Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 28.01.1977, Qupperneq 11

Dagblaðið - 28.01.1977, Qupperneq 11
11 'JAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1977 Það hefur hins vegar ekki verið gert. I stað þess hefur Thiry nú verið dæmdur til dauða í sex Afríkuríkjum að honum fjar- verandi. Flugvél hans, sem er af DC-4 gerð, var tekin löghaldi í Nigeríu og enda þótt lagt hafi verið hart að Giscard d’Estaing, hefur hann ekki viljað fara fram á að henni verði skilað. Gísl keypt frelsi Francois Claustre-málið hófst í litlu þorpi i Tibesti- eyðimörkinni 21. apríl 1974. Uppreisnarmenn af Toubous- kynflokki réðust að næturlagi að tveimur húsum og tóku fjóra gísla, Claustre, aðstoðarmann hennar og v-þýzk læknishjón. Eiginkona læknisins lét lífið skömmu siðar, en franska vís- indamanninum tókst að flýja. V-Þjóðverjar keyptu þjóð- félagsþegni sínum frelsi fyrir sem svarar 150 milljónum króna og bökuðu sér þar með óvild stjórnar Chad. Maloum hershöfðingi sleit stjórnmála- sambandi við Bonn. Vegna hernaðar- og efna- hagssjónarmiða hikuðu Frakkar við að krefjast þess að Claustre yrði látin laus. Maloum hershöfðingi hafði hótað að leggja hald á her- stöðvar Frakka þar í landi ef franska stjórnin reyndi að semja beint við uppreisnar- mennina en ekki við ríkis- stjórnina. Sjálfur segir Thiry, að ekki hefði verið gert mikið í þessu máli af hálfu Frakka, ef honum hefði ekki tekizt að ná blaða- mönnunum með sér eftir fyrstu flugferðina. Þeir höfðu farið til Chad er málinu hafði fyrst verið hreyft. Þar hittu þeir.fyrir eiginmann- inn, Pierre Claustre, sem nú vann að því að kaupa vopn fyrir skæruliðana fyfir þá peninga, sem þeir höfðu fengið fyrir v- þýzka lækninn. Hann tók þá með sér að búðum uppreisnar- mannanna, en er þeir neituðu að láta Francoise lausa, kom hann því þannig fyrir, að blaða- mennirnir voru kyrrsettir. Blaðamenn kyrrsettir t hópi blaðamannanna var Marie-laure de Decker, einn uppáhaldsblaðamaður forset- ans og þar með fóru hjólin að snúast. En ekki vegna Fran- coise Claustre, heldur vegna foreldra blaðakonunnar, sem höfðu hótað franska forsetan- um að leggja á borðið hneyksl- anlegar sögur um hann, ef ekki yrði gert eitthvað í málinu. „Pierre Claustre hafði sam- band við mig,“ segir Raymond Thiry. „Hann átti allt í.einu peninga til þess að kaupa vopn og ég flaug til Ghana þar sem vopnunum var hlaðið um borð. Síðan flaug ég sem leið lá inn í Tibesti-eyðimörkina yfir sex Afríkuríki, sem nú hafa kveðið upp dauðadóm yfir mér. Eftir að ég var lentur þar og vopnun- um hafði verið skilað, komu blaðamennirnir um borð.“ Síðan var flugvélinni snúið til Ghana á ný, en Thiry varð að lenda í Nígeríu vegna vélarbil- unar. Þar voru allir sem með flugvélinni voru settir í varð- hald, en það var fyrst og fremst fyrir atbeina de Decker blaða- konu og sambands hennar við d’Estaing, að þau voru öll látin laus. „Þegar heim kom, skildist mér fyrst að ég hafði einungis átt að ná í blaðamennina og þá sérstaklega þessa vinkonu for- setans. Fanginn í eyðimörkinni skipti engu máli.