Dagblaðið - 21.10.1975, Síða 2
2
nagblaftift. Þriðjudagur 21. október 1975.
Skákmótið í gœr:
ÍSLAND STENDUR
Á NÚLLl EFTIR
FYRSTU UMFERÐ
— Friðrik og Björn töpuðu sínum skákum
Ostermayer gaf skák sina
gegn Timman eftir 16 leiki á
Svæðismótinu á Hótel Esju i
gær. Aðrar skákir fóru þannig:
Poutiainen — Van Den Broeck:
1-0
Hartston — Laine: 1-0
Hamann — Björn Þorsteinsson:
1-0
Friðrik Ólafsson — Parma: 0-1
Zwaig — Jansa: 1-0
Timman — Ostermayer: 1-0
Hvitur er talinn fyrr.
Ribli sat yfir en skák Liberzon
og Murray var frestað þar til
biðskákir verða tefldar á
fimmtudaginn.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá hafði enn ekkert frétzt frá
Liberzon þegar mótið hófst i
gær kl. 5, en hann lagði af stað
frá ísrael snemma á laugar-
dagsmorgun.
Kl. 19.04 gekk Murray i
keppnis- og áhorfendasalinn á
Hótel Esju. Minútu siðar lauk
fyrstu skákinni á milli Timman
og Ostermayer, en þeir Liber-
zon og Murray komu með sömu
flugvél frá London skömmu áð-
ur. Hafði sá fyrrnefndi tafizt i
Róm,en Murray hafði ekki kom-
iztfrá írlandi fyrr en i eftirmið-
dag I gær vegna mikillar þoku,
sem lá yfir flugvöllum á Irlandi.
Mesta athygli áhorfenda vakti
að vonum skákin á milli Friðriks
og Parma, tveggja af 6 stór-
meisturum, sem taka þátt i
mótinu. Þeir teíldu drottningar-
bragð. Var mál manna að skák-
in væri geysispennandi. Að vísu
tók Friðriic sér góðan tima, en
það hefur nú sézt áður.
Meðal áhorfenda voru að
sjálfsögðu allir þekktustu skák-
menn tslands. Töldu sumir, að
fljótlega væri Friðrik kominn
með lakari stöðu, en aftur á
móti voru aðrir, sem efuðust
lengst af ekki um sigur hans.
Engin skák skipti áhorfendur
jafnmiklu máli og þessi. Mikil
átök fóru fram i höfðum manna
og i umræðum, engu siður en á
keppnisborðinu.
Eftir 25 leiki átti Friðrik nær
engan tima eftir og jafnteflis-
vélin júgóslavneska bætti stöðu
sina jafnt og þétt. Verðskuldaö-
ur en ekki mjög vinsæll sigur.
Poutainen og Van Den Broeck
léku katalónska byrjun. Finninn
hafði hvitt á móti belgiska
doktomum, sem þurfti að sækja
á brattann alla 27 leikina.
Hartston hafði hvitt á móti
Laine f'rá Guernsney. Þeir
tefldu kóngsbyrjun. Englend-
ingurinn fékk miðborðið næst-
um að segja i vegarnesti, en
Laine var orðinn peði undir i
peðsendatafli og gaf eftir 38
leiki.
Norðmaðurinn Zwaig og
Tékkinn Jansa tefldu kóngsind-
verska byrjun. Zwaig hafði hvitt
og hélt frumkvæðinu til vinnings
i 40 leikjum. Gefið.
Hamann var með hvitt á móti
Birni Þorsteinssyni. Upp kom
Nimso-indverskt tafl, sem Dan-
inn tefldi til vinnings. Björn gaf
I 27. leik.
Ahorfendur vom ekki margir,
þegar mótið hófst, en þó voru
þarna kunnugleg andlit frá
skákmótum. Þarna vom Einar
Þorfinnson bridgespilari, Berg-
ur Pálsson, stjórnarráðsmaður,
Halldór Pétursson, listmálari,
Jóhann Friðriksson, kaupmað-
ur Jakob Hafstein, frkvstj. og
Jóhann Arnason, fyrrv. banka-
starfsmaður. Meðal kunnari
skákmanna voru þarna frá
byrjun þeir Ingi R. Jóhannsson
og Benóný Benediktsson, og
Sigurður Sigurðson, fréttastjóri,
lét ekki á sér standa.
