Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.04.1977, Qupperneq 4

Dagblaðið - 05.04.1977, Qupperneq 4
4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1977. 12. skoðanakönnun Dagblaðsins: Hvaða st jórnmálaf lokk styðjið þér um þessar mundir? „Pólitíkin hér er orðin steingeld í skoðanakönnuninni kom f ram mikil óánægja með f rammistöðu flokkanna Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: Alþýðuflokkur 14 4%% Alþýðubandalag 31 10%% Framsóknarflokkur 20 6% % Sjálfstæðisflokkur 66 22% Samtökin 1 %% „Vinstri“ 2 %% Engan flokk 73 24%% Vilja ekki svara 20 6%% Óákveðnir 73 24%% Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku af- stöðu með flokkunum, verða niðurstöð- urnar þessar: Alþýðuflokkur 10,4% Alþýðubandalag 23,1% Framsóknarflokkur 14,9% Sj álf stæðisf lokkur 49,3% Samtökin 0,8% „Vinstri“ 1,5% Til samanburðar eru niðurstöður síðustu þingkosninga, sem urðu þessar: Alþýðuflokkur 9,1% Alþýðubandalag 18,3% Framsóknarflokkur 24,9% Sjálfstæðisflokkur 42,7% Samtökin 4,6% Komi hitamál upp í Þinginu, mætir sjónvarpið stundum með myndavélar sinar og tekur upp. Haft hefur verið á orði að nærvera sjónvarpsmanna hafi örvandi áhrif á störf þingsins. Hér er Bene- dikt Gröndal að tala fyrir sjónvarpið. „Það er ófremdarástand með núverandi stjórn, en hvor er svo sem betri, brúnn eða rauður?“ (Kona á Norðurlandi). „Ég hef stutt Framsóknarflokkinn í tugi ára, en eitt er víst: Ég geri það ekki i næstu kosningum." (Karl á Neskaupstað). „Ég hef alls ekki gert upp við mig hvað ég ætla að kjósa næst, en ég kýs ekki það sama og síðast." (Karl í Ólafsvík). „Ég styo engan flokk því að enginn flokkur verndar hags- muni vinnandi fólks.“ (Karl á Reykiavíkursvæðinu). „Ég hef stutt sama flokkinn í 36 ár þar til i fyrra. Siöan er ég ekki í neinum flokki því að mér sýnast hinir ekki koma til móts við mig fremur en gamli flokkurinn. Hér vantar nýja strauma. Pólitíkin hér er orðin steingeld." (Karl á Reykjavík- ursvæðinu). „Ég er með Sjálfstæðisflokknum en hann þarf að endur- skoðunar við.“ (Karl á Reykjavíkursvæðinu). „Það er sami grautur i sömu skál. Ég styð engan.“ (Kona á Reykjavikursvæðinu). „Eg kýs Sólnes, alveg sama í hvaða flokki hann er.“ (Karl á Akureyri). „Mér er sama um öll stjórnmál. Það er sami rassinn undir öllum þessum stjórnmálamönnum þegar þeir eru seztir á AIþingi.“ (Kona á Suðurlandi). „Þetta er einkamál. Ég svara svona spurningum ekki." (Kona á Ölafsfirði). „Ég fylgi alls ekki neinum flokki. Ég kýs eftir málefnum og ætla að sjá til hvað þeir hafa fram að færa fyrir næstu kosningar." (Kari á Sauðárkróki). „Ég vil koma honum Ólafi Ragnari Grímssyni á þing.“ (Kona á Akureyri). Þetta eru dæmi um svör fólks við spurningunni: Hvaða stjórnmálaflokk styðjið þér um þessar mundir? 1 skoðanakönn- un Dagblaðsins. Eins og í fyrri könnunum voru í þessari könn- un spurðir alls 300, 150 karlar og 150 konur. Helmingurinn var á Reykjavíkursvæðinu og annar helmingur úti á lands- byggðinni. Hringt var í síma- númer á ákveðnum stað í hverri opnu í símaskránni. Könnun af þessu tagi á að gefa svo góða mynd af afstöðu al- mennings, að ekki skakki nema fáeinum prósentum. En vegna skekkjunnar verður að fara varlega í að draga ályktanir í þeim dúr að einhver flokkurinn- hafi tapað eða grætt nokkm prósent frá síðustu kosningum. Niðurstöður