Dagblaðið - 05.07.1976, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ — MANUDAGUR 5. JULl 1976
13
Húsnœði
Reykjavíkurborgar:
„Astandió er og hefur Veriö
erfitt. Þaö er sárt til þess- aö
vita hversu takmarkaðir mögu-
leikarnir eru til þess aö fá íbúð
vitandi um þörfina hjá umsækj-
endum.“
Þetta sagði Gunnar Þorláks-
son húsnæðisfulltrúi hjá
Félagsmálastofnuninni, er vió
lögðum leið okkar þangað.
Hann hefur umsjón með þeim
rúmlega 700 íbúðum sem eru í
eigu Reykjavíkurborgar og 100
öðrum sem hún hefur á leigu og
endurleigir. Umsóknir um sölu-
íbúðir fara einnig i gegnum
hendurnar á honum.
Úthlutun íbúða fer þannig
fram að umsækjandi verður að
fylla út umsókn þar sem hann
skýrir frá högum sínum. Auk
þess hefur fjölskyldudeildin í
sumum tilvikum viðtal við
hann. Gunnar sagði að erfitt
væri að gefa upp hvað menn
mættu hafa í tekjur eða eiga til
þess að koma til greina við
íbúðaúthlutun eða útvegun á
leiguhúsnæði. Upphæðin væri
æði breytileg frá ári til árs auk
þess sem allar aðrar aðstæður
umsækjenda skiptu máli en
þær væru afar mismunandi.
Flestir umsækjendanna eru
aldraðir, þá öryrkjar, einstæðar
mæður og barnmargar fjöl-
skyldur Á hinum frjálsa mark-
aði er ákaflega erfitt fyrir barn-
margar fjölskyldur að fá leigt
eins og kunnugt er. Fólk vill
ekki leigja húsnæði sitt þannig
fjölskyldum. Það eru því ekki
endilega peningavandræði sem
valda því að þessar fjölskyldur
reyna að fá leigt hjá borginni.
Reynt að finna hver
hefur mesta þörfina,
síðan ganga þeir fyrir
Gunnar sagði að umsóknir
væru metnar hverju sinni og
reynt að finna hver hefði mesta
börfina. Þá kæmi einnig fólk á
Félagsmálastófnunina sem
ekki þarfnaðist hjálpar og
þyrfti að vísa því frá.
Á árinu 1975 bárust alls 397
umsóknir þar af margar frá
ellilífeyrisþegum, þaf sem þörf-
in er gífurleg. 203 var hægt að
leigja, 69 í borgarhúsnæði, 26 i
endur.leiguhúsnæði en húsnæði
fyrir 108 auglýsti Félagsmála-
stofnunin eftir og tókst að fá
fyrir skjólstæðinga sína.
Borgin á leiguhúsnæði víðs-
vegar í borginni, þar á meðal
250 nýjar íbúðir, sem Fram-
kvæmdanefnd reisti í Bréið-
holti, 69 íbúðir fyrir aldraða við
Austurbrún og 60 við Norður-
brún.
„Ástandið er og hefur
verið erfitt"
— segir Gunnar Þorlóksson
húsnœðismálafulltrúi
„Það segir sig sjálft þegar
ekki bætist við eign borgar-
innar á leiguhúsnæði að lítil
hreyfing er á fólki. Það er þá
helzt vegna andláts ellilifeyris-
þega eða ef þeir fara á sjúkra-
stofnun,“ sagði Gunnar. Verið
er að byggja leiguhúsnæði í
Furugerði 1 fyrir aldraða, sem
vonazt er til að verði tilbúið
haustið 1977. Þar verða 60 ein-
staklingsíbúðir og 14 hjóna-
íbúðir. Þá bindur borgin miklar
vonir við byggingu á verka-
mannabústöðunum uppi í
Seljahverfi I Breiðholti. Hún
hefur beinan ráðstöfunarrétt á
30 af þeim 308 íbúðum sem þar
er verið að byggja og verða til
sölu.
Vissulega tilhneiging
til að hreyfa sig hvergi,
ef fólk er einu sinni
komið inn
„Vissulega ertilhneiging hjá
fólki sem leigir hjá okkur að
hreyfa sig hvergi, en við
reynum að hvetja það til þess
meðal annars með því að kaupa
íbúðir í verkamannabústöðun-
um,“ sagði Gunnar. „55 sóttu
um þessar íbúðir núna. Við
vonum bara að áframhald verði
á þessUm framkvæmdum."
