Dagblaðið - 05.04.1977, Side 13

Dagblaðið - 05.04.1977, Side 13
12 OAdBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1977. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1977. 13 3 nýir smurostar 1 stœrriöskjur- lcekkað verð Ostarnir eru mýkri en áður og bragðið breytt Öskjurnar eru bráðfallegar— hreinasta borðprýði. Og verðið hefur lækkað. Rækju-, sveppa- og paprikuostur eru því veizlukostur til daglegrar neyzlu Englandslagret ger effekt att laget nátt en hel del pá vágen HALLUR HALLSSON Iþróttir Iþrottir iþrottir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir MATTHIAS BRUKAR GORA MAL: Skorar í hverjum leik með Halmia! — Þetta hefur gengið prýðilega hjá mér í æfingaleikjum Halmia. í síðustu fjórum leikjunum hef ég skorað mark i hvcrjum leik, sagði Matthías Hall- grimsson, þegar Dagblaðið ræddi við hann nýlega. Matthías leikur með Ilalmia í Ilalmstad á vesturströnd Svíþjóðar. Halmia leikur í 2. dcild i Svíþjóð og þeíta er annað árið, sem Matthías, sem leikið hefur flesta lands- leiki ailra íslenzkra landsliðsmanna í knattspyrnu, leikur með liðinu. Það var neðarlega í 2. deild, þegar Matthías byrjaði að leika með iiðinu í fyrra- sumar, en náði prýðilegum árangri síðari hluta keppnistimabilsins — en cndaði vel fyrir ofan miðju. Halmia fór í keppnisför til Englands um miðjan marz og iék þrjá leiki á þremur dögum frá 14.—16. marz. Tveir leikjanna voru við lið utan ensku deild- anna í Doncaster. Sá fyrri á móti Worksop, en hinn síðari gegn Gains- borough. Matthías lék fyrri hálfleikinn gegn Gainsborough en hinn síðari gegn Worksop. Aðalleikurinn í keppnisförinni var hinn þriðji við Rotherham, sem er meðal efstu liða í 3ju deildinni ensku. Matthías spilaði þann leik allan og varð jafntefli 2-2. í blöðum fékk Matthías mjög góða dómá eftir leikinn. Var sagður bezti maður á vellinum og ann- að eftir því. — Þér hefur tekizt þarna vel upp? — Já, sagði Matthías. Ég hef aldrei leikið jafn vel með Halmia og skoraði annað niark liðsins. Ég held ég hafi aldrei verið eins þreyttur eftir knatt- spyrnuleik, en leikurinn var þreytunn- ar virði. Annars var ferðin erfið æfingaferð, auk leikjanna. Æft tvisvar á dag og vorum 10 daga á Englandi. Við Halmia- leikmennirnir sáum tvo leiki í 1. deild, Everton — Aston Villa 1-1 og Manch. Utd. — Aston Villa 2-1. Við vorum aliir í rauðum og hvítum jökkum og lentum í hópi aðdáenda Aston Villa. Þeir héldu að við værum stuðningsmenn Manch. Utd. — og einn leikmanna Halmia varð heldur betur fyrir barðinu á lýðnum. Hlaut fast að því rothögg, og varð að liggja tvo daga í rúminu eftir barsmíð- ina talsvert meiddur. Hvenær hefst deildakeppnin hjá ykkur í Sviþjóð? — Það verður 11. apríl og ég vona að ég standi mig eins vel þá og í æfinga- leikjunum að undanförnu. Halmia lék nýlega æfingaleik við Landskrona, sem leikur í Allsvenskan (1. deild). Lcikur- inn var á útivelli og jafntefli varð 1-1. Það voru réttlát úrslit og ég skoraði mark Halmia í leiknum. (Sjá úrklipp- una úr sænska blaðinu, sem fylgir þess- ari grein, og þar er sagt meðal annars, að Matthías sé vanur að skora mörk. Markaskorarinn Hallgrímsson). Eru æfingar ekki strangar? — Jú. það er æft mjög vei — og almennt virðist reiknað með því, að Matthías Hallgrímsson. Ilalmia nái góðurn árangri í sumar. Ég hef lagt mjög hart að mér — æfi einni æfingu meira á viku, en aðrir leikmenn liðsins. Hleyp þá 5—6 km með eins miklunt hraða og mér er unnt. Með þessu vonast ég til að komast í betri æfingu, en nokkru sinni fyrr á keppnis- ferli mínum. Hvað er að frétta af Þorsteini Ólafs- syni, markverði Keflvíkinga? — Við höfum samband, við