Dagblaðið - 24.03.1977, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977.
9
Velheppnaö
„flugslys” á
Egilsstöðum
„Flugslys hefur orðið á norð;
urenda flugbrautarinnar," til-
kynnti flugvallarstjórinn á
Egilsstöðum viðkomandi yfir-
völdum á staðnum kl. 10:17 í
gærmorgun. Réttir aðilar, svo
sem slökkvilið og læknar,
brugðu hið skjótasta við og
drifu sig út á völl enda sást
reykjarmökkur stíga upp af
brautarendanum.
Þegar bangað var komið sást
hinsvegarhvarlítil flugvél stóð
óskemmd.en eldiir var í rusli
skammt frá. Kom þá á daginn
að þarna var um almannavarna-
æfingu að ræða. Björgunár-
menn héldu þó áfram störfum
eins og um slys hafi verið að
ræða enda var búið að falsa sár
á flugmann og farþega og voru
þeir meðhöndlaðir skv. því.
Að sögn Gunnars Egilssonar
flugvallarstjóra tókst æfingin
vel að hans mati, þótt nú eigi
eftir að vinna úr þeim gögnum
sem til urðu við æfinguna. Að
vísu komu einhverjir smáagnú-
ar í ljós en það var að heyra á
Gunnari að hann hafi búizt við
meiri vandræðum. Enginn af
þeim sem kallaðir voru út vissu
af þessu með fyrirvara.
-G.S.
Bflaleiga Akur-
eyrar í Reykjavík
I Síðumúlanum í Reykjavík
má sjá stórt skilti sem stendur
á Bílaleiga Akureyrar. En
hvernig stendur á því að Bíla-
leiga Akureyrar er allt í einu
komin í Siðumúlann?
Baldur Ágústsson sem við
hittum á Bílaleigunni sagði að
hún hefði starfað í tiu ár á
Akureyri. Það varð sífellt al-
gengara að fólk sem fékk sér
bíl fyrir norðan vildi skilja
hann eftir f Reykjavík. Varð
þvi úr að setta var upp útibú í
höfuðborginni sem auðveldaði
mjög afgreiðsluna. Utlendingar
sem taka bíl á leigu vilja flestir
fá hann í Keflavík. Þá geta þeir
ekið sjálfir hvert á land sem er
og skilið svo bílinn eftir þar
sem þeir tóku hann. Einnig er
algengt að þeir aki yfir hálend-
ið frá Akureyri og til Keflavík-
ur.
Bílaleiga Akureyrar hefur
milli 120 og 130 bíla af öllum
stærðum og gerðum, bæði
jeppa og fólksbíla. Verðið fer
svo eftir tegund og þeir
minnstu eru ódýrastir. -KP
Menntaskólanemar
vilja bjórsölu
Ályktunarhæfur félagsfund-
ur í Framtíðinni, málfundafé-
lagi menntaskólanema í
Reykjavík, samþykkti nýverið
að beina því til alþingismanna
að þeir stefni að því að leyfa
björsölu á ísiandi. Segir í sam-
þykktinni, „að engin ástæða sé
til þess að íslendingar einir
allra Evrópuþjóða fari á mis
við þá ánægju og það andrúms-
loft sem honum fylgir.“
Fundurinn vildi strangt eft-
irlit með bjórsölu og að hann
yrði aðeins seldur í verzlunum
ÁTVR eins og annað áfengi svo
og í viðurkenndum veitinga-
húsum.
Fundurinn vildi að bjórfrum-
varpið yrði borið undir þjóðar-
atkvæði og kosningaaldur mið-
aður við átján ár. -ASt.
LAUNAKJÖR BAR-
ÞJÓNA A
Sigurlaug Bjarnadóttir al-
þingismaður hefur beðið blaðið
að birta eftirfarandi svar vegna
áskorunar þjóna til hennar um
að finna orðum sínum í sjón-
varpsþætti stað. Svar Sigur-
laugar er á þessa leið:
Það er rangt að ég hafi stað-
hæft að „barþjónar hefðu
hærri laun en ráðherrar'*. Ég
sagði orðrétt: „Barþjónar, sem
fá prósentur af víninu, sem
þeir selja — ja, þeir eru liklega
ÍSLANDI
tekjuhærri en ráðherrar hér á
Islandi".
