Dagblaðið - 20.10.1975, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 20.10.1975, Blaðsíða 18
18 Dagblaöiö. Mánudagur 20. október 1975. LÉT LÍFIÐ í BÍL- SLYSI VIÐ BORGARNES Stúlko flutt mikið meidd flugleiðis til Reykjavíkur Dauðaslys varð skammt fyrir ofan Borgarnes um kl. 18 á laugardaginn. Mercedes-bifreið frá Borgarnesi var á leið til kauptúnsins en Toyotabifreið var á leið frá Borgarnesi. Rákust bilarnir harkalega saman i beygju á blindhæð með þeim afleiðingum að Halldór Arndal frá Árdal i Andakil lézt af afleiðingum meiðsla og ung stúlka Úrsúla Kristjánsdóttir, Hrisdal, Miklaholtshreppi liggur mikið slösuð i gjörgæzlu- deild Borgarspitalans. 1 beygjunni á blindhæðinni þar sem bifreiðarnar rákust saman er lausamöl og i hana mótuð hjólför sem ökumenn gjarna þræða. Rákust bilarnir þvi svo til beint framan á hvor annan. Þau Halldór og Úrsúla voru i Toyotabifreiðinni, en bræður voru i Mercedesbifreið- inni. Hin slösuðu voru þegar flutt i sjúkrahús á Akranesi og þaðan kom beiöni um þyrlu til að flytja hin særðu til Reykjavikur. SVFt fékk þyrlu varnarliðsins til flugsins, en áður en hún komst á loft kom tilkynning um að Hall- dór væri látinn. Þyrlan sótti Úrsúlu til Akra- ness. Aðstoðuðu björgunar- sveitarmenn SVFÍ við lendingu og gekk flugið vel. Úrsúla er tvi- lærbrotin og tvikjálkabrotin auk innvortis meiðsla. Hún er nú á batavegi. Bræðurnir i Mercedesbilnum voru minna meiddir, en báðir skornir i andliti, annar allmikið og e.t.v. kjálkabrotinn. —ASt. Tilbúinn með allar stœrðir óvísana Maður var rændur veski sinu er hann var á heimleið frá Klúbbn- um aðfaranótt laugardagsins. Hann var einn á ferð er tvo unga menn bar að og skiptum þeirra lauk með þvi að þeir höfðu af hon- um veski hans. Gat hann litla mótspyrnu veitt sakir drykkju- þreytu. En hann hafði búið sig vel undir kvþldið, þvi hann hafði fyrirfram útfyllt ávisanir i hefti sinu til kvöldeyðslunnar. Og þessar ávis- anir hafa nú þjófarnir. Þær eru allar á blöðum frá Búnaðarbank- anum á Hlemmi og hljóða upp á 10 þús. kr.,2 stykki á 7 þús. kr., 6 þús. kr., 4 þúsund kr. og 2 þúsund kr. Og nú ættu menn að passa sig á þessum ávisunum. —ASt Skildi 60 aura eftir í kassanum Brotizt var inn i útibú Kaupfé- lags verkamanna á Akureyri að- faranótt sunnudagsins. Var þar gengið hreinlega til verks, rúða brotin i útihurð, skotizt inn og náð i peningakassann. tbúð er á efri hæð og mun þjófurinn hafa óttazt að til hans heyrðist og lét sér nægja kassann. í honum voru þó ekki nema 3—4 þús. kr. af skipti- mynt. Kassinn fannst siðar i fjöru smábátahafnarinnar og þá voru eftir i honum 60 aurar. —ASt Óvenjulegt brúökaup fór fram i Bústaöakirkju á laug- ardaginn. Þar gekk Þorvarður Ilelgason aö eiga Jónu Björk Gunnarsdóttur, sem i sjálfu sér er ekki í frásögur færandi. i lok athafnarinnar heyrðust nllt i einu kröftugir tónar niöur af söngpallinum Þar var rokk- hljómsveitin Paradis mætt og flutti lagið „Tommy" eftir Jan Akkerman, forsprakka hol- lenzku hljómsveitarinnar FOCUS. A eftir spilaði Para- dis brúöarmarsinn. Þorvarður var I eina tlö rótari hljóm sveita og vann m.a. fyrir Pét- ur Kristjánsson, söngvara Paradísar. OB-mynd: HSS. Poppbrúðkaup um helqina Paradís lék brúðarmarsinn Veðrið Suðaustan gola. Skýjað en úrkomulitið. Hiti 8-11 stig. Vinningsnúmer i Leikfangahapp- drætti Thorvaldsensfélagsins 1975 307 6448 11503 18483 25039 1165 6609 11635 19589 25212 1601 6944 11710 19913 25872 1985 7092 12182 20307 26112 2106 8169 12820 20451 26271 2344 8175 12984 20476 26461 2873 8233 13306 20744 26592 3015 8480 13498 21064 27013 3612 8548 13931 21842 27015 3616 8566 14097 21907 27177 4333 8577 14249 22817 27215 4401 9026 14736 22990 27580 4520 9087 15696 23104 27836 4755 