Þor- steinn, enda stutt á milli, og hann segir mér, að það hafi gengið upp og ofan hjá liði hans. Liðið vinnur og tapar til skiptis, en það leikur í 3. deild eins og þú veizt. Þorsteinn er þó bjartsýnn á árangur liðsins i sumar. Davíð Kristjánsson leikur með 3. deildarliði — en hann var markvörður Akraness fram á síðasta keppnístímabil. Þá er DB-mynd Bjarnleifúr Teitur Þórðarson auðvftað einnig hér í Svíþjóó og gerir það gott, sagði Matthías að lokum. Það er sama hvar slegið er niður. tslenzku landsliðskapparnir, sem leika erlendis og þeir eru ekki fáir, standa sig vel og eru sér og landi sínu til sóma. Asgeir Sigurvinsson, Guðgeir Leifsson, Marteinn Geirsson og Stefán Halldórs- son í Belgíu, Jóhannes Eðvaldsson á Skotlandi, Matthías, Teitur, Þorsteinn og Davíð í Svíþjóð. Atli Þór Héðinss. i Danmörku og Elmar Geirsson í Þýzka- landi, en hann er væntanlegur heint innan skamms. Heilt lið íslenzkra knattspyrnumanna á erlendri grund, sem allir eru að gera það gott eins og hann Helgi okkar Pétursson hér á Dag- blaðinu syngur. -hsím. LANDSKRONA (HP) TraningslSgret i England har fátt fart pá Halmia, och i lördags fick allsvenska Landskrona BOIS erfara detta. 1 —1 slutade matchen vilket var ett rSttvist resultat. — TrSningslSgret har gjort nytta. Killarna fick spela tre hárda matcher, som har ISrt dem en hel del. Det syntes i dag. Jag drar inga slutsatser av detta, Landskrona Sr ett bra lag, inen planen var mycket dálig, vilket missgynnade deras spel, kommenterar haliniatranaren Frank Marshall. Halmia tog initiativet i matchen och spelade idérik fotbolt. Lands- krona fick inte göra fór mycket, och det blev ocksá Halníia som tog ledningen. Matthias Hallgrimmsson höll sig pápassligt framme och nickade in 1—0. BOIS málvakt Ronny Sö- rensson, missbedömde situatio- nen, vilket Mattias utnyttjade. — Matthias brukar göra mál. Han ár plgg och háller slg framme, och jag ár nöjd med hans insatser i dag, menade Frank. I den andra halvleken gick spelet över till Landskrona. Allsvenskar- na breddade spelet över hela pla- nen och attackerna blev betydligt aggressivare. Bosse Augustsson sköt en fris- park direkt och tvingade Ove Olsson i Halmias mál till en fin ráddning. BOIS-kvitteringen kom cftcr en inövad hörna. Stefan Nilsson nickade otagbart i mál. Vi fár mánga mál bakát pá frisparkar och hörnor, men de sa- kerna skall vi trána den nármaste tiden, kommentcrade Frank. Saknur Stellan Fyrbackslinjen gör Frank fun- dersam. VI saknar Stellan Nilsson, och nu nár ocksá Leif Bengtsson ár ska- dad blir det en del problem i början. Jag hoppas att Leif kan vara med till premiáren. Jag tycker att vi ár pá rátt vág, och sámre án i fjol skall vi inte behöva bli, menar ránaren. ochinitiativrikt. Det gáller för Halmia att pricka in formcn till premiáren. och det stár klart r I Det ár ett ungt lag som Frank basaröver, ett lagsom sákert kom- mer attstállatill enhel del problem för favoriterna i serien. Mot Landskrona spelade málgö- raren Mattias Hallgrimsson, Ove Olsson och Kennet Sjöblom piggt Víkingur vann sinn tíunda sigur í röð — í 1. deild íslandsmótsins íhandknattleik gegn Reykjavíkurmeisturum Þróttar ígærkvöld 24-18 — hefur nú hlotið 20 stig ásamt Val Víkingur þokaði sér ao hlið Vals á toppi 1. deildar íslands- mótsins i handknattleik eftir 24- 18 sigur gegn Þrótti i gærkvöld. Það stefnir þvi í úrslitaleik þess- ara Reykjavíkurrisa — þó ef til vill sé enn of snemmt að spá nokkru þar um. Bæði lið eiga eftir erfiða leiki — Víkingur gegn FH í Hafnárfirði og síðan Fram — Valur tvívegis gegn Fram. Því má ef til vill segja að Fram hafi