Dagblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976. 2 r FRAMTIÐ OG NUTIÐ ERU HELDUR ÓLJÓS HUGTÖK — eftir svörum Einars Ágústssonar á Beinni línu Ari Guömundsson skrifar: „I iítvarpsþætti fyrir nokkru sat Einar Agústsson kaup- félagsmaður fyrir svörum um utanrfkisstefnu ríkisstjðrnar- innar. Mátti varla á milli sjá hvorir hefðu betur, hlustendur að spyrja um landhelgismál, hersetuna og NATO-aðildina eða endurkjörinn miðstjórnar- maður Framsóknar að víkja sér undan nothæfum svörum. Spurningar hlustenda sýna ljóslega að alþýða manna hefur brennandi áhuga á framtíð lands og þjóðar. Aftur á móti virtust svör ráðherra „vinstri” og hægri stjórnar benda til að framtíð og nútíð væru heldur óljós hugtök og þá helzt and- virði eins ráðherrastóls. En samvinnuforkólfurinn reyndist hins vegar heldur gleyminn á fortíðina því hann gleymdi að telja upp hersölufyrirtækið Regin (í eign Framsóknar) þegar verið var að spyrja um hersölumál. En auðvitað má fyrirgefa slíkt þegar tekið er tillit til alls þess sem sagt var f fortíðinni á meðan hr. Agústsson sat í „vinstri” stjórn með tilheyr- andi loforðum sem „gleymd- ust”. Nú eru tæp 25 ár liðin síðan her sá, sem auðvitað blandar sér ekki í „innanríkismál” ís- lands og Bretlands, steig á land hér til að vera í annað sinn. Þá var hvorki hlustað á meirihlut- ann eða útskýringar á eðli Bandarikjanna og tilgangi her- setunnar. Skýrslur, sem nú eru opinberar nýlega, sýna þó glögglega að hersetan beindist gegn óþægri alþýðuhreyfingu. Dæmin erlendis frá — Spáni, Tyrklandi, Grikklandi, Guate- mala, Chile og Kambódíu — bera því sama einmitt vitni og þau er erfitt að sniðganga, jafn- vel Einari Agústssyni utan- ríkisráðherra. En Framsóknarflokkurinn kann að segja bæði já og nei, þannig að rúmur fimmtiingur þjóðarinnar greiðir honum at- kvæði. Framsókn ver hersetuna og NATO-aðildina vegna SÍS- verksmiðja í Bandaríkjunum, vegna viðskipta SÍS við Banda- ríkin og vegna hermangsins heima fyrir. Hún ver samtímis hitt risaveldið, Sovétrikin, sem löngu er hætt að vera alþýðu- ríki, vegna viðskipta SÍS og Þeir eru sannarlega stéttvísir Olíuverzlunarinnar við Sovét. og duglegir, kaupfélagsmenn.” Umsjónarmenn Beinnar linu í vetur hafa verið fréttamennirnir Vilhelm G. Kristinsson og Kári Jónasson. Raddir lesenda Raddir lesenda Tryggingarfélög! Komið bfl- eigendum til hjálpar! öryrki skrifar: „Ég var að fá rukkun fyrir bílatryggingunni minni, en ég á frekar lítinn bíl og þarfnast hans vegna sjúkdóms mins. En mér er nær ofviða að greióa langt í 40 þúsund krónur í einu lagi í iðgjald. Sýnið þvi bílaeig- endum velvilja og komið til móts við þá með því að fjölga greiðsludögunum upp I 2—3 á ári, þið ættuð að geta tryggt greiðsluna með einhvers konar afborgunarvíxlum.” GONGUGATAN ER EKKI ÖLLUM TIL YNDIS Magnús Agústsson skrifar: „Mér er mikið I mun að koma á framfæri nokkru til okkar háttvirtu borgarstjórnar. Þegar við göngum um götur og stræti okkar ágæta höfuðstaðar blasir við manni alls kyns óþverri á götum og I göturæsum. Við lifum og hrærumst jú I þessari blessaðri borg og fáum gesti hvaðanæva af landinu hingað. Þess vegna ættum við að kapp- kosta að hafa borgina okkar sem snyrtilegasta. Eg verð að segja að mér finnst göngugatan okkar ekki I sem beztu lagi. Þar eru grasblettirnir eins og forar- leðja og alls ekki til augna- yndis. Svo er