Dagblaðið - 26.01.1976, Page 13

Dagblaðið - 26.01.1976, Page 13
Flug 157 endar í miðjum frumskóginum1 Læknir, — hann virðistHM _ ekkianda. ;—y Jæja, þaö tókst þó. Aðgættu farþegana Já, herra og ekkert radiósamband © King Fealures Syndicate, lnc„ 1974. World righl. reterved. nœgði ekki — Frábœr árangur á EM í skautahlaupum Sten Stensen, Noregi, setti glæsi- legt heimsmet I 10000 m. hlaupi á EM i skautahlaupum i Osló i gær — hljóp á 14:50.31 min., en þessi frá- bæri árangur i siðustu greininni nægði honum ekki til að hljóta EM-titilinn. Kay Stenhjemmet, Noregi, varð meistari með 169.770 stig — en Stensen hlaut 169.775 stig. Jafnasta keppni sem um getur i sögu skautahlaupanna. Eidra heimsmetið i 10 km. átti Victor Varalamov. Sovét, 14:52.73 min. Hann varð annar á 14:59.27 min. Norðmenn höfðu algjöra yfir- burði. Þriðji samanlagt varð Jan Egil Storholt mcð 169.979 og fjórði Araund Sjöbrend með 170.333. Stensheim setti norskt met i 5000 m. skautahlaupinu, þegar hann sigraði ó 7.15.76 min. Storholt varð annar á 7:18.66 min. í 1500 m. hlaupinu setti Stenshjemmet nýtt norskt met — hljóp á 2:00.63 mín. Sjöbrend varð annar á 2:01.29. min. og van Ilelden, Hollandi, 3ji á 2:01.37 min. Þrjú heimsmet og Evrópumet — í frjálsum íþróttum innanhúss Pólverjinn Tadeus Slusarski setti nýtt Evrópumet i stangarstökki innanhúss I Philadelpiu á laugardag — stökk 5.46 m. Eldra metið átti Kjell Isaksson, Sviþjóð, og var það 5.29 metrar. Evrópu- metið stóð þó aöeins nokkrar klukkustundir, þvi á móti i Varsjá stökk Wladyslaw Kozakiewicz 5.48 metra á laugardagskvöld. Angela Voigt, Austur- Þýzkalandi, setti nýtt heimsmet innanhúss i langstökki á móti I Austur-Berlin á laugardag, Hún stökk 6.76 metra en eldra heims- metiö var 6,73 m. og átti Tatyana Schelkanova, Sovétrikjunum það. Daginn eftir bætti Eugen Ray, Austur-Þýzkalandi, eigið heims- met i 100 m. hlaupi innanhúss, þegar hann hljóp á 10.16 sek. Hinn 18 ára hlaupari frá Ilalle bætti met sitt úr 10.21 sek., sett fyrr i þessum mánuði. Doris Maletzki setti heimsmet i 400 m. hiaupi kvenna — hljóp á 51.9 sek. Eldra heimsmetið átti Nadeshda llynia, Sovét, 52.44 sek. Árangur þessi náðist á austur- þýzka meistaramótinu. Karl Jóh. stangaður IBK sigraði Fylki i 2. deild Islandsmótsins i handbolta. Leiknum lauk 13-10 IBK i vil. Það sem hinsvegar varð þeim næstum að falli var að leikurinn hófst 30 minútum á undan áætlun — og beztu menn liðsins mættu i hálf- leik! Fyrir norðan lék Leiknir við Þór og KA. Leiknir sigraði i fyrri leiknum 24-23 — skoraði markið á siðustu sekúndum. En eitthvað virtist dregið af Leiknismönnum i siðari leiknum — stórtap 22-36. Karl Jóhannsson er enn iðinn við kolann. Hann leikur nú með HK og um helgina lék HK við UMFN og tapaði 16-32. Karl skoraði tvö mörk — og átti eina linusendingu á þeim þremur mintútum sem hann var inn á. Þá var Karl bara stangaður á nefið og varð að yfirgefa völlinn — skrámaðurá nefi. Kvennaboltinn var einnig i gangi yfir helgina — Valur heldur sinu striki i 1. deildinni. Liðið