Dagblaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 12
Jón Karlsson sýndi mikið öruggi í vítaköstum — skoraði úr öllum 6 vítaköstum tslands — hugsun í fyrirrúmi. Hér sendir Jón knöttinn í
netið — Þórarinn er við öllu búinn. DB-mynd Bjarnleifur.
Místök kostuðu íslenzka
liðið sigur gegn Tékkum
—tap íslands 14-17 en liðið er að springa út eins og rós
- — aðeins herzlumuninn vantar
Mistök — ákaflcga slæm mis-
tök — urðu þess valdandi að Is-
land beið ósigur fyrir Tékkum
í Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi — tap 14-17 eftir að
íslenzka liðið hafði haft yfir í
leikhléi. 9-8. Hroðalegur kafli
fvrri hluta siðari háifleiks réð
úrslitum — en þrátt fyrir tap er
engin ástæða til að örvænta. ís-
lenzka liðið sýndi á köflum mjög
skemmtilega takta sem yijuðu
áhorfendum — liðið er í mótun,
ísienzka liðið er að springja út
eins og rós, en vantar aðeins
herzlumuninn.
Já. herzlumuninn vantar enn
— enn verða mönnum á slæm
mistök sem kosta ntörk. Nú var
það ekki vörnin sem slík sem
brást heldur rangar sendingar í
lúkurnar á Tékkunum sem brun-
uðu upp og skoruðu. Fjórum sinn-
um var íslenzka liðið með knött-
inn. þá kom röng sending og
Tékkar brunuðu upp og skoruðu.
Annar stór þáttur var ákaflega
slæm nýting á beinlínis dauðafær-
um. sérstaklega fór Ágúst
Svavarsson illa að ráði sínu er
hann .var fjórum sinnum í góðu
færi en var fyrirmunað að skora
Haukar í erfiðleikum
Þrír leikir í afmælismóti Hand-
knattleiksráðs Reykjavíkur fóru
fram á miðvikudag. 1. deildariið
Hauka, sem nú blandar sér af
alvöru í baráttuna um tslandsbik-
arinn. átti i vandræðum með 2.
deildarlið Leiknis — en Haukar
sigruðu þó — 24-22. Valur átti
ekki í erfiðleikum með að sigra
Njarðvíkinga — 20 mörk skildu í
lokin — 20-16. ÍR sigraði ÍA
örugglega — 26-17.
A morgun — laugardag — fara
fram þrír leikir. Grótta leikur við
Breiðabiik, Víkingur við Val,
Ármann við Aftureldingu. Síðan
fara síðustu leikirnir í f.vrstu um-
ferð fram á sunnudag kl. 19 —
KR mætir Stjörnunni, FH maúir
2. deildarliði Fylkis og loks
mætast 1. deildarliðin Fram og
Þróttur.
og Geir Hallsteinsson nýtti illa
góð marktækifæri í síðari hálfleik
— virtist þreyttur. íslenzka liðið
skoraði aðeins fimm mörk í síðari
hálfleik — þar af voru 4 mörk
skoruð úr vítaköstum. ísland fékk
sex vítaköst í leiknum og Jón
Karlsson nýtti þau öll — fimmta
markið skoraði Björgvin Björg-
vinsson af línu.
Janusz Czerwinsky sagði eftir
leikinn að útispilarar okkar hefðu
alveg brugðizt — og það var
einmitt lóðið: Allt of mikið hnoð
og niðurstungur, knötturinn gekk
alls ekki nógu hratt — sífellt
keyrt inn i vörnina og uppskeran
aðeins aukakast. Fyrir vikið
opnaðist ekki eins fyrir Björgvin
Björgvinsson á línunni — ekki
sköpuðust nógu góð marktæki-
færi, ekki nógu opin. En ótrúlega
góð marktækifæri fóru for-
görðum — þeir Geir Hallsteins-
son, Ölafur Einarsson og Ágúst
Svavarsson alveg sérstaklega
fengu allir ótrúlega góð mark-
tækifæri án þess að skora. Slíkt
gerist ekki oft — en gerðist í
gærkvöld. Að sjálfsögðu má ekki
gle.vma markvörzlu tékkneska
markvarðarins sem varði oft á
hreint undraverðan hátt.
