Dagblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 2
2 Dagblaðið. Þriðjudagur 9. desember 1975. 9 Jólagetraun Dagblaðsins: „FINNIÐ RÉTTA TEXTANN!!" Er litið um hugmyndir að jólagjöfum? Ekki skuiuð þif fara að dæmi mannsins hér á sjöttu myndinni i jólagetraun- inni. Klippið heldur út myndina, þegar þið hafið fundið rétta textann og geymið hana. Nú eru aðeins tvær myndir eftir, þar til hægt verður að draga um verð- launin góðu! A. „Nújá! — Hérsegir að það sé alvöru eldsneyti á eldflauginni.” B. „Eru virkilega ekki fleiri jólagjafir?” C. „Það verður aldeilis hægt að skipta á þriðja I jólum.” W RUSSNESKIFYRIRLIÐINN VALDI CLARION Þegar rússneska landsliðið gisti tsland i haust er leið fóru menn i verzlanir eins og gjarn- an, þegar Rússa ber að garði, enda vöruval ólikt meira en heima hjá þeim. Rússneski landsliðsfyrirliöinn hafði þó að- eins áhuga á einu, og það var einmitt Clarion — kassettutæki eins og við höfum i verðlaun i getrauninni okkar. Hér er fulltrúi fyrirliðans (sá með gler- augun) að ná i tækið hjá Auð- unni Blöndal i' Nesco á Lauga- vegi 10. s Furðulegt val lands- liðsnefndar KKÍ Húsmóðir úr austurbænum skrifar: Fyrir skömmu, nánar tiltekið þriðjudaginn 2. des., birtust i blöðunum nöfn þeirra leik- manna sem koma til með að skipa landsliðshóp KKt og verð ég að segja að það val kom mér vægast sagt mjög á óvart. Ég er nokkuð kunnug isl. körfuknattleik en samt kom ég ekki öllum mönnunum fyrir mig i fyrstu tilraun, t.d. Jónasi Jó- hannssyni Njarðvik en hann var valinn sem einn af miðherjun- um. Ég tel að þarna hefði mátt finna marga betri menn, t.d. Jón Jörundsson 1R sem til að mynda var i landsliðinu i fyrra, en það var mikið betra en þessi hópur. Einnig tel ég að Þorvald- ur Geirsson úr Fram eigi meira erindi i miðherjastöðuna en fyrrnefndur leikmaður. Næst varð mér litið á bak- verðina og þar sá ég t.d. 3 KR-inga, en aðeins einn þeirra hefur getu til að vera i landsliði, þ.e. Kolbeinn Pálsson. Hinir tveir, Eirikur Jónsson og Ámi Guðmundsson, eru mjög efni- legir en þeir eru bara alls ekki eins góðir og margir aðrir, t.d. Steinn Sveinsson 1S og Atli í Ár- manni, einnig má nefna Rik- harð Hrafnkelsson úr Val, en hann hefur notið sin vel i mann- fæðinni hjá Val það sem af er vetrar og jafnan verið þeirra bezti maður ásamt Torfa Magnússyni. Þriðji bakvörður- inn, sem ekki á heima i hópnum að minu mati, er Arngrimur Thorlacius úr Fram. Fram, sem er frekar slakt 1. deildarlið, hef- ur lítið þurft að nota þennan leikmann en samt hefr landslið- ið not fyrir hann? Ég er nokkuð sátt við val framherja en þó sakna ég þess að sjá ekki nöfn eins og Þorstein- Guðnason 1R, en hann er einn af okkar tæknilegustu framherjum þrátt fyrir mikla þyngd sina. Það eitt að f liðinu eru aðeins 3 tR-ingar á móti t.d. jafnmörg- um Frömurum sýnir hversu undarlegt þetta val er. Framlið- ið keppir nú sitt fyrsta ár i 1. deild eftir skjótan frama i 2. og 3. deild. Fram hefur þó geysi- lega efnilegu liði á að skipa en það skorir reynslu. Þegar maður sér þá 4 KR-inga sem i liðinu eru dettur manni ósjálfrátt i hug að lands- liðsnefnd sé að misnota landslið- ið til að þjálfa upp menn i KR-liðinu. Þess vegna væri gaman að vita hverjir eru i landsliðsnefnd og hvernig þeir eru kjörnir. Ég hef tekið eftir þvi að blöðin hafa ekkert fjallað um þennan hópogeru þau þar að bregðast skyldu sinni sem gagnrýnendur og hlaupast undan ábyrgð þeirri sem þvf fylgir. Gæti ástæðan verið sú að þeir hefðu ekki næga kunnáttu eða þekkingu til slikra skrifa? Morgunblaðið hefur leyst þetta mál á þann hátt að fá mann kunnugan körfubolta til að sjá um fréttir og annað sem viðkemur körfubolta, enda er það eina blaðið sem eitthvað fjallar um annað en úrslit leikja og aðrar auðunnar fréttir. Ég vil ráðleggja hinum blöðunum að gera slikt hið sama. Raddir lesenda Birgir örn Birgis og Kristinn Jörundsson I baráttu undir körfunni. DB-mynd Bjarnleifur. Stúdentahótíðin 1. des. Jónas Jónsson skrifar: „Stúdentar fögnuðu fullveldi fslands þann 1. des. Þá voru 57 ár liðin siðan fsland hlaut full- veldi. Rikisútvarpið flutti okkur fagnaðarlæti hámenningarinn- ar — þá frá „Hátiðarsamkomu stúdenta i Háskólabió” eins og sagði i dagskránni. Forstöðu- nefndin, valin af áhugasnauðum félagsskap, lét þó sannarlega til sin heyra. Þar voru stúdentar syngjandi um verkföll, brýnda hnifa og fágaðar byssur. Er þetta islenzkt viðhorf? Er verið að vinna i anda Jóns Sigurðs- sonar og hinna mörgu litt eigin- gjörnu hugsjónamanna sem náðu hinum mikilsverða áfanga 1918? Einar Magnússon fyrrverandi rektor ræddi um „daginn og veginn” að kvöldi 1. des. Þar minntist hann 1. des. og sagði frá þvi hvernig stúdentar minntust fullveldisins. Hann lauk með svofelldum orðum: „tilhögun þeirra og form hefur breytzt og ékki meira um það” En margir hefðu nú talið að ekki væri úr vegi að tala einmitt meira um það. Það kom fram i fréttum útvarps að utan dag- skrár á Alþingi hafði einn þing- manna farið þess á leit að dag- skrá stúdenta yrði endurflutt i útvarpi. Þannig gæfist sem flestum Islendingum tækifæri til að kynnast þeim anda sem rikjandi er meðal þeirra er i Há- skólanum eru: Þeirra stúdenta sem ætla sér að ráða i fram- tiðinni, sigra auðvaldið, kúgarana með brýndum hnifum og fáguðum byssum og syngjandi Internationalinn. Ég fagna þessari tillögu og vona að henni verði vel tekið. Þannig geta ég og fleiri komizt að niðurstöðu um það hvort ekki er ósæmilegt og óþolandi að bjóða þjóðinni þvilika dagskrá i Rikisútvarpinu á fullveldisdegi okkar íslendinga.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.