Dagblaðið - 24.03.1977, Síða 1

Dagblaðið - 24.03.1977, Síða 1
\ frialst, áháð dagblaú 3. ARG. — FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977 — 70. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12, SÍMl 8332S. AUGLYSINGAR OG AFGTREIÐSLA<. ÞVERHOLTI 2, SIMI 27022. 34 ára kona lézt eftir átök á heimili sínu Hjónín voru ein heima og er eiginmaðurinn ígæzlu lögreglunnar Tæplega fimmtugur maður er nú í haldi hjá lögreglunni vegna dauða eiginkonu hans. Atburður sá, er talið er að kunni að hafa leitt til dauða konunnar, sem var 34 ára göm- ul, gerðist að heimili þeirra hjóna við Sölheima í Reykjavík í nótt. Klukkan rúmlega fjögur i nótt var lögregiunni gert við- vart. Þegar hún kom á vettvang var konan látið. Er talið að hún hafi látizt nokkru fyrr en hringt var. Líklegt er talið að til átaka hafi komið á milli hjónanna en þau voru ein heima í ibúð sinni. Öhætt er að gera ráð fyrir því, að maðurinn hafi neytt áfengis og verið drukkinn. Hafði reynzt erfiðleikum bundið að yfir- heyra hann um atburð þennan, þegar síðast var vitað, vegna áfengisneyzlu. Sennilegt er að konán hafi látizt af völdum barsmíða sem hún hefur orðið fyrir af hendi eiginmanns síns. Rétt er að, taka fram að krufning hefur ekki farið fram, sem staðfesti dánarorsök. Rannsóknarlögreglan varðist í morgun allra frétta af þessu óhugnanlega máli, enda rann- sókn á frumstigi. -BS/GS Séra Gunnþór kjörinn Atkvæði voru talin í prestskosningunum í Hafnar- firði á skrifstofu biskups í morgun. I Hafnarfjarðarprestakalli hlaut sr. Gunnþór Ingason 1467 atkvæði en sr. Auður Eir 950 atkvæði. Sr. Gunnþór hlaut því lögmæta kosningu. Á kjörskrá voru 3565. Alls kusu 2465. Auðir seðlar voru 35 og 13 ógildir. í Víðistaðasókn voru 2112 á kjörskrá og kusu tæplega 50%. Sr. Sigurður Guðmundsson var einn í kjöri. -ASt. JtsH* SKJALFTUM FJOLGAR „Síðasta sólarhring voru skjálftar 134 og líklegt er að fjöld- inn verði svipaður þennan sólar- hring,“ sagði Einar Svavarsson jarðfræðinemi, í samtali við DB. Hann var á skjálftavaktinni í Reynihlið í morgun. Um níuleytið í morgun voru skjálftar orðnir 101. Nokkur aukning hefur orðið á stærri skjálftum. Þeir voru 13 siðasta sólarhring. Einn var 2,8 á Richter. Stöðvarhúsið rís hægt. Hreyf- ingarnar eru mjög óreglulegar undanfarið. „Það er engu hægt að spá um hvað eða hvort eitthvað gerist bráðlega,“ sagði Einar. Skjálftum fer nú fjölgandi á nýjan leik en landrisið er ekki eins mikið og áður. -KP „Ha, bldm handa mér...” „Ha, blóm handa mér!“ gæti Pétur Östlund hafa hrópað þegar Rúnar Marvinsson hjá Klúbb 32 afhenti honum blóni- vönd við komuna til Keflavikur. ___bðkSi'ðd DAGINN FARIÐ AÐ LENGJA - ÁFRAMHALD Á GÓÐ A VEÐRINU Nú er daginn farið að lengja þannig að menn vakna nú upp í björtu, jafnvel hinir mestú morgunhanar. f morgun kom sólin upp í Reykjavík kl. 7.15. Veður hefur leikið við íbúa suðvestur- hornsins og svo sem ekki verið amalegt í öðrum landshlutum heldur. í dag verður áfram gott veður í höfuðborginni, hitinn 2—5 stig, en búast má við örlitlu næturfrosti í nótt. Það verður tilvalið veður til þess að dorga af bryggjunni í dag — en gleymið ekki að klæða unga krakka í björgunarvesti ef þeir eru að leik niðri á höfn. — A.Bj./Db-mynd Hörður Vilhjálmsson. Skoðanakönnun Dagblaðsins: > Yfirgnæfandi meirihluti andvígur hunda■ haldi íþéttbýli -sjábiaðsíðus

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.