allt siðan hún
fannst meðvitundarlaus að
morgni 15. april. Að sögn þeirra,
sem hafa séð hana þar, er hún
engu lik, með opinnmunn og
augu og hefur létzt niður i um
það bil 27 kg.
Quinlan-hjónin eru strangtrú-
aðir kaþólikkar og njóta stuðn-
ings prests sins og fjölskyldu i
baráttu sinni fyrir þvi, að Karen
fái að deyja „með sæmd”, eins
og Joseph Quinlan orðar það.
Dómi áfrýjað,
hvernig sem
hann verður
Búizt er við hörðum deilum i
réttarhöldunum og hefur mál
þetta vakið athygli um gjörvöll
Bandarikin. Hver sem niður-
staða réttarins verður, er búizt
við að dómnum verði áfrýjað til
hæstaréttar.
Þetta er ein af mörgum tegundum af
hjónarúmum, sem við erum með.
Komið til okkar áður en þér kaupið hjóna-
rúm, einstaklingsrúm eða springdýnur
og athugið gæði og úrval
Opið frá kl. 9-7 og laugardaga frá kl. 10-1
BRJOSTIN STÆKKA
— a.m.k. í V-Þýzkalandi
Brjóst kvenna fara mjög stækk-
andi, að minnsta kosti i Vestur-
Þýzkalandi.
Nærfataframleiðendur i Stutt-
gart skýrðu frá þvi um helgina,
að meðal brjóstmál þýzkra
kvenna sé 96,5 cm, sem er aukn-
ing um hálfan aiinan sentimetra á
undanförnum fimm árum. Létu
framleiðendurnir þess getið, að
þessi þróun ætti við um alla
Evrópu.
Mögulegar skýringar töldu þeir
vera pilluna og betri og næringar-
rikari fæðu.
Eftirspurn eftir brjóstahöldum
i stórum C-númerum fer stöðugt
vaxandi, sagði framkvæmda-
stjóri sambands nærfataframleið-
enda á fundi i Stuttgart um helg-
ina. „Skýringin kann að vera sú,
að hérlendis er fögur kona talin
vera sú, sem er mikil um sig. Þvi
geta þýzkir barmar virzt stærri
en annars staðar i Evrópu.”
Hann bætti þvi siðan við, að
vitaskuld héldu aðrar þjóðir ekki
jafn nákvæmar tölur yfir slika
hluti og Þjóðverjar gerðu.
íOi%£ Springdýnur
Heiluhrauni 20, s: 53044
Hafnarfirði
Sjónvarpskoupendur
athugið
Vorum að fá hin frábæru Ferguson
sjónvarpstæki. Engir lampar. Mjög gott
verð.
Fullkomin viðgerða- og varahluta-
þjónusta.
Verð á tæki með 24” skermi kr. 71.325,-
Sjónvarpsmiðstöðin s.f.
Þórsgötu 15, Reykjavik. Simi 12880.
Alisjafn árangur Sakharov-réttarhalda
„Hér hefur ekkert
nýtt komið fram”
— sagði Eugene lonesco og hœtti þátttöku
Leikritaskáldið Eugene Ionesco
stormaði út úr réttarsalnum, þar
sem hin svonefndu Sakharov-
réttarhöld fóru fram i Kaup-
mannahöfn um helgina. Ionesco
sakaði eitt vitnanna um skort á
þolgæði og lýsti þvi yfir, að hann
myndi ekki verða viðstaddr er
réttarhöldunum lyki. Það var i
gærkvöldi.
Ionesco var i hópi þeirra, sem
leiddi vitnaleiðslurnar með
spurningum til vitnanna um
meint brot á mannréttindum i So-
vétrikjunum. Hann hafði fyrr um
daginn spurt sovézka útlagann og
aðventistann Eyyenie Brsenden
hvort sovézkir kynvillingar væru
ofsóttir.
Ionesco sagði er hann var kom-
inn út úr réttarsalnum i danska
þinghúsinu, að vitnið hefði skipað
honum að halda spurningum sin-
um að málefnum ofsóttra vegna
trúarbragða þeirra og skeyta
ekki um þjófa og glæpamenn.
„Ef hann er þeirrar skoðunar
að kynvillingar séu glæpamenn,”
sagði Ionesco við fréttamenn, ,,þá
er ég þeirrar skoðunar að þetta
fólk eigi ekki skilið stuðning,
vegna þess að það skilur ekki
hvað frelsi er.”
Leikritaskáldið, sem er nú 62
ára, sagði að hvort sem er skiptu
réttarhöldin ekki miklu máli. Allt
sem þar hefði verið sagt hefði
þegar komið fram á Vesturlönd-
um, þar sem fólk léti eins og þvi
kæmi málið ekki við.
Hraustir strákar
Judo-œfingar stráka upp að 14 ára
aldri eru byrjaðar að Brautarholti
18, R.
Kennt er á mánudögum og föstudögum
kl. 18-19. Nýir félagar velkomnir
Judófélag Reykjavikur