9384 15716 23149 28328 4897 9437 16047 23274 28534 4987 9633 16737 23356 28822 5614 10006 16848 23407 28948 5903 10337 18085 23697 29378 6290 10459 18376 23949 29390 6397 11000 18423 24426 29833 Mænusóttarbólusetning Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram i Heilsuverndarstöð Reykjavikur á mánudögum kl. 16.30 — 17.30. Vinsamlega hafið með ykkur ónæmisskirteini. Sýningarsalur Menningarstofn- unar Bandarikjanna: Helen C. Frederick, bandarfsk listakona, opnar sýningu á verkum sinum á morgun, sunnudag milli kl. 14 og 17. Verkin, sem hún sýnir eru svartlist og teikningar, um fimmtiu talsins. Sýningin verður opin til 24. október klukkan 13-18. Galleri Súm: Tryggvi Ólafsson sýnir. Sýningin stendur frá klukkan 16-22 a.m.k. til mánaða- móta. Skákmótinu frestað: Norræna húsiö: Agúst Petersen sýnir. Stendur til 28. október. Op- ýði dagfrá 5-10 en annars frá 2-10. MAC MURRAY í ÞOKUNNI, - LIBERSON HEILLUM HORFINN Ekkert hefur enn heyrzt lr£ Hartston-Laine Timman-Ostermayer I fyrstu umferð situr Ribli Israelsmanninum Vladimii Jansa-Zwaig Liberzon-Mac Murray yfir. Liberzon, sem er einn keppend anna á svæðamótinu I skák Mótið átti að byrja i gær. En þai sem hvorki Liberzon né Mac Murray frá írlandi voru komnir til leiks, var fyrstu umferð mótsins frestað þangað til i dag. Upphaflegri keppendaröð var breytt með hliðsjón af þvi, að þessir tveir keppendur voru ekki mættir, og er þeim ætlað að tefla saman i fyrstu umferð, sem hefst klukkan 5 i dag á Hótel Esju. Mac Murray hafði sent skeyti og greint frá seinkun flugvélar vegna mikillar þoku, sem legið hefur yfir Bretlandseyjum, en frá Liberzon hefur ekkert heyrzt frá þvi hann fór á stað frá tsrael snemma s.l. laugardag, t kvöld eigast þessir skák- menn við: Ólafsson-Parma Þorsteinsspn-Hamann Poutianen-Van Den Broeck Iðnskolar i skurum og barnaheimilum: IÐNNEMAR HÓTA NÚ AÐ FARA í VERKFALL Iðnnemar hafa hótað verkfalli til þess að mótmæla stórfelldum niðurskurði á fjárveitingu til iðnnáms i hinum nýju fjárlög- um. Munu þeir leggja niður vinnu i skólum og á vinnustöð- um 1 dag i fyrstu viku eftir setn- ingu alþingis, 2 daga i annarri viku, 3 i þeirri þriðju o.s.frv., þar til algjört verkfall er skollið á. t samþykkt 33ja Iðnnema- sambandsþings segir að með þessum aðgerðum vilji iðnnem- ar mótmæla þeirri geigvænlegu þróun er eigi sér stað. i iðn- fræðslu á tslandi. Utan Reykja- vikur búi iðnskólar ákaflega illa, i lélegum timburskúrum, barnaheimilum eða félagsheim- ilum og séu kennarar i hinum ýmsu fögum dauðþreyttir iðn- aðarmenn sem taki að sér kennslu i aukavinnu, enda sé ár- angurinn eftir þvi. Tækjakostur sé enginn og nú hafi fjárveiting- arvaldið haft samþykktir sinar frá 1966 i nýju iðnfræðslulögun- um að engu með þvi að skerða stórlega 43ja milljón króna fjár- hagsáætlun Iðnfræðsluráðs. HP. Bogasalurinn: Minningarsýning Drifu Viðar. Stendur til sunnu- dagskvölds 26. október. Opið frá 3-10. Listasafn tslands: Yfirlitssýning á verkum Jóns Egilberts. Opið frá 13.20-22 daglega til 18. nóvem- ber. Byggingarþjónusta arkitekta -viö Grensásveg: Einar Hákonarson sýnir. Opið frá 14-22 til 30. októ- ber. Sýningar i Brautarholti 6 á teikningum eftir Jóhannes Kjarval. Sýningin stendur til 25. október og er opin frá 16—22 alla daga. Kja rvalsstaöir»Ragnar Páll. Sýningin stendur til 23. október. Opið frá 4-10. Kjarvalsstaöir: Sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals er opin alla daga nema mánudaga klukk- an 16—22. Aðgangur og sýningar- skrá ókeypis. Kvenfclag Bæjarleiða: Aðalfund- ur verður haldinn i Siðumúla 11, þriðjudaginn 21. október kl. 20.30. Aðalfundarstörf, myndasýning úr sumarferðalaginu. <i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.