Dagblaðið - 24.03.1977, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977.
Útgefandi
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson.
Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjórí ritstjómar:
Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. AfistoAarfróttastjórí: Atli Steinarsson. Safn: Jón
Sævar Baldvinsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson.
Blafiamenn! Anna Bjarnason, Ásgoir Tomasson, Bragi Sigurfisson, Ema V. Ingólfsdóttir, Gissur
Sigurfisson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jakob Magnússon, Katrín Pálsdóttír, Krístín Lýfis-
dpttir, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjamleifsson,
Hörfiur Vilhjálmsson, Svuinn Þormófiason.
Skrifstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorieifsson. Dreifingarstjórí: Már E. M.
'falldórsson.
Áskriftargjald 1100 kr. á mánufii innanlands. I lausasölu 60 kr. eintakifi.
Ritstjóm Sífiumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreifisla Þverholti 2, sími 27022.
Setning og umbrot: Dagblafiifi og Steindórsprent hf., Ármúla 5.
Mvnda-oq plötugerA: Hilmirhf., SíAumúla 12. Prentun: Arvakur hf., Skeifunni 19.
Indverskur sigur
Fáir trúðu fyrirfram á aftur-
hvarf Indverja til lýðræðis-
legra stjórnarhátta. Hið ind-
verska lýðræði var orðið eins
og tímaskekkja í vaxandi harð-
stjórn og einræði þriðja heims-
ins. Menn voru ekki heldur
vissir um, að lýðræðið væri raunhæft, því að
sami flokkurinn hafði verið við völd frá upp-
hafi sjálfstæðis Indlands og stjórnarskipti því
aldrei orðið á tímabilinu. Og gerræðislegt
stjórnarfar Indiru Gandhi á síðustu valdaárum
hennar sannfærði menn um, að leifar ind-
versks lýðræðis mundu brátt hverfa.
Það var því mikill og óvæntur sigur fyrir
lýðræðið, er Indira Gandhi aflétti neyðará-
standslögum og efndi til heiðarlegra þing-
kosninga. Ekki var það minni sigur, er hún
sagði af sér með lýðræðislegum hætti, þegar
stjórnarandstaðan hafði unniö meirihluta á
þingi. Með því að innleiða lýðræði á nýjan leik
hefur hún unnið persónulegan sigur í ósigri
sínum. Hún hefur gert hreint fyrir sínum
dyrum og verður hér eftir ekki sökuð um
afnám lýðræðis í landinu.
Indira Gandhi tapaði kosningunum vegna
gerræðis síns á undanförnum árum. Hún hafði
látið setja lög um neyðarástand og notað þau til
að treysta völd sín. Hún hafði varpað stjórnar-
andstæðingum þúsundum saman í fangelsi.
Hún hafði með margvíslegum hætti reynt að
ofsækja þá fáu frjálsu og óháðu fjölmiðla, sem
þorðu að dansa ekki eftir hennar pípu. Indland
stefndi hraðbyri til einræðis og ógnarstjórnar,
þegar Indira Gandhi snéri skyndilega við
blaðinu.
Það stuðlaði að tapi hennar, að hún hafði
látið son sinn, Sanjay, leika lausum hala í
þjóðfélaginu. Þetta er dekurbarn, sem kann sér
ekki hóf í sjálfstrausti. Meðal annars hafði
hann teiknað bíl, sem indversk bílaverksmiðja
neyddist til að framleiða af pólitískum
ástæðum, en var gersamlega ónothæfur. Enn-
fremur gekk hann of hart fram í vönunum á
óviðbúnu fólki. Undir verndarvæng móðurinn-
ar gekk hann berserksgang í stjórnmálunum,
svo að menn töldu, að nú ætti að innleiða
arfgengt konungsveldi ofan á harðstjórn og
einræði.
Ekki er við því að búast, að hagur Indverja
batni verulega með nýrri stjórn. Það eru
ósamstæðir hópar lýðræðissinna, sem nú hafa
náð völdum. Og mikil bjartsýni væri að ætla þá
geta náðeinlægu samstarfi um framfarir Ind-
lands. En alténd fær Kongressflokkurinn nú
tíma og tækifæri til að sleikja sárin og byggja
upp sterkt framboð í næstu kosningum. Og
aldrei er að vita nema hinir nýju valdhafar geti
rýrteitthvaðspillinguna, sem grafið hefur um
sig á löngu valdaskeiði Kongress.