Hér er því, samkvæmt orð-
anna hljóðan, um tílgátu mína
(en ekki staðhæfingu) að ræða
sem ég tel mig ekki þurfa að
standa framreiðslumönnum
nein reikningsskilá.Hins vegar
gæti þessi krafa þeirra orðið
mér sérstakt tilefni til að kanna
nánar, hver eru launakjör bar-
þjóna á íslandi.
Þorsteinn Gunnarsson í hlutverki vitavarðarins í Iðnó-útgáfunni af Skjaldhömrum.
Enskir, pólskir og
sænskir Skjaldhamrar
Jónas Árnason þarf að gera víð
reist um hinn stóra heim ef hann
’ætlar að sjá leikrit sitt, Skjald-
hamra, þar sem það er sýnt. Nú
síðast var hann í Texas í Banda-
rikjunum. Þar var leikritið frum-
sýnt í baajarleikhúsinu í Midland
sl. föstudag. Leikritið hlaut mjög
góðar undirtektir, segir i skeyti
frá leikhússtjóranum Art Cole,
sem sent var Iðnó. Jönas var gest-
ur leikhússins og eftir sýningu
var haldin mikil veizla honum til
heiðurs, þar sem voru um 200
manns.
Cole leikhússtjóri sá verk Jón-
asar í Dundalk á írlandi í fyrra
vor og fékk það til sýningar í
leikhúsi sínu. Hann mun einnig
hafa áhuga á því að gefa verkið út
á vegum sambands háskóla- og
áhugaleikhúsa vestra.
Skjaldhamrar verða víðar á
döfinni erlendis á næstunni. Leik-
ritið verður flutt í útvarpi í Finn-
landi nú í vor. Norbotten-
leikhúsið i Sviðþjóð mun taka það
til sýningar á næstunni. Þar er
leikhússtjóri Christian Lund en
hann hefur leikstýrt sýningum
hér t.d. Þjófar, lík og falar konur
eftir Dario Fo.
Pólverjar geta brátt kynnt séi
leikrit Jónasar. Nú í vor kemur út
þýðing i virtu pólsku leiklistar-
tímariti sem nefnist Dialog.
Pólsku þýðinguna annast Piotr
Szymanowski. Alan Boucher hef-
ur þýtt verkið á ensku og Inger
Pálsson á sænsku.
-KP
Fyrstu BS-hjúkr-
unarfræðingamir
brátt útskrifaðir
„Fyrstu 14 nemendur munu
brautskást með BS-gráðu í
hjúkrunarfræði í júní. Ekki er
enn vitað hvar þeir standa að
loknu námi launalega séð,
hvort þeir ganga inn í Hjúkrun-
arfélag íslands og það semji
fyrir þá um laun eða Bandalag
háskólamanna.“
Þetta sagði Ingibjörg Magn-
úsdóttir námsbrautarstjóri í
viðtali við Dagblaðið í gær.
Hún sagði að svona nám væri
mjög algengt í Bandaríkjunum
og Kanada og væri sett upp við
hlið hjúkrunarnáms. Hins veg-
ar væri námið I Háskólanum
mikið meira bóklegt. Það er
fjögurra ára nám en hjúkrunar-
skólinn tekur 3 ár. I verklegu
námi njóta háskólanemendurn-
ir leiðsagnar hjúkrunarkenn-
ara á sjúkradeildum sjúkra-
húsa og í heilsugæzlustöðvum.
Ingibjörg sagði að hjúkrunar-
skólanemar þæðu laun i sínu
námi og væru hluti af starfs-
krafti sjúkrahúsanna.
Þá læra háskólanemar i þess-
um fræðum að kenna og einnig
taka þeir þátt í stjórnunar-
fræði.
Ingibjörg sagði ao það hefði
háð starfsemi hjúkrunarskóla
íslands hversu mjög það hefði
vantað kennara. Hjúkrunar-
fræðingar sem óskuðu að geta
kennt hefðu þurft að fara í
framhaldsnám erlendis í 1-2 ár.
EVI
Alþingi:
Tillaga um
úrsögn úr NAT0
Þingmenn Alþýðubanda-
lagsins lögðu í gær fram til-
lögu um úrsögn úr Atlants-
hafsbandalaginu.
Ennfremur yrði ríkisstjórn-
inni falið að æskja nú þegar
endurskoðunar á varnarsamn-
ingnum og leggja fyrir Alþingi
frumvarp um uppsögn á þeim
samningi þegar endurskoðun-
arfresturinn sem ákveðinn er í
samningnum heimilar að hon-
um verði sagt upp. -HH
Járnsmiðir
Öskum að ráða járnsmiðí eða
menn vana jámsmíði.