Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 21.05.1976, Qupperneq 24

Dagblaðið - 21.05.1976, Qupperneq 24
Hafnarfjarðarlögreglan eignast mótorhjól: Nú mega ökufantarnir vara sig! Nýr farkostur hefur nú bætzt við ökuflota Hafnarfjarðarlög- reglunnar, — spánnýtt Harley Davidson mótorhjól. Hjólið var tekið í notkun fyrir viku og hefur þegar verið notað nokkuð, þar á meðal f Keflavíit urgöngunni á síðasta sunndag. Nýja mótorhjólið. Steingrímur Magnússon lögregluþjónn er ökumaður þess. DB-mynd R.Th.S. Akvörðunin um að fá hjól í Hafnarfjarðarlögregluna er ekki alveg ný af nálinni. Það var fyrir ári sem sú ákvörðun var tekin. Hins vegar er af- greiðslufrestur á lögregluhjól- um upp undir ár. ökumaður nýja mótor- hjólsins er Steingrímur Magnússon lögreglumaður. Hann fór á námskeið hjá Reykjavíkurlögreglunni í akstri og meðferð hjólsins og er nú sem óðast að læra á nýja gripinn. Um leið og Hafnarfjarðarlög- reglan fékk mótorhjólið ■ í siðustu viku bættist einnig nýr Fordbíll við flotann. — ÁT — Kórinn í Öldutúnsskóla: Það þarf enga söfnun Ekkert verður af því að safna fé til utanfarar barn- anna úr Öldutúnsskóla, sem taka núna í mánuðinum þátt í norrænni keppni barna- kóra í Bergen. Ahugakonan, sem vildi efna til slíkrar söfnunar, fór sér fullgreitt, og sömuleiðis við þegar fréttin var birt. Egill Friðleifsson, hinn ötuli söngstjóri kórsins, sagði í gær að 31 barn væri í kórnum sem færi utan, en fleiri mega þátttakendur ekki vera. „Þetta er okkar úrvalslið, það hefur verið valið í liðið, rétt eins og um landslið í boltaíþrótt væri að ræða, þeir beztu fá að fara í ferðina, en aðrir verða því miður að verða eftir heima.“ Sagði Egill að gott boð um styrk til fararinnar yrði því að afturkalla. Gerum við það hér með, en þökkum jafn- framt ágætar undirtektir margra samborgara krakk- anna og margra annarra, sem gjarnan vildu styrkja þau. —JBP— Lögreglan fylgist með Viðey Umferð til Viðeyjar hefur stóraukizt eftir að daga tók að lengja. Eigendur Viðeyjar hafa meira að segja orðið að biðja lögregluna um að fylgjast með því fólki, sem leggur leið sina þangað. 1 gærkvöldi fylgdist lögreglan með sæfarendum um Viðeyjarsund úr fjörunni hjá Kletti. Að sögn hennar hafði eigandi eyjarinnar kvartað yfir því, að brotinn hefði verið upp lás á skúr i eynni. Mestu eru það sömu mennirnir, sem eru með á- troðning í eyjunni, svo að lögreglan hugðist - ná tali af þeim, sem legðu leið sína út. Ekki varð vart við neitt grunsamlegt. at- Geirfinnsmálið: Rannsóknin í ýmsu sem leiksýning sem þarf að stöðva „Nauðsyn er á algerum þátta- skilum í rannsókn og allri með- ferð hins svokallaða Geirfinns- máls. Til þessa hefur rannsókn- in að ýmsu leyti verið eins konar leiksýning, sem verður að stöðva þegar í stað,” sagði Jón Oddsson hæstaréttarlög- maður, réttargæziumaður Sævars M. Ciecielskis I viðtali við Dagblaðið. Jón kvaðst hafa verið á fundi með dómsmálaráðherra, Ólafi Jóhannessyni, í gær. „Viðræður okkar Ólafs voru mjög vinsam- legar, enda ekki annars að vænta af hans hendi, en einnig voru viðstaddir þeir Baldur iMöller ráðuneytisstjóri og Jón Thors, deildarstjóri dómsmála- ráðuneytisins,” sagði Jón Odds- son. Hann kvað viðræður einkum hafa snúizt um undir- stöðuatriði rannsóknar málsins frá réttarfarslegu og stjórn- sýslulegu sjónarmiði. „I framhaldi áf þessum við- ræðum átti ég fund með Erni Höskuidssyni rannsóknardóm- ara og Sigurbirni Víði Eggerts- syni rannsóknarlögreglu- manni. Við ræddum réttar- farslega meðferð málsins og bárum saman upplýsingar fjár- málalegs eðlis. Lagði ég fyrir Örn tillögur til nýrra rann- sóknaraðferða. Ljóst er, að ef farið verður út í fjármálalega rannsókn málsins, megnar Sakadómur Reykjavíkur, með núverandi aðstöðu, ekki að kanna málið,” sagði Jón Odds- son. „Vegna fregna um rannsókn á fjármálatengslum i þessu máli á vegum Seðlabankans, samkvæmt ósk Sakadóms, tel ég rétt að fram komi, að rann- 'sókn þessi er alls ekki undir stjórn Sakadóms eða ríkissak- sóknara,” sagði Jón Oddsson ennfremur. Hann kvað ijóst, að hér þyrfti að gera afar um- fangsmikla rannsókn á fjár- málalífi þjóðarinnar. „Óhjá- kvæmilega nær slik rannsókn inn í a.m.k. 3 banka, f jölda veit- ingahúsa, lögmannsskrifstofur, stór fyrirtæki, mikil gjaldeyris- viðskipti og jafnvel fjárfesting- ar