Dagblaðið - 19.01.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 19.01.1976, Blaðsíða 8
8 Pagblaðið. Mánudagur 19. janúar 1976' UNGT SKÁKFÉLAG - EN STERKT: Mjölnir vann Sunnlendingana — og hefur trygga forystu í deildakeppninni í skák Yngsta taflfélag landsins, Mjölnir sem stofnað var 8. september sl., sama dag og Dagblaðið hóf göngu sina, virðist ætla að vinna sigur i deildarkeppninni í skák. I gær bættu þeir Mjölnismenn einum sigrinum i safn sitt, unnu Skák- samband Suðurlands með 6 gegn 2. Aður hafði Mjölnir unnið Taflfélag Reykjavikur og Tafl- félag Hafnarfjarðar. Eftir eru Kópavogur, erfiður mótherji að mati Svavars Guðna Svavars- sonar, formanns Mjölnis, Akur- eyringar, Keflvikingar og Skák- félag Hreyfilsbilstjðra. t gær var teflt á 8 borðum i Vélskóla Islands og fóru leikar svo: Ingvar Ásmundsson vann Gunnar Finnlaugss., Ólafur Magnússon vann Hannes Ólafs- son, á þriðja borði tapaði Björg- vin Viglundsson fyrir Ölafi Bjarnasyni, Sunnlendingi, en hann var sá eini frá SS, sem fór með sigur af hólmi. Á fjórða borði tefldu Jónas Þorvaldsson og Vilhjálmur Þór Pálsson og varð jafntefli. Jón Þorsteinsson, sá gamalkunni kappi, sneri sig út úr erfiðri stöðu gegn ungum skákmanni frá SS, Guðbirni Sigurmundssyni, og sigraði Jón i skákinni. Sverrir Norðfjörð, SM, og Svavar Guðni Svavarsson, — formaður Mjölnis, hins unga félags sem sér fram á sigur i deildakeppninni. Sveinn Sveinsson gerðu jafntefli á 6. borði, en á 7 borði vann Árni Björn Jónasson og Stefán Aðalsteinsson og á 8. borði vann Sigurður Danielsson Þórhall héraðslækni i Hveragerði Ólafs- son. Jón Þorsteinsson (til hægri) sá við hinum unga Guð- birni Sigurmundssýni, enda þótt staðan væri orðin hæpin undir lokin hjá hinum gamalkunna kappa. Ingvar Ásmundsson og Gunnar Finnlaugsson voru fyrsta borðsmenn. Hér hugsa þeir djúpt Ólafur Magnússon og Hannes Ólafsson. (Ljósmyndir PB, Björgvin Pálsson). Loðnubrœðsla hefst senn ó Raufarhöfn „síldarsvipur" á kauptúninu „Hingað eru nú komin um 14 hundruð tonn af loðnu úr f jórum skipum,'’ sagði Árni Sverrisson, verksmiðjustjóri Sildarverk- smiðju rikisins á Raufarhöfn, i viðtali við Dagblaðið i gær- kvöldi. ..Hingað er von á 6 skip- um með 18—19 hundruð tonn i kvöld", sagði Árni ennfremur. Á Raularhöfn er þróarrými íyrir 9 þúsund tonn af loðnu, en afkastageta verksmiðjunnar er, að sögn Árna Sverrissonar 600 tonn á sólarhring. Hann sagði, að loðnan kæmi til þeirra á Raufarhöfn nokkru fyrr en menn hefðu búizt við, heldur fyrr en á siðasta ári. Er nú verksmiðjan senn tilbú- in að fara i gang og verður þá unnið á 8 stunda vöktum. Um það bil 60 menn starfa i verk- smiðjunni, þegar brætt er. Sá mannafli er fyrir hendi á Raufarhöfn og nágrenni. Mikill hugur er i mönnum nyrðra, ekki sizt þeim, sem muna lif og önn sildarsumranna þar. —BS ÁTTA ÚTKÖLL SLÖKKVILIÐS Það sem af er árinu hefur verið óvenjulega rólegt hjá Slökkviliði Reykjavikur. Ails hefurátta sinnum verið kallað á liöiö. i öllum tilvikum hefur verið um mjög óverulegan eld að ræða og i sumum engan. Sumar af þessum ferðum hafa verið farnar af þvi að fólki sýnd- ist vera um eld að ræða á ákveðnum stöðum, en er liðið kom á vettvang reyndist um misskilning að ræða. Átta útköll á 15 dögum er óvenjulega litið. ASt „ENGIR SAMNINGAR KOMA NÚ TIL GREINA VIÐ BRETA", — segir fundur í Starfsstúlknafélaginu Sókn ,,Engir samningar við Breta koma nú til greina,” segir i ályktun Starfsstúlknafélagsins Sóknar . Mótmælir félagið harðlega innrás brezks flota i is- lenzka fiskveiðilögsögu og itrekuðum ásiglingartilraunum þeirra á islenzk varðskip að skyldustörfum, sem leitt geta r.il manndrápa hvenær sem er. Jafnframt vitir félagið hik og úrræðaleysi islenzku rikis- stjórnarinnar, sem gæti gefið Bretum þá alröngu hugmynd, að tslendingar gætu bognað fyrir ofbeldinu, og þannig boðið heim hættu á áframhaldandi og auknum ofbeldisverkum. Fundurinn lýsir yfir fuilum stuðningi við frumkvæði Suður- nesjamanna og skorar á stjórn- völd að lýsa nú þegar yfir úr- sögn úr NATO. Forboðnir óvextir Náunginn á myndinni var að burðast með forboðna siga- rettuauglýsingu, þvi það eru þær utandyra samkvæmt reglu- gerðum. Hann lét mynda sig i bak og fyrir með auglýsinga- klukku, sem hann hampaði fyrir framan brjóstmyndina af borg- arskáldinu Tómasi i Austur- stræti. (Db-mynd Björgvin). í pilluleit ó Selfossi Aðfaranótt laugardagsins var brotizt inn i apótekið á Sel- fossi. Voru þar að verki ná- ungar úr Reykjavik i pilluleit en litið höfðu þeir upp úr krafsinu. Virtust þeir hafa verið truflaðir við iðju sina, þvi þeir höfðu sig hið skjótasta á brott. Varð þeim ekki kápan úr þvi klæðinu þvi lögreglan á Sel- fossi vissi á hvaða bifreið þeir ferðuðust og var þvi hægt um vik. Mennirnir voru handtekn- ir og mál þeirra sent til rann- sóknar. HP. Léleg nýting fangageymsla um helgina EINN TEKINN FYRIR RÚÐUBROT í NOKKRUM VERZLUNUM Að sögn lögreglunnar i Reykjavik var óvenjulega litið um að vera um helgina þrátt fyrir leiðindafærð og veður. Olvun var i algjöru lágmarki og aðeins sex menn gistu fangageymslur, sem verður að teljast léleg herbergjanýt- ing. Einn maður var handtekinn áberandi ölvaður, þar sem hann braut rúður i Siggabúð á Skólavörðustig. Hefur hann játað að hafa fyrr á sunnu- dagsnóttina T)rotið rúður i Plötuportinu og einhverjar kærur voru að berast um rúðubrot viðar i miðbænum, sem maðurinn er grunaður um að eiga aðild að. Lögregl- an heldur manninum i sinni vörzlu. Árekstrar i umferðinni yfir helgina voru fáir og engin slys urðu á mönnum. HP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.