Dagblaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 5
PAGBLAÐIÐ. FÖSTUDACUR 28, JANÚAH 1977 5 Howard Matson. blaðafulltrúi hersins, útskvrir undankomu Christ- ophers Barbars Smith. Hann bendir á fangageymsluna, sem er í rúmlega þrjátíu ára gömlum íbúðarbragga. DB-myndir Arni Páll. Smith við stýrið, um leið og hann sneri við og ók á brott. F.vrst í stað reyndu verðirnir að hafa síma- samband við herlögregluna, en þar var á tali, svo hringt var í aðalhliðið og tilkynnt um flótt- ann. Síðan náðu þeir símasam- bandi við herlögregluna og er þar skráð, að þá hafi klukkan verið 20.40. Fangaverðirnir hvítþvegnir Það var hins vegar ekki fyrr en tíu mínútum síðar, eða kl. 20.50, að íslenzkir lögreglumenn í Njarðvíkurhliði Keflavikurvallar sáu hvar Smith kom á bifreið varðarins. Þegar strokufanganum var gefin bending um að stöðva bifreiðina, slökkti hann ljós henn- ar og ók áfram. Lögreglumennirn- ir héldu þegar á eftir honum, en sáu engin merki um hvert hann hafði farið. Howard Matson lagði á það þunga áherzlu, að rannsóknin hefði hvítþvegið fangaverðina tvo og benli ekkert til þess, að þeir hefðu aðstoðað Barbar Smith við að komast undan. þvert á móti Að sögn Matsons hefur rann- sóknin m.a. beinzt að því að upp- lýsa um ferðir flóttamannsins frá því að hann sást snúa við frantan við útvarps- og sjónvarpsstöðina og þar til hann sást fara út um Njarðvíkurhliðið. Er þetta 15-20 mínútna timabil. en um fimm mínútur tekur að aka þessa leið. Vildi hann ekkert segja um þann möguleika að Smith væri í felum á flugvallarsvæðinu, en útilokað væri að hann hefði komizt úr landi með herflugvél. Sú fyrsta eftir flóttann fór frá landinu kl. 12:15 daginn eftir og hefur ræki- lega verið leitað í öllum velum, sem farið hafa frá Keflavíkur- flugvelli síðan. Hefur einnig ver- ið leitað í íbúðum hermanna á Vellinum og víðar innan svæðis- ins. „Ég fullvissa ykkur, herrar mínir...“ Um fullyrðingar og vangavelt- ur Þjóðviljans um að Smith hefði verið komið úr landi af sam- sekum háttsettum foringjum í bandaríska herliðinu sagði Matson það eitt, að slíkar fullyrð- ingar væru „hlægilegar". „Ég fullvissa ykkur um, herrar minir. að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að hafa upp á Smith," sagði blaðafulltrú- inn. „Við önnumst þessa rann- sókn sjálfir innan herstöðvar- svæðisins, en þar fyrir utan taka íslenzk yfirvöld við. Að sjálfsögðu erum við reiðubúnir að veita alla þá aðstoð, sem okkur er mögulegt að veita.“ -ÖV. Iverustaður fanga. Afstöðum.vnd af fangageymslunni á Keflavíkurflugvelli. Lengst til vinstri eru vistarverur fanganna, síðan saiernisgangur og þar fyrir framan öryggisdyr, þar sem verðirnir settu upp kvikmyndatjaldið. Sýningarvélin var framan við hinar dyrnar, þar sem prikið bendir á, og sátu verðirnir ásamt fanganum þar fyrir jnnan, Smith á milli þeirra og næstur dvrunum. VMVM VMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVI Gerið góð kaup NAUTAKJÖT A VÖRUM ARKAÐSVERÐI Opiö til kl. lOföstudaga, lokað laugardaga © Vörumarkaðurinn hf i ÁRMÚLAIA Matvorudeild Humgagnadeild Heimilimtœkjadeild Vsf naðarvórudeild Skrifmtofan Símar: 86-111 86-112 86-112 86-113 86 114 VMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVMVll Veljum íslenzkt Veljum íslenzkt Veljum islenzkt Athugið! Nú höfum viö opnað í nýjum og glæsilegum húsakynnum að Siðumúla 6. Eins og aður bjoðum við folki að koma og lita á sófasettin okkar, m.a, og kynna sér hið frábæra verð, sem hefur vakið mikla athygli. Þetta er ótrúlegt i dýrtiðinni en dagsatt. wtmm Verð: 294.000.- Staðgr.verð: 264.000 Síðumúla 6. Sími 85815 Veljum íslenzkt Veljum íslénzkt Veljum íslenzkt Veljum islenzkt i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.