það Ingólfsstyttan á Arnarhóli. Það hefur nú alltaf verið bæjarprýði að henni en núna er umhverfið I kring fyrir neðan allar hellur. Borgar- stjórnin ætti að sjá sóma sinn I því að laga tröppurnar I kring- um styttunum og hreinsa um- hverfið. Einnig er lítill og lágur múrveggur við Ingólfsstræti, nánar tiltekið við Safnahúsið, sem er kominn að falli. Ætii hann verði nokkuð lagaður fyrr .en einhver fótbrýtur sig þegar hann hrynur? Við verðum að vera vel á verði og halda vel við hinum gamalkunnu kennileitum I borginni. EG VIL SKORA A BORGARSTJÖRN AÐ HALDA VÖKU SINNI.” Ungir borgarar virðast una sér ágætlega f göngugötunni okkar Reykvíkinga. DB-mynd Bjarnleifur. Laxveiðiárnar og útlendingarnir: Bugtum við okkur ekki of mikið fyrir útlendingum? Austfirðingur skrifar: „Islenzkar laxveiðiár eru dýrlegustu perlur íslenzkrar náttúru. — Hve oft höfum við ekki heyrt þessa setningu og um leið talað um, að laxveiði- árnar verði að vera fyrir íslend- inga en ekki einhverja útlend- inga, sem sprengja upp verð á ánum þannig að Islendingar hafi beinlínis ekki efni á að veiða I þeim. Undanfarin ár hefur orðið talsvert varasöm þróun hér á landi I þessum málum. Erlendir menn hafa peninga og I skjóli þeirra geta þeir komið sér upp óeðlilegri aðstöðu. Þannig er til að mynda farið um Hofsá I Vopnafirði. Þessi ágæta veiðiá er leigð skozkum manni og hefur hann haft hana á leigu siðastliðin 8—10 ár. Hann leigði smáhluta fyrst en fékk ekki neitt fyrstu fimm árin. Auðvitað var mikið starf unnið við að vinna ána upp og nú leigir hann ána fyrir 750 þúsund krónur upp að fossi. I fyrra veiddust um 400 laxar. — Það eru leigðar út 7 stangir á laxasvæoinu á dag og einnig eru 4 silungástangir! I þrjá og hálfan mánuð er fullskipað á allar stangir. Þarna koma því inn gífurlegir peningar. Leigjandinn, Skotinn, lánaði veiðifélaginu 6 milljónir króna til að byggja veiðihús. Fyrir þessar 6 milljónir, sem hann lagði fram, hefur hann veiði- húsið frltt I 3 ár, hús er stenzt samanburð við hvaða veiðihús sem er. Þessi Skoti borgar ekkert til sveitarfélagsins fyrir aðstöð- una. Hann hefur þarna 2—3 bíla á skozkum númerum allt árið. Eins hefur hann þarna starfsfólk, skozkar stúlkur. Nú kunna margir að segja, já, þarna kemur maður með pen- inga og rlfur allt upp. Vissulega kemur þarna maður með pen- inga en fær hann ekki of mikið fyrir snúð sinn. Bugtum við okkur ekki of mikið fyrir þessum annars ágæta Skota? Er þetta rétta leiðin til að byggja upp aðstöðu? Mér er það til efs!” Hríngið í síma 83322 milli kl. 13 og 15 eða skrífið SKÍÐASKÓLISTENMARK KOM f GÓÐAR ÞARFIR Elsa Guðsteinsdóttir hringdi: „Ég læt I mér heyra til að koma á framfæri þakklæti mínu til Dagblaðsins fyrir skiðakennsluna, sem þið hafið haft á síðum ykkar i vetur. Ég hef svo sannarlega notfært mér þessa kennslu og veit um marga, sem hafa gert slíkt hið sama. Það var hægt að lagfæra margt, tækni og annað, ef maður lagði sig eftir þessu og las leiðbeiningar vel. Svo minnzt sé á aðstöðuna I sklðalöndum Reykvikinga þá er hún ágæt, nema hvað að á góðviðrisdögum þá er biðin allt- of löng til að komast I lyft- urnar. En ef bætt væri við einni lyftu mundi þetta lagast mjög mikið. Að lokum vildi ég skora á Dagblaðið að birta skíðakennsl- una aftur næsta vetur.” SKÍÐASKÓLI INGEMARS STENMARK t

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.