Dagblaðið - 05.07.1976, Síða 9

Dagblaðið - 05.07.1976, Síða 9
DACBLAÐIÐ — MÁNUDAGUR 5. JULÍ 1976 Gaf dyraverð- inum ú 'ann Til tíðinda dró í Tónabíói á laugardaginn er maður einn gerðist all illvígur og uppivöðslu- samur við dyravörðinn þar. Þeim viðskiptum lyktaði með því að gesturinn gaf dyraverðinum högg í andlitið. Var nú lögregla til kvödd, en þegar hún kom á vett- vang var gesturinn baráttuglaði á •bak og burt. Fljótlega tókst að hafa uppi á honum og reyndist hann „gamall kunningi" lögreglunnar eins og sagt er. — ASt. Skilríki af hent með pomp og pragt Hinn 1. júlí afhenti Sigurður Bjarnason Elísabetu II drottn- ingu trúnaðarbréf sitt sem sendi- herra í Bretlandi. Athöfnin fór fram samkvæmt gamalli siðahefð. Var ekið í opnum hestvögnum til og frá sendiherrabústaðnum. Að afhendingu trúnaðarskjala lok- inni áttu drottningin og hinn n>'- skipaði sendiherra íslands langt tal saman. Cargolux 21. stœrsta vöruflutningaflug- félag í heiminum — órsveltan helmingur heildar- veltu Flugleiða Hvað veltu snertir er flug- félagið Cargolux nú orðið hálf- drættingur á við Flugleiðir og er þá velta Flugleiðahótelanna og flugfélagsins Air Bahama reiknuð með. Þessar upplýs- ingar fékk blaðið hjá Jóhannesi Einarssyni, sem er í stjórn Cargolux. Hann sagði að félagið hefði í fyrra verið nr. 21 yfir stærstu vöruflutningaaðila í lofti. Væri félagið liklega stærst allra vöruflutningaflug- félaga, sem eingöngu væru byggð upp á leiguflugi. I fyrra flutti félagið rösk 260 þúsund tonn og var velta þess þá um 37 milljónir dollara eða um 6.800 milljónir ísl. kr. Til samanburðar fluttu aðeins tvö flugfélög yfir eina milljón tonna I fyrra og voru það Pan Am og Flying Tiger. Sem kunnugt er eiga Flug- leiðir þriðjung í Cargolux, sænska skipafélagið Salen þriðjung og Lux Air, fjórir bankar i Luxémburg og nokkr- ir einstaklingar þriðjung. Félagið hefur nú til umráða þrjár CL-44 eða Rolls Royce, eins og þær eru gjarnan nefnd- ar, og þrjár DC-8 ’63 þotur. Félagið hefur allar CL vélarnar og tvær DC vélanna á leigu- kaup-samningum en leigir eina DC vélina. Jóhannes sagði að áætluð velta í ár væri 50 milljónir dollara, eða um 9.200 milljónir isl. kr. 342 manns starfa hjá félaginu. Þar af eru 100 íslend- ingar en fólk af 20 þjóðernum starfar hjá félaginu. í fyrra lauk félagið byggingu á stóru flugskýli I Luxemburg, en þar er góð viðgerðarað- staða Fyrir utan viðhald á eigin vélum þar hefur I ár þegar verið samið um viðgerðir fyrir aðra aðila upp á fimm milljónir dollara og sagði Jóhannes það mjög ánægjulega þróun á svo skömmum tlma. —G.S. ^L-^Minni framleiðsla- en afkoma með ógœtum Aðalfundur Kísiliðjunnar hf. var haldinn 24. júnj sl. og voru þar lagðir fram reikningar ársins 1975 ásamt skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra. Á fundir.um kom fram að af koma fyrirtækisins var góð á árinu og nam reksturshagnaður rúmlega 40 milljónum króna og höfðu þá fullar afskriftir verið reiknaðar. Söluverðmæti framleiðslu ■Kísiliðjunnar á erlendum og innlendum markaði nam á árinu samtals 684 milljónum króna, en þegar útflutnings- kostnaður hafði verið dreginn frá, námu tekjur verksmiðj- unnar 470 milljónum króna. Framleiðsla ársins 1975 af full- unnum kísilgúr varð 21.676 tonn, sem er minna en fram- leiðslan varð 1974. Mismunur- inn stafar einkum af löngu verkfalli vorið 1975, en einnig varð að draga nokkuð úr fram- leiðslu síðari hluta ársins sökum sölutregðu vegna sam- dráttar í markaðslöndunum. Framleiðslan er nú seld til 20 landa í Evrópu og Afríku. Eigendur verksmiðjunnar eru íslenzka ríkið ásamt banda- ríska fyrirtækinu Johns- Manville og nokkrum sveitar- félögum á Norðurlandi. —JB Karlar með barðahatta og konur í peysufðtum ,,Nú sianua ytir ræður odd- vita og annarra fyrirmanna," sagði Valur Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri fyrir 100 ára afmælísnefnd þeirra Blönduósinga, þegar við hringdum í har.n i gærdag.,Þar var mikið um dýrðir um helg- ir.a í tilefni þessa merkis- afmælis. „Öhemjumargt fólk hefur verið hér á öllum aldri. Ungir jafnt sem gámlir stigu dans fyrir utan félagsheimilið á laugardagskvöldið. Karlar mreð barðahatta og konur í peysuföt- urn settu svip á dansinn," sagði Valur. Aldrei fyrr hefur verið dansað úti á Blönduósi og voru veðurguðirnir í hinu beztá skapi, lélu