Dagblaðið - 24.03.1977, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Hreinn Halldórsson, Evrópumeistari innanhúss í kúluvarpi. Hann mætir Geoff
Capes í Lundúnum 18. maí.
Hreinn mætir
Capes í London
—18. maíá miklu frjálsíþróttamóti.
Þarverður viðureign íslenzka
Evrópumeistarans og Geoff Capes
einn helzti viðburðurinn
— Maðurinn, sem sigraði Geoff
Capes á Evrópumeistaramótinu
innanhúss í San Sebastian á Spáni og
varð Evrópumeistari í kúluvarpi,
Hreinn Halldórsson, íslandi, mun
keppa við Capes í kúluvarpinu, sagði
brezka útvarpið, BBC, í gær, þegar
skýrt var frá miklu íþróttamóti, sem
verður á Crystal Palace-
leikvanginum í Lundúnum 18. maí.
Það verður mikið um að vera á því
móti. Keppendur frá 19 löndum og
þar á meðal margir af þekktustu
frjálsíþróttamönnum heims. Meðal
annars 18 verðlaunahafar frá
Olympíuleikunum í Montreal sl.
sumar. Greinilegt var á frásögn BBC,
að kúluvarpskeppnin þar verður einn
af hápunktum mótsins. Einvígi
Evrópumeistarans íslenzka, Hreins
Halldórssonar, við Evrópumeistarann
1976, Geoff Capes, Englandi.
Auk verðlaunahafanna frá
Montreal verða frægustu hlauparar
Afríku á mötinu. Filbert Bayi,
Tanzaníu, heimsmethafinn í 1500 m
hlaupi, og John Akii-Bua, Uganda,
sem varð olympíumeistari í 400 m
grindahlaupi á Munchen-leikunum
1972 og setti heimsmet.
Þá hefur Rod Dixon, Nýja-Sjálandi,
verið boðið að taka þátt í mótinu, en
hins vegar ekki John Walker, landa
hans, heimsmethafanum í mílu-
hlaupi. Meðal keppenda verður
Kúpumaðurinn Juanterano, olympíu-
meistari í 400 og 800 m hlaupi. Don
Quarry, Jamaíka, olympíumeistarinn
í 200 m hlaupi. Pólski olympíumeist-
arinn í hástökki, Wzsola, keppir í
sinni grein við Dwight Stones, heims-
methafann frá Bandaríkjunum.i og
Joy, Kanada.
Að Hreinn Halldórsson hlaut böð á
þetta mikla mót sýnir vel, að hann er
orðinn stórt nafn í heiminum í frjáls-
um íþróttum. Sigur hans í
kúluvarpinu í San Sebastian vakti
heimsathygli — var óvæntasti
sigurinn á mótinu, og síðan hafa
margir viljað fá Hrein á mót til sín,
þegar keppnistímabilið byrjar fyrir
alvöru utanhúss.
Jafntefli írans
og Argentfnu
Argentína undirbýr knatt-
spyrnuiandsiið sitt nú af kappi
fyrir heimsmeistarakeppnina i
knattspyrnu á næsta ári — en
keppnin fer einmitt fram í
Argentínu. 1 gærkvöld lék Argen-
tína við landslið irans og fór
Ieikurinn fram í Madrid — var
liður í móti sem Real Madrid
gengst fyrir vegna 75 ára afmælis
félagsins.
Real Madrid hefur boðið til
kcppninnar Iandsliðum íran og
Argentínu auk þess tekur lið
félagsins þátt i því og meistarar
Afríku. Mjög á óvart varð jafnt i
leik Argentínu og irans — 1-1. En
Argentína sigraði síðan á víta-
spyrnukeppni — þá kom reynsla
þeirra í Ijós, sigruðu 4-1.
Afmælisbarnið, Real Madrid,
átti í höggi við Mouloudia,
Afríkumeistarana og sigraði Real
2-1. Mörk Real skoruðu Paul
Breitncr og Javier Aguilar en
Bachta svaraði fyrir Mouloudia.
Aston Villa nú með
fæst töpuð stig!
— Sex leikir í 1. deild, sem eru á skrá nk. laugardag,
voru leiknir ígærkvöld. Færðir fram
Taugaspennan hjá leik-
mönnum í fallbaráttunni í ensku
knattspyrnunni setti mörk sín á
leikina á Englandi í gær. Þá voru
sex leikir háðir í 1. deild og í
tveimur þeirra var leikmönnum
vikið af velli. Liam Brady hjá
Arsenal og Colin Waldron, Sund-
'erland — en hann er lánsmaður
frá Manch. Utd. Arsenal náði
jafntefli i Stoke 1-1 og þar með
lauk Iangri tapgöngu félagsins —
eða stig eftir átta tapleiki í röð
— en Sunderland steinlá í
Birmingham fvrir Aston Villa 4-
1.
