Dagblaðið - 24.03.1977, Page 2

Dagblaðið - 24.03.1977, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977. Er hagsýni gætt með almannafé? — Sýslumannsembættið í Borgarnesi flytur ídýrara húsnæði Jcnni R. Ólason, Borgarnesi skrifar: Um síðustu mánaðamót flutti sýslumannsembættið í Borgar- nesi starfsemi sína í nýinn- réttað leiguhúsnæði að Borgar- braut 61 hér í bæ. Áður hafði sýsluskrifstofan um langt árabil verið í leigu- húsnæði að Skúlagötu 13. Hið nýja húsnæði er lítið eitt rýmra en eldra húsnæðið, en sá ávinningur er þó óverulegur, einkum þegar tekið er tillit til þess að fyrir dyrum stendur að byggja nýtt hús yfir embættið þannig að hér er aðeins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða. Húsnæðið að Borgarbraut 61 er eign Jóns Kr. Guðmunds- sonar, pípulagningameistara og hefur henn rekið þarna verk- stæði vegna starfs slns. Óneitanlega er það dálítið dapurlegt I vaxandi iðnaðarbæ eins og Borgarnesi, að iðnaðar- húsnæði skuli með þessum hætti vera lagt undir skrif- stofuhald. Það minnir okkur reyndar á að þetta þjóðfélag okkar virðist stefna hraðfara í þá átt að fást helst eingöngu við skriffinnsku og þjónustu og traust ýmissa ráðamanna á þeim atvinnuveg- um sem borið hafa uppi tilveru landsmanna um aldir sýnist ekki lengur vera upp á marga fiska. Annars er forsaga þessara búferlaflutninga sýslumanns- embættisins I stórum dráttum sú, að á siðasta ári höfðaði eig- andi húsnæðisins að Skúlagötu 13, Bragi Jóhannsson, mál til ógildingar á leigusamningi við embættið. Þessi leigusamning- ur var til fimm ára og átti að renna út á miðju ári 1978. Samningurinn var I upphafi bundinn vísitöluákvæði þannig að leiga skyldi hækka í sam- ræmi við vísitölu skrifstofuhús- næðis. Snemma á leigutímabil- inu voru svo sett verð- stöðvunarlög sem sviptu eig- andann rétti til hækkunar á leigu á sama tíma og allur til- kostnaður, þar á meðal gjöld til hins opinbera hafa hækkað í takt við óðaverðbölguna sem OECD lýsti nýlega að ríkis- stjórn íslands notaði sem hag- stjórnartæki. Ailir menn með óbrenglaða réttlætisvitund hljóta að sjá að í því er hvorki réttlæti né sæmi- legt siðferði þegar ríkisvaldið gerir samninga af þessu tagi við einstaka þegna og beitir síðan löggjafarvaldinu til að svipta þá réttindum, jafnframt því. sem það áskilur sér allan þann rétt sem um var samið. Þessu vildi húseigandinn ekki una og þegar ljóst var orðið að hann mundi á leigutím- anum tapa hundruðum þúsunda króna miðað við það sem í upphafi var samið um, höfðaði hann eins og áður segir mál til ógildingar samningnum. Kröfu sína byggði hann aðal- lega á þeirri röskun á högum sínum sem orðið hefði vegna verðstöðvunarlaganna, en til vara á nokkrum vanskilum sem orðið höfðu á greiðslu leigu af hálfu embættisins. Nokkrar sviptingar urðu í málinu meðan það var í með- ferð dómstóla, t.d. var Braga neitað um hækkun á leigu sem verðlagsnefnd heimilaði á miðju sumri 1976. Sú afstaða breyttist þó og var hækkunin greidd I nóvember sama ár. Skemmst er svo frá því að segja að seint í desember sl. kvað Þorsteinn Thorarensen, en hann var dómari í máli þessu, upp þann dóm að húseig- anda skyldi heimilt að láta bera sýslumannsembættið út og málskostnaður kr. 80.000.00 féll á embættið. Húseigandinn hafði hins vegar aldrei ætlað sér að reka embættið út á gaddinn, heldur aðeins losa sig frá samningi sem orðinn var óviðunandi vegna aðgerða ríkisvaldsins og í samræmi við það bauð hann því embættinu þegar í stað áfram- haldandi leigú á eðlilegum kjörum. Þessu boði var þegar í stað hafnað fyrir hönd embættisins og máiinu jafnframt áfrýjað til Hæstaréttar. Nú skyldu menn ætla ad áfrýjað hafi verið til að rétt- lætið næði örugglega fram að ganga og leigusamningurinn þá væntanlega látinn gilda fram á mitt ár 1978 eins