Dagblaðið - 24.03.1977, Side 5

Dagblaðið - 24.03.1977, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977. 5 .... 8. skoðanakönnun Dagblaðsins: * Eruð þér f ylgjandi eða andvígur ..s hundahaldi íþéttbýli? „ÞAÐ ER ANDSTÆTT HUNDSEÐUNU” „Hundahald i þéttbýlinu er andstætt hundseölinu. Hund- arnir njóta ekki eðlilegs frelsis við þau skilyrði sem almennt eru sett fyrir hundahaldi í þétt- býli, svo að sífellt þurfi að hafa taumhald á hundunum.“ (Karl úti á landi). „Ég hef kynnzt hundahaldi erlendis og veit hvaða vanda- mál þetta getur verið. Ég er því á móti hundahaldi í þéttbýli." (Kona á Reykjavíkursvæðinu). svæðinu). „Ég er á móti en hundar eru dásamlegir.“ (Kona á Reykja- víkursvæðinu). „Hundar eru leyfðir hér og ég get ekki annað en vorkennt þessum greyjum sem eru lokuð inni daginn út og inn.“ (Kona í Mosfellssveit). Þetta eru dæmi um svör fólks við spurningunni Eruð þér fylgjandi eða andvígur hunda- haldi i þéttbýli? Dagblaðið Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: Fylgjandi 57 eða 19% Andvígir 233 eða777/3% Óókveðnir lOeðaS'6% Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar: Fylgjandi 19,6% Andvígir 80,4% „Ég hef enga samúð með þessum hundum." (Karl á Reykjavíkursvæðinu). „Ég er á móti bönnum ai- mennt.“ (Kona í Keflavík). „Það er allt í lagi að hafa hund hér á Akureyri. Það er svo nálægt sveitinni.“ (Karl á Akureyri). „Ég á dóttur sem var bitin af hundi og ég vil því ekki leyfa hundahald í þéttbýli.“ (Kona á Húsavík). „Ég er á móti hundahaldi í þéttbýli hundanna vegna. Þar eru þeir ekki í réttu umhverfi." (Kona á Reykjavíkursvæðinu). „Það er gott að spjalla við hunda og tryggari verur finnast ekki.“ (Karl á Reykjavíkur- spurði alls 300 manns í þessari skoðanakönnun, 150 á Reykja- víkursvæðinu og 150 utan þess Hringt var í símanúmer á ákveðnum stöðum í hverri opnu símaskárinnar. Helming- ur þeirra sem spurðir voru eru konur og helmingur karlar. Þannig eiga að fást niðurstöður sem ekki skakkar nema um nokkur prósent. Úrslit þessarar könnunar um afstöðu til hunda- halds í þéttbýli eru greinileg. Yfirgnæfandi meirihlutu landsmanna er andvígur hundahaldi í þéttbýli. Konur á höfuðborgarsvæðinu mest á móti. Andstæðingar þess eru í miklum meirihluta bæði á Reykjavíkufsvæðinu og úti á landi og bæði meðal karla og kvenna. Andstaðan var mest meðal kvenna á Reykjavíkur- svæðinu. Þess vegna var hlut- fallið óhagstæðast hundahald- inu á Reykjavíkursvæðinu. Alls reyndust tæplega áttatiu af hverjum hundrað vera andvígir hundahaldi í þéttbýli. Fólk hefur skoðun á þessu máli. Óvenjufáir voru óákveðn- ir, aðeins um þrir af hverju hundraði. Hvað er að óundum? Mjög algengt var í svörum fólksins að það væri óeðlilegt að hafa hunda bundna og inni- lokaða. Dýrunum liði þá ekki nógu vel. Þeim væri vorkunn. Hundar þyrftu að vera sem frjálsastir. Auðvitað er þetta ekki ný kenning og hundaeig- endur í þéttbýli munu hafa margt við hana að athuga, en þetta er dómur almennings. Margir minntust einnig á að sóðaskapur fylgdi hundunum. Fáir töluðu um að af þeim staf- aði hætta. Karlmaður í Keflavík lét þess getið að hann teldi óverjandi að taka hunda og skjóta þá. Það væri ógeðslegt. Nefnt var að sumir hundar gætu vanizt innilokun en aðrir gerðu það aldrei. Það færi nokkuð eftir tegundum. Meðal fylgjenda hundahalds í þéttbýli var nefnt að það væri andstætt mannréttindum að banna fólki að hafa hunda eða taka þá og stytta þeim aldur. Margir af fylgjendunum tóku fram að auðvitað yrði hunda- hald í þéttbýli að vera undir mjög ströngu eftirliti. -HH V ✓ Skólahljómsveit efnir til tónleika í Háskóiabíói Skólahljómsveit Kópavogs er