Dagblaðið - 13.05.1977, Blaðsíða 1
i
i
i
dagUað
3. ARG. — FOSTUDAGUR 13. MAÍ 1977 — 107. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUG’LÝSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSlMI 27022
Gengið aðýms- um sér- kröfum: „Rofartilí samninmm wn” *— segirformaður idnrekenda—en formaður Verka- mannasam- bandsinsekki jafnbjartsýnn
Rofað hefur til í samningun-
um, að sögn Daviðs Scheving
Thorsteinssonar, formanns
Félags islenzkra iðnrekenda, í
morgun. „Gengið hefur verið að
ákaflega mörgum sérkröfum.
Þær eru búnar. Þetta eru
kröfur um leiðréttingar- og hag-
ræðingaratriði og samræmingu,
sem ekki kostar peninga," sagði
Davíð.
,,Þá eru eingöngu eftir þær
kröfur, sem fjalla um kaup, og
ef tekst að fá verkalýðsfélögin
til að fallast á að afgreiða þær
með samræmdum hætti, þá er
langt komið. Mér finnast lík-
urnar fyrir því, að þær verði
afgreiddar með samræmdum
hætti, aukast með hverjum
degi. Nú hafa kjötiðnaðar-
menn, fyrstir faglærðra, bætzt í
þann hóp, sem vill þessa
afgreiðslu," sagði Davíð. Með
samræmdum hætti á hann við
að afgreiða þær til dæmis með
prósenti.
Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Verkamanna-
sambands, var ekki jafnbjart-
sýnn í morgun. Hann taldi það
„litilfjörlegt“, sem atvinnurek-
endur hefðu fallizt á. Þó hefðu
„nokkur atriði skýrzt“. Enn
væri mikið bil óbrúað og
ágreiningur mjög djúpstæður.
Að sögn Davíðs eru þær
kröfur, sem gengið hefur verið
að, eða samið um, til dæmis um
kaffitíma Iðjufólks í nætur-
vinnu og greiðslufyrirkomulag
á tryggingu allan sólarhring-
inn. Þá hefði verið gengið að
6-7 kröfum rafvirkja og ýmsum
kröfum málmiðnaðarmanna.
Samningafundur verður í
dag klukkan fjögur.
Framsókn styður
lúglaunastefnuno
A sameiginlegum fundi
stjórna fulltrúaráðs Fram-
sóknar og Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík í gær var lýst
stuðningi við-yfirlýsingu Ölafs
Jóhannessonar ráðherra um
eitt hundráð þúsund krónur
sem lágmarkslaun verkafólks.
Fundurinn fagnaði samþykkt
SlS, sem gekk í sömu átt.
Norðmaður
skoðar málin hér
Richard Trælnes, fram-
kvæmdastjóri Norræna verka-
lýðssambandsins, kemur
hingað hinn 18. til að kynna sér
ástandið í samningamálum. Á
tveimur síðustu stjórnarfund-
um sambandsins var fjallað sér-
staklega um stöðuna á tslandi.
HH
Trúðar
á Bern-
höfts-
torfu
Þeir sem leið áttu um
miðbæinn í gærdag upp úr
klukkan fjögur ráku að vonum
upp stór augu þegar þeir sáu
nokkra trúða sem frömdu alls>
konar kúnstir við trumbuslátt og
lúðraþyt. Þarna voru komnir
leikarar og hljóðfæraleikarar og
voru þeir að selja aðgöngumiða að
skemmtun svonefnds Slysasjóðs
leikarafélagsins og Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, sem er i kvöld
í Háskólabíói.
DS.
Á þessari mynd, sem Hörður
Vilhjálmsson ljósmyndari DB tók
i gær, sjást tveir trúðanna.
Konan lá á
Hafnar-
fjarðar-
veginum
— og bílstjörinn
uggði ekkiaðsér
Nitján ára gömul reykvisk
kona liggur nú í sjúkrahúsi
mjaðmargrindarbrotin og
með fleiri meiðsli eftir að
bifreið ók yfir hana á
Hafnarfjarðarvegi á móts
við Silfurtún kl. rúmlega
eitt í nótt.
Konan var í annarlegc
ástandi og hafði lagzt á
Hafnarfjarðarveginn. Öku-
maður bifreiðarinnar, sem
að bar, hélt í fyrstu að þarna
lægi einhver pokadrusla og
uggði ekki að sér fyrr en um
seinan, er hann sá að þarna
lá manneskja á götunni. Fór
bifreiðin yfir konuna með
fyrrgreindum afleiðingum.
ASt.
,fÉg hef leikið
alltfrákóngum,
— upp íhórkarla”
— Rúrik á 30 ára
leikafmæli
— sjá bls. 5
Dagblaðið hefur rof ið ein-
okunaraðstöðu Morgun-
blaðsins _ Sjá föstudagskjallara
Vilmundar Gylfasonar á bls. 10 og 11
Helgarkrossgátan
— hana er að f inna á bls. 12 í blaðinu f dag
Dagblaðið kemur ekki út á morgun
vegna eftirvinnubanns prentara
Upplagseftirlit dagblaðanna
að verða að veruleika
— Dagblaðið og Morgunblaðið undirrituðu samning þess
efnis við Verzlunarráð íslands ígær
Dagblaðið og Morgunblaðið
urðu í gær fyrst blaða til að
skrifa undir samning við
Verzlunarráð íslands þess efnis
að ráðið kanni upplagstölur
blaðanna annars vegar og
tekjur hins vegar, sem á að gefa
mjög raunhæfa mynd af út-
breiðslu þeirra. Dagblaðið
skrifaði undir samninginn án
nokkurs fyrirvara.
Verzlunarráðið er að gangast
fyrir þessari könnun vegna
óskar aðila innan þess um það.
Eins og nafn ráðsins gefur til
kynna, er það ráð aðila innan
verzlunarinnar og telja þeir
mikinn feng í því að fá sem
gleggsta mynd af útbreiðslu
blaðanna, m.a. til að gera sér
grein fyrir hagkvæmni
auglýsinga í hinum ýmsu
blöðum.
Fulltrúi Morgunblaðsins
skrifaði undir samninginn með
fyrirvara um samþykki
stjórnar. Dagblaðið fregnaði
það hjá formanni V.I. í morgun,
að hann hefði ekki náð í fleiri
aðila í gær til undirskriftar
samningsins, en honum var
kunnugt um að stjórnarfundir
yrðu haldnir hjá einhverju
blaðanna í dag til að fjalla um
málið. Vonaðist hann til að
undirskriftir hinna blaðanna
lægju fyrir eftir helgi.
-G.S.
A