Á vegum Reykjavíkurborgar
hafa verið seldar yfir 800 íbúðir
viðsvegar um bæinn, eins og
íbúðirnar við Hringbraut,
Lönguhlíð, Bústaðarveg,
Gnoðarvog og Álftamýri. Ibúðir
þessar eru allar seldar með for-
kaupsréttarkvoð borgarsjóði
Re.vkjavíkur til handa. Kvöð-
inni hefur þó verið létt af íbúð-
unum við Hringbraut og Löngu-
hlíð vegna mikilla útborgana
en skilyrðislaust beitt i sam-
bandi við aðrar íbúðir.
Húsnæði í eigu borgarinnar
er mismunandi að stærð,
32—100 fermetrar, og leigu-
upphæðin er rúmar 60 kr. á
fermetra. Gunnar sagði að fyrir
lægi hj’á verðlagsnefnd beiðni
um 90% hækkun vegna hækk-
unar á vísitölu. Eins og leigan
er í dag þá kostar íbúð til
dæmis við Austurbrún 6-7 þús.
kr.. innifalið er þá hiti, ræsting
og sameiginlegur rafmagns-
kostnaður, sem er nálægt helm-
ingurinn af upphæðinni. Ef
þessi 90% hækkun nær fram að
ganga hækkar leigan upp í 10
þús. kr.
Fjögra herbergja íbúð hjá
borginni kostar 13.250 kr. með
hita, ræstingu og sameiginlegu
rafmagni. Sú íbúð færi upp I
um 20 þús. kr.
Gróa ó Leiti er
iðin við kolann
Við spyrjum Gunnar hvort
þeir fái ekki oft að heyra ýmsa
gagnrýni.
„Jú, vissulega heyrum við
hinar ólíklegustu sögur sem
enga stoð eiga sér í veruleikan-
um. Gróa á Leiti lifir alltaf
góðu lífi,“ sagði Gunnar og
hann bætti því við að í þjóðlífi
okkar væri vitanlega alltaf viss
tilhneiging til þess að svíkja.
Ömögulegt væri að elta ólar við
Eins og á öðrum skrifstofum
eru ýmis vandamál afgreidd
simieiðis. Gunnar Þorláksson
húsnæðisfulltrúi Félagsmála-
stofnunarinar svarar fyrir -
spurnum.
DB-mynd Björgvin. .
alls konar sögusagnir og
myndi mörg aðstoðin skerðast
eða koma að litlu haldi ef trún-
aður ríkti ekki milli Félags-
málastofnunarinnar og skjól-
stæðinga hennar. „En að sjálf-
sögðu reynum við að komast að
þvf án óþæginda, hvort eitthvað
sé hæft í Gróusögunum."
EVI
Ævar Harðarson situr hér ofan á Menningarfélagi Garðahrepps.
Með honum á m.vndinni eru krakkar í unglingavinnunni í Garða-
bæ, en Ævar er flokksstjöri hjá þeim.
Menning í Moska '64
„Það er eins hægt að koma
menningu í svona bil eins og
einhvern steinkassa,“ sagði
Ævar- Ilarðarson. Hann er einn
af sjö formömnum Menningar-
félags Garðabæjar.
„Við erum bara sjö í félaginu
og erum allir formenn til að
koma i veg fyrir alla valdabar-
áttu. Ekki hefur orðið nein
fjölgun í félaginu síðan það var
stofnað. Við gerum miklar
kröfur til meðlima félagsins og
ætlum að vanda valið. Sá sem
æskir inngöngu i félagið verður
að hafa óflekkað mannorð.
Menningarlíf hér í Garðaba1
hefur verið ósköp andlaust
hingað til og eina „menningar-
miðstöðin" hér er sjoppan, en
ætlun okkar er sú að bæta úr
þessum vánda."
— Kl,
1. Sölumagn alls 1975.
Sölumagn alls 1975 159.391 tonn.