vann stórsigur á UBK 25-4. Armann átti i nokkrum erfiðleik- um með Vfking — en sigraði þó 17-12. Þjáningasystur Vikings á botninum i deildinni — IBK-voru Fram engin hindrun. Fram sigr- aði 21-12. FH sigraði KR 15-13. h.halis Dagblaðið. Mánudagur 26. janúar 1976. Dagblaðið. Mánudagur 26. janúar 1976. j v 'i ’ . V t'i v. ' ... ... ' . . ••,. • T»Ti»lT Jón P. Jónsson skorar af miklu harðfylgi þrátt fyrir aö þrir Þróttarar séu til varnar. Db-mynd Bjarnleifur Nú blasir íslandstit- illinn við Valsmönnum — eftir sigur gegn Þrótti í gœrkvöldi. Sigurganga Þróttar stöðvuð eftir fimm leikí Eftir tvo tapleiki I röð eru Vaismenn aftur komnir á skrið — i gærkvöld sigruðu þeir Þrótt 21- 19 i 1. dcild islandsmótsins i handknattleik. En þrátt fyrir sigur voru Vals- menn alls ekki sannfærandi. Siður en svo — léleg nýting Þrótt- ara i góðum færum varð hinu unga liði Þróttar að falli. Svo og virtust innáskiptingar nokkuð misráðnar — einmitt þegar Vals- liðið var hvað ráðvilltast voru Bjarni Jónsson og Friðrik Friðriksson útaf. Eftir að Ólafur Benediktsson hafði varið 3 vita- köst i röð snemma i fyrri hálfleik náðu Valsmenn góðu forskoti — 16-10. Allt gekk Þrótti i óhag á þvi timabili og i 18 minútur skoraði liðið aðeins 2 mörk. Þegar tiu minútur voru eftir af leiknum var staðan 18-12 Val i vil en þá tóku Þróttarar góðan kipp og skoruðu þrjú mörki röð. Við þetta virtist Valsliðið ætla að brotna — mistök á mistök ofan og Þróttur fékk hvaðeftir annað að minnka mun- Ólafur slasaðist Dankersen tapaði — en Göppingen vann enn sigur í suðurdeildinni og er nú komið upp í miðja töflu. Tap hjó Donzdorf Öjafur II. Jónsson slasaðist á augabrún — varð að yfirgefa völl- inn — þegar tiu min. voru eftir af leik Dankersen og Rheinhausen i Bundesligunni þýzku á laugar- dag. Staðan var 13-11 fyrir Dankersen — en Itheinhausen skoraði fjögur mörk lokakaflann gegn einu og sigraöi 15-14. Dankersen lék með hálfgerðu varaliði þá. Þrir aðrir leikmenn liðsins höfðu slazast og orðið að yfirgefa völlinn auk Ólafs. Einn fékk heilahristing, annar meidd- ist á hné, hinn 3ji á ökkla. Ólafur fékk skurð á augabrúnina — saumuð sex spor. Hann verður frá leik um sinn — vonast þó til að geta leikið um næstu helgi. Þetta var ekki sama augabrúnin og Ólafur slasaðist á i desember. ,,Við áttum báðir heldur slakan Ágúst Ásgeirsson brezkur meistarí Ágúst Asgeirsson, hlauparinn góðkunni úr ÍR, sigraði I 2000 m hindrunarhlaupi á miklu frjáls- iþróttamóti innanhúss i Wolver- hamptoná laugardag. Hann hljóp vegalengdina á 5:38.8 min. og var eini erlendi sigurvegarinn á mót- inu. Þetta var á brezka meistara- mótinu — svo Ágúst er brezkur meistari i greininni. Andrea Lynch vann aftur titil sinn i 60 m hiaupi — hljóp á 7.3 sek., en Bretar gera sér vonir um, að hún hljóti verðlaun i Montreal. í 800 m hlaupi sigraði Phil Lewis á 1:50.0 min. eftir ársfjarveru frá keppni. Hann hlaut silfurverðlaun i þessu hlaupi á EM 1971. Afrek Ágústs i hlaupinu var afar óvænt, þvi allir beztu Bretarnir á vegalengdinni voru meðal