Dagblaðið - 05.04.1977, Page 23

Dagblaðið - 05.04.1977, Page 23
23 DAGBLAÐIÐ. ÞKIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1977. Útvarp Sjónvarp » Útvarp íkvöld kl. 22,50: Á hljóðbergi Moll vargerð öllu djarfari fmyndinni en hún er í bdkinni sagan af Moll Flanders lesin af írskri leikkonu Moll Flanders verður á dag- skránni í þættinum Á hljóð- bergi í kvöld kl. 22.50. í fyrri viku var sagan sýnd í sjónvarp- inu í tvennu lagi. í kvöld er það írska leikkonan Sioban McKenna sem les. Umsjónar- maður þáttarins er Björn Th. Björnsson listfræðingur. „Það er öll sagan sem verður lesin, að vísu er sleppt nokkr- um atriðum innan úr sögunni. Þetta er samt mjög góður út- dráttur úr henni. Það er lesið orðrétt úr texta höfundarins, Daniels Defoe. í myndinni sem sjónvarpið sýndi var aðalpersónan gerð aðeins rómantískari en í sög- unni. Annars er þessi saga mjög djörf miðað við að hún er frá 18. öldinni. Hún var t.d. alls ekki gefin út á 19. öld í Bret- landi. Leikkonan sem les upp, Sioban McKenna, starfar í London þar sem hún hefur bæði leikið í kvikmyndum og á leiksviði. Fer bezt á því að sagan sé lesin af konu enda er þetta saga konu,“ sagði Björn Th. Björnsson. Daniel Defoe er einnig þekktur fyrir aðrar sögur sínar sem eru af allt öðrum toga spunnar en Moll Flanders, t.d. Robinson Crusoe. Það verður gaman fyrir þá sem sáu sjónvarpsmyndina um Moll P’landers að fylgjast með lestri sögunnar í útvarpinu í kvöld. Það er ekki oft sem svona góð „samvinna" er milli útvarps og sjónvarps og því sjálfsagt að vekja athygli á því. A.Bj. Foster var alveg stórgóð í hlutverki Moll Flanders í sjón- ^ Útvarp Þriðjudagur 5. apríl 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Viðvinnuna: Tónleikar. 14.30 Pó*tur frá útlöndum. Sendandi: Sig- mar B. Hauksson. 15.00 Miðdagi*tónleikar. Fílharmoníu- sveit Vínarborgar leikur F'orleik í C- dúr í itölskum stil eftir Franz Schu- bert: Istvan Kertesz stj. Felicja Blumental og Nýja kammersveitin í Prag leiKa Pianókonsert í D-dúr eftir Leopold Kozeluch; Alberto Zedda stj. Cleveland-hljómsveitin leikur Sin- fóníu nr. 95 í c-moll eftir Joseph Haydn; George Szell stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 Litli bamatíminn. Guðrún "Guðlaugs- dóttir stjórnar tímanum. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fróttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Hver er róttur þinn? Umsjónarmenn þáttarins Eiríkur Tómasson og Jón Steinar Gunnlaugsson iögfræðingar. 20.00 Lög unga fólksin*. Sverrir Sverris- son kynnir. 20.50 Frá ým*um hliöum. Hjálmar Árna- son og Guðmundur Árni Stefánsson sjá um þáttinn. 21.30 Tríó fyrir fiölu, selló og píanó eftir Charles ives. Guðný Guðmundsdóttir, Hafliði Hallgrímsson og Philip Jenkins leika. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusálma (48). 22.25 Kvöldsagan: „Sögukaflar af sjálfum mór" eftir Matthias Jochumsson. Gils Guðmundsson les úr sjálfsævísögu hans og bréfum (16). 22.50 Á hljóðbergi. Moll Flanders eftir Daniel Defoe. Irska leikkonan Sioban McKenna les. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Miðvikudagur 6. apríl 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbnn kl. 7.50. Morgunstund bamanna kl. 8.00: Sigrún Björnsdóttir heldur áfram að lesa „Strák á kú- skinnsskóm" eftir Gest Hannson (5). Tilkynningar kl. 9.30. Þingfráttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða. GuAsmynda- bók kl. 10.25- Séra Gunnar Björnsson les þýðingu sína á predikunum út frá dæmisögum Jesú eftir Helmut Thie- licke: IX Dæmisagan af vínyrkjunum vondu. Morguntónleikar kl. 11.00: Roger Bourdin, Colette Lequien og Annie Challan leika Sónötu fyrir flautu, lágfiðlu og hörpu eftir Claud Debussy / Susanne Danco, Gérard Sousay, franskur kirkjukór og Suisse Romande hljómsveitin flytja Requiem op. 48 eftir Gabriel Fauré; Ernest Ansermet stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. Sjónvarp t>riðjudagur 9 5. apríl 1977 20.00 Fróttir og veAur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Þingmál. Þáttur um störf Alþingis. Umsjónarmaður Haraldur Blöndal. 21.10 Colditr. Bresk-bandarískur fram- haldsmyndaflokkur. Svikarinn. Þýð- andi Jón Thor Haraldsson. 22.00 Utan úr heimi. Þáttur um erlend málefni. Umsjónarmaður Jón Hákon Magnússon. 22.30 Dagskrárlok. BLADID Húsavík Blaðburðarbörn óskast í suðurbæ Upplýsingar ísíma 41644 - Arnað heilla Þann 11. nóv voru gefin saman 1 hjónaband af séra Ragnari F. Lárussyni I Hallgrímskirkju Guðný Jónsdóttir og Hafsteinn Á. Hafsteinsson. Heimili þeirra er að Hátúni 9, Keflavík. Ljós- myndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 29. des. voru gefin saman i hjónaband af séra Magnúsi Guðjónssyni í Fríkirkjunni í Hafnarfirði Margrét B. Árna- döttir og Jón Gunnar Gfslason. Heimili þeirra er að Hamra- borg 8, Kóp. Ljósmyndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 8. jan. voru gefin saman f hjónaband af séra Ragnari Fjalari Lárussyni Sigrún Jóns- dóttir og Hjalti Björnsson. Heimili þeirra er að Túngötu 40, Siglufirði. Ljósmyndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 15. jan. voru gefin saman í hjónaband af séra Guðmundi Ola Ólafssyni í Skálholtskirkju Elínborg Sigurðardóttir og Guðmundur Ingólfsson. Heim- ilid þeirra er að Iðu, Biskups- tungum. Ljósmyndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 30. des. voru gefin saman f hjónaband af séra Tómasi Sveinssyni 1 Háteigskirkju Sigurveig Sigmundsdóttir og Sveinn Guðmundsson. Heimili þeirra er að Hornbrekkuvegi 5, Ólafsfirði. Ljósmyndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 8. jan. voru gefin saman i hjónaband af séra Árna Páls- syni f Kópavogskirkju Hafdfs Jónsdóttir og Halldór Gunnars- son. Heimili þeirra er að Skeiðarvogi 3, Rvfk. Ljós- myndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 19. feb. voru gefin saman f hjónaband af séra Ólafi Skúla- syni Ásta Sverrisdóttir og Stefán ö. Jónsson. Heimili þeirra er í Kolding, Dan- mörku. Ljósmyndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 15. jan. voru gefin saman i hjónaband af séra Árna Páls- syni f Kópavogskirkju Stanis- lawa Krawczk og Jón Björns- son. Ileimili þeirra er að Borgarholtsbraut 29, Kóp. Ljós- myndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.