lykilinn að úrslitum íslandsmótsins í hcndi sér. Ilvað um það — Víkingur tók bæði stigin í gærkvöld án jtess þó að leika sannfærandi — raunar vantaði kraftinn og snerpuna sem svo oft hefur einkennt leiki Vikings. En i lokin stóðu Víkingar uppi sem öruggir sigurvegarar gegn Reykjavíkurmeisturum Þróttar. Það sem ef til vill vakti mesta athygli hinna fáu áhorfenda í gærkvöld var ágæt markvarzla beggja liða, Landsliðsmarkvörður Þróttar undir — 21 árs — Sigurður Ragnarsson varði mark Re.vkjavíkurmeistaranna af stakri prýði — og Rósmundur Jónsson stóð allan tímann í marki Víkings og varði oft mjög vel — meðal annars þrjú vítaköst. Raunar var Rósmundur mjög óheppinn í fyrri hálfleik — hvað eftir annað var hann í skotum frá Þrótti — þrátt fyrir að knötturinn hafnaði í netinu. Þróttur hafói frumkvæðið í fyrri hálfleik — komst í 8-5 og síðan 9-6 en Víkingar náðu að minnka muninn fyrir leikhlé í 9-8. Raunar er það alveg dæmalaust hvað Víkingar hafa að undan- förnu byrjað leiki sína illa — liðið hefur átt í vök að verjast í fyrri hálfleik en síðan náð sér betur á strik í þeim síðari. Eina undan- tekningin var leikur liðsins gegn Val á fimmtudag — þá gekk dæmið ekki upp í síðari hálfleik eftir slæman fyrri hálfleik. Vissu- lega umhugsunarvert fyrir Víkinga. Nú, hvað um það — eins og í undanförnum leikjum þá byrjuðu Víkingar síðari hálfleikinn af krafti og þeir náðu fljótlega að breyta stöðunni sér í vil í 13-10 — en fram yfir miðjan síðari hálf- leik héldu Þróttarar í við Víkinga — þannig var staðan til að mynda 16-15 Víking í vil eftir 20 minútna leik. Þá komu hins vegar fjögur mörk Víkinga gegn einu Þróttar og úrslit voru í raun ráðin — 20-16 og lokatölur urðu 24-18. Víkingur og Valur halda því enn einvígi sínu áfram — bæði lið hafa hlotið 20 stig úr 12 leikjum. Víkingar hafa hlotið 20 stig úr síðustu 10 leikjum sínum — töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum í Islandsmótinu og hafa síðan verið óstöðvandi — meðal annars sigrað Val tvívegis. Þeir Olafur Einarsson og Þor- bergur Aðalsteinsson voru at- kvæðamestir í liði Víkings — Úlafur með 9 mörk, Þorbergur 5 — sum hver gullfalleg þrumu- skot. Páll stjórnaði leik liðsins en vantar enn snerpu til að brjótast í gegn og skora. .Varnarleikur Vík- ings með Rósmund að baki varnarinnar var hins vegar aðall liðsins í síðari hálfleik. Páll Björgvinsson bindur vörnina vel saman — og eins eru þeir Þor- bergur, Erlendur Hermannson og Björgvin sterkir varnarmenn. Þróttur þarf nú að undirbúa sig undir leikinn, væntanlega gegn KR, um sjöunda sætið í 1. deild í haust. Liðið sem í gærkvöld lék gegn Víking var óþekkjanlegt frá því er lék við Gróttu suður í Ilafnarfirði um helgina. Ekki þar fyrir að nú væru aðrir leikmenn — síður en svo heldur var bar- áttan í liðinu mun betri og ekki hvað sízt markvarzla Sigurður — vissulega mikið efni þar á ferð. Konráð Jónsson er ákaflega vax- andi leikmaður og drjúgur við að skora — 10 í gærkvöld — en því miður vantar meiri breidd í lið Reykjavíkurmeistaranna — þar munar mestu að alls ekki hefur komið nóg út úr leikmönnum eins og Bjarna Jónssyni, Sigurði Sveinssyni og Halldóri Bragasyni. Hins vegar er Gunnar Gunnars- son athyglisverður leikmaður — einkar laginn við að skora úr hornunum — mörkin sem hann skoraði í gærkvöld úr hornunum voru gullfalleg. Mörk Vikings skoruðu: Ölafur Einarsson 9 — 4 víti. Þorbergur Aðalsteinsson 5, Björgvin Björgvinsson og Viggó Sigurðsson 4, Páll Björgvinsson 2 og þeir Ólafur Einarsson skoraði 9 mörk í gærkvöldi. Olafur Jónsson og Jón Sigurðsson 1 mark hvor. Mörk Þróttar skoruóu: Konráð Jónsson 10 — 3 