Dagblaðið - 27.10.1976, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1976.
15
■v
Happdrœttis-
vinningur sem
talandi er um:
Nítján ára gamall
bensínafgreiðslumaóur, Robert
Netto að nafni, hefur unnið á
bensínstöð í bænum Watertown
skammt fyrir norðan New
York. Um daginn mætti hann
ekki til vinnu sinnar. Og hann
efast um að hann geri það í
náinni framtíð.
Hann fékk nefnilega
einstæðan happdrættisvinning
— þúsund dollara (nærri 200
þús. ísl. kr.) á hverri viku sem
lengi sem hann lifir. Ef Robert
nær níutíu ára aldri þýðir þetta
að hann hafi fengið
happdrættisvinning upp á 16 ^
mj'ljónir dollara, eða á fjórða*
milljarð ísl. kr.
„Það er ekki nema skiljan-
legt, að hann hafi viljað fá
sér frí í nokkra daga,‘‘ sögðu
forráðamenn bensínstöðvar-
innar, þar sem hann hefur
unnið.
Happdrættisviningurinn er i
nýju happdrætti á vegum New
York ríkis, og heitir „The
Empire Stakes“. Miðinn kostar
einn dal, og þú getur strax séð,
hvort þú hefur unnið eða ekki,
með því að núa eitt horn
miðans með blýanti eða
smápeningi.
Ef þú átt 100 miða færðu að
taka þátt i stóra útdrættinum,
Fœr tvö hundruð þúsund
kr. ó viku þoð sem eftir er!
þar sem allir fá að minnsta
kosti 5000 dollara vinning.
Hæsti vinningurinn er eins og
þessi sem Robert fékk, 1000
dollarar í hverri viku það sem
eftir er.
Robert Netto getur því horft
fram á bjarta framtíð með að
minnsta' kosti 800 þúsund
krónur í mánaðarlaun. Eftir því
sem hann verður eldri þeim
mun hærri verður
vinningurinn. Ef hann dæi
ungur að árum fengju eftirlif-
andi ættingjar hans minnst 182
millj. ísl. króna.
„Ég er alveg snarruglaður,“
sagði Robert. „Ég veit ekki
hvort ég held áfram að vinna
eða ekki. Kannske læt ég eftir
mér að ferðast eitthvað um. Eg
hef einu sinni farið til Kansas
City og mig langar til þess að
koma þangað aftur.
Það gæti líka farið svo að ég
keypti bíla handa mér og
eiginkonunni. Eins væri gaman
að eiga sína eigin besínstöð.
Nú hef ég efni á að kaupa
hana.“
Robert Netto kvæntist átján
ára gamalli stúlku, Judy, fyrir
fjórum mánuðum, og þau hafa
búið í lítilli leiguíbúð í
Watertown. Þau hafa bæði haft
um 60 dollara (tæplega 12
þúsund kr.) f vikulaun, hann á
bensínstöðinni og hún hefur
verið við peningakassa í
kjörbúð.Þýtt og endursagt. A.Bj
ITelly Savalas afhenti Robertl
verðlaunin, og að sjálfsögðu|
var atburðurinn :sýndur
sjónvarpinu.
UNDARLEG
TILVILJUN
Georg Henry Stanbridge, sem
selt hefur dagblöð fyrir utan
Archway neðanjarðarbrautar-
stöðina í London, fór í
kvikmyndahús, og þótti ekki í
frásögur færandi.
En þegar til kom reyndist þetta
dálítið merkilegt. Einn af aðal-
,,skúrkum“ kvikmyndarinnar hét
George Henry Stanbridge og seldi
dagblöó fyrir utan Archway
neðanjarðarbrautarstöðina í
London!!
Hinn raunverulegi Georg fór í
mál við kvikmyndafélagið.
Georginn i kvikmyndinni var
morðingi, hafði meðal annars
kálað eiginkonu sinni.
Hinn raunverulegi Georg sagði
að þetta spillti fyrir honum og
bakaði honum mikillar óvin-
sældir. Hann hefði ekki láns-
traust lengur og mannorð hans
væri i hættu.
„Þetta er ekki annað en einstök
tilviljun,“ segja forráðamenn
kvikmyndafélagsins EMI og
halda því fram statt og stöðugt að
hvorki höfundur handritsins né
nokkur annar tengdur fyrir-
tækinu hafi haft hugmynd
um að Georg Henry Stanbridge
væri til í raunveruleikanum.
Þetta hafi aðeins verið einskær,
en óheppileg vilviljun.
Kvikmyndin hefur þó ekki
verið tekin af markaðinum, en
ekki hefur verið tekin afstaða til
hins raunverulega Georgs eða
hvernig a að koma til móts við
hann.
OKKAR FRAMTÍÐ í REYKJAVIK
HVERFAFUNDIR BORGARSTJÓRA 1976
Birgir isleifur Gunnarsson
borgarstjóri flytur ræðu og
Svarar fyrirspurnum fundargesta
1
Laugardagur 30. október
kl. 14.00.
GLÆSIBÆR
Laugarneshverfi
og Langholt
Fundarstjóri: Fundarritari:
Hulda Valtýsdóttir. húsfrú Garðar Ingvarsson.
hagfræðingur.
2
Sunnudagur 31. október
kl. 15.30
DOMUS MEDICA
Hlíða- og Holtahverfi,
Austurbær og Norðurmýri
Fundarstjóri:
Jónas Eliasson. prófessor
Fundarritari:
Unnur Jónasdóttir. húsfrú
3
Mánudagur 1. nóvember
kl. 20.30.
ÁTTHAGASALUR HÓTELSÖGU
Nes- og Melahverfi
Vestur- og Miðbæjarhverfi
Fundarstjóri:
Hórður Sigurgestsson,
•ekstrarhagfræðmgur
JÍ
Fundarritari:
Erna Ragnarsdóttir.
mnanhússarkitekt
UMHVERFIÐ
ÞITT
Á fundunum verður:
LSýning á líkönum og upp-
dráttum af ýmsum borgar-
hverfum og nýjum byggöa-
svæðum.
2. Lftskuggamyndir af helztu
framkvæmdum borgarinn-
ar nú og að undanförnu.
3. Skoðanakönnun um borg-
armálefni á hverjum
hverfafundi og verða nið-
urstöður birtar borgarbú-
um eftir að hverfafundum
lýkur.
4
Þriðjudagur 2. nóvember
kl. 20.30.
FÉLAGSHEIMILI RAFVEITUNNAR
Árbæjar-
og Seláshverfi
Fundarstjóri.
Skúli Möller. kennari
Fundarritari:
Ingibjórg Ingimarsdóttir.
húsfrú
5
Miðvikudagur 3. nóvember
kl. 20.30.
FÉLAGSHEIMILI TAFLFÉLAGSINS
GRENSÁSVEGI 44—46
Háaleitishverfi,
Smáíbúða- Bústaða-
og Fossvogshverfi
Fundarstjóri:
Jón Magnússon,
lögfræðingur.
Fundarritari:
Dan S.V. Wium,
lögfræðingur
6
Laugardagur 6. nóvember
kl. 14.00
SELJABRAUT 54 (2. hæð)
Bakka- og Stekkjahverfi,
Fella- og Hólahverfi,
Skóga- og Seljahverfi
Fundarstjóri:
Magnús Jensson,
byggingameistari
Fundarritari:
Inga Magnúsdóttir. húsfrú.
-Þýtt og endurs. A.Bj.