erlendis. Þá tei ég, að stór þáttur málsins sé tengdur inn í embættismannakerfið, þar á meðal embætti iögreglustjór- ans í Reykjavík. Við eigum hér í höggi við skipuiagða „mafiu” sem hefur leikið iausum hala i íslcnzku þjóðlífi og efnahags- lifi allmörg undanfarin ár,” sagði Jón. „Megnar rikisstjórn íslands að takast á við þetta afl nú? spyr Jón Oddsson. Vitað er, að Jón Oddsson hrl. hefur óskað eftir rannsókn á viðskiptum Sævars M. Ciecielskis og lögmanns hér í borg, sem að nafninu til veitir forstöðu fasteignasölu. „Eg hefi rökstudda ástæðu til að láta kanna það, hvort einangrun fanganna i Síðu- múla var rofin með ógætilegrl ráðningu fangavarða í byrjun árs og tengslum þeirra við iax- veiðiviðskipti, gjaldeyrissölu ásamt fleiru. Eg er reiðubúinn að leiða til lykilvitni, ef öryggi þeirra verður fullkomlega tryggt,” sagði Jón. Fyrst af öllu þarf þó að koma þessu fólki, sem nú situr í gæziuvarðhaldi, á spít- ala. Það þarf að fara í rann- sókn, sem mjög hefur skort á frá heilsufarslegu sjónarmiðl. Siðan þarf að marka alger þáttaskil í meðferð þessa máls hið fyrsta,” sagði Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður að lokum. — BS Landakotsspítala gefið merkilegt tœki Landakotsspitala barst í gær stúkunni Hallveigu. Er hér um að höfðingleg gjöf frá Oddfellow-. ræða Biogamma-Analyzer að verðmæti um 3,7 millj. króna. Þetta er sjálfvirkt rannsóknar- tæki, sem mælir geislavirkni (gamma geisla), en geislavirk efni eru nú í mjög vaxandi mæli notuð til lækningarannsókna og veita þannig ómetanlega hjálp við sjúkdómagreiningu og sjúkdóma- rannsóknir. Tækið mun opna nýtt svið rann- sókna á Landakotsspítala, þar sem nú verða mögulegar rannsóknir, sem áður varð að ;enda utan og eldri rann- sóknir verða fljótvirkari og nákvæmari. Tækið verður aðal- iega notað til blóðrannsókna. frjálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 21. MAI 1976 Rfltisblöðin heimta styrk frú Dagbloðinu: KVARTAOG KVEINA EN KÆRA EKKI Ríkisblöðin í Blaðaprenti hafa sent Dagblaðinu bakreikninga fyrir viðbótar-auka-álag á gömul viðskipti i því skyni að fá ein- hverja aura upp í taprekstur sinn. Dagblaðið telur sig hafa stutt ríkisblöðin nægilega vel með fyrri aukaálögum, sem umsamin voru, og neitar öllum viðbótar- greiðslum. Rikisblöðin kveina nú mjög yfir þessum viðhorfum Dag- blaðsins, en hafa þó ekki farið eftir ábendingum Dagblaðsins um, að eðlilegast væri fvrir þau að leita til dómstólanna. Guðmundur fer hœgt af stað á Kúbu Guðmundur Sigurjónsson og Garcia frá Kúbu skildu jafnir í 3. umferð Gaplabianca skákmótsins sem nú stendur yfir á Kúbu. Helztu úrslit umferðarinnar urðu að Yuri Rezuvev, Sovétr. vann Hednar frá Kúbu og komst með þeim sigri í efsta sætið. Lothar Vogt, A-Þýzkal. vann Ulf Anderson. Anderson vann þetta mót bæði 1975 og 1974. Rússarnir Gulko og Beliawski skildu jafnir. Staðan eftir 3 umferðir: Rezuvev og Garcia 2 vinninga. Gulko og Beliawski, VA vinning, Anderson, Vogt A-Þýzkaiandi, Lebreco, Kúbu, Peev Búlgariu og Honfi Ungverjalandi einn vinning hver. -ASt.- Sölustofnun lagmetisíUSA: Setja upp eigið sölukerfi vestra Sölustofnun lagmetisins hefur nú stofnað fyrirtæki í Bandaríkjunum til þess að koma þar upp eigin sölukerfi og dreifingu. Fyrrverandi sölustjóri dótturfyrirtækis norsku Bjelland verk- smiðjanna, Norman Saikin, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Iceland Waters Industry, Incorporated. Aðalskrifstofa fyrirtækisins er skammt frá New York, en hlutverk þess er að koma á fót sölukerfi í Bandaríkjunum og að annast öll viðskipti Sölu- stofnunar lagmetis þar. Fyrirhugað er að selja þarna sem annars staðar lagmeti undir nafninu SL „Iceland Waters” og einnig merkjum einstakra framleiðenda islenzkra. Miklar væringar urðu í SL seint á sl. ári. Leiddu þær m.a. til þess, að framkvæmda- stjórinn. örn Erlendsson. lét af störfum, og til slita á samvinnu Tayo Americas, Inc„ sem hafði annazt sölu fyrir SL í Bandaríkjunum. Stjórnarfor- maður SL er nú Láfus Jóns- son, alþm., en aðrir stjórnar- menn eru Heimir Hannesson. Hörður Vilhjálmsson, Jón Árnason og Tryggvi Jónsson. Starfi framkvæmdastjóra hefur nú verið skipt þannig að Gylfi Þ. Magnússon sinnir fjár málum og Eysteinn Helgason, sölumálum. -BS-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.