Selt laust sement 85.274 tonn 53.50%
Selt sekkj. sement 74.117 - 46.50%
159.391 tonn 100.00%
Selt frá Reykjavik 90.461 tonn 56.80%
Selt frá Akranesi 68.930 tonn 43.20%
Selt 159.391 tonn 100.00%
portlandsement 110.586 tonn 69.38%
Selt hraösement 23.838 - 14.96%
Selt nýtt faxasem. 20.718 - 13.00%
Selt lágalkalisem. 4.213 - 2.64%
Selt hvitt og litaó
sement 36 - 0.02%
159.391 tonn 100.00%
Starfsemi
Sementsverksmiðiu rikisins
1975
2. Rekstur 1975.
Heildarsala
1.550.6 m. kr:
Frá dregst: Söluskattur
Landsútsvar
Framleióslugjald
Flutningsjöfnunargjald
Sölulaun og afslættir
Samtals
Aórar tekjur
320.3 -
1.230.3 m. kr
7.6 - -
1.237.9 m. kr
Framleióslu-
kostnaóur 636.7 m. kr:
Aókeypt
sement og gjall 454.5 - -
Frá dregst
Birgðaaukn. 128.0- - 963.2 m. kr:
274.7 m. kr:
Flutnings- og
sölukostnaöur
Stjórnun og
alm. kostn.
Vaxtagjöld -
vaxtatekjur
Tap á rekstri
m/s Freyfaxa
Rekstrarhalli
174.6 m. kr:
45.3- - 219.9 m.kr:
54.8 m. kr:
76.4- -
21.6 m. kr:
26.0 m. kr:
Birgóamat i meginatrióum F. I. F. O.
3. Efnahagur 31. 12. 1975.
592.7 m. kr:
1.450.6 m. -
Veltufjármunir
Fastafjármunir
Lán til
skamms tíma
Lán til
langs tíma
Upphafl. framlag
ríkissjóós 12.2
Höfuóstóll 967.0
Eigió fé alls
729.2 m. kr:
334.9 -
979.2 m. kr:
4. Eignahreyfingar.
Uppruni fjármagns
Frá rekstri *
Rekstrarhalli 26.0 m. kr: b. Fyrninqar 123.1 m. - 97.1
Lækkun skulda-
bréfa eignar 1.3- -
Ný lán 107.5
Alls 205.9 m. kr:
Ráöstöfun fjármagns:
Fjárfestingar 97.6 m. kr:
Afborganir lána 80.8
Alls 178.4 m. kr:
Aukning eigin veltufjár 27.5 m. kr:
5. Ýmsir þættir
Innflutt sementsgjall 61.495 tonn
Innflutt sement 500 -
Framleitt sementsgjall 92.000 -
Aökeyptur skeljasandur 110.000 m3
Aökeyptur basaltsandur 7.000 -
Unnið liparit 32.600 tonn
Innflutt gips 9.752 -
Brennsluolia 12.595 -
Raforka 14.920.700 kwst.
Mesta notkun rafafls 2.280 kw
Mesta sumarnotk. rafafls 2.920 -
6. Rekstur m/s Freyfaxa:
Flutt samtals Flutt voru 33.642 tonn af 43.637 tonn
af sementi á 35 hafnir 33.642 -
Annar flutningur 9.995 - 43.637 tonn
Innflutningur meö Freyfaxa 9.446 tonn
Gips og gjall 9.268 tonn
Annaó 178 -
Flutningsgjöld á sementi 9.446 tonn
út á land aó meöaltali 1.957 kr/tn
Úthaldsdagar 300 dagar
7. Heildar launagreióslur fyrirtækisins:
Laun greidd alls 1975
Laun þessi fengu greidd
alls 287 menn þar af
153 á launum allt áriö. '
265.6 m. kr:
8. Nokkrar upplýsingar um
eiginleika sements:
Styrkleiki portland-
sements frá Sements-
verksmióju rikisins
Þrýstiþol
3 dagar 250kg/cm2
7 dagar 330 kg/cm2
28 dagar 400 kg/cm2
Styrkleiki samkv.
frumvarpi aö ísl.
sementsstaóli
175 kg/cm
250 kg/cm2
350 kg/cm2
aó jafnaöi eigi minna en ofangreint
mölunarfínl. 3500 cm2/g Eigi minna en
Beygjutogþol 2500 cm2/g
portlandsements
3 dagar 50kg/cm2
7 dagar 60 kg/cm2
28 dagar 75 kg/cm2
Efnasamsetning
isl. sementsgjalls
Hámark skv. ísl.
staðli fyrir sement
20.6%
64.2%
3.7%
5.2%
Kisilsýra (SiO)
Kalk (CaO) *
Járnoxió (FeO )
Áloxió (Al oy
Magnesiufooíió (MgO) 2.7%
Brennisteinsoxió (SO) 0.9%
Óleysanleg leif 3 0.8%
Alkalisölt
Natriumjafngildi 1.5%
Glæöitap 0.3%
5.0%
3.5%
2.0%
99.9%
SEMENTSVERKSMIÐJA RIKISINS