Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.12.1975, Qupperneq 7

Dagblaðið - 09.12.1975, Qupperneq 7
Dagblaðið. Þriðjudagur 9. desember 1975. 7 Erlendar fréttir REUTER Ibarruri fœr orðu Október- byltingarinnar í Moskvu Frú Dolores Ibarruri, sem um áratuga skeið hefur veriö formaður spænska kommún- istaflokksins, fékk i gær sovézku Októberbyltingarorð- una. t tilkynningu frá stjórn- inni i Kreml sagði að hún fengi oröuna fyrir „mikla þjónustu sina i baráttunni gegn fas- isma.” ibarruri.sem þekkter undir nafninu ,,la pasionaira” fyrir eldheitar ræður sinar á timum borgarastríðsins á Spáni 1936-39, hefur búið i útlegð i Moskvu i hartnær 40 ár. Hún heldur i dag upp á 80 ára af- mæli sitt. Holland 5 lausir í Amsterdam — Óbreytt staða í Beilen Suður-Mólukkeysku byssu- mennirnir i indónesisku ræðis- mannsskrifstofunni i Amster- dam létu fimm gisla sina lausa i, gærkvöldi — fjóra unglinga og sjúkan kennara. Eru það fyrstu gislarnir af 27, sem látnir eru lausir. Fimmmenningarnir voru við góða likamlega heilsu en úr- vinda af þreytu og taugaóstyrk, að sögn lögreglunnar. Kennar- inn varð skyndilega veikur og var sóttur skömmu siðar af tveimur fulltrúum Rauða kross- ins i Hollandi. Kennarinn er hinn sami og byssumennirnir létu standa á svölum bygg- ingarinnar á föstudaginn með snöru um hálsinn og byssu i hnakkann. Hann heldur upp á 35 ára afmælisitt idag. Samkomu- lag varð um frelsi unglinganna fjögurra. 1 lestinni i Beilen, þar sem sex Suður-Mólukkeyingar halda 29 farþegum i gislingu er allt við það sama. Lögreglan hefur tek- ið upp nýja baráttuaðferð, sál- fræðilega að sögn. Hefur öllu sambandi verið slitið við mann- ræningjana og þeir gjörsamlega einangraðir eftir að viðræður um frelsi gislanna runnu út i sandinn um helgina. Háværum flutningafarartækjum er ekið umhverfis lestina að næturlagi og hún lýst með sterkum ljós- kösturum. Stjórn Indónesiu hefur algjör- lega neitað að semja við hóp- ana. Hollenzk skytta úr sérsveitum lögreglunnar biður átekta á liúsþaki nærri byggingu ræöis- mannsskrifstofu Indónesiu i Amsterdam, þar sem suður- mólúkkeyskir sjálfstæöissinnar lialda fjölda manns i gislingu. Thornton Wilder látinn — höfundur m.a. „Our Town" Bandariski rithöfundurinn Thornton Wilder lézt i gær, 78 ára gamall. Hann hafði m.a. hlotið Pulitzer-verðlaunin fyr- ir skáldsögur sinar og leikrit. Wilder var látinn er komið var með hann á sjúkrahús i New Haven i Connecticut, en hann bjó i nágrannaborginni Camden. Dánarorsök var ekki kunn, trúlega hjartaáfall. Thornton Wilder var þekkt- astur fyrir leikrit sitt frá 1938, ,,Our Town”. Sama ár kom út frægasta skáldsaga hans, ,,The Bridge Of San Luis Rey”. Þessi tvö verk, ásamt leik- ritinu „TheSkin Of Our Teet”, unnu honum þrenn Pulitzer- verðlaun. Hann skrifaði einnig „The Matchmaker”, leikritið sem var uppistaðan i söng- leiknum vinsæla, „Hello Dolly”. Meðal annarra skáldsagna hans voru „The Woman af Andros”, „Heaven Is My Destination” og „Theophilus North”. Metrakerfið i USA innan tveggja ára Oldungadeild Bandarikjaþings samþykkti i gær ályktunartillögu, sem hvetur til þess að metrakerf- ið verði tekið upp i Bandarlkjun- um innan tveggja ára. Tillagan, sem nú verður send til fulltrúadeildar þingsins til um- fjöllunar, gerir ráð fyrir að skip- að verði 17-manna „metraráð”, sem undirbúi breytinguna yfir I metrakerfiö. Bandarikin er eina meiriháttar iönaöarþjóðin, sem ekki notar metrakerfið. Gert er ráð fyrir aö breytingin kosti rúmlega hundrað milljónir dollara. Umsátrið um IRA-mennina í London: Fá mat gegn frelsi annars gíslanna Irsku skæruliðarnir, sem halda miöaldra hjónum i gislingu i ibúð hjónanna i London, veröa i dag að velja á milli þess að svelta eöa sleppa öðrum gislipum fyrir mat og sigarettur. Lögreglan hefur sagt sig reiöu- búna aö færa skæruliðunum mat ef þeir lofi að láta eiginkonuna, Sheilu Matthews, 53 ára, lausa einni klukkustund eftir aö fyrsta matarsendingin berst til þeirra. írunum var gert þetta tilboð seint i gærkvöldi i gegnum sima, sem settur hefur verið i beint samband við simann i ibúð hjón- anna. Snemma i morgun höföu þeir ekki svarað tilboði lögregl- unnar. Skæruliðarnir eru félagar i Irska lýðveldishernum (IRA), sem berst fyrir brottflutningi Breta frá Norður-lrlandi. Skæruliðarnir — þrir eða fjórir — eru grunaðir um að bera á- byrgð á fjölda sprengjutilræða og skotárása i London að undan- förnu. Þeir hafa krafizt þess að fá flugvél til að komast til Irlands, en lögreglan hefur þverneitað öll- um slikum málaleitunum. w w ÆÆOO! Ford Bandarfkjalorseti kom við á Kilipseyjuin á lieimleið frá Kina. Þar dansaði hann þjóö- daiisinn „Tinikling", en gætti sin ekki nóg á bainbusstönguii- uin. sem lioppa á yfir — eins og sjá má á andliti forsetans. Blóðþorsti innrásarherjanna á Tímor: „SLÍTUM LIFRINA" ÚR Stuöningsmenn Lýöræðissambands Timor (UDT), sem gengið hafa í liö með innrásarherjum Indónesa I baráttunni gegn Fretilin, sem beitir sér fyrir sjálfstæði Austur-TImor. að. að forseti Fretilin-stjórnar- innar. Zavier do Amaral og „kommúniskir” hermenn hans yrðu beittir hörðu ,.og tætt úr þeim lifrin". Eingar frekari fréttir hafa heyrzt frá útvarpsstöð Fretilin- hrevíingarinnar, sem sendi i gær út frá fjallasvæðunum utan við Dili. Það liggur ljóst fyrir, að her- mönnum og stuðningsmönnum Fretilin verður engin miskunn sýnd þegar — og ef — þeir nást. 1 útvarpssendingum innrásarhers- ins og samstarfsmanna þeirra á Dili hafa yfirlýsingar verið i stil við áðurnefndar. FORSETA FRETILIN — segir í útvarpssendingum frá eynni Útvarpsstöð i Dili á Austur- Timor, sem Indónesar hafa á valdi sinu. hefur hvatt landsmenn til að taka þátt i leitinni að flúnum leiðtogum vinstrihreyfingarinnar Fretilin og ganga frá þeim i eitt skipti fyrir öll. í útsendingum stöðvarinnar sagði að þar væri „Útvarp Dili” og var þvi m.a. lof-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.