ekki rigria fyrt' en Tneð morgunsárinu, fyrir ulan svolilla úðarigningu á laugar- daginn. „Jú, töluvert kennderí fylgir svona skemmtun," sagði Valur og bætti við að Húnvetningar og Blönduósingar drykkju brennivín svona eins og aðrir íslendingar. Allt fór samt fram ineð friði og spekt, nema hvað þrir voru í fangageymslunni, þegar mest var, aðallega vegna þess að þeir höfðu fengið sér heldur mikið neðan í þvi. Leikritið, Þið munið hann Jijrund. hélt áfrym að gera lukku. Það var synt i áltunda skipli a laugardaginn fyrirtroð- fullu húsi. I.eikstjóri er Magnús Axelsson. Ekki sagði Valur að hægt væri að sýna það annars staðar. l.eikritið hefur hvergi verið sett upp á sama hátt og þeir Blönduósingar gera. Ahorfendur taka þátt i leiknum. Félagsheimilinu er einlaldlega breytt i krá og 3 stúlkur ganga um beina, taka Egilsöl úr tunnum og hella í bjórkrúsir áhorfenda sem sitja við borð með kertaljós og borða skonrok. Gestir Blönduósinga hafa ekki þurft að borga fyrir veit- ingar. Kvenfélagið sá til þess. Það var gengið í hús og beðið um pönnukökur og kleinur og ekki var skorazt undan að baka. Sagði Valur að ekki fyrirfynd- ist sá Blönduósingur, sem ekki hefði lagt hönd á það verk að gera afmælið hið veglegasta. Börnin gleymdust heldur ékki og fóru fritt í bíó í gær. Valur sagðist vera hinn ánægðasti tneð allt saman, þótt veðrið hefði ekki haldizt gott állan tímann og þar af leiðandi þurft að færa skemmtunina inn á sunnudeginum. —EVI KGamli Grjótjötunn heitir nú Perla og kom skipið allt endurbætt og sem nýtt til landsins fyrir helg- ina. DB-m.vnd Arni Páll. Sanddœluskipið Perla komið til landsins Sogar í sig 500 tonnaf sandi á hálftíma — gagngerar endurbœtur í Hollandi kostuðu um fimmtíu milljónir „Nú fyrst byrjar baráttan," sagði Halldór Jónsson í Steypu- stöðinni þegar sanddæluskipið Perla kom til landsins i fyrra- kvöld eftir gagngerar endurbæt- ur í Hollandi. Perla hét fyrrum Grjótjötunn, en sú saga hefur verið rakin áður. „Við erum hressir eftir atvik- um,“ sagði Halldór í samtali við fréttamann DB í gær. „Við gerum okkur vonir um að geta byrjað strax, við munum á morgun (mánudag) kanna löndunarað- stpðuna í Sundahöfn og ganga frá tengingunni frá skipinu í land. Svo kemur hér Hollendingur frá verksmiðjunum, sem önnuðust breytinguna, og kennir okkur á tækin. Formleg afhending ætti því að geta farið fram á þriðjudag eða miðvikudag." Halldór segir að I rauninni sé hér um nýtt skip að ræða. „Það hefur verið tekið upp og endur- bætt allt frá skrúfu og fram úr. Dælukerfið er allt nýtt, allar dælur og annað tilheyrandi," sagði hann. Kostnaður við þessar breytingar er um fimmtíu millj- ónir króna. Perla er í sameign nokkurra byggingaverktaka og fyrirtækja í byggingariðnaðinum, sem telja sig geta fengið ódýrari byggingar- sand á þennan hátt en með því að halda áfram að kaupa sand af Björgun hf„ sem ræður yfir tveimur sanddæluskipum. Halldór og hans menn gera sér vonir um að skipið geti farið i allt að sex ferðir á sólarhring og komið með fimm hundruð tonn j hvert skipti. „Skipið á að geta dælt upp í sig á hálftíma og úr sér á klukkutíma," sagði Halldór í gær. „Þeir segja þetta Hollendingarnir, og þeir ættu að vita það.“ — ÓV. Er dýrara að búa úti „Við erum að bera saman verðlag almennt á neyzluvörum og þjónustu úti á landsbyggð- inni með hliðsjón af þvi sem það er í Reykjavik,” sagði einn starfsmaður Hagstofunnar er hann var inntur eftir könnun sem þar fer nú fram á verðlagi úti á landi miðað við Reykjavík. Á siðasta Alþingi fóru nokkrir þingmenn fram á að kannaður yrði framfærslu- kostnaður utan Reykjavíkur. Var þetta samþykkt og Hagstof- unni falin könnunin. Þeir þættir, sém aðallega eru athugaðir, eru þeir sem koma inn í vísitöluna. Verð á leigu- húsnæði er litillega kannað. á landi? Það er hins vegar ekkert farið út í að athuga um húsakost og byggingarkostnað. Benti starfs- maðurinn á að það væri litt gjörlegt í þessari könnun. Væri afar mismunandi eftir bæjum og sveitum hvað það kostaði að eignast húsnæði og þyrfti sér- staka könnun á því. Verðlag á neyzluvarningi hefur þegar verið athugað. Er verið að vinna úr þeim tölum sem þar fengust. Starfsmaðurinn treysti sér ekki til að segja nákvæmlega hvenær niðurstöður væru væntanlegar. — BA —

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.