Dagblaðið - 05.07.1976, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ — MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1976
d
íþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
D
A föstudagskvöldið léku i
biiðskaparveðri KA og næstefsta
liðið í 1. deild, Víkingur. Leikur
þessi var hinn árlegi minningar-
leikur um Jakob hcitinn Jakobs-
son, fyrrum leikmann með ÍBA
og landsliðinu, sem lézt i bilslysi í
Þýzkalandi fyrir nokkrum árum.
Leikurinn hófst með því að leik-
menn liðanna skiptust á veifum
og merkjum. Að þvi búnu afhenti
fyrirliði KA-Iiðsins, Hörður
Hilmarsson, foreldrum Jakobs
heitins veglegan blómvönd, við
mikið klapp hinna mörgu áhorf-
enda.
KA-menn fengu frábæran
'iðsstyrk í þessum leik og var það
enginn annar en atvinnu-
maðurinn og landsliðsmaðurinn
Guðgeir Leifsson. Leikurinn var
vart orðinn nema einnar mín.
gamall er Víkingar skoruðu fyrsta
mark leiksins eftir hrikaleg
varnarmistök KA-liðsins. Markið
gerði hinn duglegi tengiliður
Víkinga, Eiríkur Þorsteinsson, og
skallaði hann af öryggi í netið
eftir góða fyrirgjöf frá vinstri.
Bæði liðin sýndu góða knatt-
spyrnu og sóttu á víxl.
A 18. mín. tókst heima-
mönnum að jafna metin. Dæmt
var vfti á Víkinga fyrir hönd
innan vítateigs og skoraði Sig-
björn Gunnarsson örugglega úr
því. Á 20. mín. á Vikingur hörku-
sókn en ekkert verður úr. Á 32.
mín. auka heimamenn
muninn með góðu marki Gunnars
Blöndals. Stórfalleg sókn KA-
liðsins, þar sem Ólafur Haralds-
son sendi stungu inn fyrir vörn
Víkinga og þar kom Gunnar
aðvífandi og skoraði af öryggi.
KA sótti nú meira en Víkingar og
var öllu hættulegra við markið.
Þetta bar árangur á 43. mín., er
KA-mennskoruðu sitt þriðja mark
í leiknum og aftur var það
Gunnar Blöndal sem skoraði.
Hann fékk frábæra fyrirgjöf frá
Steinþóri og skoraði glæsilega.
Þannig var staðan í hálfleik.
Strax á 4. mín. síðari hálfleiks
auka KA-strákarnir enn við
•Guðgeir Leifsson — góður á Akureyri.
Guðgeir var erfiður
snum gömlu félögum!
— þegar KA sigraði Víking 4-2 í minningar-
leiknum um Jakob Jakobsson ó Akureyri
forskot sitt en þeir skora sitt
fjórða mark og hver haldið þið að
hafi gert það mark? Jú, það var
enginn annar en Gunnar Blöndal.
Magnús Þorvaldss. ætlaði að gefa
til Diðriks í markinu en með
miklu harðfylgi komst Gunnar í
milli og renndi knettinum í net-
möskvana. Næstu mín. sótti KA
mun meira en Víkingur og lék oft
frábæra knattspyrnu, enda með
Guðgeir í fararbroddi og á 21.
mín. björguðu Víkingar á línu
eftir þrumuskot Harðar.
Næstu min. áttu KA-menn
nokkur færi sem þó nýttust ekki.
Á 35. mín. átti Sigbjörn skot i
stöng, er hann komst einn inn
fyrir, — Víkingar sannarlega
heppnir þar.- Fimm mín. síðar átti
Kári Árnason þrumuskot yfir
eftir góða fyrirgjöf Steinþórs. Á
síðustu mín. tókst Víkingi að
skora sitt annað mark og var það
Jóhannes Bárðarson sem það
gerði eftir að hafa leikið í gegnum
vörnina og skotið í netið úti við
stöng. Leiknum lauk því með
sanngjörnum sigri KA-manna, 4-
2.
Vikingar sigruðu
Skallagrim
Ólafsfjarðar-Víkingarnir lögðu
að velli sinn hættulcgásta and-
stæðing í 3. deildinni í knatt-
spyrnu á laugardaginn á heima-
velli sínum.
Það var Guðmundur Gunnars-
son, sem innsiglaði sigur Ólafsvík-
inga seint í seinni hálfleik með
eina marki leiksins.
Þar með hefur Víkingur 10 stig
eftir fyrri umferðina, hefur lagt
alla sína keppinauta að velli og
skorað 27 mörk gegn 3. — R.M.
Þessi leikur var mjög
skemmtilegur fyrir áhorfendur
þar sem bæði liðin Iéku góða
knattspyrnu. KA átti meira i
leiknum og átti fleiri tækifæri,
þrátt fyrir að Víkingar berðust
vel.