og uppruna- lega var gert ráð fyrir en nú tóku jafnfrámt að gerast övæntir hlutir. Embættið tók sem sé á leigu annað húsnæði fyrir mun hærra leigugjald.eða í sam- ræmi við núgildandi vísitölu. Jafnframt því greiðir það nýja innréttingu sem kostar sam- kvæmt varlegri áætlun nálægt tveim milljónum króna. Húsa- leigan er nú þess utan greidd fyrirfram, eitt ár í senn en var áður greidd mánaðarlega. BÆJARFOGETINN 0G BRUGGH) HANS Atli Rafn Eyþórsson skrifar: Ég er hundavinur mikill og mótmæli því harðlega skotgleði Kópavogslögreglunnar. Bæjar- fógetinn talar um brugg í grein sem hann nefnir Athugasemd að gefnu tilefni. Hann segir: „Ég hef heldur ekki gefið lög- regluliðinu fyrirmæli um að færa bruggurum brugg sem þeir kynnu að hafa týnt á al- mannafæri." Ég spyr nú bara: Hvað meinar maðurinn eigin- lega? Svala þeir kannski skot- gleði sinni á bruggkútum sem þeir finna i hrjáðum Kópavogs- bæ? En það var enginn að tala um dauða hluti.Hér er um að ræða lifandi veru. Það virðingarleysi sem eigendum hennar var sýnt finnst mér til háborinnar skammar. Sá maður sem stóð fyrir því að hundurinn var skotinn er engan veginn hæfur í sitt starf. Honum ætti að vera vikið úr starfi meðan á rann- sókn stendur, eins og dæmi eru til um. Bæjarfógeti segir ennfremur að hundahald sé bannað með lögum, Gott og vel, en stendur það einhvers staðar að alla þá hunda sem stíga á Kópavogs- grund eigi að skjóta tafarlaust án þess að vitja um eiganda og einnig ef um er að ræða merkt- an hund? Vert er að íhuga hvort þarna er nægilegrar hagsýni gætt i meðferð á almannafé. Um leið og húsnæðið að Skúlagötu 13 var rýmt var hús- eigandanum tilkynnt að greiðsla leigu felli þar með; niður. Málið er þó í fullum gangi fyrir Hæstarétti og vekur þessi meðferð þess því nokkra furðu, einkum ef svo kynni nú að fara að embættið ynni málið þar. Það er því sérstök ástæða til að fylgjast vel með lyktum þess íHæstarétti. Því er þetta mál rakið hér að það vekur mann til umhugs- unar um hvernig er orðið háttað samskiptum ríkisvalds- ins og þegnanna. Sannleikur- inn er sá, eins og meðal annars kemur ljóslega fram í þessu dæmi, að einstaklingar eiga nánast aðeins fræðilegan möguleika á að ná rétti sínum gagnvart kerfinu. Þetta kemur fram á mörgum sviðum og ágerist sífellt eftir þvi sem kerfið verður óper- sónulegra og dauðar tölvur taka sífellt við stærra hlutverki lifandi manna með eðlilegar til- finningar gagnvart öðru fólki. Við svo búið má með engu móti standa. Það er skylda stjórnmála- manna okkar þeirra sem sitja á Alþingi að grípa í taumana áður en allt er um seinan. Ef þeim tekst að snúa þessari óheillaþróun við er vel að verki staðið og þá mun þeim lika fyrirgefast margt sem þeim hefur áður farið miðlungi vel úr hendi. Lífgum upp á miðbæinn með músik um helgar, segir bréfritari. Fáum tónlist á Torgið iim helgar Ein giöð yfir góða veðrinu hafði samband: Ég er nú ein af þeim sem alltaf vinna á daginn, innilokuð á sama stað frá morgni til kvölds. Nú brá ég mér í hádeg- inu niður á Lækjartorg og hví- lík upplyfting! Sólin kemur nú öllum í svo gott skap og þarna var ys og þys, allir að spóka sig í góða veðrinu og tónlistin úr nærliggjandi verzlunum lifgaði svo upp á andrúmsloftið að ég fékk eina ágætis hugmynd. Hvernig væri að hafa einhverja lifandi tónlist og eitthvað að — veðrið kemur manni ísvo gott skap gerast á Torginu um helgar fyrir 'þá sem bundnir eru i vinnu allan daginn? Manni finnst að yfirleitt rölti fólkið um með jarðarfararsvip og þori ekki að blanda geði hvert við annað. Það þyrfti að hressa upp á bæjarlífið með því að fá tónlistarmenn til að syngja og spila á Torginu á laugardögum og sunnudögum, þá mundu for- eldrarnir frekar fá sér göngu- túr í bænum með börnin, kann- ski skreppa inn á Hressó í kakó og