Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 03.12.1976, Qupperneq 1

Dagblaðið - 03.12.1976, Qupperneq 1
2. ARG. — FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976. — 273. TBL. •RITSTJORN SIÐl’MULA 12, SIMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA PVERHOLTI 2, SIMI 27022 Syfjaðir ASÍ-þingfulltrúar samþykktu að: Stjómin segi af sér, herinn fari, en launamálin Irtt rædd Menn voru heldur framlágir á Alþýðusamhandsþinginu í morgun í Súlnasalnum á Hótel Sögu, eftir rúmlega sólarhrings- vöku þar sem vokað var seinustu tiu klukkustundirnar yfir fremur litlu. Menn dormuðu í sætum sín- um, sumir sváfu reyndar fram á borðin en aðrir voru sæmilega hressir, einkum þeir sem ráfuðu um eða reyndu að hressa sig á kaffi og kökum. Alþýðubankamálið viðkvæma, sem búið var tvívegis að fresta í dagskrá, var tekið fyrir, sam- kvæmt ósk, í gærmorgun rétt fyrir hádegi. Benedikt Davíðsson, bankaráðsmaður, rei faði málið og ræddi um hrakfarir bankans. „Fjárhagslegt tjón er ekki hægt að bæta, en álit bankans verða alþýðusamtökin að auka," sagði hann. Aðeins einn kvaddi sér hljóðs að máli Benedikts loknu, mat- reiðslumaðurinn úr Kópavogi sem hafði óskað eftir umræðun- um. Hafði hann það helzt til mál- anna að leggja að bankanum væri nauðsyn á að hafa bílastæði en þau vantar alveg í nágrenni hans. Um klukkan ellefu í gærkvöldi átti kosning stjórnar að hefjast, en mikið makk hafði átt sér stað milli hinna ýmsu stjórnmálalegu hópa og var loftið lævi blandið. Snemma þótti sýnt að kosningin myndi dragast, enda hafði upp- stillinganefnd verið kosin seint og fór kosning hennar úr böndunum eins og svo margt annað á þessu þingi. Þegar ekkert bólaði á niður- stöðum uppstillinganefndarinnar voru nokkur mál tekin fyrir en umræðum um þau lauk langt utan efnis þeirra, bæði í heimspólitík- inni og innanlandserjum. Voru menn persónulegir og illskeyttir. Deilt var um verkalýðsmál í Rang- árþingi, búðarlokur, stífluð vit, og voru menn beðnir að lesa einn og annan kaflann úr hinum ýmsu pésum. Frammíköll voru tíð og stundum brýndu menn raustina svo að hljóðmælirinn á sviðinu fór upp í 100 desibel. Sennilega hefur barinn, sem opinn var þingliði í gærkvöldi, haft örvandi áhrif á geö manna — sem voru reyndar nýbúnir að samþykkja að ASÍ berðist gegn neyzlu víns og örvandi eína. Lífeyrissjóðsmálin lentu að mestu leytí, í fyrstu umræðu, i alþjóðapólitíkinni austan hafs og vestan en málefnalegur styr-stóð aðallega um það hvort allir ættu að fá jafna greiðslu eða eftir því Geirfinnsmálið hvað þeir hefðu í hann lagt. Að endingu, eftir mikil hnútuköst, var samþykkt að stefna að jöfnun. Á meðan stórpólitíkusar lædd- ust um stiga og ganga og uppstill- inganefndin reyndi hrossakaupin um það hverjum ætti að farga eða gefa líf voru tvaer tillögur bornar undir atkvæði. Önnur um kjara- mál, sem einnig fól í sér kröfu um að ríkisstjórnin segði af sér og efnt yrði til nýrra kosninga, hin um úrsögn íslands úr NATO. Báðar voru samþykktar, hin fyrri með 176-97 með handaupprétt- ingu, en íiin seinni með 202-157, 17 auðir og einn ógildur — leyni- leg atkv.gr. Urslitin höfðu greinileg áhrif á uppstillinganefndina. Hljóp allt i baklás og bárust þær fréttir að hver uppstillingin af annarri hefði verið tætt niður jafnóðum svo ekkert bólaði á niðurstöðum og voru menn að henda að því gaman að réttast væri að nefndin félli á tíma. Á meðan á þófinu stóð voru tillögur um skattamál sam- þykktar en í þeim voru allmargar breytingar fólgnar og stefnuyfir- lýsingin var látin í milliþinga- nefnd — til að sameina róttækar Þannig var ástandið á fundum Alþyðusamhandsins í morgun. — menn voru framlágir og þótti sem ASl-þing l.vkiaði af „vinnuþrælkun". —DB-mynd Sv. Þormóðsson. breytingatillögur sem komu illa við þingheim, en því miður voru launamálin að mestu látin sitja á hakanum. Það helzta varðandi þau kom fram í launa- og kjara- málaáliti þingsins sem samþykk-t var af syfjuðum mönnum í morgunsárið. Loksins á tíunda timanum var tilkynnt að stjórnar- kjör hæfist innan tíðar og létti mönnum mikið. -emm. SÍÐUSTU FRÉTTIR AF ASÍ- ÞINGI Björn Jónsson var sjálfkjör- inn forseti sambandsins. — Snorri Jónsson var kjörinn varaforseti með 34250 at- kvæðum, Aðaiheiður Bjarn- freðsdóttir fékk 10225 atkvæði. Stjórnarkjöri var ekki lokið er blaðið fór í pressuna laust fyrir hádegj. Beztu bitunum úthlutað: Alþingi kýs „sína menn” í bankaráð ríkisbankanna — sjá bls. 9 N Sennileg heildarmynd af veigamiklum þáttum — Gæzluvarðhaldsúrskurðir Urskurður um 60 daga fram- lengingu gæzluvarðhalds þrjátíu og fjögurra ára gamals Reykvíkings, nýjasta gæzlu- varðhaldsfangans í Geirfinns- málinu var kveðinn upp í gær- kviildi af Birgi Þormar, fulltrúa yfirsakadómarans í Reykjavík. Fyrir þrem diigum var fram- lengdur um 30 daga úrskurður um gæzluvarðhald stúlkunnar sem alllengi helur setið í gæzlu- varðhaldi út af þessu máli. Rannsókn Goirfinnsmálsins hefur nú um nokkurt skeið verið i afmarkaðri farvegi en framlengdir áður var. Er rík ástæða til þess að ætla að rannsóknarmenn hafi sennilega heildarm.vnd af veigamiklum þáttum málsins. Er unnið ósleitilega að rannsókn þess dag hvern undir stjórn Arnar Höskuldssonar. sakadömara og Karl Sehtitz. hins þýzka rannsóknarmanns. Rökstuddur grunur um refsiverða háttsemi verdur að liggja fyrir til þess að rétt sé að úrskurða mann í gæzlu- varðhald. Varðandi nýjasta gæzluvarðhaldsfangann féllst Hæstiréttur á þau rök sem Sakadómur b.vggði úrskurð sinn á, er honum var áfrýjaö f.vrir 20 dögum. Var þá talin ástæða til að ætla að maðurinn byggi yfir einhverri þeirri vit- neskju. sem varpað gæti Ijósi á málið. Ekki hefur sá grunur veikzt eftir þær vfirhéyrslur sem haldnar hafa verið yfir homtm og öðrum vitnum og aðilum málsins að undanförnu. Hefur gæzluvarðhaldsúrskurð- urinn. verið framlengdur um 60 daga. sem fyrr segir. -BS.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.