Dagblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 13
12
Dagblaðið. Föstudagur 21. nóvember 1975
Dagblaðið. Föstudagur 21. nóvember 1975
13
Beztur — með sjö mörk — og áhrifamesti leikmaður Dankersen var Axel Axelsson. Hér jafnar hann í 2-2
— skoraðieinnig fyrsta markið — og það er landi hans, Óiafur H. Jónsson (nr. 3) sem myndaði glufuna,
skrifaði NW með þessari mynd að ofan.
AXEL
SNJALL
Það var Axel Axelssyni að
þakka, að Dankersen tapaði
ekki í fyrsta skipti á heimavelli
gegn Altenholz, sagði Neue
Westfalische eftir leik iiðanna i
Bundesligunni á sunnudag.
Axelsson, Jonsson (Ólafur H.)
og Walthe eru nú sterkasta
sóknartrió i þýzkum handknatt-
leik, segir Mindener Tageblatt
eftir sama leik.
Axel fær mjög góða dóma I
blöðunum þýzku fyrir leik sinn
með Dankersen. Það mátti
strax merkja i leik Dankersen,
þegar Axel var hvildur, þvi
hann var hinn eini, sem skoraði
með flötu skotunum, segir Neue
Westfalische — og i viötali við
' þjálfara liðsins i sama blaði
segir, að Axel hafi verið mjög
atkvæðamikill I leik sinum, en
nauðsynlegt að hvila hann til
þess að úthaldið væri sem bezt i
siðari hálfleik.
Greinilegt á blöðunum, að þau
voru ekki hrifin, þegar Axel var
hvildur.
Olafur M.
Jónsson
Handboltapunktar
>n frá V-Þýzkalandi
Melitta 17.nóvember
Úrslit i sjöttu umferð i
Bundesligunni, sem leikin var
um siðustu helgi, komu ekki
mjög á óvart. Þó má segja að
sterkur varnarleikur Kiel i
norðurdeildinni gegn Hamborg
hafi vakið athygli — og i suður-
deild kom á óvart, að Göppingen
tapaði fyrir neðsta liðinu, Neu-
hausen.
Hér á eftir verður rakið i
stuttu máli hvernig einstaka
leikir þróuðust i þessari sjöttu
umferð.
NORÐURDEILD
Gummersbach — Phönix Essen
15-9
Gummersbach er ennþá á
toppnum i deildinni eftir örugg-
an heimasigur gegn Phönix.
Liðið, sem sex sinnum hefur
orðið Þýzkalandsmeistari, hef-
ur ekki tapað stigi til þessa.
Þrátt fyrir öruggan sigur átti
Gummersbach i meiri erfiðleik-
um með Essen-liðið en búizt
hafði verið við. Hansi Schmidt
skoraði aðeins eitt mark og það
úr viti á 50. minútu.
Þó „markamaskinan” hafi
ekki verið vel smurð i þessum
leik, þá er ekki vafi á þvi, að hún
verður komin á fulla ferð gegn
Víkingi á laugardag. Westebbe,
bezti linumaður Þýzkalands,
átti einn sinn bezta leik og skor-
aði fjögur mörk. Fyrir Essen
skoraði Kleinbrink 5 mörk. Þess
má geta, að Vlado Stensel
landsliðsþjálfari hefur valið
Kleinbrink i landsliðshópinn
gegn Belgíu 29. nóvember.
Af Gummersbach verður erf-
itt að vinna stig og á heimavelli
liðsins er nær ómögulegt að
krækja i stig eftir þvi, sem fróð-
ustu menn segja. Enn er þó ekki
öll nótt úti.
GWD — Altenholz 16-10
Frammi fyrir 2500 áhorfend-
um i Minden átti GWD til að
byrja með i miklum erfiðleikum
með nýliðana Altenholz. f fyrri
hálfleik gekk hvorki né rak hjá
báðum liðum. I hálfleik stóð 7-6
fyrir Altenholz. GWD hafði þá
átt ótal dauðafæri, en annað
hvort urðu stangirnar fyrir eða
markmaður varði.
