Dagblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 09.12.1975, Blaðsíða 9
Dagblaðið. Þriðjudagur 9. desember 1975. ———— „BROTTREKSTUR TVIVEGIS ORDAÐUR VIÐ MIG VEGNA SKRIFA MINNA" — segir Pétur Eggerz, sem sendir nú fró sér þriðju bókina sína, „Hvað var ég að gera öll þessi ór?" Sendiherra ó erfitt um vik að skrifa sannleikann: Liklega munu margir velta vöngum eftir að lesa nýjustu bdk Péturs Eggerz sendiherra Hvað varstu að gera öll þessi ár? Þar er farið höndum um ýmsa atburði, sem vitað er að átt hafa sér stað undanfarna áratugi, og greinilegt er að reynsla sendiherrans i utan- rikisþjónustunni undanfarin 33 ár skin þar viða i gegn. í gærdag hittu Dagblaðsmenn sendiherrann að máli. Það lá beinast við að spyrja hvort hér væri um að ræða skáldsögu eða heimildarit. ,,Þvi er reyndar erfitt að svara. Ætli þetta .sé ekki skáld- saga svona öðrum þræði. Ann- ars er bókin að nokkru byggð á staðreyndum. Piltarnir þrir, sem hittast I fyrsta sinni I vega- vinnu á Þingvöllum, hittust I raun og veru. Siðan fylgi ég þeim eftir frá árinu 1928 til árs- loka 1973 og segi frá högum þeirra”. Inn i þessa lifssögu þessara þriggja ma'nna fléttast ýmislegur fróðleikur um utan- rikisþjónustuna, auglýsinga- starfsemina meðal manna i há- um embættum vestur I Banda- rikjunum, ýmislegt sem aflaga hefur farið i þjóðlifi okkar sjálfra. — Nú var ekki skrifað undir rós i tveim fyrri bókum þinum, Pétur? ,,Nei, auðvitað verð ég að gæta min i skrifum. Ráðuneyt- isstjórinn i utanrikisráðuneyt- inu hefur tvivegis orðað við mig brottrekstur vegna skrifa minna, taldi að þau ættu ekki erindi til almennings”. Pétur kvað fólk annars verða að lesa bókina, og kveða siðan sjálft upp úr með hvað rétt væri og hvað ekki. Til dæmis væri það staðreynd að fyrr á árum hefðu nokkrir góðborgarar látið hafa sig út i að njósna um ferðir varðskipanna okkar. Siðan hefðu þessir menn sent upp- lýsingar sinar brezkum togara- skipstjórum. I brezkum togur- um fundust lika dulmálslyklar sem dómsmálaráðuneytið og sendiráð Dana hér i Reykjavik notuðu til aö koma skilaboðum til Islenzku og dönsku varðskip- anna. Þá er það staðreynd að tveir mikilsmetnir borgarar voru hnepptir i varðhald, blá- saklausir, þegar Islendingum datt sú fásinna i hug að fá brezkan lögreglumann til að upplýsa þjófnað i Landsbankan- um! Menn þessir voru grátt leiknir, en voru sýknaðir, og eft- ir að Bretinn fór leystu islenzk lögregluyfirvöld málið. Pétur Eggerz hefur starfað sem fyrr segir i 33 ár við utan- rikisþjónustu Islands, þar af var hann 23 ár erlendis, i London, Washington og Bad Godesberg. „Það sem ég vildi undirstrika með bókinni er þessi taumlausa eftirsókn manna eftir frægð og frama, dekrið viö útlendinga, sem oft blindar menn á vegferð sinni, og lifsgæðakapphlaupið I heild sinni,” sagði Pétur að lok- um. —JBP— PÉTUR EGGERZ, — hér handleikur hann þriðju bók slna, sem Skuggsjá hefur gefiö út (DB-mynd Ragnar) ÞÓRDÍS TRYGGVADÓTTIR SYNIR AMOKKA Þórdis Tryggvadóttir opnaði málverkasýningu á Mokka I gær. Þetta er jólasýning Þórdisar og stendur hún út desembermánuð. Þarna eru sýndar sautján ollu- pastelmyndir og ein vatnslita- mynd. Þær eru allar málaðar á timabilinu siðan Þórdis hélt sina siðustu sýningu á Hallveigarstöð- um i ágústmánuði siðastliönum. Myndirnar eru allar til sölu og kosta frá 33-35.000 krónur. Þetta er sjöunda einkasýning Þórdisar. Hún hefur einnig tekið þátt I fjölda samsýninga. Þá myndskreytti hún bækur fyrr á árum og teiknaði jólakort. —AT— RAGNAR LAR — sleipur I eigin knattspyrnuspili. fótboítaspil: MONOPOLY- FYRIRTÆKIÐ KANNAR ÚTGÁFU Á ÞVÍ Knattspyrna er leikur, sem enginn getur hent reiður á. „Boltinn er hnöttóttur”, segja sérfræðingarnir, og meina þá að allt geti gerzt I knattspyrnu. Og þannig er það lika i knatt- spyrnuspilinu hans Ragnars Lár teiknarans okkar hérna á Dagblaðinu. t gær var verið að dreifa Nýja fótboltaspilinu, sem Ragnar fann upp og hannaði sjálfur. Fréttamaður blaðsins reyndi sig gegn Ragnari; skoraðisjálfur fyrstu þrjú mörkin, en úthaldið brást, Ragnar jafnaði og komst yfir. Sigur hönnuðarins var 5:4, sem er skiljanlegt og i sjálfu sér afsakanlegt. En skemmtilegt var spilið og æsispennandi. Næst sleppur Ragnar ekki! Ragnar kvað Frimerkjamið- stöðina, sem hefur með útgáfu og dreifingu að gera, hafa haft tal af umboðsmanni Monopoly sem var hér staddur á dögun- um. Hefði hann fengið mikinn á- huga á spilinu vegna þess hversu einfalt en þó spennandi það væri. Væri nú i athugun hvort spilið yrði gefið út erlend- is. —JBP NÚ VITA HAFNFIRÐINGAR HVAÐ KLUKKAN ER Hamazt viö aö gera viö klukkuna. — DBmynd Björgvin. Klukkan i turni Þjóðkirkjunn- ar i Hafnarfiröi hefur verið i hálfgerðum lamasessi að und- anförnu. Lýsingin bilaði á tveimur af skifunum og einnig hefur komizt ryk i gangverkið. Að sögn sr. Garðars Þorsteins- sonar prófasts þarf að endur- nýja klukkuna á tiu til tuttugu ára fresti. Hann bjóst við að klukkan yrði komin i lag i seinni hluta þessarar viku. Hafnfirðingar mega þvi eiga von á að heyra klukkuna sina slá á réttum tima i framtiðinni og þurfa ekki að eiga á hættu að missa af strætó vegna þess að hún gangi vitlaust. —AT—

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.