Dagblaðið - 27.10.1976, Blaðsíða 7
DAOBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAOUR 27. OKTÓBER 1976.
7
Erlendar
fréttir
L. A
Hegnt með
100 tíma
píanóleik
63ja ára gömul amma frá
London, frú Phyllis Mary
Fishwick, var í gær dæmd til
að leika á pianó í 100 klukku-
stundir, en hún hafði hnuplað
í verzlun.
Réttur i London dæmdi frú
Fishwick, sem er áhugapíanó-
leikari, til að leika fyrir ellilíf-
eyrisþega á elliheimilum í
borginni. Var það refsing fyrir
að stela vörum að verðmæti
rúmlega sextán punda í
verzlun einni í vesturhluta
borgarinnar.
Kína:
HÍuti fíokksins krefst
lífíáts fjórmenninganna
Kínverski konnnúnista-
flokkurinn hefur enn ekki
ákveðið formlega hver skulu
verða örlög ekkju Maos
formanns, Chiang Ching, og
þriggja róttækra
samstarfsmanna hennar, sem
sökuð eru um samsæri um
valdarán. Háttsettur
kínverskur embættismaður
skýrði frá þesu í Peking í gær-
kvöld.
Hann sagði erlendunt gestum
i borginni frá því, að örlög
fjórmenninganna yrðu ráðin á
fundi miðstjórnar flokksins og
yrði tilk.vnning þar að lútandi
gefin út síðar. Hann nefndi
ekki hvenær þetta yrði.
Svokallaðir t „Kínasér-
fræðingar“ á Vesturlöndum og
diplómatar í Peking eru
vantrúaðir á að
fjórmenningarnir verði teknir
af lífi, þótt talið sé víst að hluti
flokksins og miðstjórnar hans
áliti það réttast.
Skeyti þetta sendi Enver þjóðarinnar og kommúnista- þegar hann tók við formennsku
Hoxha, leiðtogi albönsku flokksins, til Hua Kuo-feng, eftir Mao.
Kólnandi tengsl
Kína og Albaníu?
Ný merki um kóinandi sam-
búð Kína og Albaníu mátti sjá í
morgun, þegar það gerðisf i
fyrsta skipti að Dagblað alþýð-
unnar í Peking lét hjá líða að
birta opinbert heillaóskaskeyti
albönsku stjórnarinnar.
Hluti átta hundruð þúsund manna gömru i Kanton í suðurhluta Kína þar sem lýst var yfir stuðningi
viðHua Ku-feng og andstöðu við „hundanaf jóra“.
Fundinum um Líbanon lokið:
„Finnum nauðsynlega
tryggingu friðarins”
Ford/Carter:
RUDDAORÐBRAGÐ
Á BÁÐA BÓGA
Carter teygir út hendurnar til að heilsa stuðningsmönnum sinum í
Williamsburg í Virginíu unt helgina.
Fundi fulllrúa Arabarikja lauk
í Kairó i gærkvöldi með samþykk!
þess efnis að reyna að finna
„nauðsynlega tryggingu" fyrir
því að hægt verði að ljúka
átökunum i Líbanon sem staðið
hafa í 18 mánuði.
t samþykkt fundarins sagði enn
fremur að nauðsynlegt væri að
finna leiðir til þess að stvrkja
friðargæzlusveitir Araba er fyrir
eru í landinu og að þær yrðu um
síðir þióvarðlið undir beinni
stjórn Sarkis Líbanonsforseta.
Riad formaður Samtaka Araba-
ríkja, sem las fréttamönnum
samþykkt fundarins, gat ekki tjáð
sig um það hver ætti að fjár-
magna aukningu friðargæzlu-
sveitanna, en það var einna stærst
deiluefna á fundinum í Saudi
Arabíu í síðustu viku.
Sagði Riad síðar að sjö riki,
Sýrland, Norður-Yemen, Suður-
Yemen, Samök Arabaríkja,
Súdan, Saudi Arabía og Líbýa,
ásamt Palestínumönnum hefðu
samþykkt að leggja sitt af mörk-
um.