I/ ,
í siðari hálfleik „fann GWD
sig” og með þvi að spila vörnina
mjög framarlega og með hreyt-
anleika i sókn varð fljótt ljóst að
hverju stefndi. Þetta kom nýlið-
unum gjörsamlega i opna
skjöldu, enda varð útkoman sú,
að þeir skoruðu ekki nema þrjú
mörk i hálfleiknum. Það sem
háir Altenholz er, að liðiö hefur
engri skyttu yfir að ráða. Liðið
er jafnt og með nokkuð góða
linu- og gegnumbrotsmenn, en
enga stórskyttu. Markahæstu
leikmenn hjá GWD — það er
Dankersen — voru Axel Axels-
son með sjö mörk — eitt viti —
og Kramer 3.
Kiel — Hamborg 13-7
Eftir ágæta sigra i tveimur
siðustu leikjum sinum bjuggust
menn við, að Hamborg mundi
krækja sér i tvö stig i Kiel, þar
sem Kiel er i næstneðsta sæti i
deildinni og hafði ekki sýnt góða
leiki það sem af er. En úrslit eru
aldrei ákveðin fyrirfram i hand-
bolta.
Yfir 5000 áhorfendur sáu, þeg-
ar Kiel vann sinn fyrsta sigur i
vetur. Ekki hafa okkur borizt
frekari fréttir af leiknum, en úr-
slitin gefa til kynna, að Ham-
borgararnir hafi átt slakan dag.
Landsliðsmaður þeirra Pickel
skoraði aðeins eitt mark — en
ekki er vitað hvað Einar
Magnússon gerði mörg mörk.
Þess má geta, að GWD á að
leika i Kiel á miðvikudag 19.
nóvember og eftir þennan sigur
Kiel gegn Hamborg þá hefur
Kielarliðið eflaust endurheimt
sjálfstraustið. Þeir verða þvi
erfiðir heima að sækja. Búast
má lika við 7000 áhorfend-
um.sem hvetja sina menn þann-
ig, að stemmningin verður gif-
urleg. (Skýrt var frá úrslitum i
þessum leik i blaðinu i gær. Kiel
sigraði 12-8. Innskot, hsim).
>
NORÐURDEILD
1. VfL Gummersbach 6 6 0
2. TSV GW Dankersen 6 4 1
3. TuS Wellinghofen 6 4 C
4. Phönix Essen 5 2 1
5. VfL Bad Schwartau 6 2 1
6. TSV Altenholz 4 2 0
7. TuS Derschlag 5 12
8. Hamburger SV 6 2 C
9. THW Kiel 5 11
10. OSC Rheinhausen 5 0 0
Dcrschlag — Wellinghofen 10-14
Nýliðar Derschlag höfðu ekki
heppnina með sér i þessum leik.
Hjá Wellinghofen gekk allt upp.
Lavrnic og Ufer, aðalskotmenn
Derschlag, áttu mjög erfitt með
að koma knettinum framhjá
markverði Wellinghofen. Well-
inghofen verður það lið, sem
blandar sér i baráttuna með
Gummersbach og Dankersen
um að komast I 4ra liða úrslit.
(Það eru tvö efstu lið úr hvorri
deild). Derschlag hefur tapað
tveimur siðustu leikjum sinum
og virðist liðið hafa sprungið
eftir mjög góða byrjun. En það
er aðeins sex umferðum lokið og
þvi engan veginn hægt að af-
skrifa liðið.