tíu ára um þessar mundir og til að minnast tímamótanna efnir hljómsveitin til tónleika i Há- skólabíói á laugardaginn kemur kl. 3 síðdegis. Kynnir hljóm- leikanna verður Jón Múli Árna- son en stjórnandi sveitarinnar Björn Guðjónsson, sem var aðalhvatamaður að stofnun sveitarinnar og hefur leitt hana allan áratuginn. I hljómsveitinni hafa frá upphafi leikið 2-300 unglingar. Starfar sveitin i reynd í þremur hópum. Yngsti hópurinn er á aldrinum 10 ára fram að upp- hafi gagnfræðaskólanáms. Mið- hópurinn er hin eiginlega skólahljómsveit, þ.e. unglingar á gagnfræðaskólaaldri. Loks er þriðji hópurinn, unglingar sem lokið hafa skyldudnámi en ganga þá í Hornaflokk Kópa- vogs. Á hljómleikunum á laugar- daginn leika 52 unglingar í sveitinni. Skólahljómsveit Kópavogs hefur getið sér góðan orðstír. Hún hefur m.a. leikið við fjölda landsleikja í knattspyrnu og í handknattleik, komið fram á tyllidögum í Kópavogi og víð- ar. Sveitin hefur nú nýlega leikið inn á LP-hljómplötu auk þess sem sveitin hefur tvívegis haldið til Norðurlanda og einu sinni til Skotlands og ráðgerir í sumar Noregsferð. Sveitin hefur ætíð starfað af mikilli grósku og má búazt við að tón- leikarnir á laugardaginn beri þess ljósan vott. -ASt. Efnilegur tónlistar- maður frá íslandi Alþingi: Ingvar vill stöðva van- hirðustefnuna Ingvar Gíslason alþingis- maður (F) vill að veigamikil breyting verði gerð á starfsemi Byggingarsjóðs, Nú er aðalhlut- verk sjóðsins að lána til ný- smíði íbúðarhúsnæðis en þing- maðurinn vill að sjóðurinn láni fé til að endurnýja gamalt hús- næði. Þá verði meira gert af því að lána til kaupa á gömlu hús- næði. „Um áratugaskeið hefur það verið ríkjandi siður hér á landi að láta hús og heil bæjarhverfi drabbast niður fyrir alls konar vanhirðu,“ segir Ingvar og nefnir þetta ,,vanhirðustefnu“. Geysimikil verðmæti hafi farið í súginn fyrir þessar sakir. Þingmaðurinn lagði í gær fram frumvarp sem gengur út á þetta. -HH í fréttabréfi frá háskólanum í Illinois í Bandaríkjunum segir að nýtt tónverk eftir ungan Is- lending hafi verið valið úr fjölda nýrra tónverka til flutn- ings á hljómleikum Sinfóníu- hljómsveitar Illinois-háskólans. Verk þetta nefnist Drengur- inn og glerfiðlan (The boy and the glass violin) og er samið fyrir stóra sinfóníuhljómsveit með hefðbundinni hljóðfæra- skipan en verkið býður þó á köflum upp á frjálsa tjáningu hljóðfæraleikaranna og jafnvel einskonar „happening". Höfundar þessa verks heitir Þorsteinn Hauksson og stundar hann nám í tónsmíð hjá Ben Johnston og Salvatore Martir- ano við háskólann í Illinois. Þorsteinn stundaði áður nám í klassískum píanóleik við Tón- listarskólann í Reykjavík. I fréttabréfinu segir að nafn tón- verksins höfði til þeirrar hug- myndar eða skoðunar höfundar að tónlist skuli fara varlega með, af alúð og nærgætni, líkt og fiðlu úr gleri. Á umræddum hljómleikum sem fóru fram fyrir skömmu var einnig flutt verk eftir Samuel Barber sem hann samdi aðeins 28 ára að aldri og loks sú sinfónla Brahms sem hvað sjaldnast hefur verið leikin, sinfónía no. 3 í F dúr. Þorsteinn Hauksson gat sér gott orð sem gítar- og hljóm- borðsleikari í hljómsveitinni Töturum sem hér starfaði fyrir nokkrum árum, þá alllangt á undan sínum tíma. Þótti hann jafnvígur á bæði hljóðfærin og minna 1 leik sínum helzt á gítar- leikarann Jimi Hendríx og org- elleikarann Keith Emerson, sem flestir munu kannast við. Þorsteinn Hauksson mun vera einn af efnilegustu nem- endum Tónlistarskólans sem farið hafa erlendis til áfram- haldandi náms og er eflaust mikils að vænta af honum í framtíðinni.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.