Dagblaðið - 24.03.1977, Síða 4

Dagblaðið - 24.03.1977, Síða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977. ..... .... ' Sorp af Keflavíkurvelli meira en af öllum Suðurnesjum: Vamarliðið opnar nýjan ruslahaug utan girðingar —fellur þö innan leigunámssvæðis ríkisins. Sveitarfélögá Suðurnesjum vilja reisa sorpeyðingarstöð með aðild liðsins Þannig er farið að safnast fyrir á nýja haugnum sem opnaður var fyrir stuttu. DB-mynd: Hörður. „Við erum fyllilega meðvit- andi um sorpvandamálið á Keflavikurflugvelli og hefur sá vandi blandast inn í viðráeður sveitarfélaga á Suðurnesjum um byggingu sameiginlegrar sorpeyðingarstöðvar með þeim afleiðingum að hún er ekki enn risin þrátt fyrir 3ja ára við- ræður um málið,“ sagði Alfreð Alfreðsson sveitarstjóri í Sand- gerði í viðtali við DB í gær. Haft var samband við Alfreð eftir að blaðamaður og ljós- myndari höfðu kynnt sér þessi mál í fyradag og var hann spurður hvort nálæg sveitarfé- lög reyndu ekki að beita ein- hverjum þrýstingi í ljósi hins óhugnanlega ástands. Sem fyrr segir hefur hluti sveitarstjórnarmanna á Suður- nesjum viljað byggja eina sam- eiginlega sorpeyðingarstöð með aðild varnarliðsins. Að sögn Al- freðs hafa yfirmenn þar sýnt nokkurn skilning en borið við að langan tíma taki að fá fjár- veitingu til þess háttar þar sem hún þurfi að ganga í gegnum fjárveitinganefnd Bandaríkja- þings. Hefur því dregizt á lang- inn að sveitarfélögin gerðu eitt- hvað sjálf. Skv. mælingu á sorpi á Suðurnesjum fyrir tveim árum kom í ljós að sorp frá vellinum var heldur meira en frá öllum Suðurnesjunum. Því taldi Al- freð eðlilegt að varnarliðið greiddi ríflega helming stofn- kostnaðar. Fyrir um tveimur árum kusu sveitarstjórnarmenn þá Alfreð og bæjarstjórann í Keflavík til að ganga á fund utanríkisráð- herra og ræða þessi mál í þeirri von að hann gæti beitt áhrifum sínum til að flýta þátttöku varnarliðsins í málinu. Ráð- herra tók þeim vel en síðan hefur ekkert heyrzt, að sögn Alfreðs. Alfreð tók fram að einn hæstsetti yfirmaður liðs- ins nú, væri mjög jákvæður i þessu máli og hefði lýst áhuga á varanlegri lausn, þótt málið yrði ekki leyst á einum degi. Hefur hann átt viðræður við sveitarstjórnarmenn. Það nýjasta í sorphaugamál- um varnarliðsins er að nú hefur verið opnaður nýr haug- ur, eða haugstæði, þar sem ófremdarástand ríkir á því fyrra. Er beygt til nýja haugs- ins skammt sunnan við afleggj- arann til neðansjávarhlustun- arstöðvarinnar Dive Five. Er hann utan flugvallargirðingar- innar en þó innan þess svæðis sem ríkið tók á sínum tíma leigunámi undir völlinn og her- stöðina. -G.S. Þetta er leiðin að nýjasta ruslahaug varnarliðsins og iiggur vegurinn út um girðinguna og fram af smáhæð sem haugurinn er á bakvið. DB-mynd: Hörður. 1 Þar sem umhverfisvernd og snyrtimennska hafa gleymzt — DB kannar slatta af ruslahaugum á Kef lavíkurf lugvelli Hólar og hæðir af sorpi og aftur sorpi. Lág girðing er umhverfis þannig að bréfarusl á greiðan útgang út fyrir í minnstu golu. Þessir haugar eru í 200 metra fjarlægð frá svefnskálum Islenzkra aðal- verktaka og veldur fnykur og reykur frá haugnum oft vandræðum og óþægindum þar. DB-mynd: Hörður. Það er öldungis ótrúleg óvirðing við umhverfið og snyrtimennsku yfirleitt sem blasir við á Keflavíkurflugvelli ef aðeins er farið út fyrir þá alfaraleið sem liggur milli