Bad Schwartau — Rheinhaus-
en 19-14
BadSchwartau vann auðveld-
an sigur gegn neðsta liðinu i
norðurdeild og það átti liðið
markverði sinum Dogs að
þakka. Hann varðihvorki meira
né minna en fimm vitaköst. Það
þykir mjög gott i einum leik. En
þrátt fyrir markvörzlu Dogs
sýndi Bad Schwartau þó allan
timann betri leik. Úrslitin voru
þvi réttlát. Kluth skoraði sex
mörk og var markhæstur
Schwartana.
SUÐURDEILD
t suðurdeildinni tapaði Göpp-
ingen gegn neðsta liðinu og urðu
það mikil vonbrigði fyrir áhang-
endur Göppingen. Gunnar Ein-
arsson mátti sin litils einn —
hefur ekki nógu sterka meðspil-
ara. Hann er sá eini, sem eitt-
hvað kveður að hjá Göppingen.
Liðið er einfaldlega ekki eins
sterkt og það var áður. Þvi má
bæta við, að einn af sterkustu
leikmönnum Göppingen er i
leikbanni fram i janúar 1976 og
er það mikil blóðtaka fyrir
Axel 7
Axelsson
Göppingen. Eins og við sögðum
i siðustu punktum — þá héldum
við fram, að hin langa hvild —
einn og hálfur mánuður — sem
Göppingen hefur fengið i
Bundesligunni mundi hafa slæm
áhrif á liðið. Það er nú orðin
raunin, eins og tapið gegn
neðsta liðinu sýnir. Neuhausen
vann leikinn á baráttu og leik-
gleði allra leikmanna. Gunnar
skoraði niu mörk — þar af sjö úr
vitaköstum.
Rintheim heldur sér á toppn-
um með sigri sinum yfir Gross-
wallstadt 19-18 á heimavelli
þeirra siðarnefndu. Það var
hraðar spili og harðari vörn að
þakka, að Rintheim tók bæði
stigin. Með sigri Milbertshofen
yfir Dietzenbach 16-15 á heima-
velli þeirra siðarnefndu þá kom
Milbertshofen sér þægilega
fyrir i 2. sæti deildarinnar. Það
sem skipti sköpum i þeim leik
voru þrjú vitaköst, sem mark-
maður Milbertshofen varði.
TUS Hofweier vann verð-
skuldaðan sigur gegn
„Berlinarbragðarefunum”
Reinickd. Fuchse 19-11 á heima-
velli Hofweier. Markakóngur
deildarinnar i fyrra Simon
Schobel átti mjög góðan leik og
skoraði 6 mörk.
TV Huttenberg vann svo 19-15
gegn Leutershausen og eru litl-
ar fréttir af þeim leik að segja,
nema það, að Horst Spengler,
fyrirliði þýzka landsliðsins,
skoraði sjö mörk.
Fleiri fréttir eru ekki i bili.
Við vonum að einhverjir hafi
haft gaman af þessu. Við biðjum
kærlega að heila öilum heima og
þar sem i bigerð er að undirrit-
aðir komi heim i næstu viku til
æfinga og landsleikja, þá viljum
við senda baráttukveðjur til
allra landsliðsfélaga okkar.
„Auf wiedersehen”
Ólafur H. Jónsson
Axel Axelsson
SUÐURDEILD
0 126:89 12:0
1 108:89 9:3
2 91:81 8:4
2 82:90 5:5
3 86:93 5:7
2 51:68 4:4
2 82:86 4:6
4 80:97 4:8
3 77:81 3:7
5 75:94 0:10
8:2
7:3
6:6
6:6
1. TSV Rintheim 5 4 0 1 95:78
2. TSV Milbertshofen 5 3 11 81:76
3. TV GroBwallstadt 6 3 Ö 3 94:86
4. TuS Hofweier 6 3 0 3 98:99
5. TV Huttenberg 6 3 0 3 100:103 6:6
6. Reinidcend. Fiichse 5 2 1 2 79:85 5:5
7. SG Leutershausen 6 2 1 3 100:101 5:7
8. SG Dietzenbach 4 2 0 2 64:61 4:4
9. TV Neuhausen 6 1 1 4 95:110 3:9
10. FA Göppingen 3 1 0 2 49:56 2:4
Karl Benediktsson segir hér Þorbergi Aðalsteinssyni hvernig fara eigi að — Skjóttu niður,
þar er hann veikastur fyrir. DB-mynd Bjarnleifur.
