Dagblaðið - 05.07.1976, Page 18
18
l)ACBI.AÍ)l» — MANUIMCUK 5. JUI.Í 1976
KÍA'I' KINKAUMBOt) A tSI.ANI)
Davið Sigurðsson h.f.,
SltH'Ml; I.A :i5 Sími 38881.
Rafvirkjar óskast
Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða
rafvirk.ja í rafveiturekstur til Ólafs-
víkur og Hvammstanga.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
mannastjóri.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Lau«a\t*«i llli. lU'vk.javík.
BRIMKLÓ endurfædd á nýrri plötu,
þíSBlnódaií
G. RÚNAR JÚLÍUSSON í þrumustuði á sólóplötu.
WwSy' .-V i w'p'y'
GEIMSTEINN - TÓNLIST ■ SKÓLAVEGUR 12 ■ KEFLAVÍK ■ SÍMI 92-2717
FÁEKKI
NÁMSIÁN
— en Sóley Enid lœtur það
ekki á sig fá
Sóley Enid Jóhannesdóttir
hefur neitaö tilboði um framtíð
á leiksviðinu í Kaupmanna-
höfn. Hún ætlar heldur að
halda áfram námi sínu sem
jassballettkennari.
annan um að dansa sem bezt og
verða fyrstur til þess að dansa
nýjustu dansana. Til þess að
geta tekið þátt í slíkum dansi er
nauðsynlegt að æfa sig i
hverri viku. Hér gildir það
sama og í öðrum íþróttum: Æf-
ingin skapar meistarann," sagði
Sóley Enid Jóhannesdóttir frá
Keflavík.
Sóley Enid, sem er frá Kefla-
vík, hefur verið í Danmörku i
tvö ár og er hálfnuð með fjög-
urra ára nám sitt. Hún er að
læra dans- og jassballett-
kennslu. I sumarfríinu sínu
dansar hún i ballettinum í
stærstu revíu Danmerkur,
Cirkusrevyen í ,,Bakkanum“.
Þar koma fram allar frægustu
revíustjörnur Danmerkur.
,,Ég ætlaði að fara heim til
Islands i fríinu en varð að
fresta ferðinni til þess að vinna
mér inn peninga til að geta
haldið áfrám námi." sagði
Sóley.
..Mig hefur alltaf langað til
þess að reyna mig á leiksviðinu.
Það er allt öðruvisi en að koma
fram úti í sal. Þess vegna sótti
ég um starfið og eftir að hafa
verið reynd var ég ráðin. En
mig langar ekki til þess að
halda áfram. Ég veit ao þetta er
ágætis stökkpallur á frama-
brautinni.
Eg hef meiri áhuga á því að
ljúka við nám mitt og stofna
siðan dansskóla á Islandi, þar
sem brýn þörf er á sltkri stofn-
un. ekki sízt í jassballett," segir
Sóle.v.
Það eru aðeins tveir mánuðir
siðan hún lauk prófum í dans-
kennaranáminu. Kennari
hennar, Britta Ilmark, spáir
henni miklum frama.
..Hún er einhver bezti dans-
ari sem ég hef séð," segir Britta
Ilmark. ,,Mér finnst það mjög
virðingarvert af henni að kjósa
að ljúka námi sinu frekar en að
skapa sér frama í skemmtana-
iðnaðinum."
Sóley þarf á öllum tuttugu og
fjórum stundum sólarhringsins
að halda. Þótt íslenzkir náms-
menn, sem stunda nám erlend-
is, fái fjárhagslegan stuðning
frá íslenzka ríkinu hafa þeir.
sem stunda dansnám, aldrei
fengið námsstyrki.
Sóley hefur haft áhuga á
dansi síðan hún var fimm áfa
gömul. Hún hefur ekki aðeins
verið við dans- og jassballett-
kennaranám heldur hefur hún
þurft að vinna fyrir sér um leið.
Til þess að útvega sér húsnæði
hefur hún unnið við húshjálp.
Til þess að fá vasapeninga
hefur hún unnið við þjónustu-
störf á diskóteki í Kaupmanna-
höfn.
Þar að auki hefur hún kennt
diskóteksgestunum að dansa
svokallaða „diskótek-dansa".
„Alltof fáir af gestunutn geta
fylgzt með þegar allt er á full-
um krafti í diskótckunum i
Kaupmannahöfn," segir Sóley.
„Dansgólfið er nánast eins og
keppnisviillur. Hver keppir við