Dagblaðið - 21.05.1976, Side 15

Dagblaðið - 21.05.1976, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1976. *.................. Hin leyndardómsfulla Katherine Exner segir um fundi sína með John F. Kennedy: „Ég þurfti ekki að lœðast 15 \ ritari hans, Evelyn Lincoln, og aðstoðarmaðurinn, Dave Powers. „Þetta er bara della,“ segir Katherine. „Ég þurfti ekkert að læðast inn í forseta- bústaðinn. Þegar ég fór þangð að degi til var yfirleitt fjöldi fólks þar, og ég varð að gefai upp nafn mitt tvisvar eða þrisvar áður en ég komst inn. Þetta var ekkert leyndarmál." Hinn 28 ára gamli eigin- maður hennar, Dan Exner, reynir að koma konu sinni til hjálpar: „Hún læddist ekki inn í taukörfu eða dulbúningi.“ „Nei,” segir Katherine til samþykkis, „ en ég gæti komið til með að þurfa einn slíkan núna.“ Ástæðan fyrir áhyggjum hennar eru undirheimasamtök. Hún vonast til að geta einhvern tíma skrifað bók, sem sanni að henni hafi verið alls kostar ókunnugt um áætlanir Gianca.ia. Hún hefur ekki gleymt því að hann var skotinn til bana áður en hann gat greint rarthsóknarnefnd frá tengslum mafíunnar við CIA. Áður en Katherine var stefnt fyrir dómnefnd í september sl. lifði hún og maður hennar í mjög nánu sambandi og höfðu gert í þrjú ár. „Eg fer varla yfir götuna án hennar," segir Dan og lítur ástúðlega á konu sína „,Við höfum engin leyndarmál og hvað mig snertir hefur hún ekki gert neitt rangt.“ Hann er vöðvastæltur atvinnugolfleik- ari, 180 cm á hæð og um 80 kg að þyngd, með þjálfunarbæki- stöð í San Diego. Hin skyndilega frægð hennar hefur að mestu bundið enda á samkvæmislíf þeirra út á við. Er þau fóru nýlega út að borða, bar einhver kennsl á hana og hún var kölluð í símann. Dan fór í staðinn, en þá var sam- bandið slitið og hann heyrði gesti veitingahússins pukra um konu sína. Síðan dveljast Exner hjónin mest heima við. Æska Katherine var ósköp venjuleg. Hún var dóttir arki- tekts í Los Angeles, átti fimm systkini. Uppeldi hennar og menntun var að mestu í umsjá nunna, og átján ára giftist hún Hollywood-leikaranum William Campbell. Það hjóna- band stóð aðeins í sex ár. Eftir það lifði hún frjálsu lífi, tók að mála og kynntist Giancana. Hún sá hann síðast árið 1964. Katherine er hugrökk og segir að ef fjölmiðlar og aðrir hættu að dylgja um upplýsingar, sem hún eigi að búa yfir, myndi allt verða í lagi hjá henni og Dan. En svo er ekki og á meðan finnst þeim þau hvergi óhult. Þegar smellur heyrðist úr segulbandi blaðamannsins, sem viðtalið tók, stökk Dan upp úr stólnum. „Hafðu engar áhyggjur," sagði Katherine brosandi, „ef þetta væru þeir, þá máttu treysta því að þú heyrðir ekki hljóð" ' ' < U 1 ■ ’____ __________________________ Katherine og Dan Exner fá sér glas í hjólhýsi sínu. Klædd í þægilegar síðbuxur og peysu sezt Judith Katherine Exner á gullbryddaðan hægindasófa í rándýru hjól- hýsi, sem hún býr í ásamt eigin- manni sínum, golfleikaranum Dan Exner. Hún lítur upp á kryddhilluna sem hangir á veggnum með 50 kryddglösum í. ,,Þetta,“ segir hún ákveðin á svip, „er stolt mitt og eftirlætis- eign.“ Fyrir fimmtán árum virtist hin • bláeyga, dökkhærða Katherine Exner ekki líkleg til að öðlast slíkt dálæti á heimilis- störfum. Hún var þá 26 ára gömul, fráskilin og átti í ásta- sambandi við þekkta mafíuleið- toga, þá Sam Giancana og John Roselli. Þessi sambönd hafa nú rifjazt upp í lífi hennar og eitt til, sem jafnvel þykir enn leyndardómsfyllra, en það var sambandið milli Katherine og John F. Kennedys, fyrrv. for- seta Bandaríkjanna. I kvöldverðarboði á Sand- hótelinu í Las Vegas kl. 22.30, 7. febrúar 1960, var Katherine kynnt fyrir Kennedy þing- manni. Hann þekkti hana undir nafninu Judith Campbell. Hún var þar gestur Frank Sinatra, sem skemmti á hótelinu og var fjöldi gesta í boðinu, þ.á m. bróðir Kennedys, Ted, og mágur hans, Peter Lawford. Katherine hitti Kennedy oft eftir þetta, bæði utan og innan Hvíta hússins. „Fyrir mér var hann aðeins Jack Kennedy, ekki forsetinn," segir hún og lítur stöðugt á eiginmann sinn. „Hann var sannarlega ekki hápunktur lífs míns.“ Og hún bætir við: „Það er slæmt að þetta hefur komizt í hámæli. Fólk verður að hugsa um hvern sess forseti kemur til með að skipa í mannkynssögunni og það er ástæðulaust að gera mig að fórnarlambi án allra rétt- inda.“ Margir úr nánasta starfs- liði Kennedys hafa neitað að hafa hitt Katherine, þ.á m. 1960: Þá Judith Katherine Campbell. Þegar hún var kynnt fyrir Kennedy þá varð hún „dularfull“kona. „Frægðin kemur illa við mig“ segir Katherine „og margir hafa áhuga á að lesa hvað sem er um Kennedy“ NÝJAR PLÖTUR... AMERICA — Hide away. AMERICA — Greatest hits. SEALS AND CROFTS — Get doser. STEPEN STILLS — Illegal Stills. RICK WAKEMAN — No earthy connection. NEIL SEDAKA — Steppin out. IAN HUNTAR — All American alien boy JOHNNYE TALOR — Eargasm. D0NNA SUMMER — 1 love trilogy. VAN McCOY — The real McCoy. J0HN MILES — Rebel. SILVER C0NVENTI0N — Get up and boogie. THE MANHATTANS — Manhattan JANIS IAN — Allar. AMERICAN GRAFFITI — Allar. ELT0N JOHN — Allar. WINGS — Allar. BARRY WHITE — Allar. HELLEN REDDY — Allar. MAC DAVIS — Allar. PLÖTUHÚSIÐ Laugavegi 33 — sími 15373. REGNBOGA- PLAST H/F Kórnsnesbraut18 -Sími 44190 Hagkvœmasta og bjartasta auglýsingin er skilti frá okkur. Framleiðum auglýs- ingaskilti með og án Ijósa. Sjáum um við- gerðir og viðhald. Önnumst einnig upp- setningar á plast-þak- rennum. Útvegum efni ef óskað er. Vanir menn vinna verkin.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.