Getur orðið leikur
til að muna eftir
„Einhvern veginn hefur vantað ákafann
— viljann til að berjast — I Vikingsliðið.
Þeir hafa ekki keyrt á fullu i eyður — eða
blokkerað, eins og einkenndi þá i fyrra,”
sagði Karl Benediktsson, þjálfari Vikings
þegar við hittum hann að lokinni æfingu
Vikings i gærkvöldi.
„En ég hef þá trú, að strákarnir séu að
átta sig á hlutunum. Það er eins og eitthvað
hafi losnað — nú þegar fyrri umferðin er af-
staðin. A æfingunni áðan virtust þeir frjáls-
ari og ánægðari — eru að öðlast trú á það,
sem þeir gera. Svipað og i fyrra. — Þá
lögðu sig allir fram, þvi þeir trúðu á sjálfa
si£ — trúðu á sigur I mótinu.
Auðvitað er Gummersbach geysisterkt
lið — það er engum vafa undirorpið. En ég
er ekki I nokkrum vafa um, að ef strákarnir
ná upp góðum varnarleik eins og þeir hafa
sýnt sig að geta — og ef markvarzlan helzt I
hendur við vörnina, þá vinnum við
Gummersbach hér heima. Það
er engin spurning um það — ef við náum
toppleik getur þetta orðið leikur til að muna
eftir.”
»Jlpp
WStóU'-xSÖx..;: 'V ^ '4
Hœgt að
verja
skot
Hansa!
„Það er með þennan leik eins og
alla leiki, sem maður spilar. Maður
fer inn á til að vinna — reynir að
gera sitt bezta,” sagði Rósmundur
Jónsson, þegar við hittum hann að
lokinni æfingu i gærkvöldi.
„Ég skal segja þér Hallur, það
var eins og þungu fargi væri létt af
manni eftir leikinn við Gróttu. Við
fórum illa af stað — strax tap fyrir
Haukum. Siðan hefur hver leikur-
inn fylgt öðrum — við höfum ekki
haft tíma til að átta okkur á hlutun-
um. Þrátt fyrir þetta erum við með
átta stig — einu minna eftir fyrri
umferðina I fyrra.
ViHingsliðið er skipað mönnum,
sem geta spilað góðan handbolta.
— En eins og ég sagði áðan þá ein-
hvern veginn hefur mótlætið I ís-
landsmótinu setið i okkur — en nú
trúi ég að við séum á réttri leið.
Við höfum allt að vinna — engu
að tapa gegn Gummersbach og
munum þvi ganga óþvingaðir til
leiks.
Skotin hans Hansa? Auðvitað
verða þau föst — en það er ekki þar
með sagt, að ekki sé hægt að verja
þau.”
ÞÁ VAR BITIÐ
KÝLT
OG JAFNVEL KLORAÐ!
— sagði Geir Hallsteinsson, þegar hann lenti í klónum á Hansa Schmidt og
félögum hans í Gummersbach. Evrópuleikur Víkings og Gummersbach ó morgun
Gummersbach er frægt fyrir
harðan og grófan handknattleik.
Með Hansa Schmidt i broddi fylk-
ingar og að sjálfsögðu „primus
mótor” i áflogum hefur félagið
verið sigursælasta lið i Evrópu
siðasta áratuginn.
Geir Hallsteinsson fékk heldur
en ekki að kenna á Hansa þegar
hann lék með Göppingen — „það
var ekki handknattleikur, heldur
var bitið, kýlt og jafnvel klórað,”
sagði Geir eftir leik gegn
Gummersbach.