keppenda. leik — ég og Axel. Það er afar er- fitt að leika á útivöllunum i Þýzkalandi. Ég veit ekki hvað við skoruðum — held 2-3 mörk hvor. Gummersbach lék i Hamborg og vann 16-11. Einar Magnússon lék ekki með. Kiel vann Phönix 19-12, Derschlag vann Altenholz 16-12 og Wellinghofen vann Bad Schwartau 15-10. Gummersbach hefur 18 stig — Phönix og Kiel 13 stig, Dankersen og Derschlag 11. Wellinghofen og Reinhausen 10. Liðin hafa leikið 10 leiki — nema Kiel 11. Göppingen lék við Grosswall- stadt i suðurdeildinni og sigraði með 15-13. Gunnar Einarsson skoraði fimm mörk i leiknum — fjögur viti. Göppingen er nú komið með 10 stig — aðeins fjór- um stigum á eftir efstu liðum, svo þar getur allt skeð. Hofveier vann Milbertshofen 16-14. Bæði efstu liðin töpuðu, Neuhausen, neðsta liðið vann það efsta Rintheim 16- 13 og Leutershausen vann Dietzenbach 16-15. 1 2. deild tapaði Donzdorf enn — lék við Rheinburger og tapaði 10- 12. ólafur Einarsson skoraði fjögur mörk i leiknum — tvö viti. Fjögur lið berjast þar nú um að komast i 1. deildina. inn enn frekar. En þá voru þeir Friðrik og Bjarni fyrir utan — tækifærum var klúðrað og Vals- menn náðu að skora sitt 19. mark. Eftir það var aldrei spurning hver sigraði — Þróttur minnkaði muninn i 21-19 en liðið hafði gefið Val of mikið forskot. Staðan í I. deild Úrslit leikja helgarinnar: 1. deild: Valur — Þróttur 21-19 Ármann—Fram 17-18 2. deild: Þór — Leiknir 23-24 KA—Leiknir 36-22 ÍBK — Fylkir 13-10 1. deild kvenna: Ármann—Vikingur 17-12 Fram —ÍBK 21-12 KR — FH 13-25 Valur — UBK 25-4 Staðan i 1. deild karla: Valur 11 7 1 3 217-186 15 FH 10 6 0 4 222-202 12 Haukar 10 5 2 3 189-173 12 Fram 11 5 2 4 185-180 12 Vlkingur 10 5 0 5 205-205 10 Þróttur 11 4 2 5 209-209 10 Ármann 11 3 1 7 179-229 7 Grótta 10 3 0 7 175-197 6 Markhæstu menn: Friðrik Friðriksson, Þrótti 70/15 Páll Björgvinsson, Víking 63/22 Pálmi Páimason, Fram 60/17 Næsti leikur verður suður I Firði á miðvikudaginn — þá eig- ast við Grótta og FH. Punktamót í skíðagöngu Punktamót i skíðagöngu var háð i Hveradölum á laugardag. Skiðafélag Reykjavikur sá um mótið, en Jónas Ásgeirsson var göngustjóri. Keppt var i tveimur flokkum, og voru þátttakendur skráðir frá ísafirði. Siglufirði. Fljótum, ólafsfirði og Reykjavik. ólafsfirðingar veðurtepptust — en Trausti Sveinsson keppti ekki á mótinu. • Úrslit i flokki 20 ára og eldri urðu þessi. 1. Magnús Eiriksson, Siglufirði, 56.18 2. Þröstur Jóhannsson, Isafirði, 58.56 3. Guðm. Sveinsson, Reykjavik, 61.54 4. Guðjón Höskuldsson, Isafirði. 63.36 Gengnir voru 15. km fyrir neðan skiðaskálann. I flokki 17—19 ára urðu úrslit þessi — vegalengd 10 km. 1. Jónas Gunnlaugsson, Isafirði 42.45 2. Björn Ásgrimsson, Siglufirði 42,46 3. Hallgrimur Sverrisson, Siglufirði 45.08 Jón Karlsson var atkvæða- mestur Valsmanna og i markinu stóð Jón Breiðfjörð mestan timann. Jón varði mjög vel — og Óli Ben. kom inn á rétt til þess að verja þrjú viti i röð. Lið með slika markverði er ekki á flæðiskeri statt. Leikur Þróttar var nokkuð tröppukenndur — annað slagið lék liðið mjög vel en þess á milli datt liðið alveg niður. Sama gilti um markverði — af og til voru góð skot varin en þess á milli lak allt inn. Segja má að þetta hafi einkennt nokkuð marga leiki Þróttar i vetur — og nokkrum sinnum slapp allt fyrir hom — en i gærkvöld gáfu þeir of mikið for- skot til að vinna upp á of skömm- um tima. Mörk Vals skoruðu: Jón Karls- son 6, Guðjón Magnússon, Þorbjörn Guðmundsson og Jón P. Jónsson 4 mörk hver. Jóhannes Stefánsson skoraði 2 mörk og Steindór Gunnarsson 1 mark. Friðrik Friðriksson skoraði 6 mörk fyrir Þrótt, Konráð 5, Halldór Bragason 4, Sveinlaugur 3 og Jóhann 1. mark. hhalls. Ásgeir skoraði — stórtap hjú Charleroi Ég byrja að æfa á morgun — hcf verið frá i rúman hálfan mánuð vegna meiðsla i læri, sagði Guðgeir Leifsson, þegar Dag- hlaðið ræddi við hann i Belgiu i gær— og liann var þvi ekki með i tapleiknum mikla hjá Charleroi I gær. Waregem vann Charleroi 9- I. Staðan var 3-0 i hálfleik, en samt lét þjálfari okkar liðið reyna sóknarleik áfram með þessum afleiðingum, sagði Guðgeir enn- fremur. Ég vona að ég geti byrjað að leika aftur um næslu heígi — það er hroðalegt að vera svona frá. Ég hóf leik of snemma á dög- unum — var frystur og meiðslin tóku sig upp. Asgeir Sigurvinsson lék með Standard og skoraði fyrra mark liðsins gegn Berchem. Staðan var 1-0 i hálfleik fyrir Standard og i hvrjun s.h. skoraði Gorat annað mark Standard. Liðið virtist stefna i sigur — en Berchem tókst að skora og rétt fyrir leikslok var dæmd vitaspyrna á Standard og Berchem jafnaði. Mörgum þótti hún mjög vafasöm. úrslit urðu annars þessi i Belgiu um helgina. Beerschot — Molenbeek 1-1 La Louviere — Beringen l-l Malines — Ostende 1-1 Liegeois — Malinois 0-0 Enn sigur Enn sigrar Borussia Mönchen- gladbach i vestur-þýzku knatt- spyrnu — sigraði Kaiserslautern ú útivelli á laugardag með 3-0. Það var i 19. umferð og önnur úrslit urðu þessi. Hertha-Brunswick 1-0 Bayern-Karlsruher 2-0 Duisburg-Schalke 1-3 Essen-Dusseldorf 2-2 Ein. Frankfurt-Bremen 2-0 Bochum-Uerdingen 3-0 Hannover-Köln 3-3 Ilamborg-Offenbach 2-0 Lierse — FC Brugge 2-3 Beveren — Lokeren 2-1 CS Brugge — Antwerpen 1-3 Waregem — Charleroi 9-1 Berchem—Standard 2-2 Andrés Bridde, Fram, hindrar Friðrik Jóhannesson og Fram. DB-mynd Bjarnleifur vlti var dæmt á Lognmolla þegar Fram vann sigur — og Ármenningar eru því enn í fallhœttu Fram sigraði Ármann með eins marks mun Fram og Ármann léku siðari leikinn i gærkvöld — Fram sigr- aði 18-17. Þrátt fyrir litinn mun var aldrei spenna — þarna áttust við lið — annað hefur verið við miðja deildlna án þess að ógna efstu liðum og hitt i botnbaráttu — og leikurinn var i samræmi við þctta. Litið sem ekkert gladdi augað — og áhorfendur tindust smám saman i burtu, enda litið við að vera. Armenningar geta engum öðrum en sjálfum sér um kennt hvernig fór — upplögð tækifæri gáfust til að vinna leikinn en þau voru ekki nýtt og þvi féll sigurinn Fram i skaut. Ármann var lengst af yfir i fyrri hálfleik en i hálfleik var staðan jöfn 10-10. Ármenningar voru yfir i byrjun siðari hálfleiks en aldrei meira en eitt mark — þrátt fyrir að mörg og góð tæki- færi gæfust til að auka muninn. Upp úr miðjum hálfleiknum náði Fram tveggja marka forystu sem reyndist Ármanni um megn að brúa og sigur Fram var i höfn. Framliðið leikur mjög einhæf- an handknattleik .