Transkei
homsteinn
apartheid
Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna samþykkti í gær að
neita að viðurkenna sjálfstæði
suðurafríska héraðsins Tran-
skei, aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að stjórnvöld
þar í landi höfðu lýst yfir sjálf-
stæði þess.
Var þetta eitt f.vrsta verk
Allsherjarþingsins i upphafi
umræðna unt kvnþáttamisrétti
i heiminutn og hefur þolta
aldrei gerzl uður í so6u sam-
takanna. Fulltrúar 135 ríkja af
145 voru viðstaddir og greiddu
134 atkvæði með tillögunni.
Bandaríkjamenn sátu hjá á
þeim grundvelli, að þeir gætu
ekki fellt sig við það, að ein-
staklingum eða fyrirtækjum
væri bannað að hafa hvers
konar samskipti við héraðið.
t>að hefui verið einn horn-
sieina kynþáltastefnu Suður-
\l i ;< ustjórnar að veita
ákveðnum héruðuin blökku-
manna sjálfstæði til þess að
gela haldið þeim þar undir
sinni sljörn.
Ford Bandaríkjaforseti og
forsetaframbjöðandi demó-
krata, Jimmy Carter, rufu stutt
vopnahlé í kosningabaráttunni
í gær er þeir hófu á ný persónu-
legar árásir hver á annan.
Formælti Ford Carter á hvað
sterkasta hátt til þessa með því
að saka hann um reynsluleysi
og að kjör hans til forseta-
embættis myndi bjóða heim
hættunni urn erlenda íhlutun.
Asakanir þessar urðu tilefni
harðskeyttra ummæla frá
Carter sem sagði aö nú væri
tími til köntinn f.vrir Ford að
hætta að slá ryki í augu al-
mennings með hernaðarmætti
Bandaríkjanna. Þá sakaði
Carter forsetann um að standa
fyrir rógi um sig og fjölskvldu
sína með því að láta dreifa dag-
blöðum með rætnum teikni-
myndum af honum og enn-
fremur með því að bera út
sögur um. að einn sona hans
hefði re.vkt marijuana.
Þessi auknu átök í kosninga-
baráttunni koma þvert ofan i
fyrri yfirlýsingar frambjóðend-
anna í síðasta sjónvarpseinvigi
þeirra sl. föstudag. en þá lýstu
þeir því báðir yfir, að þeir
tnyndu forðast sem mest allt
slíkt orðbragð á síðustu dögunt
kosningabaráttunnar.
Fari Ródesíufundurinn í Genf út um þúfur:
„Þá er stríð
eina leiðin”
— sagði Nkomo í Genf í gær
Joshua Nkomo, einn leiðtoga
ródesískra blökkumanna, sagði
í Genf í gærkvöld, að ef ráð-
stefnan um framtið Ródesíu
sem hefst þar í borg í vikunni
fari út um þúfur, sé „aðeins ein
leið fær og það er raunverulegt
stríð. Það verður snarpt og
stutt."
Nkomo lét þessi orð falla á
óformlegum blaðamannafundi
á hótelinu sem hann gistir á.
Abel Muzorewa, biskup, sem
keppir um leiösögn Afríska
þjóðarráðsins við Nokomo,
sagði fyrr í gær að hann teldi að
ráðstefnan, sem hefst á morg-
un, myndi leiða til niðurstöðu.
A þessari ráðslefnu verður
rætt um hvernig færa eigi völd-
in úr höndum hvítra manna,
sem eru í minnihluta í Ródesíu,
í hendur blakkra, sem eru sex
milljónir. „Við erum hingað
komnir til að leysa ágreining-
inn,“ sagði Nkomo við frétta-
menn í gær. „Fari þessi ráð-
stefna út um þúfur er aðeins
ein leið fær og það er raunveru-
legt stríð. Enginn kærir sig um
að horfa upp á fólk drepa hvert
annað.“
Ródesisku sendinefndirnar á
ráðstefnunni i Genf eru fimm,
fjórar undir stjörn blakkra
þjöðernissinnu og ein undir
stjórn Ian Smith, forsætisráð-
herra minnihlutastjórnarinnar
i landinu.