Tékkar léku vörnina mjög
framarlega og sennilega hafa það
verið místök að láta þá ekki Þor-
b.jörn inn á línuna til að fá aukna
ógnun þar. Iðulega reif Björgvin
Björgvinsson sig lausan en fékk
knöttinn ekki í hendurnar — sér-
staklega var það áberandi á hægri
vængnum þar sem voru þeir Þor-
b.jörn Guðmundsson og Ágúst
Svavarsson. Það kom gremilega í
l.jós hve okkur vantar þá Ölaf H.
Jónsson og Axel Axelsson. Eins
og áður sagði léku Tékkar vörn-
ina framarlega, komu vel út á
móti, og íslenzku leikmennirnir
höfðu ekki bolmagn til að komast
í þær eyður sem sköpuðust.
Ölafur hefði þá vafalítið reynzt
dr.júgúr á línunni ásamt Björgvin
og illilega vantaði okkur leik-
menn til að gefa á línuna — já,
íslenzka liðið saknaði þeirra
félaga.
Nú, en þrátt fyrir tap var margt
gleðilegt. Síðari hálfleikur ís-
lenzka liðsins var stórvel leikinn.
— Ölafur Benediktsson var
hreint frábær í markinu — Geir
Hallsteinsson stjórnaði spilinu
mjög vel — knötturinn gekk
hratt, og iðulega kom íslenzka
liðið Tékkum á óvart með hröðum
skyndisóknum sem opnuðu illa
vörn Tékkanna. Þeir Geir Hall-
steinsson og Björgvin Björgvins-
son báru af og Ólafur Einarsson í
upphafi leiksins. Björgvin hafði
100% nýtingu, fékk þrjú tækifæri
á línunni — skoraði úr öllum og
fiskaði 1 vítakast eftir sendingu
frá Ölafi Einarssyni. Jón Karlsson
var öryggið uppmálað í vítaköst-
um en því miður nýttist hann
ekki nógu vel í sókninni.
Þeir Ágúst Svavarsson og Þor-
björn Guðmundsson — hetjurnar
frá fyrri leiknum — náðu sér ekki
á strik í gærkvöld. Ágúst náði
ekki að rifa sig upp og skjóta —
þó komst hann einu sinni eða
tvisvar upp í fyrri hálfleik án
þess að skjóta — hann hefur
sannað að það er óþarfi að vera
ragur, hann getur skorað með
þrumuskotum.
allan tímann. Tékkar skoruðu
fyrsta mark leiksins en Geir Hall-
steinsson svaraði með glæsilegu
langskoti. Islenzka liðið komst í
fyrsta sinn yfir á 26. minútu
þegar Björgvin skoraði glæsilega
af línu og staðan í leikhléi var 9-8
íslandi í vil.
Það voru því miklar vonir
bundnar við íslenzka liðið í síðari
hálfleik eftir oft stórskemmti-
legar sóknarlotur fyrri hálfleiks
— en því miður. Hroðaleg mistök
einstakra leikmanna komu í veg
fyrir sigur. Þegar 5 mínútur voru
liðnar af hálfleiknum var staðan
11-10 fyrir ísland og hroðalegur
kafli fylgdi: Tékkar skoruðu 6
mörk í röð og úrslit voru ráðin
þótt tækist að minnka muninn í
þrjú mörk — 14-17 — en allt var
um seinan.
Þrátt fyrir tap er ekki ástæða
til að örvænta — íslenzka liðið er í
örri framför og á meðan liðið er
enn í mótun, eins og það ber
raunar greinilega með sér, má
lítið útaf bera. íslenzkur sigur í
kvöld er fjarri því að vera fjar-
lægur draumur — maður hafði
alltaf á tilfinningunni í gærkvöld
að íslenzka liðið væri sízt lakara.
h halls.
Við verðum að
sigra íkvöld
— Við verðum að vinna þá í
kvöld, sagði Janusz Czerwinsky,
landsliðsþjálfari ísiendinga og
kreppti hnefann, eftir tap gegn
Tékkum i gærkvöld 14-17. Þrátt
fyrir tapið lá alls ekki illa á lands-
liðsþjálfaranum — greinilegt að
hann er ánægður með framfarir
íslenzka liðsins.
— Útispilarar okkar brugðust í
leiknum, sagði Janusz. Þeir
keyrðu allt of mikið inn í vörnina
án nokkurs sjáaniegs árangurs,
fengu aðeins dæmd aukaköst.