“ Innan skamms kemur út bók um þetta mál í Frakklandi, sem talin er geta haft mikil áhrif í kosningabaráttunni. J Kjallari á föstudegn Að vemda gömul hús — Að dýrka fegurðina andi húsnæði. Kannske ekki ýkja mörg, en dæmi samt. Slíkt er auðvitað ófært og gegn því ber að spyrna. Af hagkvæmnisástæðum höf- um við byggt stór steinsteypt hús. Þau hafa risið út um allt, mynda nánast borgir eins og til dæmis í Breiðholti I Reykjavík. Þetta voru auðvitað nauðsyn- legar framkvæmdir á sínum tíma og leystu vandamál margra. En þegar frumvanda- ■mál hafa verið leyst þá taka önnur vandamál við, þá koma ný sjónarmið fram og leysa hin eldri af hólmi. Og nákvæmlega það er að gerast. Við höfum efni, þrátt fyrir allt, á því að huga meira að manneskjunni sjálfri en við höfum gert um langa hríð. Þáttur í þessum viðhorfum er löngunin til þess að varðveita það sem gamalt er og elskulegt — ef við höfum efni á því. Stórum hluta nýrrar kynslóðar þykir slíkt eftirsóknarvert. t Reykjavík og víðar eru heil hverfi sem samanstanda af gömlum húsum. Efalítið má reikna út að það borgi sig að rifa þau og byggja blokkir í staðinn. En hvað þýddi það? Samkvæmt þessu gildismati, sem í senn er gamalt og nýtt, þýddi það einfaldlega að hverf- in yrðu fátæklegri, að mannlíf- ið yrði fátæklegra. Ef einhverj- um finnst að gömul hús hafi sál, þá hafa þau sál, og hvorki Guðmundur J. eða heil steypi- stöð getur svipt viðkomandi þefirri hugmynd eða þeirri ánægju. Það má auðvitað deila um einstök hús eins og gengur, en þegar allt er lagt saman þá þjónar það menningarlegum tilgangi að spyrna við fótum, þegar gamalt skal rifið og steypt í staðinn. Enda hafa fjölmargir skilið þetta. í Arbæjarsafni ofan við Reykjavik stendur yfir sköpun á ævintýraheimi. Komandi kyn- slóðir fá aldrei fullþakkað það starf, sem þar hefur verið unn- ið. Gegn streitusamfélagi I samfélagi okkar er mikið unnið. Jafnvel svo að hjá mörgu fólki, einkum ungu fólki sem er að byggja yfir sig eða á annan hátt að koma sér fyrir I samfélaginu, skipar vinnan óeðlilega háan sess, hærri sess en þetta fólk raunverulega vill sjálft, en telur samt nauðsyn- legt. Árum saman sér fjöldi fólks vart til sólar — nema þá i örfáar vikur á Spáni eða Kanarí. Auðvitað er þetta spurning um lífsstíl og slíkt hlýtur alltaf að vera ein- staklingsbundið. Getur ekki verið að stærri hluti samfélagsins hafi efni á því að neyta minna, en njóta meira? Getur ekki einmitt ver- ið að allt of stór hópur nýrrar kynslóðar sækist eftir innan- tómum verðmætum, lifi of hratt? Einhvern veginn hef ég grun um að slíkt eigi við í allt of mörgum tilfellum. Og ef svo er, þá er það hryggilegt. Óskin um umhverfisvernd, græna byltingu, húsvernd, vyrnd heilla hverfa sem Það er eðli tímans að hann líður. Sérhver dagur á sér gær- dag sem er að baki og kemur aldrei aftur. Allt streymir fram — endalaust. Sumir þættir til- verunnar eru I stöðugri fram- þróun, vísindalegar uppgötvan- ir eru gerðar nærfellt á hverj- um degi. I þeim efnum verður framtíðin stöðugt mikilfeng- legri; fortíðin stöðugt fátæk- legri. Aðrir þættir tilverunnar eru samt þannig, og guði sé lof og þökk, að mitt I framförunum kunnum við að verða fátækari. Ef núkynslóðin les minna af ljóðum og fagurbókmenntum en næsta kynslóð á undan, þá er hún þeim þætti fátækari: stórum fátækari. Sú kynslóð, sem þykir umhverfi sitt ljótt er stórum fátækari en hin, sem þótti umhverfi sitt fagurt og þeir gjarnan. Þó þetta skipti auðvitað engu máli, þá eru þetta kostulega forneskjuleg sjónarmið. Hvað um það. Guðjón Frið- riksson, blaðamaður, og Guð- mundur J. Guðmundsson, verkalýðsleiðtogi, voru ósam- mála um gömul hús. Þarna rákust á tvö sjónarmið kannske tveggja kynslóða. Ég dreg ekki dul á hversu innilega ég sympatísera með sjónarmiðum blaðamannsins. Sjónarmiðum augans, sjónarmiðum fegurðar- innar, sem fram eru sett gegnt