— sama hnoðið fram og aftur. Hins vegar býr margt i liðinu og þegar liðið hefur jafnað sig til fulls á þeim blóð- missi sem það hefur orðið fyrir, þá fer Fram aftur að ógna efstu liðum hér. Enn á Ármann fall i 2. deild á hættu. Liðið hefur verið mjög ó- heppið i vetur — leikmenn hafa Lauda vann Heimsmeistarinn I kappakstri, Austurrikismaðurinn Niki Lauda, sigraði i fyrsta Grand Prix kapp- akstrinum i ár I Interlagos i Braziliu i gær. verið meiddir og æfingaaðstaða ekki sem skyldi. Ég trúi hins veg- ar ekki fyrr en ég tek á þvi að Ár- mann falli — en eftir eru þrir erf- iðir leikir og hver veit hvað Grótta gerir. Ármann lét gott tækifæri sleppa úr hendi sér i gærkvöld við að krækja i stig. Ekki að Fram væri betra liðið — heldur léleg nýting tækifæra Ar- manns — tvö viti misnotuð. Mörk Fram skoruðu: Hannes Leifsson 5, Arnar 4, Pálmi og Pét- ur Jóhannesson 3 hvor, Magnús Sigurðsson 2 og Birgir Jóhanns- son 1 mark. Hörður Harðarson var mark- hæstur Ármenninga með 7 mörk — 4 viti. Jens 4, Björn Jóhannes- son 2 og Hörður Kristinsson, Pét- ur Ingólfsson, Vilberg Sigtryggs- son og Friðrik Jóhannesson 1 mark hver. Leikinn dæmdu Kristján örn og Kjartan Steinbach. h.halls Miklir yfirburðir Ingemars en Franz Klammer sigraði í bruninu : ' ‘ & Ingemar Stenmark vann enn merkan sigur á hinum itölsku keppinautum sinum i stórsvigi heimsbikarsins i Kitzbuel á laugardag. Þriðji sigur hans i vetur og það var yfirburðasigur. Hann keyrði báðar umferðirnar á 107.74 min., en Gustavo Thoeni varð annar á 108.10 min. og Piero Gros 3ji á 108.60 min. Hinn ungi Stenmark hefur nú 10 stiga for- skot i keppninni um heimsbikar- inn. HBnHsnneRBBm Thoeni var með 0.24 sek. betri tima en Ingemar eftir fyrri um- ferðina, en hafði ekkert að segja i Sviann i þeirri siðari og Ingemar náði þá sekúndu betri tima. Það þótti hreint ótrúlegt afrek — og Thoeni var afar óánægður eftir keppnina þrátt fyrir annað sætið. I bruninu i gær sigraði Franz Klammer, Austurriki, með mikl- um yfirburðum. Hann fór á 2:03.79 min. Erik Haker, Noregi, sem keppti á ný eftir meiðsli, varð annar á 2:05.85 min. og Josef Walcher, Austurriki, þriðji á 2:06.47 min. I stórsvigi kvenna i Kranjaska Gora i Júgóslaviu sigraði Lisa-Maria Morerod, Sviss — var 1.22 sek. á undan Rosi Mittenmaier, Vestur-Þýzkalandi. Stigatalan i keppninni er nú þannig. 1. Ingemar Stenmark, Sviþjóð, 166 2. Franz Klammer, Austurriki, 156 3. Piero Gros, ítaliu, 155 4. Gustavo Thoeni, Italiu, 140 5. Walter Tresch, Sviss, 90 I kvennakeppninni er staðan þannig: 1. Rosi Mittermaier, V-Þýzkal. 204 2. B. Zurbriggen, Sviss, 153 3. L.M. Morerod, Sviss, 145 4. D.Debernard, Frakklandi. 124 5. B. Totschnig, Austurriki. 119 6. Monika Kaserer. Austurriki. 