Knötturinn var alls ekki látinn
ganga nógu hratt — leikmenn
héldu knettinum of mikið og nið-
urstungur voru of tíðar einmitt
gagnstætt því sem var í síðari
leiknum gegn Póllandi. Við feng-
um því ekki nóg af tækifærum
inn á miðjuna, heldur í hornuni
um, sem ekki gáfu mörk.
Já, því miður, hélt Janusz
áfram — því miður fóru allt of
mörg mörk í súginn. Fjórum
sinnum gáfum við beiniínis Tékk-
um mörk — vorum með knöttinn
en sendum hann í hendurnar á
Tékkum sem brunuðu upp og
skoruðu. Siíkt má alls ekki gerast.
Vörnin hjá okkur kom vel út en
við söknuðum þeirra Axels og
Ólafs — þó ef til vill mest í vörn-
inni. Björgvin Björgvinsson skil-
aði mjög vel því hlutverki sem
Ólafur hefur haft og þar sem úti-
spilarar okkar brugðust svona þá
söknuðum við Axels.
En ég er alls ekki óánægður
með ieikinn þrátt fyrir stór mis-
tök — framfarirnar eru óumræði-
legar.
Hoffman
endurheimti
EM-titilinn
Jan Hoffman frá Austur-
Þýzkalandi varð Evrópumeistari í
iisthlaupi á skautum á Evrópu-
meistaramótinu í Ilelsinki.
Hoffman sýndi mikið öryggi en
Vladimir Kovalev — sem var í
forustu eftir fyrri daginn — datt
og virtist óöruggur eftir fallið.
Hann hafnaði þó í öðru sæti.
Þriðji varð kornungur Breti,
Robin Cousins, sem sýndi geysi-
lega hæfni i frjálsu æfingunum
en Bretar binda miklar vonir við
að hann taki við merki John
Curry.
Hoffman varð Evrópumeistari
og heimsmeistari 1974 — en
missti titlana til John Curry, sem
nú hefur dregið sig í hlé.
Sundmót KR
Sundmót KR verður haldið i
Sundhöll Reykjavíkur miðviku-
daginn 2. febrúar kl. 20.30. Keppt
verður í 10 greinum og eru þær
400 metra skriðsund karla — en
það er bikarsund, 100 metra
skriðsund kvenna — bikarsund,
100 metra bringusund karla, 100
metra bringusund kvenna, 200
metra fjórsund karla, 100 metra
baksund kvenna, 100 metra bak-
sund drengjalOára ogyngri og 50
metra flugsund telpna 14 ára og
yngri. Loks verður keppt í boð-
sundum, 4x100 metra skriðsundi
karla og 4x100 metra skriðsundi
kvenna.
Þátttökutiikynningum skal
skila fyrir mánudagskvöld í
Sundlaug vesturbæjar — þátt-
tökugjald er 100 krónur.
Innanfélags-
mót Bjarkar
Innanfélagsinót fimleikafélags-
ins Bjarkar verður haldið í
Íþróttahúsi Hafnarfjarðar við
Strandgötu, laugardaginn 29. jan.
’77. Keppt verður í f jórum aldurs-
flokkum samkvæmt fimleikastig-
anum í 1.—12. þrepi. Einnig
verður tvisláin kynnt og er það í
f.vrsta skipti sem hún verður
notuð opinberlega í þessu húsi.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
LEIKURINN ÍTÖLUM
Geir
Þorhjörn
Agúst
Ól. Ein.
Björgvin
Þórarinn
Jón Karlss.
Viðar Sim.
Viggó
mörk
2
1
0
1
3
(I
6
1
0
skot
6
1
4
3
3
1
7
2
1
1
bolta
tapaö
1
2
1
1
1
feng.
viti
1
Sjö sinnum misstu isienzku leikmennirnir knöttinn klaufa-
lega og vfirleitt skoruðu Tékkarnir þá úr hraðupphlaupum. Geir
einu sinni röng sending — Þorbjörn tvisvar — Agúst 1, Ólafur
Einarsson, Viðar og Þórarinn, ein sending hver. Ölafur Bene-
diktsson varði mark tslands af stakri prýði — sérstaklega i fyrri
hálfleik. Iðulega var hann einn i siðari hálfleik er Tékkar
brunuðu upp. Ólafur varði 14 skot — 9 langskot. 1 línuskot —
tvívegis víti og tvívegis úr hraðaupphlaupi.