Dagblaðið - 15.11.1976, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MANUDACUR 15, NÓVEMBER 1976.
íþróttir Iþróttir Iþróttir
og á DB-mynd Bjarnleifs stekkur hann hæst
i leik meö Valsiiðinu frá því hann hóf að leika með meistaraflokki. Skoraði fimm falleg mörk
ézka liðsins.
EZKIBJÖRNINN VAR
PILLUR OG 8TIRÐUR
MAI sigraði Val aðeins með eins marks mun í Evrópuleiknum á laugardag
og naut þó mun hagstæðari dómgæzlu en Valsmenn
var frábær á köflum og gerði sér
lítið fyrir og varði þrjú vítaköst af
fimm í leiknum. Tvö þeirra tók
frægasti leikmaður sovézkra,
Maximov, sem Óli varði — einu
sinni skoraði hann, og þá munaði
millimetrum að Öli næði knettin-
um. Ölafur Benediktsson varði
fjórumsinnummeira í leiknum en
sovézki markvórðurinn, Sytchev,
og sá sovézki látinn standa í
marki allan leikinn. Þó hiklaust
lakasti markvörður, sem leikið
hefur hér með þekktu liði er-
lendu. Varði aðeins sex skot i
leiknum — segi og skrifa sex skot
— án þess að Valsmenn næðu
aftur knettinum. Tvö þessara
skota voru úr algjörlega vonlaus-
unt stöðum — innst í horninu hjá
Bjarna Guðmundssyni.
Fjórir leikmenn Vals áttu skín-
andi ltíik á iaugardag. Jón Karls-
son,maðurinn bak við næstum allt
í sÓKnaiiuir. v ui... skoraði níu
mörk, þó hann væri í strangri
gæzlu t síðarí hálfleik. Þá „sló"
Jón Pétur í gegn — lék sinn bezta
leik með Val og skoraði fimm
mörk. Óli Ben. var klettur í mark-
inu — og þáttur Bjarna Guð-
mundssonar verður seint metinn.
Iiann tók Maximov úr umferð og
gerði það svo vel, að þessi heims-
frægi leikmaður sásl varla í leikn-
um. Gegndi nánast hlutverki stal-
ista!!
í byrjun virtist lítið benda til
þess, að Valsmenn mundu standa
í sovézku leikmönnunum. Eftir
aðeins sex mínútna leik hafði
MAI náð þriggja marka forskoti,
4-1, og tveggja til þriggja marka
munur hélzt að mestu út allan
hálfleikinn. Minnsti munur var
eitt mark, 4-5, eftir 12 mín. en
mest fjögurra marka munur, 7-11,
á 23ju mínútu. Staðan 11-13 í hálf-
leik.
MAI komst í 14-11 í byrjun
síðari hálfleiks, en stuttu síðar
var Iline vikið af velli i tvær
mínútur. Valsmenn nýttu það vel.
Jón Pétur skoraði tvívegis — Öli
Ben varði víti frá Maximov, og
þegar Jón Pétur skoraði enn eftir
8 mín. leik, var staðan orðin jöfn,
14-14. Barátta í hámarki — og
mótstaða Valsmanna kom sovézku
leikmönnunum úr jafnvægi. Þeir
rifust oft innbyrðis — gerðu það
reyndar mestallan leikinn, og það
er nýtt að sjá hjá sovézkum.
Leikur MAI var heldur
ráðleysislegur — og sterkur
varnarleikur Vals og markvarzla
gladdi áhorfendur. Um miðjan
hálfléikinn komst Valur í fyrsta
skipti yfir, 16-15, en MAI skoraði
tvö næstu mörk. Jón Karlsson
svaraði með tveimur mörkum og
Valur komst aftur yfir, 18-17.
Aðeins tæpar fimm mínútur til
leiksloka. Makhorine skoraði tvö
mörk fyrir MAI, en Jón Pétur
jafnaði 19-19. Þegar 90 sekúndur
voru til leiksloka skoraði Iline og
það reyndist sigurmark leiksins.
Valsmönnum tókst ekki að jafna,
þó svo að Iline væri aftur vísað af
leikvelli. Þeir sovézku voru
grófir í vörninni — hikuðu ekki
við að brjóta af sér, svo
lokamínútan fór mest í aukaköst.
Það vantaði svo sem ekki, að
norsku dómararnir flautuðu nóg í
leiknum. Framan af síðari hálf-
leiknum voru þeir siflautandi —
en þeir tóku ekki hart á
brotunum. Aðeins aukaköst í
flestum tilfellum — og greinilegt
að þeir dæma miklu vægar á
brot.en við eigum að venjast af
íslenzkum dómurum.
Moskvuliðið með alla sína
frægu leikmenn sýndi lítil tilþrif
í leiknum. Það fór þó varla milli
mála, að liðið í heild virkaði sterk-
ara en Vals — en þarna sást lítið
ti.l Ieikmanna, sem gladdi augað.