Manch. Utd., sem lék i gær 15.
leikinn í röð án taps, tapaði
dýrmætu stigi á heimavelli gegn
WBA — og lengi vel leit út fyrir
tap. Þar voru flestir áhorfendur,
eða 51 þúsund, og þeir urðu
hljóðir, þegar WBA náði tveggja
marka forustu. David Cross
skoraði á 18. mín. og á 35. min.
kom Robson WBA í 2-0 með marki
eftir fallegt upphlaup Johnston
og Martin. En tveimur mín. fyrir
hlé felldi Robertson Jimmy
Greenhoff innan vitateigs og víta-
spyrna var dæmd á WBA. Úr
henni skoraði Gordon Hill örugg-
lega. t síðari hálfleiknum sótti
United mjög — en Hill og Macari
fóru illa með góðtækifæri áður en
Steve Coppell jafnaði í 2-2
tveimur mín. fyrir leikslok.
Enski landsliðsmiðherjinn
Stuart Pearson hjá United meidd-
ist í leiknum. Þá lék Brian
Greenhoff ekki með liðinu vegna
meiðsla og lék Arthur Albison í
hans stað. Vafasamt er að þessir
leikmenn geti leikið gegn Luxem-
borg í HM-leiknum og einnig
Colin Todd, Derby, sem meiddist í
leiknum við Tottenham.
Úrslit í leikjunum á Bretlands-
eyjum í gær urðu þessi:
1. deild
Aston Villa—Sunderland 4-1
Leeds—Norwich 3-2
Man. Utd.—WBA 2-2
Newcastle—Coventrv 1-0
Stoke—Arsenal 1-1
Tottenham—Derby 0-0
Allir þessir leikir áttu að fara
fram næstkomandi laugardag, 26.
marz, samkvæmt leikjaskrá, en
voru færðir fram.
2. deild
Hereford—Sheff. Utd. 2-2
4. deild
Crewe—Newport 2-0
Brentford—Watford 3-0
Torquay—Southport 0-0
Skotland
Aberdeen—Motherwell 2-1
Hibernian—Hearts 3-1
Rangers—Ayr 1-1
og þar fór áreiðanlega síðasta von
Rangers að verja meistaratitil
sinn.
Tottenham missti af dýrmætu
stigi gegn Derby. Leikurinn var
afar lélegur en Lundúnaliðið
hefði átt að tryggja sér bæði
stigin.
G. Hoddle átti skot í þverslá og
Ralph Coates spyrnti yfir markið
1 opnu færi — fjóra metra frá
marki. Charlie George hjá Derby
meiddist eftir 25 mín. og varð að
yfirgefa völlinn. Varamaður kom
í hans stað og þeir Hector og
James voru oftast einu menn
Derby í sókninni. Todd átti
frábæran leik með Derby, þar til
hann meiddist í lokin, og Colin
Boulton varði tvívegis hreint á
undraverðan hátt skot frá fram-
herjum Tottenham.
Aston Villa lék Sunderland
grátt. John Deehan skoraði tvö af
mörkum Villa, en John Gidman
og Andy Gray eitt mark hvor.
Colin Waldron var rekinn af velli
á 69. mín. fyrir ljótt brot, en tap
Sunderland var þá staðreynd. Þá
var leikur Stoke og Arsenal mjög
harður — og hnefar látnir skipta.
Liam Brady var rekinn af velli
fyrir að slá Steve Waddington —
son Tony Waddington, sem sagði
upp stöðu sinni sem fram-
kvæmdastjóri Stoke í fyrradag.
Steve Waddington var bókaður af
dómara leiksins í sama atviki. Ar-
senal náði forustu í leiknum en
Terry Conroy jafnaði fyrir Stoke.
Ekkert var sagt frá leikjunum i
Leeds og Newcastle í gær i BBC
eða i fréttaskeytum Reuters. Með
sigrinum á Coventry komst New-
castle upp í fimmta sæti í 1. deild
— en Aston Villa er það liðið, sem
tapað hefur fæstum stigum. Staða
efstu liða er þannig:
Ipswich
Liverpool
Man. City
Newcastle
Man. Utd.
WBA
Leicester
A. Villa
32 18
32 18
31
31 13
7
7
14 12
29 14
57-30 43
50- 27 43
42-23 40
51- 36 37
53-38 36
32 12 11 9 46-40 35
32 11 13 8 43-46 35
27 15 4 8 55-31 34
Meistaramót
Reykjavíkur
Dagana 25. og 26. marz verðui
haldið meistaramót Reykjavíkui
í frjálsíþróttum innanhúss. Mótit
hefst föstudaginn 25. marz ki
18.00 í Baldurshagáá 50 m hlaup:
karla og kvenna, lángstökki karlí
og hástökki kvenna. Laugardag
inn 26. marz verður keppt kl.
13.00 í Laugardalshöllinni í 800 m
hlaupi karla og kvenna, kúlu-
varpi karla og kvenna og hástökki
karia. Kl. 15.30 sama dag verður
keppt í 50 m grindahlaupi karla
og kvenna, langstökki kvenna og
þristökki, en keppni í stangar-
stökki verður 2. april annaðhvort
í höllinni eða í KR heimilinu.
