Dagblaðið - 06.07.1976, Side 9

Dagblaðið - 06.07.1976, Side 9
DACiBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1976. Aflinn góður á trillum í Vestmannaeyjum „Trillunum hefur gengið frekar illa að losna við aflann. Þeir hafa fengið mikið af báta- fiski í vinnslustöðvunum og otað trillunum frá.“ Þetta sagði skipstjórinn, Sveinbjörn Hjartarson, á þriggja tonna trillunni Frigg I Vestmannaeyjum er DB ræddi við hann í gær. 20—30 trillur af stærðinni 1—3 tonn stunda veiðar þaðan. Sveinbjörn sagði að sjálfur ætti hann ekki í erfiðleikum með að losna við aflann, en hann og félagi hans á Frigg eru þeir sem harðast sækja. Auk þess stunda handfæraveiðarnar af heldur minni krafti 2—3 aðrar trillur. Flestir hinna á trillunum hafa veiðarnar sem aukavinnu. Til einhvers. er að vinna því að aflinn er allt frá 300 kg upp í 1 'A tonn í róðri. Hjá Sveinbirni fer allt í 1. flokk, enda fara trillurnar út að morgni og koma að kvöldi. Uppistaðan í aflanum er þorsk- ur og síðan karfi og ufsi. Milli- verðið á tonninu er um 50 þús. kr. „Já, þetta er ekki sve slæmt, þegar tíð er góð,“ sagði Svein- björn, „en undanfarið hefur verið bræluskratti." Við ræddum við forstjórann hjá ísfélaginu I Vestmannaeyj- um, Einar Sigurjónsson. Sagði hann það ekki alls kostar rétt að illa hefði gengið að losna við aflann. Einhver ágreiningur hefði samt komið upp milli trillubátaeigenda og Fiskiðj- unnar. Hjá ísfélaginu lönduðu 3—4 trillur eins og verið hefði undanfarið. Ýmsir hefðu spurt, en hann hefði ekki sinnt meiri viðskiptum. Allt væri fullt hjá sér út úr dyrum. Þá væri þaó svo með þessa ungu trillubáta- eigendur að þeir hefðu það fyrir tómstundagaman að fara á sjó um helgar. Sk ildu þeir ekki að það væri ekki hægt að taka á móti fiski frá þeim fremur en öðrum um helgar. Við verka- lýðsfélögin væri þá að eiga. Ragnar Sigurjónsson frétta- ritari DB i Vestmannaeyjum hafði tal af Lárusi Long verk- stjóra hjá Fiskiðjunni, sem sagði að fiskurinn sem trill- urnar kæmu með að landi væri smár og erfiður í vinnslu. Á föstudagskvöld hefði ein trillan komið að landi kl. 23, þá hefði vinnsla hætt kl. 19, en aðeins nokkrir menn verið á vakt í Fiskiðjunni. Ragnar talaði einnig við nokkra trillubátaeigendur. Kom fram hjá þeim megn óánægja með að sumir gætu komið afla sínum í vinnslu en aðrir ekki. —EVI Fyrir utan hann Sveinbjörn Hjartarson og félaga hans á Frigg eru það frændurnir Ási og Siggi í Bæ, sem fastast sækja triilufiskeríið. Hérna sjáum við Asa leggja í ’ann i gærdag. FRA SEYÐISFIRÐI INN Á ELLIÐAVOG All óvenjulega sjón gat að líta við sundin blá í gær. Þar sást björgunarskipið Goðinn draga á eftir sér heljarmikinn tank eins og á myndinni sést. Hjá Olíufélaginu Skeljungi fengum við þær upplýsingar að þeir bæru víst ábyrgð á þessu fyrirbæri og væri þarna um að ræða 3000 tonna olíutank sem keyptur hefði verið á Seyðis- firði. Þaðan var hann síðan dreginn af Goðanum og verður á næstunni geymdur í Elliða- vogi, en í framtíðinni mun honum ætlaður dvalarstaður úti í Örfirisey, þar sem Skelj- ungur hyggst koma upp ein- hverjum mannvirkjum. —JB Ferðaskrifstof urnar umbuna far- þegum mismikið Ferðalangar