Guðgeir Leifsson, gestur
leiksins gladdi áhorfendur með
góðum leik, þótt hann færi út af
er um það bil 15 mín. voru eftir af
leiktimanum. Beztu menn
Víkinga voru þeir Stefán
Halldórsson og Diðrik Ólafsson.
KA-liðið var mjög jafnt og stóðu
allir fyrir sínu. Vert er þó að
minnast á ungan leikmann sem
kom inn á fljótlega. Hann heitir
Ólafur Haraldsson og stóð sig með
stakri prýði. Fyllti hann skarð
Magnúsar Vestmanns vel, en
Magnús varð fyrir því óhappi að
togna illa snemma í leiknum.
Dómari var Sævar Frímannsson
og línuverðir þeir Magnús
Jónatansson og Þóroddur
Hjaltalín. Áhorfendur voru 1016.
-StA.
Barótta FH setti
í A út af laginu
— on jafntefli varð ó Akranesi 1-1 i 1. deild
Akranes missti dýrmætt stig í
baráttunni á toppnum í 1. deild
íslandsmótsins á laugardag þegar
FH kom í heimsókn og Hafn-
firðingarnir höfðu með sér annað
stigið — verðskuldað — jafntefli
varð, 1-1.
Já, Akranes hefur mikið misst
flugið frá síðasta keppnistímabili
þegar liðið bar ægishjálm yfir
önnur íslenzk knattspyrnulið.
Munar þar mest um fjarveru
fyrirliðans frá í fyrra — Jóns
Alfreðssonar. En sú skýring er
alls ekki einhlít. — Nógu mikill
baráttuhugur er ekki i liðinu og
eins er hættulegasti leikmaður
liðsins, Karl Þórðarson, sveltur
langtímum saman. Þá hann fékk
knöttinn á laugardag skapaðist
hætta og alltaf hafa áhorfendur
jafn gaman af að horfa á þennan
knáa ieikmann skilja eftir tvo til
þrjá leikmenn á rassinum eins og
gerðist á laugardag. Það gladdi
augu Skagamanna.
En snúum okkur að leiknum! —
Skagamenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti og fyrstu tíu
mínúturnar lá stanzlaust á FHing-
um. Maður hafði það á tilfinning-
unni að Akranes mundi kafsigla
FH, rétt eins og í fyrra þegar IA
vann stórsigur, 7-0.
Eftir aðeins 15 mínútna leik
var staðan 1-0 fyrir Akranes. Guð-
jón Þórðarson tók aukaspyrnu og
sendi knöttinn vel inn í teig
FHinga — þar náði Sigþór Ómars-
son knettinum og sendi hann
rétta boðleið í markið.
Adam var þó ekki lengi í Para-
dís, aðeins fjórum mínútum síðar
höfðu FHingar jafnað — Viðar
Halldórsson sendi knöttinn fram
á bezta mann FH, Ólaf Danivals-
son, og hann gaf vel fyrir á Logg
Ólafsson, sem skoraði af stuttu
færi — 1-1.
Við markið hresstust FHingar
— börðust vel og gáfu aldrei
þumlung eftir. Enda og voru þeir
meira með knöttinn án þess þó að
geta skapað sér veruleg tækifæri.
Um það er engum blöðum að
fletta að sóknin er helzti höfuð-
verkur FHinga, enda hefur liðið
ekki skorað mörg mörk í 1. deild-
inni í sumar.
Það sama var uppi á teningnum
í síðari hálfleik. Hafnfirðingar
börðust vel. Hins vegar var
sóknarleikur Skagamanna alltaf
skarpari og þeir sköpuðu sér
fleiri tækifæri.
En inn vildi knötturinn ekki og
liðin deildu með sér stigum. Sann-
gjörn úrslit en ekki að sama skapi
góð fyrir Skagamenn. ÍA hefur
nú tapað sex stigum í baráttunni
um íslandsmeistaratitilinn.
Það má ljóst vera að Skaga-
menn verða að taka sig verulega á
ef titilinn á að hafna á Akranesi
Bezti maður liðsins á laugardag,
sem svo oft áður, Karl Þórðarson,
er alls ekki nýttur nógu vel.
Hann er sveltur langtímum sam-
an úti á kanti — þá sjaldan hann
fær knöttinn yljar hann áhorf-
endum með leikni sinni.
Jóhannes Guðjónsson komst einn-
ig vel frá leiknum og hann hefur
styrkt vörnina verulega eftir að
hann kom inn í liðið aftur.
FHingar hlutu sitt sjötta stig á
íslandsmótinu i ár — það geta
þeir fyrst og fremst þakkað góðri
baráttu. Sennilega léku FHingar
sinn bezta leik í ár og liðið er
greinilega 1 sókn. Bezti maður FH
var Ólafur Danivalsson en einnig
komst Janus Guðlaugsson vel frá
leiknum, ákaflega sterkur varnar-
maður.
Leikinn dæmdi Þorvarður
Björnsson — alls ekki nógu sann-
færandi. Iðulega var þannig að sá
er braut hagnaðist á brotinu.
K.P.