Þetta mót er fyrsta mót sem
nýendurvakið Frjálsíþróttaráð
Reykjavíkur gengst fyrir og
hefur stjórn þess undirbúið
mótið mjög vel og á að reyna að
„keyra“ það á sem skemmstum
tíma svo áhorfendur geti haft sem
Imest gaman af því að koma og
fylgjast með. Það ætti að vera
áhugavert því frjálsíþróttafólk
okkar hefur verið iðið við að bæta
Íslandsmetin að undanförnu.
FH ekki íerfiö-
leikum gegn Fram
— íslandsmeistarar FH sigruðu Fram 26-22 í 1. deild íslands
motsins íhandknattleik og eygja enn von að halda ítitilinn
Íslandsmeistarar FH áttu ekki í
erfiðieikum að taka bæði stigin í
viðureign sinni við Fram í 1.
deild isiandsmótsins í handknatt-
leik en liðin léku suður í Hafnar-
firði í gærkvöld og sigraði FH
26-22. Ekki var leikur liðanna til-
þrifamikill — þessara gömlu
keppinauta. Til þess er Fram með
of veikt lið í dag.
En Fram fékk byr undir báða
vængi í byrjun leiksins — náði
góðri forustu og lék þá liðið
ágætan handknattleik. Knött-
inn gekk vel hjá leikmönnum og
mun meiri léttleiki var yfir spili
liðsins en oftast áður. Enda fór
svo að vörn FH opnaðist iðulega
illa og ef íslandsmeistarar FH
vilja halda í von um meistaratign1
verða þeir að sýna betri leik í'
mótinu en hingað til.
Já, Fram virkaði mun sterkara
liðið í byrjun. Þannig var staðan,
eftir 10 mínútna leik, 5-2 fyrir
Fram og síðan 4-7. En þá fóru
mistökin að segja til sín — leik-
menn misstu knöttinn oft klaufa-
lega og meistarar FH jöfnuðu 7-7
og komust síðan yfir 9-8. Eftir það
var ekki spurning um hvort liðið
,bæri sigur úr býtum — F’H
virkaði sterkara þao sem eftir var
leiks. Nei, því miður, Fram er
fjarri því að vera gott lið —
aðeins skuggi fyrir ára. Félagið á
engan afgerandi leikmann eins og
stendur — heldur einungis mið-
lungsleikmenn.
Nú, en FH hafði yfir í leikhléi
13-11 og rétt framan af síðari hálf-
leik var leikurinn í jafnvægi —
þó forusta FH eitt til tvö mörk.
Þegar staðan var 18-16 var Guð-
mundi Þorbjörnssyni vikið af
leikvelli og Islandsmeistarar FH
nýttu það vel — skoruðu tvö
næstu mörk og breyttu stöðunni í
20-16. Þar með útslagið gert —
FH sigraði 26-22.
FH lék síður en svo vel í gær-
kvöld og af Austurrikisförunum
þremur — Viðari, Þórarni og Geir
leikur Viðar aðeins af eðlilegri
getu. Hinir tveir eru aðeins
skugginn af sjálfum sér. Það er
því F’H til láns hvað Janus Gúð-
laugsson hefur komið skemmti-
lega sterkur upp. Ákaflega lipur
og eldsnöggur leikmaður, sem
setur varnarmenn úr jafnvægi
með hraða sínum og krafti. Janus
skoraði 9 mörk í gærkvöld en
hingað til hefur Janus verið
þekktari úr knattspyrnuheimin-
um — þar hefur hann leikið með
íslenzka landsliðinu.
Fram er alveg heillum horfið
nú — leikur liðsins er ráðleysis-
legur, liðið vantar illa afgerandi
langskyttu og sterkan lfnumann.
Eins saknar liðið Guðjóns Er-
lendssonar í markið — því þó
Einar Birgisson verji iðulega vel
þá vantar hann enn kraft og
reynslu í harða leiki 1. deildar.
Mörk FH skoruðu: Janus Guð-
laugsson 9 — 2 víti. Viðar Sím-
onarson 8 — 5 víti, Geir Hall-
steinsson og Guðmundur Magnús-
son 3 hvor, Sæmundur Stefánsson
2 og Guðmundur Árni Stefánsson
1 mark.
Þeir Andrés Bridde og Pálmi
Pálmason skoruðu 6 mörk hvor —
Pálmi 4 víti. Sigurbergur Sig-
steinsson 4, Guðmundur Þor-
björnsson 3 og þeir Pétur
Jóhannsson, Árni Sverrisson og
Ragnar Hilmarsson skoruðu eitt
mark hver.
Leikinn dæmdu þeir Gunnar
Kjartansson og Ólafur Stein-
grimsson og heldur fannst manni
dómgæzlan hallast á Fram.
h halls.