Dagblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 11
Dagblaðið. Föstudagur 21. nóvember 1975 11 ÞEGAR VINSTRI HÖNDIN VEIT EKKI HVAÐ SÚ HÆGRI GERIR Þegar vinstri höndin veit ekki hvað sú hægri gerir. Þróunarstofnunin „skipulagði” þarna 1974 grænt svæði sem borgarráð hafði þegarárið 1965 samþykkt sem vörugeymslu og iðnaðarsvæði. Svona fer þegar hespa þarf af skipulagi fyrir kosningar — já, kosninga- brellurnar taka oft á sig furðulega mynd. Ólafur Stefánsson hringdi: „Menn minnast enn, og brosa út í annað munnvikið, hinna miklu áætlana um grænu bylt- inguna. Þvi vil ég spyrja: A milli Samtúns og Borgartúns var Raddir lesenda svæði sýnt grænt. Nú hefur hins vegar komið á daginn að byggja skal á þessu svæði. Var þetta einungis kosningabrella eða hvað?” Dagblaðið hafði samband við skipulagsdeild borgarverkfræð- ings og tjáðu þeir okkur að þetta svæði væri skipuiagt sem vöru- geymslu- og iðnaðarsvæði. Skipulagið var samþykkt i borg- arráði 1965 og staðfest af ráð- herra ’67. Hins vegar væri það rétt — Þróunarstofnun Reykja- vikur gerði ráð fyrir að vestasti hluti þessa svæðis yrði grænn. Þvi miður væri þetta ekki eina villan sem þessi ágæta stofnun hefði gert. Þeir meðal annars settu grænt yfir byggingar sem þegar höfðu verið reistar. ERU TANNLÆKNINGAR MUNAÐUR? 2929-1918 skrifar: „Það þarf ekki að fara i nein- ar grafgötur um það að tann- læknaþjónusta er rándýr. Mörg- um hrýs hugur við að leita til tannlæknis vegna gifurlegs kostnaðar. Þvi vaknar sú spurning hvort ekki beri að gera eitthvað til að auðvelda fólki jafnsjálfsagða þjónustu og tannlækningar eru. Sjúkrasamlagið endurgreiðir þeim sem eru 16 ára og yngri. Hvers vegna fá aðrir ekki sömu hlunnindi? Ef ekki er hægt að komast i sjúkrasamlagið, hvemig væri þá að fá tann- læknaþjónustu frádráttarbæra til skatts? Nú er vitað að margir tann- læknar gefa ekki kvittanir fyrir greiðslu nema beðið sé sérstak- lega um það. Hvernig get ég vit- að að tannlæknirinn gefi upp til skatts þau 3-400 þúsund sem ég borgaði honum? Ef til vill er þetta verðugt við- fangsefni fyrir næstu endur- skoðendur skattalaga?” Lífeyrissjóðurinn Hlíf Sjóðsfélagafundur verður haldinn i húsi SVFÍ, Grandagarði, á morgun, laugar- daginn 22. nóvember kl. 14. Dagskrá: 1. Lögð fram ný reglugerð fyrir sjóðinn. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar sjóðsins fyrir árið 1974. 3. Stjórnarkosning skv. 5. gr. reglugerðar sjóðsins. 4. önnur mál. Stjórnin. II Ll BRA-stjórntækið Mótorloki fyrir tækið við óðinstorg, sími 10322 Hafnarfirði, simi 50022. til upphitunar íbúða og húsa Gerð HTR 12 og 18 Orka: 12—24 KW Tilbúnir til tengingar Sparið orkukostnaðinn án óþæginda, notið sjálfvirka stjórnstilli- tækið frá Satchwell Auðvelt í uppsetningu. Hentar vel fyrtr hita- veitu-, olíukyndingu og raf hitun NÝn FRÁ SATCHWELL Gerð HKR 24 með neyzluvatnsspíral Orka: 12—30 KW. Utanmál = HxBxD 110x37x71 cm. Verðið hagstætt

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.