Dagblaðið - 15.11.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 15.11.1976, Blaðsíða 1
daghlað 2. ARG. — MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1976 — 257. TBL. RITSTJORN SIÐUMULA 12, SIMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 [Geirfinnsmálið ISJðni SJONAR- VOnURINN FUNDINN? Sterkar likur benda nú til þess, að nú sé fundinn enn einn maður, sem sá þann, sem hringdi úr Hafnarbúðinni í Keflavík, kvöldið sem Geir- finnur Einarsson hvarf hinn 19. nóvember 1974. Kona, sem beið í bíl fyrir utan Hafnarbúðina um kl. 18.30 19. nóv. 1974, á meðan ungur sonur hennar fór þar inn til að verzla, sá mann stíga út úr bif- reið og fara inn í búðina. Maður sá, er i bílnum kom, fékk lánaðan sima þar inni. Skömmu síðar átti þessi kona leið fram hjá veitingastofunni Þristinum í Keflavík. Sá hún þá og þekkti þar aftur manninn, sém kom í bilnum að Hafnarbúðinni. Sat hann þar, að því. er virtist að snæðingi. Má ætla að þetta hafi verið nærri kl. 19. Eftir lýsingu a.m.k. eins þeirra sjónarvotta, sem sáu „Leirfinn" í Hafnarbúðinni um kl. 22.30 þetta sama kvöld, og enn í þeim tilgangi að fá lánaðan síma, þykir sennilegt, að um sama manninn hafi verið að ræða, þótt ekki sé það víst. Milli kl. 19.00 og 20.00 þetta sama kvöld kvaddi maður dyra í húsi einu nærri enn einum veitingastaðnum í Keflavík. Spurði hann um til- tekinn mann í Keflavík. Enga vitneskju var hægt að láta hon- um í té um þennan mann. Bað þá komumaður um að fá að nota sima. Var það auðsótt mál. Hringdi maðurinn í fjögurra stafa númer, þ.e. innan svæðis Keflavíkur og nágrennis. Ekk- ert talaði hann í símann og virtist sem ekki hefði verið anzað. Lýsing húsráðenda þar, sem maðurinn fékk að hringja, á þessum manni, fellur í öllu tilliti saman við lýsingu þá, sem sjónarvottar gáfu af manninum, sem fékk að hringja í Hafnarbúðinni. Vakti alveg sérstaka athygli hár- greiðsla mannsins og- klæða- burður sem og fas hans og framganga. Sé svo, sem allt bendir til, að „Leirfinnur" hafi þarna verið á ferð, er fram kominn sjötti sjónarvotturinn, sem sá hann þetta kvöld. Tiltekin atriði benda til þess, að maður þessi hafi verið aðkomumaður í Keflavik, og í öll skiptin utan eitt, sem hann sást, var hann þeirra erinda að fá lánaðan síma. Sjötti sjónar- votturinn er hinn eini, sem spurður var um tiltekinn mann.sem komumaður virtist eiga erindi við. -OV/BS. Forstjóri Ferða- skrifstofu ríkisins biðst Félagar í Bandalagi háskólamanna taka sér frí í dag: Veðurstofan lömuð — og óljósar fregnir af ofsaroki í nánd lausnar úr starfi Björn Vilmundarson, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, hefur að eigin ósk verið ley stur frá störfum um stundarsakir, eða á meðan rannsókn fer fram á.meintri aðild hans að meintum brotum versl- unarinnar Antík-búðin í Reykja- vík. Dagblaðið hefur skýrt frá þessu máli og þeirri rannsókn, sem nú er að hefjast i því. ólafur Steinar Valdimarsson, fulltrúi í samgönguráðuneytinu, sem veitti blaðinu upplýsingar um lausnarbeiðni Björns Vil- mundarsonar, sagði að ráðherra hefði í gær orðið við þessari ósk, enda væri hún í samræmi við lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Kjartan