Dagblaðið - 24.03.1977, Síða 24

Dagblaðið - 24.03.1977, Síða 24
„YFIR ENGIN SAR” — sagði Spassky um kvikmynd f rá „einvígi aldarinnar” „Þessi mynd ýfir ekki upp nein sár í mínum huga,“ sagði Boris Spassky að lokinni sýningu á 15 mínútna mynd frá einvíginu milli hans og Bobby Fischers í Reykjavík. Þau Spassky-hjónin og Smyslov og frú voru meðal nokkurra gesta á frumsýningu á þessu stutta sýnishorni úr um það bil 48 klukkustunda mynd- segulbandi, sem Iðntækni hf. gerði í samráði við Skáksam- band íslands. Brugðið var upp myndum úr nokkrum skákum þeirra Fischers og Spasskys. Þá var sýnd krýning heimsmeistarans að lokinni keppni. „Það er erfitt að ráða í það, hvaða hugsanir bærast með Spassky,“ sagði Friðrik Ölafsson, þegar Spassky sat einn eftir við skák- borðið eftir endanlegt tap. Friðrik talaði texta inn á myndina. , Nú er talið að Chester Fox eigi ekki lengur einkarétt á þessari myndatöku og því sé heimilt að nota hana til sýning- ar. -BS. Biðskákir ígær: Larsen á lakara — Kortsnoj-Petrosjan: Jafnteflisleg Níunda einvigisskákin milli Kortsnojs og Petrosjans í II Giocco fór í bið í gær eftir 40 leiki. „Skákin er jafnteflisleg," segir í skeyti frá Sviss í gær. i ii ii Níunda skákin milli Larsens og Portisch fór einnig i bið. Talið er, að skákin sé töpuð hjá Larsen. Ekki má þó gleyma því, að Larsen er enginn aukvisi í endatafli. Polugajevski og Mecking tefldu ekki í Luzerne í gær. Er búizt við að þeir tefli 10. skák- ina i dag. -B.S. Hort- Spassky: TÓLFTU EINVÍGIS- SKÁKINNI FRESTAÐ Að læknisráði fékk Hort frestað tólftu einvígis- skákinni við Spassky. Þessa skák átti að tefla í dag. Fyrirhugað er, að skákin verói tefld næstkomandi sunnudag kl. 17. Leikar eru nú jafnir með þeim Hort og Spassky, eins og sagt hefur verið frá í fréttum DB. Hafa þeir 5!4 vinning hvor. Þessi tólfta skák, sem nú hefur verið frestað, kann því að verða úrslitaskákin í áskorenda- einvíginu í Reykjavík. BS. Stjórn Hjúkrunarfélags íslands: Styðurekki upp- sagnir hjúkrunar- fræðinga „Stjórn Hjúkrunarfélags Islands hefur fyllstu samúð með uppsagnaraðilum og viðurkennir þörfina fyrir bættum kjörum hjúkrunarfræðinga," segir í fréttatilkynningu félagsins, sem blaðinu barst í gær. Þá segir enn- fremur: „Stjórn Hjúkrunarfélagsins stóð á sínum tíma ekki að upp- sögnum hjúkrunarfræðinga á Borgarspítala, Landakoti og Vífilsstöðum. Hjúkrunarfélag íslands er aðili að heildarsamtökum BSRB og fer þar af leiðandi að gildandi lögum um kjarasamninga." EVI Allir tóku vel i að stilla sér upp í hópmynd úti á Keflavíkurflug- velli. Frá vinstri eru Sture Aakeerberg, Magnús Kjartans- son, Monica Zetterlund, Lars Begge, Anji Nutini, Pétur „Isiand'* Östlund, Rúnar Marvins- son og Kristinn Haraldsson. Fremst á myndinni er Sebastian Östlund og lætur sér fátt finnast um myndakallinn. DB-mynd: Bjarnleifur. MONICA ZETTERLUND KOMIN TIL LANDSINS Meðal undirleikara hennar verður Pétur „Island” Östlund Monica Zetterlund — jazzsöng- konan sænska — kom ásamt föru- nautum sínum til Keflavíkurflug- vallar í gærkvöld. Stjórn Klúbbs 32 var mætt á staðinn og gaf blóm- vendi á báða bóga. Með söngkonunni í þessari Is- landsför eru maður hennar, Lars Aakeerberg, Lars Begge bassa- leikari og síðast en ekki sízt sjálfur Pétur ,,Island“ Östlund, kona hans Anji Nutini og sonur þeirra Sebastian, tæplega tveggja ára snáði. Fyrstu hljómleikar sænska jazz- fólksins verða í Norræna húsinu á föstudagsvöldið. í dag verður æfing en dagurinn tekinn rólega að öðru leyti. Alls verða haldnir fimm tónleikar sem allir eru á vegum Klúbbs 32. Á mánudag verður einnig tekinn upp sjón- varpsþáttur. Svíarnir voru fremur fámálir við komuna til Keflavíkurflug- vallar. Flugferðin hafði verið sér- stakleg'a löng frá Stokkhólmi til Kaupmannahafnar, þaðan til Glasgow og loks til Keflavíkur. Einnig sagði Pétur Östlund að þau hjónin hafi verið veik að undanförnu og frábað hann sér algjörlega spurningar blaða- manna. Monica Zetterlund. Sture Aakeerberg og Lars Begge dvelja ER hér á landi í viku en Pétur og kona hans staldra við í hálfan mánuð. Hún er blaðamaður við sænska kvennablaðið Feminu og ætlar að skrifa grein um íslenzka þjóðbúninginn. Fjöldi Islendinga og þá sér í lagi jazzunnenda kannast við nafn Monicu Zetterlund. Hún hefur sungið