Þór sterkari í
rokinu á Selfossi
Þór á Akureyri hlaut tvö þýð-
ingarmikil stig i 2. deiidinni á
Selfossi á laugardag — sigraði
með 4—2 eftir að Selfyssingar
höfðu skorað tvö fyrstu mörk
leiksins. En þeim tókst svo ekki
að f.vlgja því eftir.
Heimamenn léku gegn sterkum
vindi i fyrri hálfleiknum og staðn-
an var orðin 2—0 fyrir þá eftir 19
mínútur. Fyrra markið kom eftir
að Sumarliði Guðbjartsson lék í
gegnum vörn Þórs og gaf síðan á
Hmm mörk Ármeim-
inga ó Árskógsströnd
Akureyri, 4. júlí 1976.
Árskógsvöllur, 2. deild.
Reynir — Ármann 0-5.
Knattspyrnan sem Reynir og
Ármann sýndu i leik liðanna á
laugardaginn var vægast sagt
ömurleg, en þó voru Ármenning-
ar örlitið betur spilandi. Þetta var
einn sá lélegasti leikur sem
undirritaður hefur séð. Liðin
gerðu lítiö annað en að kýla út i
loftið og var alveg hending ef spil
sást til liðanna.
Leiknum lauk með sigri
Ármanns sem gerði fimm mörk
gegn engu lélegra Reynismanna.
Fyrsta markið kom ekki fyrr en á
16. min. og var það Arnlaugur
Holgason sem það gerði eftir að
hann fékk bt>ltann einn og óvald-
aöur inni í vitateig Reynis. Bæði
liðin höfðu þá átt nokkur hættu-
leg færi en einber klaufaskapur
kom í veg fyrir að mörk yrðu
skoruð.
Sama þófið hélt áfram fram að
leikhléi og var staðan o-l í hléi. Á
6. mín. siðari hálfl. átti Þráinn
Ásmundsson dauðafæri en ekkert
varð úr. A 7. mín. skoruðu
Ármenningar sitt annað mark.
Hornspyrna var tekin og kom
boltinn vel fyrir markið þar sem
Ingi Stefánsson kom aðvífandi og
skallaði laglega i markið. Á 14.
mín. juku sunnanmenri enn við
forskot sitt með marki Inga
Stefánssonar eftir hrikaleg
varnarmistök hjá Reyni. Fjórða
markið kom svo á 39. min. og var
það sjálfsmark vinstri bakvarðar
Revnis. Á 42. mín. kom svo siðasta
markið og var Þráinn Ásmunds-
son þar að verki eftir að varnar-
menn Reynis höfðu bjargað á
línu. Leikmenn Reynis áttu ekki
skot að marki andstæðinga sinna í
síðari hálfleik og voru allir í vörn.
Engum er hægt að hrósa í liði
Reynis og mætti ímynda sér að
um bvrjendur væri að ræða.
Eiríkur í markinu var óvenjulega
slakur að þessu sinni.
Lið Ármanns var nokkuð jafnt'
en getur áreiðanlega mun meira
en það hefur sýnt hér i leikjum
sínum í sumar.
Dómari var Arnar Einarsson og
línuverðir þeir Kjartan Tómasson
og Jóhann Karl Sigurðsson.
Áhorfendur voru mjög fáir enda
veður kalt.
StA.
Tryggva Gunnarsson, sem
skoraði. Þá var stundarfjórðung-
ur af leik. Fjórum mín. síðar gaf
Tryggvi fyrir mark Þórs og
Sumarliði skallaði fallega í mark
— óverjandi fyrir Samúel mark-
vörð Þórs.
Þór tókst að minnka muninn t
2—1 á 22. mín. Magnús Jónatans-
son átti fast skot að marki Selfoss
af löngu færi. Örn Grétarsson
markvörður varði, en hélt ekki
knettinum, sem fór í markið.
Eftir markið sótti Þór og fékk
tækifæri, sem ekki nýttust og Örn
varði mark Selfoss vel. Staðan í
leikhléi var því 2—1 fyrir Selfoss.
Eftir hléið komu Akureyringar
tvíefldir til leiks. Á 52. min. tókst
Sigurði Lárussyni að jafna og á
58. min. komst Jón Lárusson einn
innfyrir vörn Selfoss. Þá var ekki
aó sökum að spyrja. Knötturinn lá
i markinu. Á 68. mín. skoraði
Magnús Jónatansson fjórða mark
Þórs með skalla.
Þór var vel að þessum sigri
kominn. Leikmenn liðsins voru
betri aðilinn í leiknum, en það var
eins og Selfyssinga vantaði neist-
ann — þrátt fyrir hina góðu byrj-
un. Akureyringar léku hins vegar
fast og ákveðið. 1 liði þeirra voru
..gömlu'' kempurnar. Magnús
Jónatansson og Gunnar Austfjörð
beztir — en hjá Selfossi Sumar-
liði, Guðjón Arngrímsson og Örn
markvörður.
—BG.