Fjölgaði nokkuð jafnt allan
timann fram yfir kvöldmat, en
þá mátti heita, að áhorfendasal-
urinn væri þétt setinn. t hliðar-
sal var sjónvarpstæki eins og i
þægilegri dagstofu, en þekktir
skákmeistarar islenzkir skýrðu
skákir i öðrum hliðarherbergj-
um.
Mótsstjóri er bandariski stór-
meistarinn séra William Lom-
bardy, en honum til aðstoðar
em þeir Jón Pálsson og Bragi
Kristjánsson. Blaðafulltúar
mótsins eru Olafur Orrason og
Ólafur H. Ólafsson.
Aðstaða til keppnishalds sýn-
ist vera allgóð og mótsstjórn
ágæt i öllum greinum.
2. umferð verður tefld i dag.
Þá tefla saman:
Ribli (stórmeistari) og
Poutianien
Van Den Broeck og Hartston
(alþjóðlegur meistari)
Laine og Hamann (alþjóðleg-
ur meistari)
Björn Þorsteinsson — Friðrik
ólafsson (stórmeistari)
Parma (stórmeistari) og
Zwaig (alþjóðlegur meistari)
Jansa (stórmeistari) og
Timman (stórmeistari)
Ostermayer og Liberzon
(stórmeistari)
Murray situr hjá.
Töfluröðin er þessi: 1. Zoltan
Ribli (Ungverjaland), 2. Pertti
Poutiainen (Finnland), 3. Willi-
am Hartston (England), 4. Sven
Hamann (Danmörk), 5. Friðrik
Ólafsson, 6. Arne Zwaig (Noreg-
ur), 7. Jan Timman (Holland),
8. Vladimir Liberzon, 9. John
Murray (Irland), 10. Peter
Ostermayer (V-Þýzkaland), 11.
W. Jansa (Tékkóslóvakia), 12.
Bruno Parma (Júgóslavia),
Björn Þorsteinsson, Eugene
Laine (Guernsey), Van Den
Broeck (Belgia). —BS—
SJÓNVARPSMYNDIN DÓ ÚT
OG RAFTÆKI EYÐILÖGÐUST
— vegna óstöðugrar spennu í Grundarfirði
,,Enn er ómælt það tjón sem
óstöðug rafmagnsspenna i
Grundarfirði á föstudagskvöld og
á laugardag hefur valdið,” sagði
fréttaritari Dagblaðsins á staðn-
um. Spennan rokkaði frá 150 volt-
um upp i allt að 300 volt. Efra
markið var þó ekki hægt að mæla,
Hljóm-
flutnings-
tœkjum stolið
Hún var heldur óskemmtileg
heimkoma ibúa að Vesturgötu 25
á föstudagskvöldið. Fólkið hafði
brugðið sér i bió og er heim kom
voru horfin úr ibúðinni Pioneer
hljómflutningstæki, plötuspilari,
magnari og tveir hátalarar. Svo
virðistsem þjófinn hafi ekki skort
neitt annað, þvi annars er ekki
saknað. Málið er i rannsókn.
ASt.
en 250 volta spennumælir stóð
langtimum saman i botni.
— Eg hef haft spurnir af þvi að
þrjár frystikistur hafi skemmzt
af þessum sökum og ýmis lág-
spennutæki, s.s. dyrabjöllur o.fl.
hafa eyðilagzt. Lokar hafa
skemmzt og mótstöður brunnið.
Mynd á sjónvarpsskermi fólks
dó út i hvitu þegar spennan var
sem lægst og búast má við þvi að
lampar hafi gefið sig einhvers
staðar eða séu lakari eftir. Slikt
kann að reynast dýrt spaug.
Þessi bylgja með óstöðugt raf-
magn á Grundarfirði stóð i tæpa
tvo sólarhringa.
— Við skiljum vel að einhver
tæki kunni að bila, en að forráða-
menn rafmagnsmála skuli þá
ekki senda út orðsendingar i fjöl-
miðlum þar að lútandi er vægast
sagt skammarlegt. Dýr tæki eru i
húfi og^reynslan sýnir að bætur
fást ekki fyrir tjón á þeim af slik-
um orsökum.
Sú er nýskipan rafmagnsmáia i
Grundarfirði að staðurinn fær
rafmagn beint frá Andakilsár-
virkjun i stað Ólafsvikur áður.
Slæmt var ástandið áður en ekki
hefur það batnað. Fréttamaður
Dagblaðsins hringdi til Andakils-
árvirkjunar og spurði um orsakir.
Kváðu þeir spenni á linu til ólafs-
vfkur hafa bilað og þeim kæmi
málið ekki við. í Ólafsvik sögðu
ráðamenn að þetta mál væri þeim
óviðkomandi.
