Dagblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976.
5
NúmerastimpilHnn
getur ekki lengur
fylgt tékkaútgáfunni
— þegar númerin eru
orðin sjö stafa
Þeir sem eiga ávísanahefti frá
Búnaöarbanka tslands hafa rekið
augun í þaö að ekki er sama núm-
er á ávísanablöðunum í heftinu
og tilheyrandi svuntu, en á hana
rita menn auðvitað samvizkusam-
lega þá upphæð sem þeir skrifa út
af reikningi sínum. Þetta verður
jú allt að stemma. Komið var með
blað úr ávísanahefti og tilheyr-
andi svuntu til okkar á ritstjórn-
ina. Númerið á blaðinu var
1268002 en á svuntunni 268002.
Eigandi blaðsins áleit að þetta
gæti valdið ruglingi þegar farið
væri yfir reikningsyfirlit frá
bankanum.
Við höfðum því samband við
Stefán Þormar deildarstjóra í
ávísanadeild Búnaðarbankans.
Hann sagði að skýringin væri ein-
faldlega sú að númerastimpillinn
i prentsmiðjunni, þar sem svunt-
urnar væru prentaðar, tæki ein-
faldlega ekki nema sex stafa tölu.
Þetta væri leyst á þann hátt að á
svuntuna væri einnig prentaður
bókstafur og í þessu umrædda
tiifelli er það A, en það þýðir
milljón. Það er því sama númer,
eins og vera ber, á svuntu og
ávísanaeyðublaði. Það er einfald-
lega skrifað á tvo mismunandi
vegu.
W0*0 ÞAÐ UFI!
#
J0LATILB0Ð
Akra smjörlíki 148 kr. stk.
Egg 405 kr. kg.
Strásykur 109 kr. kg.
Hveiti lPillsb. Best) 269 kr. kg.
Flórsykur 89 kr. pk.
Kaffi 263 kr. pk.
Við höfum tekið upp þá
þjónustu að sjá um
matarsendingar tii vina og
kunningja erlendis
HÓLAGARÐUR
KJORBÚO. LÓUHÓLUM 2—6. SÍMl 74100.
Nýjasta
línan
Feikilegt úrval
Leðurstígvél
Spariskór
Götuskór
Mjúkt og þægilegt leður
OG TIL KL. 6 A LAUGARDAG
bama vegg- og borðlamoar ásamt loftljósum
Landsins mesta
lampaúrval
LJOS OG ORKA