inn á fjölda hljómplatna og haldið hljómleika víða um heim. Hún þykir nokkuð dýr skemmtikraftur en Klúbbur 32 fékk hana í heimsókn fyrir gott verð. Að sögn Magnúsar Kjartans- sonar, eins stjórnarmanns klúbbs- ins, hafði hún mikinn áhuga á að heimsækja landið og gat því gefiö góðan afslátt. -ÁT- frfálst, óháðdagblað FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977. Kviknar ífisk- mjölsþurrkara í Vestmannaeyjum Um klukkan 11.30 í gærkvöldi varð eldur iaus í Fiskvinnslustöð Einars Sigurðssonar I Vestmanna- eyjum. Eldurinn kom upp I þurrkara sem ofhitnaði með þeim afleiðingum að kviknaði I mjölinu. Slökkvilið Vestmannaeyja kom á staðinn og tókst að ráða niður- lögum eldsins á hálftíma. Sam- kvæmt upplýsingum lög- reglunnar í Eyjum í morgun er ekki talið að um miklar skemmdir hafi verið að ræða, starfsemi verksmiðjunnar hófst aftur af fullum krafti I nótt. Lögreglan sagði DB að ekki væri óalgengt að þurrkararnir ofhitnuðu ef spennufall yrði eða önnur truflun á rafmagninu. -A.Bj. Mörg af mæli skákfólks Smyslov fyrrverandi heims- meistari I skák, núverandi aðstoðarmaður Spasskys,á 56 ára afmæli 1 dag. ■ Victor Kortsnoj varð 46 ára gamall í gær. Þau hjónin Marina og Boris Spassky sendu honum heillaskeyti í tilefni dagsins. Fyrr í þessum mánuði varð Bent Larsen 42 ára gamall og Högni Torfason, varaforseti Skáksambands Islands 53 ára. Marina Spassky á afmæli næst- komandi laugardag. BS. Leitað að Vestfjarða- loðnunni — 3000 tonn síðasta sölarhringinn Enn eru bátar að fá reyting af loðnu og var aflinn um 3 þúsund tonn sl. sólarhring, skv. upplýsingum Loðnunefndar. Haf- rannsóknaskipið Árni Friðriks- son lét úr Reykjavíkurhöfn í gær- kvöldi og ætlaði að halda vestur fyrir land að kanna hvort hugsan- lpga væri ganga að koma vestur fyrir, eins og nokkrum sinnum hefði komið fyrir í lok vertíðar, til hinnar mestu búbótar. Ákveðið var að skipið hefði þegar samband við Loðnunefnd ef þáð yrði einhvers vart, en kl. 8.30 í morgun hafði nefndin ekki heyrt frá því. -G.S. Ráðherrafundinum lokið: er þitt og þitt er mitt” „Við viðurkennum það að það vantar mikið í þessa yfir- lýsingu, enda getum við ekki rætt öll mál á einum degi,“ sagði Einar Ágústsson utan- ríkisráðherra, á blaðamanna- fundi eftir að fundi utanríkis- ráðherra Norðurlandanna lauk í gærkvöldi. „Ilins vegar hafa viðræður okkar verið gagnlegar sem fyrr og skoðanaskipti verið náin.“ í yfirlýsingunni, sem gefin var út eftir fundinn, segir að umræðurnar hafi mjög mótazt af afstöðu Norðurlandanna til V——— alþjóðamála, þá sérstaklega með aðild landanna að hinum ýmsu stofnunum Sameinuðu þjóðanna í huga. Sérstaklega hafi veriö rætt um mannréttindainál og Iögðu ráðherrarntr alltr áherzlu á að Norðurlöndin myndu ekki taka sér það á hendur að gagnrýna eitt land eða heimshluta fyrir brot á mannréttindaákvæðum Sameinuðu þjóðanna, heldur gagnrýna öll þau lönd þar sem ákvæði þessi væru brotin. Þá hafa ráðherrarnir rætt afstöðu til framhaldsfundar Helsinki-ráðstefnunnar sem halda á í Belgrad og vildu leggja áherslu á hinar jákvæðu hliðar þess fundar. Vildu þeir að það kæmi fram að Norðurlöndin litu á fundinn í Belgrad, sem Iið í áframhald- andi tilraunum þjóða á milli við að draga úr spennu í heiminum, en ekki sem neinn lokafund um málið. Það kom fram á blaðamanna- fundinum að mönnum þótti ráðherrarnir lita heldur langt yfir skammt og yfirlýsingar þeirra um málefni Norðurlanda þættu heldur klysjukenndar. K.B. Andersen var m.a. spurður að því hvort Grænlendingar fengju einhver yfirráð yfir fiskimiðum sínum, sem Danir eru nú að semja um við Efnahagsbandalagið og sagðist hann þvertaka fyrir að ræða fiskveiðisamningana, sem nú eru í gangi við Efnahagsbandalagið. Ráðhctrarmr foru líka heldur hjá sér er þeir voru spurðir að því hvort einhvern tíma mætti búast við því að utanríkisráðherrar Norður- landa yrðu átta, þ.e. ráðherrar Færeyja, Álandseyja og Græn- lands myndu bætast I hópinn og minntu ráðherrar Finnlands og Danmerkur á að þeir væru fulltrúar þessara þjóða á fundinum og vildu ekki gerast spámenn um það hvort þessar þjóðir fengju sjálfstæði. Á fundi ráðherranna kom einnig fram vilji þeirra til þess að auka stuðning við frelsis- hreyfingar í Afríku.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.