103 Nánar verður sagt frá keppn- inni á morgun. Lugi nú í 3ja sœti Við sigruðum Malmö i gær meðj 19-15 i Alsvenskan, sagði Jón Iljaltalin Magnússon, þegar Dag-j hlaðið ræddi við liann i morgun.: Attum að vinna miklu stærri sigur. i Mér gekk sæmilega — það var þój cnginn stórleikur. Skoraöi tvöj mörk — var ekki mikið með. Heim j sigraði Malberget — liðið, sem Agúst Svavarsson leikur með með! 27-21 i Gautaborg, en ég veit ekki.j hvernig Agústi gekk. Þetta var: fyrsti tapleikurinn siðan hann bvrjaði að leika með liðinu. Heim : og Ystad eru nú efst með 18 stig - Lugi hefur 17 stig og Hellas er fjórða sæti með 14 stig. A miðvikudag lékum við i Lugi i! Kristianstad og töpuðum 20-18. Það var mikill klaufaskapur — misst- um fjöidann allan af linuskotum. Ég skoraði 3 mörk i leiknum, sagðií Jón. Malmberget lék á föstudag viðj Drott á útivelli og varð jafntefli 21- 21. Agúst fékk mjög góðan dóm fyrir Ieik sinn. Skoraði 5 mörk I f.h. og eitt i þeim siðari. Samtals sex og liðið hlaut þarna sitt annað stig i| keppninni, sagði Jón að lokum. Gummersbach hafði það Þýzka meistaraliðiö Gummers- bach vann það ótrúlega afrek á föstudagskvöld i Dortmund að sigra pólska liðið Slask Wroclawl með 20-11 og komst þvi i útta Iiða úrslit Evrópukeppni meistaraliða. Staðan i hálfleik var 11-8. Gummersbach vann samanlagt 35-33, en pólska liðið sigraði i heimaleik sinum meö 22-15 eða sjö1 marka mun, sem svo ekki nægði. Deckarm skoraði sjö mörk Gummersbach — sex úr vitum — og Hansi Schmidt útti frúbæran leik. Skoraði afar þýðingarmikil mörk á réttum augnablikum. Þeir Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson geta leikið siðari leikinn við Luxemborg i Olympiukeppn- inni i handknattleik, sem verður i Luxemborg 28. febrúar. Dankersen átti að leika við Bad Schwartau þann dag — en leikurinn var færður fram til 21. febrúar. Siðari leikur- inn við Júgóslava verður 7. marz. Reynt var að fá landsleik við Frakka og V-Þjóðverja i milli- tiðinni, en þeir svöruðu neitandi. Enn er möguleiki á iandsleik við Tékka — svo að leikjum við sterk þýzk lið. V-Þjóðverjar hafa boðið isl. landsliðinu æfingaaðstöðu. Thoeni keppir í öllum greinum Þjálfari italska skiðalandsliðs- ins, Cotelli, skýrði frá því i Róm i gær, að núverandi heimsmeist- ari, Gustavo Thoeni, mundi kcppa i öllum þremur alpagrein- unum ú Olympíuleikunum I Inns- bruck. Aðrir i hinu sterka italska olympiuliði verða Piero Gros, Franco Bieler, Fausto Radici. Herbert Plank, Erwin Stricker, Rolando Thoeni og Diegi Amplatz. ________ Nicklaus í fyrsta sœti Jack Nicklaus liafði forustu eftir þrjár umferðir á Bing Crosby golf- mótinu i Kaliforniu i gær. Hafði leikið á 209 höggum. Næstu menn með 210. Keppninni lýkur i dag. Trausti til Innsbruck Trausti Sveinssón, Fljótum. var valinn i islenzka Olympiuliðið ú vetrarleikana i Innsbruck. sem hefjast 4. febrúar. Trausti flaug utan i morgun — en valið uin sætið stóð milli hans og Magnúsar Eirikssonar, Siglufirði.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.