til Suðurlanda hafa nú úr mismunandi miklu að spila. Farþegar sem l'ara með feríWskrifstofunni Sunnu fá aðelns að kaupa ma'iarmiða I'yrir 100 peseta á dag' méð islen/.kum krónum. Er þetta kallað. að samsvari einni máltíð en mun bó vart hrökkva. til. Þeir sein íerðast með Utsýn fá hins vegar að kaupa matarmiða Ivrir að minnsta kosti helmingi hærri upphæð. Þá er og mis- munur í sambandi við skoðunarferðir. Farþegar Sunnu verða að greiða þær allar með gjaldeyri. Dvrustu ferðirnar kostuðu um 1000 peseta sem er 1/10 af þeirri upphæð sem mönnum er ætlað að lifa af í ferðinni. Utsýnarfar þegarnir fá hins vegar að greiða f.vrir sínar ferðir í íslenzkum peningum, jafnvel eftir að þeir koma heim. Sunnufarþegar eru að vonum óánægðir með þetta. Má segja að þarna sé viðskiptavinunum beinlínis ýtt út í það að ferðast með þeim ferðaskrifstofum sem ekki fylgja gjaldeyrisregl- unum út i vztu æsar. —BA Fékk nómslón en ekki styrk Sóley Enid Jóhannesdóttir, sem leggur stund á dans- kennaranám i Danmörku og við siigðum frá i DB í gær, er ættuð úr Kcflavík, dóttir hjón- anna Kristrúnar Helgadóttur og Jóhanns Péturssonar, sem starfar á íslenzka póst- húsinu á Keflavikurflugvelli. Kristrún hafði samband við DB og bað okkur að leiðrétta það sern fram kom í fyrirsögn- inm. að Sóle.v hefði ekki fengið námslán. því þau hefur hún fengið, en aftur á móti er rétlilega með farið i greininni að hún hali ekki fengið nátns- slyrk. Landnemamót í Viðey síðustu víkuna Skátafélagið Landnemar gengst fyrir opnu skátamóti í Við- ey um helgina 23.-25. júlí. Þetta er i fimmta skiptí sem Land- nemar halda mót á þessum stað en alls hafa Landnemamót verið haldin frá árinu 1959. Dagskrá mótsins í Viðey verður að mestu byggð upp á samstarfi skátaflokka og dróttskátasveita. Að þessu sinni verða ekki starf- ræktar fjölskyldubúðir, eins og undanfarin ár, þar eð dagskráin verður miðuð við skátastarf ein- göngu. Þó er undantekning á, þar sem allir eru velkomnir. Það er þegar varðeldur verður kyntur klukkan hálf-ellefu á laugardags- kvöldiö 24. , Mótstjóri í Viðey verður að þessu sinni Jóna Sigurjónsdóttir. í samtali við DB í gær sagði hún að Viðeyjarmótin hefðu verið ijuh ákaflega fjölsótt undanfarin ár. „En nú reynum við að fækka þátt- takendunum til að geta einbeitt okkur sem mest að skátastarf- inu.“ I skátafélaginu Landnemum eru rúmlega 200 félagar. Sá fjöldi hefur staðið nokkuð I stað undan- farin ár, því að félagið starfar i grónu hverfi þar sem litlar breyt- ingar verða á fólksfjölda, — gamla austurbænum. Það er meira verk en margan kynni að gruna að fá Viðey lánaða fyrir mót sem þetta. Samþykki þarf að fá hjá fjórum aðilum, Stefáni Stephensen, Reykjavíkur- borg, forsætisráðuneytinu og síðast en ekki sízrt þjóðminja- verði. „Svo virðist sem allir þessir aðilar séu ánægðir með umgengni okkar undanfarin ár, því að aldrei hefur staðið á leyfi fyrir skáta- mótum þarna,“ sagði Jóna. „Við teljum að aðstaða sé mjög góð í Viðey. Þarna eru miklir mögu- leikar á að hafa fjölbreytta dag- skrá, auk þess sem fuglalíf og gróðurfar er mjög merkilegt í eyj- unni.“ —AT

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.