flug- stöðvarinnar og aðalhliðsins og gjarnan er kölluð andlit Vallar- ins. Á innan við kílómetra spotta mátti telja sex hauga, en þar af voru tveir minniháttar. Voru þeir þó til óprýði og sóðalegt umhverfis. Tveir haugar fund- ust annars staðar. Sé beygt til vinstri, nokkur hundruð metrum eftir að komið er í gegnum aðalhliðið, blasir við haugur nokkur hundruð tómra asfalttunna og eru þær mismunandi ryðgaðar eða tjöruataðar eftir aldri Munu íslenzkir aðalverktakar eiga þennan haug og annan smærri skammt frá. Sá samanstendur aðallega af sundurryðguðum tunnum. Áður en lengra er haldið skal það tekið fram að þetta fyrirtæki hefur þó sýnt árangursríka viðleitni við að snyrta umhverfi vinnu- og íbúa- skálasinna. Skammt austan haugs nr. 2 er svo amerísk-íslenzkur haug-. ur, margfalt stærri en þeir fyrri, sennilega um tveir hekt- arar. Þar er svokallað port Sölunefndar varnarliðséigna og mátti þar m.a. sjá áratuga gamla og sundurryðgaða bíla og vélar auk hverskyns torkenni- legra hrúgalda annarrra. Þar þarf nýi forstjóri Sölunefndar- innar að taka til höndunum. Skammt þar suður af, svo sem 50 til 70 metrum frá, er svo annar haugur, eiginlega tví- skiptur í spýtna- og járnahaug. Þann haug og nokkurt brak um- hverfis eiga Islenzkir Aðalverk- takar. Sýnast þeir þó hafa sýnt einhvern lit við að hrauka draslinu saman. Eftir ríflega 300 metra akst- ur þaðan er svo komið á aðal- sorphaug varnarliðsins sem er, nokkur þúsund fermetra dyngja af daunillu sorpi, girtu neti festu á svera rafmagns- staura til að láta ekki undan farginu. Talsverð umferð var með hvers kyns drasl þangað og rauk hér og þar úr eldi í drasl- Aðeins litið skot innan girð- ingarinnar er enn nothæft til losunar svo stækkun virðist fyrirsjáanleg. Er .haugurinn i ca 200 metra fjarlægð frá svefnskálum starfsmanna íslenzkra Aðal- verktaka og hefur blaðið eftir nokkrum þar að mikil reyk- mengun stafi af haugmim í vissum vindáttum. Við hlið sorphaugsins er svonefndur Metal dump haugur, sem eink- um er ætlaður járnarusli eða fyrirferðameiri úrgangi. Kantar vegspottans að sjálfum haugnum eru reyndar orðnir einn samfelldur ruslahaugur og svo erfitt að snúa þar við eða að losna lengur við rusl að nýlega var gripið á það ráð að opna nýjan haug utan girðingar. Þar er rusl nú byrjað að safnast saman. Er það haugur nr. 7 sem við töldum. Síðasti haugurinn var skammt frá flugbraut og ekki langt frá hliðinu út í Rockville stöðina. Þar er allstór haugur samþjappaðra flugvélaflaka sem slökkviliðið hefur æft sig á, tvö uppistandandi flugvéla- flök úttætt og rifin eftir æfing- ar liðsins við að brjótast inn í vélar og loks olíutankurinn frægi, einnig æfingatæki slökkviliðsins. Er kveikt í þess- um tank, eða eftirlíkingu flug- vélaskrokk, af og til til að æfa slökkvistarf. Hefur mikill úlfa- þytur orðið út af þessu og olíu- mengun talin berast ofan í jarð- veginn frá þessum æfingum. Skammt utan hliðsins til Rockville og Keflavíkur er svo ruslahaugur Keflvíkinga og var verið að urða þar rusl er okkur bar það að. Er það urðað nokk- urn veginn jafnóðum og síðan sáð yfir þannig að þar er orðin allstór græn spila. •G.S. Leiðin að ruslahaugnum sem ekki er unnt aó nota lengur fyrir rusli. Myndin er tekin eftir öðrum vegarkantinum i átt að haugn- um. DB-mynd: Hörður.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.