Hansi Schmidt er sennilega
þekktasti handknattleiksmaður
Evrópu — geysisterkur og skot-
fastur. Sex ár i röð varð hann
markhæstur i Bundesligunni —
sex sinnum hefur hann orðið
Þýzkalandsmeistari. Svo virðist
sem aldurinn sé ekkert farinn að
há honum — 33 ára og enn i fullu
fjöri.
En Gummersbach er ekki bara
Hansi — markvörðurinn þeirra,
Kater, var i heimsliðinu, sem lék
gegn v-þýzka liðinu. Kater er
frægur fyrir að verja viti — þegar
Valur lék við Gummersbach — þá
varði Kater fjögur viti.
„Þegar við lékum við þá úti —
þá átti Ólafur Jónsson 12 skot —
ekkert mark og ég átti 10 skot — 2
mörk. Hann beinlínis greip frá
okkur. Og Hansi var helv...
ruddi,” sagð Jón Karlsson, úr
Val.
En Gummersbach er ekki bara
Hansi og Kater. Þegar v-þýzka
landsliðið lék við heimsliðið á
dögunum þá voru ásamt Hans og
►
Dæmigert fyrir Gummersbach.
Hansi Schmidt ógnar og dregur
að sér varnarmenn — hvorki
fleiri né færri en þrjá og siðan
gefur hann inn á línu. — Þar er
Jochen Brand einn á báti og eftir-
leikurinn auðveldur.
Kater þeir Brandt og Petrop i
heimsliðinu og Dechram og Dart
léku með landsliðinu. — Þannig
átti Gummersbach fimm fulltrúa
— segir það ekki meira en mörg
orð um'styrkleika liðsins — eða
hvað finnst ykkur lesendur góðir?
Leikur Islandsmeistara Vik-
ings og v-þýzku meistaranna
Gummersbach hefst i Laugar-
dalshöllinni á laugardag kl. 15.
Dómarar verða frá Noregi — Odd
Cooper og Terje Antonsen. For-
sala aðgöngumiða verður í dag i
tjaldi við Otvegsbankann kl. 4—7.
Miðasalan hefstsiðan i Höllinni á
morgun kl. 1.
Ekki er að efa að mikil
stemmning verður i Höllinni — og
viljimenn tryggja sér miða, þá er
betra að gera það fyrr en siðar.
Gummersbach leikur hér auka-
leik gegn Haukum og hefst hann
kl. 3 á sunnud. Verður fróðlegt
að sjá hvernig Haukum — for-
ystuliðinu i 1. deild — tekst upp
gegn þessum v-þýzku snillingum.
—h.halls
Þá verða frœgir kappar
á Laugardalsvellinum!
Það verður eins og i forkeppni
HM 1974 — íslenzka landsliðið
leikur við Holland og Belglu i 4.
riðli Evrópu i forkeppninni fyrir
heimsmeistarakeppnina i Argen-
tinu 1978. Fjórða landið i riðlinum
verður Norður-trland — Noregur
var i riðiinum 1973.
Róðurinn verður
erfiður
næsta sumar hjá íslenzka lands-
liðinu — leikið við tvö meðal beztu
landsliða Evrópu og um leið
heimsins, HoIIand og Belgiu, og
Norður-trar hafa skemmtilegu
liði á að skipa. Næsta sumar
eigum við þvi möguleika að sjá
Cruyff og Neeskens, Piot og van
Himst, Jennings og Mcllroy á
Laugardalsvelli.
Æfingin byriar snemma næsta
morgun...
Einn, tveir, einn, tveir,/
hraðar! J~ ‘Y'f'
Við verðum aö . An Polla og án Lolla/
sigra,fyrir Vþú biðurum kraftaverk.
Straufría sængurfataefnið er nú i
fyrirliggjandi í mörgum mynztrum |
og litum. i
Einnig í saumuðum settum.
Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk,
sofið þægilega og lífgið upp á litina
í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200