Lárusson hefur verið settur forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins um stundarsakir. — ÓV. Kákasus-gerill- inn — allra meina bót? - bls. 14-15 Eiginkonan verður að vinna úti ísland láglaunaland — börnin í hirðuleysi A láglaunaráóstefnu sem starfsstúlknafélagið Sókn efndi til i Hreyfilshúsinu í gær var þvi haldið fram að Island væri láglaunaland. Það sem nú ætti að keppa að væri að menn gætu lifað hér á 40 stunda vinnuviku — eins aðila á heimilinu, ekki tveggja. Nú væri svo komið að ekki væri nóg að eiginmaður- inn yrði að vinna myrkranna á niilli, heldur þyrfti eiginkonan einnig að gera það og skilja börnin eftir — jafnvel í hirðu- leysi — svo að einhvern veginn megi ná endum saman. „1 Svíþjóð er kaup verka- manns 1100 kr. á tímann eða um 190 þús. kr. á mánuði. Húsa- leiga f.vrir 3 herbergja íbúð í blokk með rafmagni, hita og sameiginlegum kostnaði er 38 þús. kr. á mánuði og barnafólk fær allt upp í 4500 kr. styrk á mánuði," sagði Ester Jónsdóttir varaformaður Sóknar. „Þess fyrir utan getur fólk fætt sig og klætt og borgað skattana sína á þessum launum" (hér er miðað við isl. krónur.) Það var hart deilt á verka- lýðsforustuna á ráðstefnunni. Sem dæmi um lágu launin, sem fólki er boðið upp á hér er hægt að taka Iðjutaxta eftir 3ja ára vinnu. Kaupið er 71.490 kr. á mánuði. 1 þessum starfshópi er fólk við útkeyrslu á sendibíl- um, birgðavörzlu og afgreiðslu, vélgæzlu og störf við vélar sem krefjast stillinga. Ateiknun og sníðsla, störf sem útheimta lík- antlega og andlega áreynslu og sérhæfingu, pressun í efnalaug- um. Samkvæmt tölum hag- fræðinga ASÍ hefur kaup hækkað um 93% frá 1974, en verðlag um 147%. Aðeins til að halda i horfi frá 1. marz 1976, þ.vrfti kaup að hækka urn 28- 30%. Annar taxti Sóknar yrði þá 86.700 kr. í stað 67.842. EVI Sjá nánar bls. 13. Ríkið hleypir vöruverðinu upp — teija innflytjendur — bls. 4 „Miskunnsamir Samverjar” fé dekkin til baka — bis. 5 Þegar DB ætlaði að fá upp- lýsingar um veðrið í morgun feng- um við þau svör að veðurfræðing- urinn væri ekki til viðtals. Þeir eru nefnilega í Bandalagi há- skólamanna og félagið ákvað að leggja niður vinnu í dag. Samt sem áður er veðurfræðingúr á vakt á Veðurstofunni, en hann er bara ekki til viðtals, enda þótt heyrzt hafi af ofsaveðri í nánd. Mest öll kennsla liggur niðri i Háskóla íslands og nemendur hafa það væntanlega náðugt i dag. í dag klukkan 13.30 efnir Launamálaráð BHM til fundar á Hótel Sögu. Félagsmenn eru mjög óánægðir með laun sín og segja að laun ríkisstarfsmanna séu 30—60% lægri en laun þeirra sem vinna á hinum frjálsa mark- aði. ■KP. Markús A. Einarsson veðurfræð- ingur var á vakt á Veðurstofunni í morgun af öryggisástæðum. Hann mun láta okkur vita ef veðurfar á landinu breytist óvænt til hins verra. Hlynur Sigtryggs- son veðurstofustjóri ræðir hér við hann og þá væntanlega ekki um veðrið. DB-m.vnd Bjarnleifur. Hvar er óvinurinn? Sjá kjallaragrein Ólafs Hannibals- sonar bls. 10—11 Jarðvarmi getur orðið dýrari en rándýr olía — Hvað er til ráða? Sjá kjallaragrein Magnúsar E. Guðjónssonar bls. 10-11 V J

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.