Iþróttir
Leikmenn virkuðu stirðir~hæði í
hreyfingum og skapi. Ég verð að
viðurkenna, að ég hef aldrei
hrifist af sovézkum handknatt-
leik. Þar hef ég aldrei séð þann
léttleika, sem einkennandi er
fyrir flest austantjaldslið— aldrei
þann leikandi létta stíl, sem er
svo einkennandi hjá Rúmenum,
Tékkum og Júgóslövum. Mér
fannst það reyndar furðuleg
tíðindi i sumar, þegar Sovétríkin
urðu Olympíumeistarar í hand-
knattleik. En þrátt fyrir það
verður róðurinn mjög erfiður hjá
Valsmönnum i Moskvu eftir
mánuð.
Mörk Vals í leiknum skoruðu
Jón Karlsson 9 (2 víti), Jón Pétur
5, Steindór Gunnarsson 2, Þor-
björn Guðmundsson 2 og Bjarni
Guðmundsson eitt. Fyrir MAI
skoruðu Gaguine 5, Iline 4 (1
víti), Makhorine 3, Maximov 2 (1
víti), Khrypov, 2 Klimov 2,
Ratnikov 1 og Tchigazev 1.
-hsím.
17
róttir
Celtic
Þetta var bráðskemmtilegur
leikur og þó Celtic-liðið væri mun
meira með knöttinn í síðari hálf-
leiknum tókst okkur ekki að
jafna. Ipswich sigraði því með
2-1, sagði Jóhannes Eðvaldsson,
þegar Dagblaðið ræddi við hann i
gær. Leikurinn var háður áPark-
head í gær — sunnudag — og
það er nýtt að leikið se á Skot-
landi á sunnudegi. En það var
ákaflega vei heppnað. Ahorf-
endur voru um 50 þúsund á þess-
um vináttuleik Celtic og Ipswich,
þess liðsins á Englandi, sem vakið
hefur mesta athygii siðustu vik-
urnar. Bæði lið léku án hinna
skozku og ensku landsiiðsmanna
sinna. Dalglish og McGrain iéku
ekki með Celtic—Mills, Beattie
og Talbot ekki með Ipswich, en
þessir ieikmenn taka þátt i HM-
leikjunum á miðvikudag.
Ég var framvörður í leiknum,
sagði Jóhannes ennfremur, tengi-
liður, og það er staða, sem ég hef
haft mikinn hug á að fá að
leika. Ég er ánægður með minn
hlut í leiknum og finnst að það
hljóti að vera góð von í að vinna
þessa stöðu í Celtic-liðinu. Ég
komst í gott færi í síðari hálf-
leiknum, en þá var fótunum bein-
línis sparkað undan mér. Það var
greinilegt víti, en skozki dómar-
inn dæmdi ekkert — og öðru
sinni vildum við Celtic-
leikmennirnir og áhorfendur
einnig fá víti. Ekkert dæmt þá
heldur. Þá átti ég líka gott skot
á mark af nokkru færi, sem var
varið vel.
Celtic skoraði á undan í
leiknum, Joe Craig á 15. mín. en
fyrir leikhléið hafði Ipswich
skorað tvívegis. Þá var Latchford
tekinn úr markinu og nýi leik-
maðurinn frá Morton, Baines,
kom í hans stað. Við sóttum svo
miklu meira í síðari hálfleiknum
— Bobby Lennox lék þá í sta^í
Poul Wilson,— en náðum ekki að
jafna. Lið Celtic var þannig
skipað í byrjun. Latchford,
McClusky, Lynch, Stanton,
MacDonald, Jóhannes Eðvalds-
son, Doyle, Glavin, Craig, Aitken
og Wilson.
Stigamet
Borussia
Borussia Mönchengladbach,
sem stefnir í þriðja meistaratitil
sinn í röð í vestur-þýzku knatt-
spyrnunni, setti á laugardag nýtt
stigamet í Bundeslígunni með því
að hijóta 23 stig í fyrstu 13 leikj-
unum. 23 stig af 26 mögulegum,
en slíkt hefur ekki skeð áður.
Á laugardag sigraði Borussia
Schaike með 2-0 á heimavelli. A-
horfendur voru þar eins margir
og frekast rúmast í iitlu borginni
við landamæri Hollands, eða
34.500. Borussia hefur eftir þenn-
an sigur fimm stiga forskot á Bay-
ern Munchen, sem er í öðru sæti.
Úrslit á iaugardag urðu þessi:
Bayern — Saarbrucken 5-1
Duisburg — Köln 1-1
Bochum — Brunswick 1-1
Kaiserslautern — Essen 7-1
Borussia —_SchaIke 2-0
Bremen — Frankfurt 2-1
Karlsruher — Hamborg 2-2
Hertha — Tennis, Berlín 2-2
Dortmund — Dússeldorf 1-2