Indverjar geta borið höfuðið hátt við
stjórnarskiptin, þrátt fyrir hina efnahagslegu
eymd í landinu. Þeir hafa sýnt fram á, að
pólitískt siðgæði þeirra er á mun hærra stigi en
víðast hvar í þriðja heiminum. Þeir hafa sýnt
fram á, að þeir geta skipt um valdhafa með
lýðræðislegum og friðsamlegum hætti. Ekki er
þessi útkoma minni sigur fyrir lýðræðisöflin í
heiminum. Það munar um minna en 600
milljónir Indverja, sem skyndilega hafa flutzt
úr herbúðum einræðis í herbúðir lýðræðis.
Þetta er mikill sigur eftir áralanga framsókn
einræðis og ógnarstjórnar í þriðja heiminum.
DagblaAiA hf.
mBlAÐIÐ
frjálst, úháð dagblað
V
Hvertfór
leiðtogi
Klöakrottanna?
Flóttinn sem allt Frakkland hlær að
„Hvað? Ég!? Kæru
vinir, svona stórt
mótorhjól myndi ég
aldrei geta ráðið
við“...
Maðurinn með
skyggð sólgleraugun
var saklaus eins og
lamb á svipinn þegar
lögreglan barði þar
að dyrum með ljós-
myndir sem þeir
vildu sýna honum.
Gerard Rang, 30 ára, neitar
því stöðugt að vera „maðurinn
á Kawasakiinum," maðurinn á
mðtorhjóli, sem ðk með leiðtoga
Klóakrottanna í burtu frá
dómshúsinu I Nissa, eftir að
hann hafði hoppað sjö metra
niður á götuna úr glugga á hei:-
bergi dómara, sem var að
yfirheyra hann.
Albert Spaggiari er gjörsam-
lega horfinn sjónum manna.
Frakkar skellihlæja að þessum
djarfa flótta og lögreglan
vinnur allan sólarhringinn við
að reyna að hafa upp á honum.
Fyrir skömmu voru bæjar-
stjórnarkosningar í Frakk-
landi. Innanríkisráðuneytið
hefur umsjón með þeim
kosningum, en það er sagt, að
innanríkisráðuneytið hafi haft
annað í huga í síðustu viku.
/ffh
CQ37
50 milljónir
upp úr krafsinu
Það sem ráðherrann, Michael
Poniatowski, hefur haft i huga
er Albert Spaggiari, 40 ára leið-
togi Klóakrottanna svonefndu,
sem rændu banka í Nissa með
því að notfæra sér klóakkerfi
borgarinnar. Höfðu þeir meira
en 50 milljónir franka í gulli,
seðlum og skartgripum upp úr
krafsinu.
Og nú er Spaggiari einfald-
lega horfinn. Menn um allt
Frakkland hlæja mikið að
þessu öllu saman og segja, að
„nú sé Albert kominn í sumar-
frí“.
Og þó hlæja menn ennþá
meira að rannsóknar-
dómaranum Richard Bouzais,.
sem þótti Spaggiari svo
skemmtilegur maður, að hann
lét taka af honum handjárnin
og lét verðina bíða fyrir utan,
svo að hann gæti rætt við hinn
ákærða í ró og næði.
Eins og sneyptur hundur
En Albert Spaggiari notfærði
sér heldur betur þessa skoðun
dómarans á sér. Hann hoppaði
út um gluggann, sjö metra
niður á götuna og þar beið ein-
hver félagi hans á mótorhjóli
og ók honum á fleygiferð I átt
til frelsisins.
Innanríkisráðherrann hefur
verið foxillur alla tíð siðan. SÞ
fellt er verið að ræða við
Bouzais i sjónvarpi og er hann
Albert Spaggiari, leiðtogi Klóakrottanna er horfiun.Hann stökk sjö metra niður úr glugga og hvarf á
mótorhjóii.