víti. Halldór Bragason, Jóhann Frímannson og Gunnar Gunnarsson 2 mörk, Bjarni Jónsson og Sigurður Sveinsson 1 mark. Leikinn dæmdu þeir Gunnar Kjartansson og Karl Jóhannsson og höfðu þeir góð tök á leiknum. h.halls. Staðaní 1. deild Staðan í 1. deild er nú eftir 24-18 sigur Víkings gegn Þrótti: Valur- Víkingur FH Haukar ÍR Fram Þróttur Grótta Valur á eftir tvo leiki — gegn Fram tvívegis en Víkingur á eftir að leika við FH suður í Hafnar- firði — og síðan gegn Fram. Víkingur leikur á miðvikudag við FH — síðan mætast Grótta og Haukar suður i Hafnarfirði. Á miðvikudagskvöldið mætast Þróttur og ÍR í Laugardalshöll. 12 10 0 2 268-228 20 12 10 0 2 295-256 20 12 6 2 4 272-250 14 12 5 3 4 244-245 13 12 6 2 4 265-262 12 11 4 2 5 231-236 10 13 1 4 8 244-286 6 12 0 1 11 234-285 1 Gunnar Páll vann Álafosshlaupið Fjörutíu og þrír keppendur tóku þátt í Álafosshlaupinu og var keppt í fjórum flokkum. Afturelding sá um framkvæmd hlaupsins, en Álafossverksmiðjan hefur gefið verðlaun. Þrenn í hverjun. flokki auk farandbikars. Vegalengdin, sem hlaupin var hjá kvenfólkinu og drengjunum var 2.9 km., en 6.3 km. í eldri flokki. Urslit urðu þessi. Karlaflokkur 1. Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR 21:29.5 2. Ágúst Gunnarsson, UBK 21:39.9 íþróttir 3. Einar Guðmundsson, FH Kvennaflokkur 1. Aðalbjörg Hafsteins- dóttir HSK. 2. Tetma Björnsd., UBK 3. Guðrún Árnadóttir, FH, 11:13.5 Barnaflokkur 1. Ingvar Þórðarson, FH, 10:17.5 2. Guðjón Ragnarsson, IR, 10:22.0 21:44.5 10:52.5 10:58.0 3. Albert Imsland, Leikni, 10:31.3 Unglingaflokkur 1. Ingvi Guðmundsson, FH, 9:44.8 2. Guðni Sigurjónsson UBK 9:50.0 3. Jóhann Sveinsson, UBK, 9:50.5 Gunnar Páll sigraði í annað sinn í röð í hlaupinu — og Yngi Guðmundsson vann einnig sigur í unglingaflokki annað árið í röð. Ármann í 1. deild Ármann tryggði sér sigur í 2. deild íslandsmótsins í handknatt- leik er lióið vann sannfærandi sigur á Fylki um helgina — 21-13. Staðan í leikhléi var 9-6 og var varnarleikur Ármenninga aðall liðsins — eins og svo oft áður í vetur. Vissulega verður fróðlegt að íylgjast með liði Ármanns næsta vetur — liðið er ungt og framtíð- in þess. KR sigraði Viking í 1. deild ísiandsmótsins i handknattleik kvenna í gærkvöld 12-6 eftir að hafa haft yfirburði í fyrri hálf- leik — 8-2. Þá sigruðu bæði efstu liðin í 1. deild um helgina — Valur sigraði Breiðabiik 25-12 — Fram sigraði einnig Breiðablik — en þurfti að hafa meira fyrir sigrinum gegn botnliðinu — sigraði 21-17. Þá sigraói KR lið FH einnig um helgina 9-8 — og loks léku FH og Ármann — og FH sigraði þar örugglega 22-17. Staðan í 1. deildinni er nú: Valur 13 12 1 0 198-115 25 Fram 12 11 0 1 176-123 22 FH 14 7 1 6 179-167 15 Þór 14 7 0 7 159-153 14 KR 13 6 0 7 131-130 12 Armann 12 4 1 7 130-148 9 Víkingur 12 2 0 8 116-158 4 Breiðab!ikl3 1 1 11 128-208 3 Ekki heima? eða viTÍ ^'Afsakaðu \ hún ekk' tala við _/ Bomm:, en ég- Mín, BommiU rir' Þín. Hvers vegna Rikki?^ry Hvers fyrir- mæli. Hcnnar? I hef mín fyrir- V/ mæli V ■ 1.1 y Mér þykir vænt um þig Bommi, en dóttir mín hefur liðið mikið þín vegna. Jafntefli West Ham West Ham krækti sér í dýr- mætt stig á Loftus Road í Lundúnum er liðið lék við QPR í gærkvöld. Þrátt fyrir stigið er West Ham enn í neðsta sæti 1. deildar — hefur hlotið 23 stig — jafnmörg og Sunderland og Bristol City — en hefur óhag- stæðari markatölu. QPR náði forustu á 58. mínútu er Peter Estoe skoraði fyrir liðið úr Vestur-Lundúnum en aðeins 5 mínútum síðar jafnaði Bryan Robson fyrir West Ham. Hér á Alan Taylor, West Ham í höggi við Peter Simpson Arsenal.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.