kökur, gefa öndunum eða bara sleikja sólskinið. GENGISSKRANING OG KAUPGJALD — réttlátari tekjuskiptingu Flutt hefur verið á Alþingi frumvarp um lágmarkslaun. Flutningsmaður er Benedíkt Gröndal. Frumvarpið er gagn- merkt og ætti að leysa brýnustu vandamál launþega nú um sinn en verðbólgan æðir áfram svo að 100 þúsund króna lágmarks- laun, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, þyrftu að vera komin upp í 120 þúsund krónur nú með vorinu eins og ÁSÍ stjórn- in getlar sér. Slik er verðbólgan í landinu en við slikt má ekki una. Og hvað ber að gera? Jú, við stöndum frammi fyrir augljósri staðreynd. Hún er sú að við erum með fljótandi gengi krónunnar. Verðbólgan í land- inu er fljótandi gengi krónunn- ar. Þannig að fyrst hækkar vöruverð af því að krónan er fljótandi, síðan hækkar kaupið af þvi að vöruverð hækkaði og loks hækkar vöruverð af því að kaupið hækkaði. Sem sagt sam- verkandi aðgerðir 'en grunn- tónninn er fljótandi gengi krón- unnar. Verðbólga sem hægt ætti að snúast gegn, en Seðla- bankinn sem ákvarðar gengi krónunnar segir: Við erum I Efnahagsbandalagi Evrópu, sem þýðir að við verðum að taka þátt í samverkandi aðgerðum. EBE heimtar nefni- lega að við séum með aðgerðir er séu samverkandi Efnahags- bandalaginu. Sem sagt, Efna- hagsbandalagið ákvarðar og við verðum að hlýða. Og þá er stóra spurningin, er vera okkar i Efnahagsbandalaginu nauðsyn- leg? Að vísu eru markaðir okkar í Efnahagsbandalagslöndunum geysilega mikilvægir, svo sem Vestur-Þýzkaland og fleiri lönd. En hlýtur það ekki að vera krafa allra landsmanna að ná samkomulagi við EBE um hið fljótandi gengi krónunnar, svo búandi sé í landinu fyrir okkur öll. Nei, það verður að stöðva verðbólguna og Alþingi þarf að kippa í tauminn. Verka- lýðsfélögin segja frjálsa kjara- samninga en það sýnir sig að aldrei hefur verið eins að laun- þegum í landinu sorfið, þegar þingmenn sjá sig tilneydda að bera fram frumvarp eins og það sem Benedikt Gröndal hefur lagt fram. Nei, endarnir þurfa að ná saman og það verður ekki gert á lægri launum en 100 þús- undum á mánuði. Verkalýður og raunar allir launþegar í lándinu þurfa að vera sér þess meðvitandi að nú sé teflt til sigurs. Það þarf að nást algjör samstaða um kjara- málin, kauphækkunarprósent- una þarf að fastsetja og frá henni má ekki hvika. Einnig verður að fella inn í heildar- kröfugerðina önnur mál, svo sem launajafnrétti, orlof, vinnutíma og réttindi sem ekki falla beint undir kaupgjalds- kröfuna. Það er kominn tími til að verkalýðshreyfingin fái að njóta þess bata semorðið hefur í þjóðfélaginu og á ég þar alveg sérstaklega við batnandi við- skiptakjör við útlönd. Verka- lýðshreyfingn á ekki lengur að þurfa að heyjar varnarstríð. Hún á að leggja spilin á borðið og boða sókn og heimta aukna þátttöku í þjóðmálabaráttunni. Verkalýðurinn í landinu veit að nú má ekki missa af strætis- vagninum. Leggjumst á eitt svo sá sigur náist. Ég vil hvetja alla launþega til að hasla sér völl innan Alþýðuflokksins fyrir þessa sigurbaráttu. Hann verður stærri flokkur og þú nærð því að þjóðartekjunum sé réttilega skipt. Láttu það verða heiður þinn að kallast alþýðu- flokksmaður. Snobb eða brodd- borgaramennska er ekki við hæfi okkar alþýðuflokks- manna. Við viljum sannleikann í sjálfum þér á borðið. Sölumál úti í hinum stóra heimi eru mál málanna. Megi þau þróast svo að verkalýðurinn og raunar all- ir launþegar og öll þjóðin geti deiit geði innbyrðis sem sönn menningarþjóð. Frá réttlátri tekjuskiptingu má ekki hvarfla. Það er sjálf menning- in. Á vegum Alþýðuflokksins ertu nær þeirri sigurbaráttu. Megi Alþingi Islendinga verða skipað nær vitund þjóðar- sálarinnar. Það er krafa okkar í dag að svo verði. Steinarr Benediktsson.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.