Dagblaðið - 21.10.1975, Qupperneq 24
Leitað að teygjubyssuvír í nýbyggingu:
Ollu stórtjóni ó ný-
byggingu systronna við
Karlabraut í Gorðahreppi
Skemmdarverk, sem valda hættulegs leiks og um slikt vill
tjóni er skiptir hundruðum þiis- lögreglan vita.
unda, voru unnin á nýbyggingu Skaðvaldanir hafa fanð ínn
sem nunnuregla er að reisa við um hurð i kjallara eða um rifur
Karlabraut i Garðahreppi. sem enn eru með þaki hússins.
Rannsóknarlögreglan i Hafnar- Riðan hafa verið klipptir i búta
firði telur að hér hafi ungir rafmagnsþræðir, dregnir úr vir-
strákar 8-12 ára verið að verki ar sem búið var að draga i
sumpart til að ná sér i vira i leiðslur og allir þræðir við raf-
teygjubyssur en nú gengur yfir magnstöflu klipptir. Þeir sem
mikill teygjubyssufaraldur að verki voru hafa haft góða
þarna um slóðir. töngaðheimanmeðsér, þvihún
Biður lögreglan foreldra að vár ekki á staðnum.
aðgæta hvort börn þeirra hafi Tjóniðermjögmikið, en engu
undir höndum gula, græna eða markverðu hefur verið stolið.
bláa vira þvi slikt gæti bent til Aður léku börn sér i þessari
byggingu við spráng og fl. En t.d. hafa dýrar tvöfaldar rúður
síðan húsinu var lokað heíur verið brotnar auk þess sem nú
það orðið fyrir árásum þeirra, hefur skeð. ASt.
Nunnuheimilið við Karlabraut i Garöahreppi. (DB-mynd Björgvin).
DB-mynd: Björgvin Páisson
Verkfallsveröir heimspekideildar höföu Iftiö aö gera — verkfalliö var algert.
Nemendur í heimspekideild og verkfrœði og raunvísindum
LÖGÐU
NIÐUR
VINNU
í DAG
Algjör samstaða virðist hafa
náðst um verkfall meðal
nemenda i Háskóla Islands.
Heimspekideild, verkfræði- og
raunvisindadeild og nokkrir
fleiri sóttu ekki tima i morgun
og um ellefuleytið komu fregnir
um að hjúkrunarnemar, lækna-
nemar og stórhluti lögfræði- og
viðskiptafræðinema hefði bætzt
við I hóp verkfallsmanna.
Astæðan fyrir þessu verkfalli
er sú, að námsmenn eru mjög
óánægðir með þá upphæð, sem
Alþingi hyggst skammta til
námslána. Fjárlagafrumvarpið
gerir ráð fyrir 800 milljón króna
fjárveitingu til Lánasjóðs og 100
milljón króna lántökuheimild.
Háskólastúdentar telja hins
vegar að til að halda óskertum
lánum þurfi þeir 1700 milljónir.
Ekki bjuggúst háskólanemar
við þvi að verkfallsaðgerðir
þeirra yrðu til þess að ýta neitt
við ráðamönnum, og voru
haldnir fundir viðs vegar á Há-
skólasvæðinu um tiuleytið I
morgun til að ræða frekari að-
geröir.
A morgun klukkan hálf tvö
veður haldinn útifundur á
Austurvelli þar sem nemendur
úr að minnsta kosti átta skólum
munu safnast saman til að
leggja enn frekari áherzlu á
kröfur sinar um mannsæmandi
námslán. Safnazt verður saman
við skólana og siðan gengið
fylktu liði á fundinn
Vandrœðaástand á hitaveitu í Kópavogi: f f
STÝRISLOKARNIR VÆNTANLEGIRI FEBRUAR
Vöntun á stýrislokum I brunn i
Alfabakka, þar sem vatnsleiðsl-
ur til Hafnarfjarðar og Kópa-
vogs mætast, er orsök ólags á
hitaveitukerfinu, sem Kópa-
vogsbúar hafa orðið að þola að
undanförnu. Vatnsleysi er al-
gengt, sem og skyndileg minnk-
un á þrýstingi auk annarra
fylgikvilla.