Þessi rafmagnsbilun, hversu
dýr sem hún kann að verða
Grundfirðingum, virðist þvi eng-
um koma við en af fyrri reynslu
þykjast Grundfirðingar vissir um
að hennar muni ekki gæta á raf-
magnsreikningum þegar þar að
kemur. Þó dráttur sé á stöðugu
rafmagni er aldrei dráttur á að
reikningar berist, og lokunarað-
gerðir eru rafveitumönnum tam-
ari en framkvæmdir til úrbóta
eða aðvaranir um aðsteðjandi
hættu. Það rikir megn óánægja
með rafmagnsmálin i Grundar-
firði.
Sópugerðin Frigg
gefur þvottabirni
Stöku sinnum sýna menn svo-
litla kimni i daglega lifinu og
það má segja að Sápugerðin
Frigg hafi gert nú nýlega.Um
næstu mánaðamót koma til Sæ-
dýrasafnsins i Hafnarfirði 3
þvottabirnir sem sápugerðin
gefur safninu.
Jón Kr. Gunnarsson, forstjóri
Sædýrasafnsins, sagði að birn-
irnir, sem draga nafn sitt af
þeirri áráttu að vilja alltaf þvo
mat sinn upp úr vatni áður en
þeir snæða hann, kæmu frá
dýragarðinum i Kaupmanna-
höfn og væru þetta 2 karldýr og
1 kvendýr. Þvottabirnir sagði
hann að væru ákaflega vinsælir
sýningargripir i dýragörðum
erlendis vegna skemmtilegra
tiltekta þeirra og útlits. Hefðu
birnirnir endur fyrir löngu verið
ein algengasta dýrategund i N-
Ameriku en nánast verið útrýmt
vegna þess hversu þeir hefðu
lagzt á maisræktina og svo
vegna verðmætra skinna. Að
lokum vildi Jón koma á fram-
færi þakklæti til sápugerðarinn-
ar, svo og annarra fyrirtækja er
rétt hefðu safninu hjálparhönd
gegnum árin. HP
BREIÐHOLT BYGGIR
3 SKRIFSTOFUHÚS
Ereiðholt hf. er nú byrjað að
reisa þrjár skrifstofubyggingar á
mótum Siðumúla, Fellsmúla og
Grensásvegar. Almennar trygg-
ingar hf. eiga eitt húsið, en
Alþýðubankinn hf. og Alþýðu-
samband tslands annað. Hinu
þriðja hefur enn ekki verið ráð-
stafað.
HUsin verða öll þrjár hæðir og
400 fermetrar að flatarmáli
hvert. Eins og sést á myndinni er
bygging þessara húsa nýlega
hafin.
Greinileg er sú þróun að fyrir-
tæki byggja yfir sig i austurbæn-
um. Bilastæðin sem þar er hægt
að koma fyrir hafa án efa talsvert
að segja, enda er svo komið að
flest viðskipti útheimta góð stæði
fyrir þarfasta þjóninn viðskipta-
vinanna. — BS—
ðSSS
TrrrT^
ntpa‘■008
Hœg fólksfjölg-
un í Reykjavík
Fólksfjölgun á Reykja-
vikursvæðinu er hægari en
annars staðar á landinu.
Borgarstjórn samþykkti
samhljóða tillögu þess efnis,
að alþingismenn Reykja-
vikur beiti sér fyrir þvi, að
Byggðasjóður láti höfuð-
borgina njóta jafnréttis við
■ aðra landshluta i lánum og
styrkveitingum úr sjóðnum.
Meðalfólksf jölgun á
íslandi árin 1973 — 74 var
2.53%, en var á sama tima i
Reykjavik aðeins 2%. Til
samanburðar má geta þess,
að fólksfjölgun á Norður-
landi eystra var 3.12%.
Björgvin Guðmundsson
flutti tillögu i borgarstjórn
þess efnis, að alþingismenn
Reykjavikur beittu sér fyrir
þvi á Alþingi, að Reykjavik
yrði látin njóta jafnréttis við
aðra landshluta. Var hún
samþykkt með 15 samhljóða
atkvæðum.
A siðasta ári veitti sjóður-
inn 710 milljónir i lán og
styrki, en ekki krónu til
Reykjavikur. Meðal annars
veitti sjóðurinn lán til kaupa
á fiskiskipum frá Reykjavik.
—BS—
í V
4
ÖF/ASt.