skoðanakönnunar- innar gefa hins vegar mjög merkilegar vísbendingar um hvernig stjórnmálin standa. Fjórðungur sagði „Engan flokk“ Athyglisverðasta niðurstaða könnunarinnar er sú, að um það bil f jórði hver svaraði óum- beðið „engan flokk“, og létu menn venjulega fylgja því nokkur ummæli um vesöld flokkanna. Þar að auki sagðist annar fjórðungur vera óákveð- inn. Samtals voru því óákveðnir og utan flokka menn tæplega 49 af hverjum hundrað. Rúm- lega sex af hundraði neituðu svo að svara spurningunni af því að hún væri of „persónu- leg“. Þessi afstaða sýnir megna ðánægju með stjórnmálaflokk- ana. Það verður mikið verkefni fyrir þá að koma þessum hóp til „föðurhúsanna" fyrir næstu kosningar. Konur svöruðu frekar „eng- an flokk“ en karlar en fleiri karlar sögðust óákveðnir. Framsókn stendur verst Þegar aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu með flokkum, koma út tölur sem kannski gefa gleggri mynd af þvi hvernig einstakir flokkar standa. Með í þeim tölum höfum við tekið þá sem sögðust kjósa „vinstri", þótt ekki sé víst hvaða flokkur það yrði. Út úr þessu kemur að Fram- sóknarflokkurinn virðist eiga mest í vök að verjast gagnvart óánægju kjósenda. I þessari könnun var fylgi hans tíu af hundraði undir því sem hann fékk 1 siðustu þingkosningum. Þetta er svo mikið að af því má draga ályktanir. Þá kemur ekki á óvart að Samtök frjálslyndra og vinstri manna eru í dauðanum sam- kvæmt þessari könnun. Skipting flokkafylgisins milli karla og kvenna var yfirleitt nokkuð jöfn þó hafði Alþýðu- bandalagið meira fylgi meðal karla. Framsóknarflokkurinn hafði miklu meira fylgi úti á landi en á Reykjavíkursvæðinu, eins og við var að búast. Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðubandalag- ið höfðu meira fylgi á höfuð- borgarsvæðinu en úti á lands- byggðinni samkvæmt þessari könnun. -HH DAUF VIKA VIÐ —aðeins2873 L0ÐNUVEIÐAR lestir ínæturnar Loðnuveiðin síðustu vikuna hefur aé ir, en síðan koma Sigluf jörður, Reykjavik Rauðsey AK 14 12462 Guðmundur Jónsson GK475 9557 mestu legið niðri, aðeins þeir hörðustu og Eskif jörður. Loftur Baldvinsson EA 24 12344 Skarðsvík SH 205 9544 eru enn við veiðar og fá ekki nándai Efstu skipin á þessari vertíð eru þessi: Fífill GK 54 12099 Bjarni Ólafsson AK 70 9210 nærri sama aflamagn og fyrr á vertíðinni. Sigurður RE 4 20725 Albert GK 31 11705 Kap II VE 4 8895 Flestir hafa bátarnir tekið upp önnur Börkur Ni\ izz ibJ90 Gullberg VE292 11138 Helga II RE 373 8652 veiðarfæri og reyna nú við þann gula, Guðmundur RE 29 18138 Jón Finnsson GK506 10946 Stapavík SI 4 8533 þorskinn. Gísli Árni RE 375 17445 Hákon ÞH 250 10689 Óskar Halldórsson RE 157 8411 í síðustu viku veiddust 2873 lestir og er Grindvíkingur GK606 14518 Ásberg RE 22 10622 Sæbjörg . VE 56 7557 hcildaraflinn þá orðinn 547.377 lestir. Pétur Jónsson RE 69 14316 Árni Sigurður AK370 10608 Svanur RE 45 7175 meira en nokkru sinni fyrr. Langmesta Súlan EA300 14043 Huginn VE 55 10451 ísleifur VE 63 7133 aflamagnið hefur borizt til Vestmanna- Örn KE 13 12818 Þócður Jónasson EA350 10020 Magnús NK 72 6410 eyja, liðlega 90 þús. lestir, Seyðisfjarðar Hilmir SU 171 12766 Helga Guðmundsdóttir BA 77 9873 Helga RE 49 6114 57 þús. Icstir, Neskaupstaðar 43 þús. lest- Eldborg GK 13 12538 llrafn GK 12 9797 Skírnir AK 16 5877

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.