sjónarmiðum hins hagnýta. Sérhver maður er auðvitað barn sinnar kynslóðar, sjón- deildarhringurinn auðvitað misjafnlega víður eins og geng- ur. Að vísu er það rétt, að enn eru þess dæmi í samfélaginu að fólk býr í gersamlega óviðun- tilheyra gamalli tíð er þó leit að hinu gagnstæða. Sú ósk er bón um rómantískara samfélag, innihaldsrikara mannlíf. Kannske hæggengara mannllf, en fegurra. Þvl þyki einum gamalt hús fallegt, þá er það fallegt — I augum hans. Séu fleiri á þessari skoðun, þá rétt- lætir það að halda i. Allt í kringum okkur er svelt- andi heimur. Slíkt getur engan glatt. Það er beinlinis skylda okkar að reyna að leggja okkar af mörkum til þess að lækna annarra sár útí stórum heimi. Og heima getum við farið okkur hægar, við getum fundið nýjar áherzlur, nýtt gildismat. Mannlíf þar sem minna er unnið og meira notið; gömul hús með sálum, allt hangir þetta saman í einni mynd, einni framtíðarsýn, sem kannske er heillandi. Almennt og yfirleitt: Hagvöxt má mæla en hamingju ekki. Það er eðlilegur gangur sögunnar að kynslóðir sem koma hafi önnur áhugamál, annað gildismat, en kynslóðir sem fara. Þeir sem aldir hafa verið upp við efnalega fátækt, kannske efnalega örbirgð, eiga sér það eðlilega að fyrsta áhugamáli að berjast gegn fátækt og neyð í öllum þeirra myndum: að byggja börnum sínum efnaðra og jafnara sam- félag. Yngri kynslóð, sem þekk- ir ekki fátækt í sama skilningi, hefur þess vegna og eðlilega ekki sama áhuga á efnahags- málum; hún tekur upp ný áhugamál. Þetta er sögunnar rás og hvort tveggja: eðlileg og skiljanleg. Tvö sjónarmið í Þjóðvilja Fyrir nokkrum dögum varð skoðanaágreiningur tveggja manna — kannske tveKeia kyn- slóða — í blaðaskriíum i Þjóð- viljanum. í framhjáhlaupi má kannske koma því að að það er svolítið kostulegur siður hjá kommum (í góðlátlegu merk- ingunni) þessa lands, að þegar þeir verða ósammála um eitt- hvað, sem raunar gerist ekki nema stöku sinnum, þá virðast þeir hafa afskaplega mikið fyr- ir því. Því fylgja afsökunar- beiðnir í bak og fyrir og ein- hver einkennileg sjálfsaðdáun: Eg ætla að leyfa mér að vera á móti skoðun sem fram hefur verið sett í Þjóðviljanum, segja Knœpur, kaffihús og önnur herlegheit í Grjótaþorpinu í Reykjavík eru gömul hús og glæsileg sem gera má upp, og gera jafnvel enn glæsilegri en þau voru nokkru sinni. Þarna má setja upp kaffihús, aðseturstaði lista- manna og annarra slíkra áhuga- manna; þarna mætti hugsa sér sýningar, jafnvel hljóðfæra- slátt. Ef bjór yrði leyfður — sem vonandi verður sem fyrst — gætu þarna risið knæpur. Það eru fordómar að halda að knæpur þurfi endilega að vera sóðalegar eða gróðrarstía ólifnaðar — slíkt yrði aldrei öðru vísi en þverskurður fólksins sem sækti þær. Svona nokkuð gæti auðveld- lega gerzt víðar hér í borginni, og annars staðar á landinu, að minnsta kosti í stærri kaupstöð- um, þar sem áhugi kynni að vera fyrir hendi. Slík hús, slík hverfi, gætu orðið eins konar hæggengar vinjar í hraðgengu samfélagi. Vinjar þar sem fólkið kæmist inn í annars konar veröld. Ekk- ert af þessu kann að vera hag- nýtt, en ef það yrði einhverjum ánægjuauki er það vel þess virði. Svolítið minna af streitu og svolítið meira af rómantik gerir samfélagið aldrei verra en það gæti gert það svolítið betra, það gæti verið spor mót fegurri framtíð, mót fegurra mannlífi. Vilmundur Gylfason ekki ýkja hagnýt, en rómantísk, ef við barasta viljum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.