„Stýrislokunum hefurseinkað
hjá okkur,” sagði Gunnar Krist-
insson, hjá Hitaveitu Reykja-
vikur.” Eins og er, verðum við
að handstýra vatnsstraumnum
á kerfið og það hefur ýmsa örð-
ugleika i för með sér.”
Sa_gði Gunnar Kópavoginn
vera ákaflega erfiðan hvað hita-
veituframkvæmdir snerti,
hæstu húsin væru i um 70 m yfir
sjávarmál, en hin lægstu i um 10
metrum. Verið væri að hleypa
vatni á vesturbæinn og hefði það
i för með sér hreinsun á leiðsl-
um og færi þá vatn til spillis.
Framkvæmdum verktaka þar
hefði seinkað nokkuð, en nú væri
komið á fullt eftirlit með þeim
og gjörla fylgzt með þvi hvort
óþarfleg eyðsla á vatni ætti sér
stað.
,,Ég er ekki viss um, hvenær
við fáum lokana,” sagði
Gunnar, ,,en ég vona, að það
veröi ekki seina en i febrúar.
Þangað til verður fólk að reyna
að aðlaga sig þessum örðugleik-
um.
HP
frfálst, nháð dagblað
Þriðjudagur 21. október 1975.
Júní fékk fík
í vörpuna út
af Látrabjargi
1 gærmorgun kom togarinn
Júni úr veiðiferð til Hafnar-
fjarðar, en skipið hafði fengið
lik I vörpu sina er það var að
veiðum út af Látrabjargi.
Rannsóknarlögreglan i
Hafnarfirði hóf þegar rannsókn-
ir sinar og kom I ljós i gærdag að
hér er um að ræða lik Guðmund-
ar Gislasonar, sem var skip-
verji á Guðbjörgu 1S 46, en 29.
nóvember i fyrra féllu þrir skip-
verjar á Guðbjörgu fyrir borð.
Tveir þeirra fundust strax, en
lik Guðmundar fannst ekki þrátt
fyrir leit.
AST.
. r
A tveimur
stolnum
sömu
nóttina
í gær var til yfirheyrslu i
Reykjavik maður sem tekinn
var ölvaður við akstur og hafði
valdið árekstri I vimunni. Þarna
var „gamall kunningi” frammi
fyrir rannsóknarlögreglumönn-
um og vildu þeirheyra alla sögu
þessa manns þessa umræddu
nótt. Og hún togaðist smátt og
smátt upp.
Hann hóf næturleikinn með
þvi að stela bil I Hafnarfirði og
aka til Reykjavikur. Þar skildi
hann við Hafnarfjarðarbilinn og
tók annan ófrjálsri hendi og við
akstur hans geröist hann þreytt-
ur og olli árekstri — og var
reyndar sofnaður er lögregluna
bar að.
Þetta er maður hátt á þrftugs-
aldri og hefur þá áráttu að
sækja mjög i bila er hann er
undir áhrifum. Hann hefur stol-
ið tugum bila og á yfir höfði sér
fjölda dóma fyrir slik brot.
ASt.
VARÐ FÓTA-
SKORTUR
ÁRÖÐLI
Ung kona féll i stiga á Röðli i
gærkvöldi og var lögregla og
sjúkraaðstoð kvödd á staðinn.
1 ljós kom að málið var á eng^
an hátt alvarlegt, aðeins smá-
vægileg meiðsl á ökkla. En
þetta sýnir aðþað er á margan
hátt, sem fólki getur orðið
fótaskortur á Röðli.
ASt.
Snyrtilegur
innbrotsþjófur
Er starfsfólk Grimsbæjar
kom til vinnu i morgun kom I
ljós að þar hafði einhver óvel-
kominn verið á ferð. Snyrtiieg
hafði þó umgengni hins óvel-
komna gests verið. Horfin var
skiptimynt, sem aðeins skipti
nokkrum hur.druðum króná,
en annað ekki að þvi er i fljótu
bragði varð séð. Málið er I
rannsókn.